Dagur - 11.05.1993, Blaðsíða 1
Héraðsdómur Reykjavíkur:
Akureyri, þriðjudagur 11. maí 1993
76. árg.
HERRADEILD
Gránufélagsgötu 4
Akureyri • Sfmi 23599^
Pétur Sigurðsson, formaður Atvinnuleysistryggingasjóðs, í ræðustól. Við borðið sitja f.v.: Sigríður Stefánsdóttir,
forseti bæjarstjórnar Akureyrar, Vilhjáimur Þ. Viihjálmsson, formaður Sambands íslenskra sveitarféiaga, Drífa
Sigfúsdóttir, bæjarfulltrúi úr Keilavík, og Kristján Júlíusson, bæjarstjóri á Dalvík. Mynd: Robyn
Tíu ára fangelsi fyrir
nauðganir og fleiri brot
Maðurinn sem nauðgaði konu á
Akureyri í júlí á síðasta ári,
ógnaði henni með hnífi og hót-
aði að gera börnum hennar
mein hefur verið dæmdur í 10
ára fangelsi í Héraðsdómi
Reykjavíkur.
Umræddur maður, Björgvin
Þór Ríkharðsson, var dæmdur fyr-
ir tvær nauðganir, líkamsárás,
vopnað rán og fleiri glæpi. Þetta
er þyngsti refsidómur í sakamáli
hér á landi að manndrápsmálum
frátöldum.
Sem kunnugt er neitaði Björg-
vin Þór að hafa nauðgað konunni
á Akureyri en með DNA-rann-
sókn tókst að sanna að hann hefói
framið glæpinn og með hliðstæðri
rannsókn hafði annar maður verið
Ráðstefna sveitarstjórnarmanna um atvinnuleysisvandann:
Tekjur atvmnuleysistrygginga-
sjóðs hrökkva ekki lengur til
- fímm hundruð milljónir til atvinnuskapandi verkefna í ár
Sveitarfélögin í landinu eiga allt
frumkvæði þess að lögum um
Atvinnuleysistryggingasjóð var
breytt og honum veitt heimild til
þess að ráðstafa 500 milljónum
króna til atvinnuskapandi verk-
efna. Sá vandi er skapast hcfur
vegna minnkandi atvinnumögu-
leika er þegar orðinn of viða-
mikill til að einstök sveitarfélög,
hvert fyrir sig, geti tekist á við
hann og því nauðsynlegt að
grípa til sameiginlegra aðgerða.
Þetta kom meðal annars fram í
setningarræðu Vilhjálms Þ. Vil-
hjálmssonar, formanns Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga, á
ráðstefnu samtakanna um áhrif
atvinnuleysis og sérstakar að-
gerðir sveitarfélaga, sem haldin
var á Akureyri í gær.
Varðandi áframhaldandi að-
gerðir sagði Vilhjálmur að ekki
nægði að efna til tímabundinna at-
vinnuskapandi verkefna heldur
yrði einnig að vinna aó varanleg^
um brcytingum í atvinnumálum. I
því sambandi þyrfti að efia þekk-
ingu þjóðarinnar og auka úr-
vinnslu þeirra afurða sem við
framleiðum í landinu. Einkum
þyrfti að leita leióa til að fullvinna
fleiri framleiösluafurðir cn nú er
gert. Hann sagði aö hið mikla at-
vinnuleysi hér á landi væri ein-
hver sá mesti bölvaldur sem þjóð-
in byggi við.
Sigríður Stefánsdóttir, forseti
bæjarstjómar Akureyrar, sagði
nauðsynlegt aó vinna þau verkefni
til atvinnusköpunar, sem sveitar-
félögin stæðu fyrir, í sem nánustu
samstarfi við atvinnufyrirtækin á
hinum almenna vinnumarkaði.
