Dagur - 14.04.1993, Side 8
8 - DAGUR - Miðvikudagur 14. apríl 1993
ÍÞRÓTTIR
íslandsmótið í handknattleik, 1. deild karla:
Þátttöku Akureyrarliðanna er lokið
- hvorugt liðið komst í úrslitakeppnina en héldu bæði sætum sínum
Akureyrarliðin Þór og KA
hafa lokið þátttöku sinni á
ísiandsmótinu í 1. deild á þess-
um vetri. Hvorugu liðinu tókst
að tryggja sér þátttökurétt í
úrslitakeppninni en bæði halda
sætum sínum í deildinni og
munu því mæta endurnærð til
leiks næsta haust. KA menn
enduðu í 9. sæti með 19 stig og
Þórsarar í því 10. með 15.
Valsmenn urðu deildarmeist-
arar en HK og Fram féllu í 2.
deild.
7 vítaköst forgörðum
Það var ljóst allt frá upphafi í leik
KA og IBV hvert stefndi. KA-
menn virtust ákaflega óöruggir í
öllum sínum aðgerðum meðan
allt gekk upp hjá ÍBV. Það sem
einkum lagði grunnin að 25:20
sigri ÍBV var markvarsla Sigmars
Þrastar Óskarssonar. Hann varði
20 skot í leiknum þar af 6 víta-
köst og að auki fór eitt vítakast
KA-manna í stöng. ÍBV náði 5
marka forystu um miðjan fyrri
hálfleik og hélt henni allt til loka.
Helgi Arason skoraði 5 mörk fyr-
ir KA og Alfreð Gíslason og Jó-
hann Jóhannsson 4.
Þór áfram í 1. deild
Strax á miðvikudagskvöld var
ljóst að Þórsarar mundu halda
sæti sínu í deildinni er þeir unnu
góðan sigur á ÍR 24:21. Leikur-
inn var baráttuleikur og greini-
legt að Þórsarar ætluðu að
tryggja sig í deildinni. Þór komst
í 8:5 en ÍR náði að jafna og hafði
yfir í hálfleik 13:12. Góð mark-
varsla Hermanns í síðari hálfleik
og endasprettur Rúnars, ásamt
góðum leik Ole Nielsen, lagði
grunninn að sigrinum. Sigurpáll
Árni var markahæstur með 7
mörk og Hermann varði 12 skot.
Fjörugt á móti FH
Þórsarar mættu afslappaðir til
leiks í síðustu umferðinni á móti
FH. Baráttan var lengstum meiri
hjá Þór og sérstaklega er vert að
geta frammistöðu hornamann-
anna ungu hjá Þór, Geirs Aðal-
steinssonar og Samúels Árnason-
ar. Þórsarar jöfnuðu 20:20 en FH
var sterkara í lokin og vann
21:24. Hermann átti stórleik í
markinu og varði 17 skot.
Barátta í Hafnarfirði
Leikur Hauka og KA einkennd-
ist af gríðarlegri baráttu allt frá
upphafi. Fyrri hálfleikur var jafn
en Haukar þó ætíð með frum-
kvæðið. Leikurinn var mjög
hraður sem sést best af marka-
skorun en lokatölur urðu 33:29
fyrir Hauka. KA menn léku
grimma vörn en ætíð fundu
Haukar leiðina að markinu á
endanum. Staðan KA var orðin
erfið í upphafi síðari hálfleiks og
þó svo að liðið hafi leikið
skynsamlega þá gekk einfaldlega
allt upp hjá Flaukum. Alfreð var
besti maður KA og markahæstur
með 10 mörk en Jóhann var einn-
ig góður. Markvarslan var afar
slök. SV/HA
Körfubolti, íslandsmót og bikarkeppni yngri flokka:
- er besti árangur félagsins til þessa
Íslandsmeistarar 10. flokks. Efri röð: Kári Marísson þjálfari, Ragnar Magnússon, Gunnar Guðjónsson, Jón B. Sig-
mundsson, Hjörtur Jónsson, Gunnar Búason og Arnar Kárason. Neðri röð: Axel Kárason vatnsberi, Smári Stefáns-
son, Óli Barðdal, Þráinn Björnsson, Björgvin Benediktsson og Þórarinn Eymundsson.
