Dagur - 11.05.1993, Blaðsíða 2

Dagur - 11.05.1993, Blaðsíða 2
Fréttir Aðeins 36% af heildarrækjukvótanum verið veiddur: Rækjuframleiðendur hafa áhyggjur af þátttöku bankakerfisins í rekstri gjaldþrota rækjuverksmiðja Aðalfundur Rækju- og hörpu- diskframleiðenda var haldinn á Akureyri sl. laugardag, en á sl. ári var skrifstofan flutt frá Reykavík til Akureyrar. Hagn- aður varð af rekstri hennar að upphæð 224 þúsund krónur. Sl. ár var mesta aflaár á rækju frá upphafi rækjuveiða við ísland, en alls veiddust 46.200 tonn af rækju og veiddist 83,8% af henni á djúpslóð eða 38.735 tonn en 16,2% á grunnslóð eða 7.465 tonn. Á undanförnum ár- um hefur sífellt meira af heild- arrækjuaflanum fengist á djúp- slóð, en árið 1985 veiddust 24 GLERÁRGÖTU 36 SiMI 11500 A söluskrá: *- Litlahlíð: Mjög gott 5 herb. raöhús á tveim- ur hæöum um 129 fm. Áhvílandi húsn.lán um 4.0 millj. Laust eftir samkomulagi. * Höfðahlíð: 5 herb. efri hæö í tvíbýli um 140 fm. Skipti á minni eign hugsanleg. + Hjallalundur: Mjög falleg 3ja herb. íbúö á 4. hæö um 93 fm. Bílgeymsla. Áhvílandi húsn.lán um 3.5 millj. Laus eftlr samkomulagi. * Höfðahlíð: 5 herb. neðri hæö í þríbýli tæpl. 120 fm. Eignin er i ágætu lagi. Laus eftir samkomulagi. * Arnarsíða: 4ra-5 herb. endaraöhús á pöllum ásamt bílskúr samtals tæpl. 150 fm. Skipti á Iftilli íbúö á Brekk- unni hugsanleg. * Ránargata: 4ra herb. neðri hæð i tvíbýli um 128fm. (ágætu lagi. Laus 1. júlf. MSTBGNA& M skhwsauSsI NOROURLANDS11 Glerárgötu 36, sími 11500 Opið virka daga frá kl. 9.30-11.30 og 13-17. Sölustjóri: Pétur Jósefsson Lögmaður: Æ* Benedikt Ólafsson hdl. þúsund tonn af rækju og var hlutur afla þá á djúpslóð 69,2% en síðan hefur sóknin nærri tvöfaldast. Á Norðurlandi eystra voru starfandi 4 verk- smiðjur á sl. ári og 6 á Norður- landi vestra af alls 25 á landinu öllu en til norðlensku verk- smiðjanna barst 61% af heild- araflanum. I skýrslu formanns, Halldórs Jónssonar framkvæmdastjóra Rit- urs hf. á Isafirði, kom fram að leyft hefur verið að veiða 40 þús- und tonn af úthafsrækju og 7.300 tonn af innfjarðarrækju auk þess sem 6.200 tonn af úthafsrækju voru flutt af síðasta kvótaári og náist sá afli verður enn eitt metió slegið í rækjuveiðum hérlendis. Búiö er að veiða um 19.600 tonn af úthafsrækju fyrstu átta mánuði yfirstandandi kvótaárs svo frekar litlar líkur eru á því að heildar- kvótinn náist miðað við veiði á sumarmánuðunum í fyrra og því ljóst að það kvótaverð sem menn eru að greiða í dag er ekki í nein- um tengslum við raunveruleik- ann, en það er frá 20 og niður í 16 Frá aðalfundi Félags rækju- og hörpudiskframleiðenda sem haldinn var á Akureyri sl. laugardag. Myndin go krónur og ljóst að miðað við það verð sem fæst á rækju á erlendum mörkuðum getur það ekki gengið til langframa. Á árinu 1992 voru veidd um 12.500 tonn af hörpu- diski og er það 2.500 tonna meiri veiði en á árinu 1991. Heildarverðmæti framleiddrar rækjuafurða á árinu 1992 var um 7,7 milljarðar króna, sem er um 12,5% aukning frá árinu 1991. Rækjuafurðir voru á síðasta ári 10,8% af heildarútflutningi sjávar- afurða. Vægi rækju hefur sífellt verið að aukast í útflutningi sjáv- arafurða á síðustu árum og er nú svo komið að aðeins þorskurinn hefur meira vægi einstakra teg- unda. Á sl.ári voru flutt út 1.174 tonn af hörpudiski fyrir um 695,6 milljónir króna. Rækjuiðnaðurinn hefur alla tíð haft mikla sérstöðu innan íslensks sjávarútvegs hvað varðar eignarhald á útgerð, þ.e. þau skip sem fengu úthlutað rækjukvóta á sínum tíma voru ekki endilega tengd rækjuvinnslu og hefur rækjuiðnaðurinn alla tíð orðið að kaupa megnið af rækju- kvótanum til sín ár frá ári til þess að fá hann veiddan. Dæmi eru þess í rækjuiðnaðin- um aó framleiðendur hafi hunsað upprunareglur og þar með öðlast tollfríðindi. Starfsmenn Evrópu- bandalagsins hafa á undanfömum mánuðum verið að skoða þau mál og hefur heyrst að EB muni gera Fjallalamb á Kópaskeri: Hagnaður á síðasta ári sporna verður við framhjásölu, segir í ályktun aðalfundarins Hagnaður af rekstri Fjallalambs á Kópaskeri varð tæpar tvær milljónir króna og eru