Dagur - 18.03.1993, Side 7
Fimmtudagur 18. mars 1993 - DAGUR - 7
Eygló Jónsdóttir tekur við gjafabréfí úr hendi Einars Guðmundssonar verslunarstjóra. A innfelidu myndinni er
trúðurinn að draga út nafn vinningshafans. Myndir: GG
Nýársleikur Radionausts:
Fékk nýlega keypta over-
lock saumavél endurgreidda
Verslunin Radionaust á Akur-
eyri hefur á þessu ári boðið
viðskiptavinum sínum til sér-
staks nýjársleiks sem felst í því
að þeir sem kaupa einhverja
þá vöru sem boðin er á sér-
stöku tilboðsverði lenda í sér-
stökum potti sem dregið er úr
og fær þá viðkomandi endur-
greidda þá vöru sem hann
keypti.
Sl. fimmtudag var dregið úr
nöfnum þeirra sem keypt .höfðu
einhverja af þeim vörum sem
verslunin bauð á sérstöku til-
boðsverði, en það voru Philips
myndbandstæki, Huskylock lok-
saumavél (overlock) og Panasonic
sími. Trúður dró út nafn hins
heppna viðskiptavinar, sem
reyndist vera Eygló Jensdóttir,.
Ránargötu 13 á Akureyri, sem
keypt hafi overlock saumavél.
GG
Vegna góðrar aðsóknar verður útsalan
framlengd í nokkra daga
60% afsláttur
Til dæmis kuldagallar á börn
stærðir 8-10-12 verð kr. 4.560,-
Úlpur á börn
stærðir 6-8-10 verð kr. 1.800,-
Komið og geríð góð kaup.
EYFJÖRD
Hjalteyrargötu 4 - Simí 22275
Sýning blaðaljósmyndara
- í anddyri íþróttahallarinnar á Akureyri
í síðustu viku gafst íbúum á
höfuðborgarsvæðinu kostur á að
sjá ljósmyndasýningu Blaða-
mannafélags íslands og Blaða-
ljósmyndarafélags íslands,
Blaðaljósmyndir 1992. Þetta er
þriðja árið í röð sem slík sýning
og samkeppni er haldin og í ann-
Þessi mynd eftir Ragnar Axelsson, Ijósmyndara Morgunblaðsins, var val-
in „Mynd ársins 1992“.
Jazzsöngkonan Magni Wenízel
í Sjallaniun í kvöld kl. 21
í kvöld kemur í heimsókn til
Akureyrar norska jazzsöngkonan
Magni Wentzel og syngur með
Jazztríóinu frá Akureyri sem
skipað er þeim Gunnari Gunn-
arssyni, Árna Katli Friðrikssyni
og Jóni Rafnssyni.
Magni Wentzel hefur sungið
jazz í mörg ár og er að auki lærð-
ur klassískur gítarleikari. Hún
hefur gefið út fimm plötur og
kom sú fyrsta út árið 1969.
Magni Wentzel hefur 'tekið
þátt í mörgum söngleikjum og
tónleikum í Noregi, Bandaríkj-
unum, Englandi og víðar og alls
staðar fengið mikið lof fyrir söng
sinn og leik.
Tónleikarnir í Sjallanum byrja
kl. 21.00.
Samtök um sorg og sorgarviðbrögð:
Fyrirlestur um
áfaUahjálp
Fyrirlestur verður í Safnaðar-
heimili Akureyrarkirkju í
kvöld kl. 20.30 en þar munu
hjúkrunarfræðingarnir Soffía
Jakobsdóttir og Björg Skarp-
héðinsdóttir ræða um áfalla-
hjálp.
Hugtakið áfallahjálp felur í sér
stuðning við hjálparaðila og ein-
staklinga sem taka þátt í skipu-
lögðu hjálparstarfi þegar slys,
náttúruhamfarir eða önnur alvar-
leg áföll ber að höndum og eins
eru sjónarvottar og aðstandendur
hafðir í huga.
Sérstaklega er vænst þátttöku
björgunarsveitarmanna, lög-
reglu, hjúkrunarfólks, sjúkra-
flutninga- og slökkviliðsmanna
en annars eru allir velkomnir.
Fréttatilkynning
sem symngm er emmg
á Akureyri. Það er
að sinn
sett upp
Áhugaljósmyndaklúbbur Akur-
eyrar, sem stendur fyrir því að fá
sýninguna norður í samvinnu við
m.a. Blaðamannafélagið og
Blaðaljósmyndarafélagið.
Sýningin verður í anddyri
íþróttahallarinnar á Akureyri um
helgina, laugardaginn 20. mars
kl. 13-21 og sunnudaginn 21.
mars kl. 13-19. Vakin er athygli á
því að sýningin verður einungis
opin þessa tvo daga. Aðgangs-
eyrir að sýningunni er kr. 200.
Nýsköpun
í smáiðnaði
lönaöarráöuneytið áformar í samstarfi viö Iðntækni-
stofnun (slands, Byggðastofnun og atvinnuráðgjafa
út um land aö veita styrki, þeim sem hyggjast efna til
nýjunga í smáiðnaði eða stofna ný iðnfyrirtæki, eink-
um á landsbyggðinni.
Styrkirnir eru fyrst og fremst ætlaðir til þess að
greiða fyrir tæknilegum undirbúningi, hönnun, stofn-
setningu nýrrar framleiðslu svo og markaðssetn-
ingu. Þeir eru ætlaðir þeim, sem hafa þegar skýrt
mótuð áform um slíka starfsemi og leggja í hana eig-
ið áhættufé.
Umsækjendur snúi sér til iðn- og atvinnuráðgjafa
eða Iðntæknistofnunar íslands, fyrir 23. apríl nk.
LYKUR A MORGUN
FÖ5TUDAG!