til starfa hjá Tindastóli í haust
eftir nokkurra ára hlé og náðu
strákarnir þessum frábæra ár-
angri undir hans stjórn. Stiga-
hæstir í úrslitakeppninni voru
Guðjón Gunnarsson með 45 stig,
Óli Barðdal 28, Arnar Kárason
28 og Jón Brynjar Sigmundsson
20.
Þetta er besti árangur sem
Tindastóll hefur náð til þessa
enda hefur uppbygging yngri
flokka félagsins verið með mikl-
um ágætum síðustu ár og deildin
haft mjög góða þjálfara. Sam-
kvæmt þessu þurfa menn ekki að
kvíða framtíðinni hjá Tindastóli
og verður gaman að fylgjast með
þróun mála þar á næstu árum.
Dagur vill að endingu þakka
Rögnu Baldursdóttur samstarfið
í vetur en allar upplýsingar um
gengi yngri flokka Tindastóls eru
frá henni komnar.
meistaratitilinn. Úrslitakeppni 7.
flokks á íslandsmótinu var háð í
Njarðvík og þar náðu Tindastóls-
strákar 2. sætinu. Þjálfari liðsins
er Ingvar Ormarsson.
Undanúrslit og úrslit á íslands-
móti 10. flokks karla og unglinga-
flokks kvenna fóru fram 2. og 3.
apríl sl. í undanúrslitum kepptu
stelpurnar við Snæfell og sigruðu
60:24 en munurinn var ekki eins
mikill hjá strákunum þar sem
framlengja þurfti æsispennandi
leik gegn Haukum sem síðan
endaði með sigri Tindastóls
61:58. Þar með voru bæði lið
komin í úrslit.
Úrslitaleikirnir voru báðir háð-
ir við ÍBK. Stelpurnar í Tinda-
stóli sigruðu í jöfnum og spenn-
andi leik þar sem lokatölur urðu
43:37. Stiaghæstar í úrslitakeppni
stelpnanna voru Inga Dóra
Magnúsdóttir með 34 stig, Birna
Valgarðsdóttir 31 og Kristín Elva
Magnúsdóttir 29. Þjálfari
íslands- og bikarmeistara ungl-
ingaflokks kvenna er Páll Kol-
beinsson.
Strákarnir í 10. flokki sigruðu
ÍBK glæsilega 74:54 í stjörnuleik
þar sem strákarnir fóru hreinlega
á kostum og hittu ótrúlega.
Sigurinn var sem fyrr segir fyrsti
íslandsmeistaratitill Tindastóls í
karlaflokki frá 1976 og var því
mjög kærkominn. Þjálfari strák-
anna er Kári Marísson sem kom
Nú er íslandsmóti og bikar-
keppni KKÍ lokið. Tindastóll
frá Sauðárkróki hreppti 3 gull-
verðlaun og 2 silfur í keppni
yngri flokka. Glæsilegasta
árangrinum náði unglinga-
flokkur kvenna sem varð bæði
Islands- og bikarmeistari, en
liðið er nánast það sama og
keppti í 1. deild kvenna í
vetur. Þriðju gullverðlaunin
komu í hlut 10. flokks stráka.
Þetta var fyrsti íslandsmeist-
aratitill karlaliðs Tindastóls frá
1976 og var því kærkominn.
