Dagur - 07.05.1993, Blaðsíða 1
Könnun á atvinnuhorfum skólafólks
á Akureyri:
Færri með trygga vinnu
en á sama tíma í fyrra
Nokkru færri nemendur í Verk-
menntaskólanum og Mennta-
skólanum á Akureyri höfðu
tryggt sér sumarvinnu í lok síð-
asta mánaðar en á sama tíma í
fyrra. Þetta kemur fram í könn-
un sem Hermann Oskarsson, fé-
lagsfræðingur, gerði á „atvinnu-
horfum framhaldsskólancm-
enda og nemenda tíundabekkj-
Leikfélag Akureyrar:
Ekkert lát
á vmsældum
Leðurblök-
unnar
- 3700 áhorfendur að
loknum 17 sýningum
Um 3700 áhorfendur hafa kom-
ið á 17 sýningar á Leðurblök-
unni hjá Leikfélagi Akureyrar
og er ekkert lát á vinsældum
þessarar skemmtilegu óperettu.
Sætanýting í húsinu er líka
mjög góð, um 90%, og uppselt
á flestar sýningar til þessa.
Viðar Eggertsson, leikhússtjóri
LA, sagði að þótt sætanýtingin
væri góö hefði hún getað verið
enn betri. Iðulega panta stórir
hópar miða á sýninguna en það
vill brenna við aó á síðustu stundu
heltist einhverjir úr lestinni og er
þá óhægt um vik að selja í laus
sæti ef fyrirvarinn er nánast eng-
inn.
Miðapantanir halda áfram að
streyma inn og forsvarsmenn
Leikfélags Akureyrar búast við að
sýna Leðurblökuna fram undir
miðjan júní ef fram heldur sem
horfir.
Viðar sagði að leikfélagsfólkið
væri ákaflega stolt yfir þessari
vclgengni og hann sagði að það
hefði verið mjög gaman að koma
noróur og taka við leikhúsi sem
gengur fyrir fullu húsi. SS
ar a
fyrir
eyrar.
Akureyri sumarið 1993“
atvinnumálanefnd Akur-
I samskonar könnun sem at-
vinnumálanefnd stóð fyrir 27.-30.
apríl 1992 höfðu 76,3% nemenda
MA og VMA tryggt sér sumar-
vinnu. Samkvæmt niðurstöðum
samskonar könnunar, sem fram-
kvæmd var 16.-28. apríl sl., höfóu
67% nemenda þessara tveggja
skóla tryggt sér sumarvinnu.
I könnuninni í ár voru atvinnu-
horfur nemenda í 10. bekkjum
Gagnfræðaskólans, Glerárskóla og
Síðuskóla kannaðar. í ljós kom að
35% nemenda 10. bekkjar Gagn-
fræðaskólans höfðu trygga vinnu,
31,9% nemenda í 10. bekk Glerár-
skóla og 34,6% nemenda í 10.
bekk Síðuskóla.
Samtals tóku 1175 nemendur í
VMA, MA og grunnskólunum
þrem þátt í könnuninni, þar af 548
piltar og 627 stúlkur. I Ijós kom
að hlutfall pilta og stúlkna með
trygga sumaratvinnu reyndist
mjög svipað, 62,2% pilta og
61,9% stúlkna.
Hlutfallslega flestir piltar hafa
fengið byggingarvinnu, eða tæp
16%. Síðan kemur flokkurinn
„annað“ með 15,1% og „annar
iðnaður“ með 12,4%. Allt annað
er uppi á teningnum hjá stúlkun-
um. 26,7% þeirra hafa fengið
vinnu við afgreiðslustörf og 19% í
fiskvinnslu. óþh
Mynd: IM
Engin ákvörðun um framtíðar-
nýtingu húsnæðis Sólborgar
- gert ráð fyrir að 10-12 einstaklingar á
Sólborg flytji á sambýli á þessu ári
Hið opinbera hefur ekki tekið
ákvörðun um framtíðarnýtingu
húsnæðis Vistheimilisins Sól-
borgar á Akureyri, en þroska-
heft fólk sem þar hefur búið er
smám saman að flytjast út á
íslenskur skinnaiðnaður hf.:
Horfur á 70 milljón
króna lægri tekjum
vegna gengismála
„Vinna við endurskipulagningu
og hagræðingu á helstu rekstr-
arþáttum fyrirtækisins er í full-
um gangi, en ljóst er að vinna
þarf ákveðna hluti bæði meira
og betur. Eg get ekkert um það
Slökkviliðsmenn neita að
vnina
Landssamband slökkviliðs-
manna, sem hingað til hefur
verið fagfélag slökkviliðs-
manna víðs vegar um land,
hefur farið fram á það við
Launanefnd sveitarfélaga að
það verði viðurkennt sem
stéttarfélag en fengið afdrátt-
arlaust afsvar frá viðsemjend-
um.
Við ráðningu slökkviliðs-
manns cr iðnaðarmenntunar eða
sambærilegrar mcnntunar kraf-
ist og þcss einnig getið í starfs-
lýsingu hvers og eins, en að
þeirra mati í engu virt þegar um
röðun í launaflokka er aó ræða.
Vegna fyrmefnds afsvars hat'a
allir slökkviliðsmenn ákveðið
að leggja nióur alla iðnaðar-
mannavinnu til að lcggja
áherslu á kröfur um að Lands-
sambandið verði virt sem stétt-
arfélag. Undir iónaóarmanna-
vinnu getur t.d. fallið viðhald á
tækjum og nýsmíði alls konar.