Vegagerð ríkisins:
Tilboð opnuð í 4 verk
á Norðurlandi vestra
í gær voru opnuö tilboö í fjögur
verk í umdæmi Vegagerðar rík-
isins á Sauðárkróki. I fyrsta
lagi Ilólaveg í Hjaltadal, í öðru
lagi klæðingar á Norðurlandi
vestra, í þriðja lagi efnisvinnslu
á Norðurlandi vestra og í fjórða
lagi lagningu ræsis í Grjótá á
Öxnadalsheiði.
Framkvæmdum við Iagningu
3,4 km kafla á Hólavegi skal lokið
.1, ágúst nk. Lægsta tilboðið átti
G. Hjálmarsson á Akureyri, 12,67
milljónir króna, 66% af kostnað-
aráætlun. Fimm tilboð bárust.
Efnisvinnslu á Norðurlandi
vestra skal lokið 1. júní 1994. Um
er aó ræóa 60 þúsund rúmmetra.
Arnarfcll hf. Akureyri og Króks-
verk hf. á Sauóárkróki áttu lægstu
tilboðin, bæði rétt rúmlega 62
milljónir króna, eða 98,4% af
kostnaóaráætlun. Fjögur tilboð
bárust.
Klæðingum á Noróurlandi ves-
tra skal lokið 15. september nk.
Um er að ræða nýlagnir, 100 þús-
und fermetra, og yfirlagnir, 220
þúsund fermctra. Tvö tilboð bár-
ust og átti Borgarverk hf. lægra
tilboðið, 34,4 milljónir króna,
78,1% af kostnaðaráætlun. Hitt
tilboðið kom frá Klæðingu hf. í
Garðabæ, 36,5 milljónir króna,
82,7% af kostnaðaráætlun.
Að síóustu voru í gær opnuð
tilboð í ræsisgerð í Grjótá á Öxna-
dalsheiði, en því verki á að vera
lokið 1. júlí nk. Átta tilboð bárust
og átti G. Hjálmarsson á Akureyri
lægsta tilboðið, 1,43 milljónir
króna, 72,5% af kostnaðaráætlun.
óþh
Akveðið var að sveitarfélögin
myndu verja 500 milljónum
króna, lögregluskattinum ill-
ræmda, til atvinnuskapandi verk-
efna í gegnum Atvinnuleysis-
tryggingasjóð. Þessi fjárveiting
sveitarfélaganna til sameiginlegra
verkefna er aóeins fyrirhuguó nú í
ár og ræddi Sigríður Stcfánsdóttir
meðal annars um hvaó taki við í
þessum efnum á næsta ári og lagði
áherslu á þátt stjómvalda í því
efni.
Pétur Sigurósson, formaður Al-
þýóusambands Vestfjarða og for-
maóur Atvinnuleysistrygginga-
sjóös, sagði að atvinnuleysisvand-
inn væri nú orðinn stærri heldur
en sjóðurinn ráði við. Tekjur
sjóösins hrökkvi ekki lengur fyrir
útgjöldum og ekki annað fram-
undan en að ganga á höfuðstól
hans, sem ekki muni duga lengi
komi engar fjárveitingar til. Því
verði stjórnvöld að veita auknu
fjármagni til greiðslu atvinnuleys-
isbóta. Pétur benti einnig á að
grei^slur atvinnuleysisbóta og
framlög til átaksverkefna væru
eingöngu bráðabirgðalausnir -
lausnir brýnasta vandans - en að
sjálfsögðu þyrfti að snúa sér að
því af fullum krafti að uppræta at-
vinnuleysið. Pétur benti á að fjár-
festingarsjóðir atvinnulífsins væru
vanbúnir að fást við þann vanda
sem nú væri fyrir hendi og sagói
að Iónlánasjóður hefði aðeins 30
milljónir til ráðstöfunar vegna
nýrra verkefna í atvinnulífinu. ÞI
hreinsaður af grun.
Þá var maðurinn dæmdur til að
greiða konunni á Akureyri 1,5
milljónir króna í skaða- og
miskabætur. SS
Akureyri:
Fjórtán ára
stúlka kærði
nauðgun
Aðfaranótt sunnudags kærði 14
ára gömul sfúlka á Akureyri tví-
tugan mann fyrir nauðgun.