Þann 31. mars héldu unglinga-
flokkur karla og kvenna til Borg-
arness og spiluðu til úrslita í bikar-
kepninni. Aður höfðu Tinda-
stólsstrákarnir lagt UBK og
Grindavfk að velli. Úrslitaleikur-
inn var gegn KR og höfðu KR-
ingar betur 75:62 og hlutu þar
með gullið en Tindastóll silfrið.
Þjálfari liðsins er Valur Ingi-
mundarson. Stelpurnar kepptu
við UMFG í úrslitum og höfðu
þá áður lagt KR og ÍBK að velli.
Tindastólsstelpur sigruðu örugg-
lega 53:25 og hlutu því bikar-
Islands og bikarmeistarar unglingaflokks kvenna. Efri röð: Eygló Agnarsdóttir, Bryndís Jónasdóttir, Heba Guð-
mundsdóttir, Ásta M. Benediktsdóttir, Valgerður Erlingsdóttir og Páll Kolbeinsson þjálfari. Neðri röð: Birna Val-
garðsdóttir, Elísabet Stefánsdóttir, Kristjana Jónsdóttir, Krístín Magnúsdóttir fyrirliði og Heba Agnarsdóttir.
Tindastóll krækti í 3 titla
Erlingur Kristjánsson og Finnur Jóhannsson munu
ekki leika meira á þessum vetri.
Úrslit - Staðan
Handbolti, 1. deild
Úrslit í 21. umferð
FH-IIK 28-22
ÍR-Þór 21»24
Haukar-Stjarnan 22:25
Fram-Selfoss 18:22
Valur-Víkingur 25:23
KA-ÍBV 20:25
Úrslit í 22. umferð
Þór-FH 21t24
HK-Fram 26:33
Selfoss-Víkingur 30:26
Haukar-KA 33:29
Valur Stjarnan 29:17
ÍBV-ÍR 23:23
Lokastaðan
Valur 22 13-6- 3 533:468 32
FH 22 15-2- 5 576:529 32
Stjarnan 22 13-4- 5 532:514 30
Haukar „22 12-1- 9 589:540 25
Selfoss 22 11-3- 8 562:544 25
ÍR 22 8-5- 9 520:525 21
Víkingur 22 10-1-11 521:531 21
ÍBV 22 8-4-10 516:536 20
KA 22 8-3-11514:529 19
Þór 22 6-3-13 520:566 15
Fram 22 5-3-14 525:558 13
HK 22 4-3-15 512:580 11
Markahæstir:
Sigurður Sveinsson, Selfossi 172/61
Petr Baumruk, Haukum 154/54
Michal Tonar, HK 150/29
- þýska knattspyrnan
Schalke-Leverkusen 2:1
Uerdingen-Núrnberg 2:1
Kaiserslautern-Stuttgart 0:0
Dresden-Saarbrúcken 0:0
Köln-Mönchengladbach 1:2
HSV-Wattenscheid 1:1
Bochum-Karlsruhe 2:2
Frankfurt-Bremen 3:0
Bayern Múnchen-Dortmund 2:0
Bayern Múnchen 25 14- 8- 3 48:27 36
Bremen 25 13- 8- 4 40:23 34
Frankfurt 25 12- 9- 4 44:28 33
Dortmund 25 13- 5- 7 44:31 31
Leverkusen 25 9-11- 5 49:32 29
Karlsruhe 25 10- 8- 7 45:43 28
Mönchengladbach 25 9- 8- 8 43:42 26
Schalke 25 8- 9- 8 27:31 25
Kaiserslautern 25 9- 6-10 36:28 24
Stuttgart 25 7-10- 8 34:36 24
HSV 25 5-13- 7 32:30 23
Saarbrúcken 25 5-13- 7 35:40 23
Núrnberg 25 9- 4-12 23:36 22
Dresden 25 6- 9-10 28:38 21
Wattenscheid 25 7- 7-11 33:45 21
Köln 25 8- 1-16 32:45 17
Uerdingen 25 5- 7-13 25:51 17
Bochum 25 4- 8-13 31:42 16