Slökkviliðsmenn á Akureyri eru
þátttakendur í þessum aðgcrð-
um og hófust þeirra aógeróir
strax í gær. GG
sagt hvenær þeirri vinnu lýkur
en vonandi verður það þó fljót-
lega,“ sagði Bjarni Jónasson,
framkvæmdastjóri Islensks
skinnaiðnaðar hf.
Miðað við óbreytt gengi á
gjaldmiðlum helstu viöskiptalanda
Islensks skinnaiðnaðar hf. og
svipaða þróun og hefur verið á
síðustu misserum og sl. ári þá má
búst við 60 til 70 milljón króna
lægri tekjum miðað við síðasta ár.
Um 80% af viðskiptum fyrirtækis-
ins hafa verið í ítölskum lírum og
enskum pundum, en frá því í maí-
mánuði 1992 hefur gengi lírunnar
lækkað um 10,6% en gengi
pundsins um 7,2%. Þess ber þó að
geta aö á síðustu 12 mánuðum
hefur gengishrapið stundum verið
meira. Vegna töluverðs samdráttar
í sölu til stærstu viðskiptalanda
fyrirtækisins var nokkrum hópi
starfsfólks, aðallega kvöldvaktar-
fólki, sagt upp störfum og taka
flestar uppsagnimar gildi við upp-
haf sumarfría hjá fyrirtækinu, þ.e.
10. júlí nk. Á sl. ári voru 193 árs-
verk hjá Islenskum skinnaiðnaði
hf. GG
sambýli á Norðurlandi. Nú búa
29 manns á Sólborg, en flestir
voru íbúar þar á bilinu 60-70.
Á þessu ári er búist við að 10-12
einstaklingar á Sólborg flytjist á
sambýli á Ilúsavík og Blöndu-
ósi, en beðið er eftir formlegu
grænu Ijósi frá félagsmálaráðu-
neytinu á þessi tvö nýju sam-
býli.
Á árunum 1991 og 1992 fluttu
15 einstaklingar af Sólborg út á
sambýli og jafnframt losnaði rými
á Sólborg. Bjami Kristjánsson,
framkvæmdastjóri Svæðisskrif-
stofu um málefni fatlaðra á Norð-
urlandi eystra, segir að húsnæði
Sólborgar sé fullnýtt eins og er.
„Þarna kom inn dagvist og
skammtímaþjónusta, sem var á
hrakhólum áður. Einnig er þarna
ný þjónusta, sem er deild fyrir
þroskaheft fólk með alvarlegar at-
ferlistruflanir. Það liggur ekkert
fyrir um hversu lengi þessi þjón-
usta verði í þessu húsnæði. Eg
geri ráð fyrir því að áfram verði
þörf fyrir þjónustu af þessum
toga, en ekki er ljóst hvort hún
verður í þessu húsnæði til fram-
búðar eða annars staðar,“ sagði
Bjami.
Af hálfu hins opinbera hefur
engin ákvöróun verið tekin um
framtíðamýtingu Sólborgar, en
ýmsar hugmyndir hafa verið
nefndar af heimamönnum. Meðal
annars hefur verið nefnt að nýta
húsin fyrir ferðaþjónustu í ein-
hverri mynd og sú hugmynd hefur
einnig komið upp að nýta þau fyr-
ir leikskóla. Margt er talið koma
til greina í þessu sambandi. Um
það eru Bjami Kristjánsson og
Sigrún Sveinbjömsdóttir, for-
stöðumaður Sólborgar, sammála.
Til greina kemur að ríkið, sem
á húsin á Sólborg, selji eða leigi
þau. Um það hefur þó engin
ákvöróun verið tekin, en Sigrún
Sveinbjömsdóttir telur tímabært
að hið opinbera fari að velta
framtíðamýtingu húsanna fyrir sér
í fullri alvöru. Af hálfu Svæðis-
skrifstofu um málefni fatlaðra hef-
ur sú stefna verið mörkuð að allir
einstaklingar á Sólborg flytji út á
sambýli, en fjárveitingar af hendi
ríkisvaldsins ráða væntanlega
hraða þeirra breytinga. óþh
Akureyri:
Bflvelta og hraðakstur
Ungur ökumaður velti bifreið
sinni á efri leiðinni í Kjarna-
skóg, við afleggjarann að Hömr-
um í gærmorgun. Skemmdir
urðu á bifreiðinni en ekki er tal-
ið að nein teljandi meiðsl hafi
orðið á mönnum.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglunnar á Akureyri mun öku-
maðurinn hafa misst vald á bif-
reiðinni í lausamöl en þama er um
ómalbikaðan vegarkafla að ræða.
Engar beygjur eru í nágrenni við
veltustaðinn svo talið er að hraður
sé orsök veltunnar. Einn
var í bifreiðinni ásamt
akstur
farþegi
ökumanni og vom báðir fluttir á
slysadeild til athugunar en talið er
að ekki sé um nein alvarleg
meiðsl að ræða. Þá var einn öku-
maður stöðvaður fyrir of hraðan
akstur á leiðinni frá Akureyrar-
flugvelli að miðbæ, svonefndri
Drottningarbraut. Reyndist hann
vera á 125 kílómetra hraða en
þama er 70 kílómetra hámarks-
hraði. Okumaðurinn var þegar
sviptur ökuleyfi. ÞI