Dagur - 22.12.1992, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 22. desember 1992 - DAGUR - 11
Vinningstölur
laugardaginn
VINNINGAH I VINNINGSHAFA
1.
2.
3.
135
4.
3.796
UPPHÆÐ Á HVERN
VINNINGSHAFA
2.413.428.-
209.495.-
5.353.-
444,-
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
5.240.497.-
upplýsingar:sImsvari91 -681511 lukkulIna991002
Sigmar Ólafsson og Magnús Þorvaldsson kórfélagar með „Dalurinn minn“.
Mynd: IM
Suður-Þingeyjarsýsla:
Dalurinn minn með
Karlakómum Hreim komin út
Karlakórinn Hreimur hefur
gefið út hljómplötu, geisladi.sk
og hljóðsnældu með fjöl-
breyttu lagavali, en það hefur
einmitt verið aðalsmerki
kórsins. Hreim skipa 45 söng-
menn úr flestum hreppum
Suöur-Þingeyjarsýslu og frá
Húsavík. Stjórnandi er Robert
Faulkner og undirleikari Juliet
Faulkner. Einsöngvarar eru
bræðurnir Baldur og Baldvin
Kr. Baldvinssynir.
Kórfélagar munu aka um sveit-
ir sýslunnar og bjóða plötuna til
sölu, og kórfélagar á Húsavík
selja hana í anddyrum verslana í
bænum. Síðastliðinn laugardag
19. desember hélt kórinn nokk-
urs konar útgáfutónleika í versl-
unarhúsi KÞ.
Karlakórinn Hreimur var
stofnaður 1975 og þetta er þriðja
platan sem kórinn gefur út. Kór-
inn hefur farið í söngferðir um
Norðurland og einnig til Suður-
lands, höfuðborgarsvæðisins og
Austurlands. Kórinn hefur farið í
þrjár söngferðir erlendis, til Fær-
eyja, Noregs og Englands.
Dalurinn minn heitir ný-
útkomna platan og Ingvar Þor-
valdsson gerði myndina sem
prýðir plötuumslagið. Ljósmynd-
ir af kórfélögum tók Pétur Jónas-
son. Plötunni fylgir bók með
söngtextum þeirra 17 laga sem á
henni eru, en þau eru afrakstur
síðustu tveggja ára, úrval úr
söngskrám kórsins. Um klukku-
tíma tekur að flytja lögin. Meðal
þeirra má finna verk sem ekki
hafa áður verið gefin út á íslandi
svo kórfélagar viti til. Má þar
nefna Landsýn eftir Grieg,
Skógarfuglinn eftir Schubert og
Sumarmál eftir Björgvin Þ.
Valdimarsson.
Sigmar Ólafsson, skólastjóri í
Hafralækjarskóla, þar sem kór-
inn hefur æfingaraðstöðu, sagði í
samtali við Dag að þó kórfélagar
hefðu gaman af léttum lögum,
hefðu þeir einnig áhuga á fram-
þróun. Söngstjórinn væri metn-
aðarfullur fyrir hönd kórsins,
hann kynti undir metnaði manna
og gerði kröfur til kórfélaga. Það
væri gaman að karlakórssöng,
hann væri svolítið séríslenskt
fyrirbrigði sem ekki mætti líða
undir lok.
Magnús Þorvaldsson, stjórnar-
maður og kórfélagi frá Húsavík,
sagði að sumir félaganna keyrðu
yfir 100 km til að sækja æfingar.
Kórstarfið væri mörgum mikils
virði og þar gæfist kostur á
skemmtilegum félagsskap. IM
Jolagjafirnar handa
vélsleða- og útilífstólkinu:
Hjálmar m/gerðir ★ Hanskar ★ Lúffur
★ Moon Boots ★ Vatnsþétt kuldastígvél
★ Vélsleðagallar ★ Töskur ★ Brúsar
★ Olíur o.fl. o.fl.
nestín
Bækur
og blöð
framleidd á Islandi
skapa störf í landinu
■ Nú hriktir í stoðum íslensks atvinnulífs,
atvinnuleysi er verulegt og fer vaxandi.
■ Við þurfum að sýna samstöðu og velja
ÍSLENSKA FRAMLEIÐSLU.
■ Bækur og blöð, sem unnin eru á íslandi,
skapa störf í landinu.
íslensk bók
er meira en góð gjöf
VELJUM ISLENSKT!
Félag bókagerðarmanna / Félag íslenska prentiðnaðarins