Maðurinn neitar sakargiftum og
er rannsókn málsins vel á veg
komin.
Aó sögn Gunnars Jóhannsson-
ar, rannsóknarlögreglufulltrúa, eru
málsatvik þau að stúlkan hitti
manninn í miðbæ Akureyrar og
fór heim með honum þar sem hún
segir að hann hafi komið fram
vilja sínum gegn hennar sam-
þykki. Maðurinn segir hins vegar
aö meintur atburður hafi átt sér
stað með hennar vitund og vilja.
Gunnar sagði að ekkert benti til
ofbeldisverknaðar og rannsókn
málsins væri Iangt komin. SS
Glæfraleg ökuferð á Dalvík:
Bifreiðin stöðvaðist
gjörónýt í húsagarði
Um klukkan 8 á sunnudags-
morguninn fékk lögreglan á
Dalvík tilkynningu um glæfra-
akstur í bænum sem endaði
inni í húsagarði. Ökumaðurinn
var fluttur á sjúkrahús til að-
hlynningar og er hann grunaður
um ölvun og of hraðan akstur.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni á Dalvík var bifreið
ekið á mikilli ferð suður Hafnar-
braut þegar ökumaðurinn missti
skyndilega stjórn á farartækinu.
Bíllinn lenti á brunahana og út af
veginum, inn í garð við Hafnar-
braut 21, skall þar á íbúðarhúsinu
og fór áfram inn á lóðina þar til
hann stöðvaðist. Bíllinn fór að
minnsta kosti eina veltu en stöðv-
aðist á hjólunum. Hann er talinn
gjörónýtur. Auk þess urðu
skemmdir á brunahananum, hús-
inu og garóinum.
Lögreglan segir að ökumaður-
inn hafi ekki verið í bílbelti og
Akureyri:
Þrennt á slysadeild
Um hádegisbilið í gær varð
harður árekstur á mótum Gler-
árgötu og Strandgötu á Akur-
eyri. Fólksbifreið var ekið norð-
ur Glerárgötu og lenti í hlið
sendibíls á gatnamótunum og
valt sendibíllinn við árekstur-
inn.
Samkvæmt upplýsingum frá
slökkviliðinu á Akureyri var
þrennt flutt á slysadeild með
sjúkrabifreið en ekki var talið að
fólkiö hefði meiðst alvarlega.
Bílamir eru mikið skemmdir.
Ökumenn beggja bílanna telja sig
hafa ekið móti grænu ljósi og eru
málsatvik í rannsókn hjá lögregl-
unni á Akureyri. SS
megi prísa sig sælan yfir því að
hafa ckki slasast meira. Ökumað-
urinn missti meðvitund og það
blæddi úr andliti hans en meiðslin
munu vera minni en talið var í
fyrstu.
Af öórum lögreglumálum á
Dalvík um helgina má nefna að
þremur hjólkoppum var stolið af
bíl og hann rispaður og óskar lög-
reglan eftir hugsanlegum vitnum
að þessum atburði. SS
#Sauðárkrókur:
Ölvaður og
réttindalaus
á stolnum bfl
Bíl var stolið á Sauðárkróki að-
faranótt laugardags. Þjófurinn
reyndist ölvaður og réttinda-
laus að auki og hafði lögreglan
hendur í hári hans.
Lögreglan á Sauðárkróki tók
sex ökumenn fyrir of hraðan akst-
ur um helgina og voru flestir
þeirra á ferð innanbæjar, töluvert
yfir leyfilegum hámarkshraða.
Þá voru þrír ökumenn stöðvað-
ir vegna gruns um ölvun við akst-
ur og að sögn lögreglu var tölu-
verð ölvun í bænum eins og oft á
vorin þegar hlýtt er í veðri og
galsi hleypur í mannskapinn.
Galsinn snerist þó stundum upp í
andhverfu sína þegar líða tók á
nótt. SS