það veru- leg umskipti frá árinu á undan því þá nam rekstrartap fyrir- tækisins allt að sjö milljónum króna. Velta Fjallalambs var um 292 milljónir króna, sem er sambærileg tala við veltu ársins 1992. Aö sögn Garðars Eggertssonar, framkvæmdastjóra Fjallalambs, má einkum þakka þessa bættu rekstrarafkomu að tekist hefur að draga úr tilkostnaði við ýmsa þætti starfseminnar. Þá hafi bænd- ur aó stórum hluta fjármagnað birgðir fyrirtækisins, sem leitt hafi til þess að minna hafi þurt að taka af afurðalánum. Fjallalamb annast sölu afurða sinna án milligöngu umboðsaðila. Eignir fyrirtækisins voru um síðustu áramót metnar á eitt hundrað og sjötíu milljónir króna, en skuldir voru um eitt hundrað og fjörutíu milljónir. Þannig var eigið fé fyrirtækisins jákvætt um allt að 30 milljónir króna í lok síðasta árs. Hlutafé Fjallalambs er nú tuttugu og fimm milljónir króna og eru aðeins rúm- ar tvær milljónir þess óseldar í Styrktarfélag vangefinna Norðurlandi Aðalfundur félagsins verður haldinn að Iðju- lundi, fimmtudaginn 13. maí ki. 20.00. 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. Stjórnin. dag. Rekstur Fjallalambs er tvíþætt- ur. Annars vegar annast fyrirtækið rekstur sláturhúss en hins vegar rekstur kjötvinnslu. Velta slátur- hússins nam allt að 220 milljónum króna en velta kjötvinnslunar var um 72 milljónir. Um 15 til 20 manns starfa að staðaldri hjá fyrir- tækinu við kjötvinnsluna en í slát- urtíðinni fjölgar starfsfólki veru- lega. Miklar umræður uröu um markaðsmál landbúnaðarins á að- alfundi Fjallalambs, sem haldinn var að Svalbarði í Þistilfirði. Á fundinum var samþykkt ályktun þar sem því var beint til stjóm- valda að geróar verði róttækar ráðstafanir til að stemma stigu við framhjásölu kindakjöts. í ályktun- inni segir að ljóst sé að heima- slátrun og framhjásala á kinda- kjöti sé þaó mikil að kjötsala inn- an greiðslumarks bænda hafi dregist verulega saman. Vegna niðurfærslu greiðslumarksins á síðastliðnu hausti sé mikil hætta á að framhjásala aukist enn og því Hætta! brýnt að tekið verði markvissara á þessum málum en verið hefur. ÞI Halldór Jónsson. kröfur um endurgreiðslu að upp- hæð 250 milljónir króna. Ljóst er að það sem gerst hefur mun hafa truflandi áhrif á öll viðskipti ís- lendinga við Evrópubandalagiö. Á fundinum voru samþykktar eftirfarandi tillögur: „Aðalfundur Félags rækju- og hörpudiskfram- leiðenda haldinn á Akureyri 8. maí 1993 tekur undir tillögur tví- höfðanefndar um að heimilt sé að skrá kvóta á fiskvinnslustöðvar. Fundurinn telur að meó því fáist eðlilegra jafnvægi á milli veiða og vinnslu en verið hefur undanfar- ið.“ „Aðalfundurinn vill vekja at- hygli á auknu vægi rækjuvinnslu í íslenskum sjávarútvegi. Nú er svo komið að eingöngu þorskurinn af okkar nytjastofnum skilar meiri verómætum til þjóðarbúsins en rækja. I því ljósi skorar fundurinn á Hafrannsóknastofnun og Rann- sóknastofnun fiskiönaðarins að leggja meiri áherslu en nú er gert á haf- og veiðarfæra- og vinnslu- rannsóknir í þágu rækjuveiða og rækjuvinnslu.“ „Aðalfundurinn lýsir áhyggjum sínum yfir beinni þátttöku við- skiptabanka í félögum, sem tekið hafa við rekstri gjaldþrota rækju- verksmiðja. Þessi hálfbanka- tryggöi rekstur veldur óeðlilegri samkeppni í greininni.“ GG Hólmavík: Vestfirðir einangraðir Skiljið born aldrei em eftir i bil Þau geta farið ser að voða Síðastliðinn laugardag urðu miklir vatnavextir vegna úrhell- isrigningar við Hólmavík. Var vatnsflaumurinn þvílíkur að ræsi sem eru nokkur hundruð metrum fyrir utan plássið önn- uðu honum engan veginn og að lokum lét vegurinn undan. Myndaðist hinn myndarlegasti foss sem steyptist fram af brún malbiksins og niður í fjöru. Um kl. 21 á laugardagskvöld lét vegurinn undan og sópaðist burt með öllu saman. Gjáin sem myndaðist í veginn hefur verið um það bil 15 metrar á breidd og 10 metra djúp. Hafist var handa við að koma veginum i gagnið snemma á sunnudagsmorgun en efni í ræsin var flutt frá ísafirði. Það var hins vegar ekki hlaupið að því vegna þess að Steingrímsfjarðarheiði hafði lokast vegna skafrennings og varð að byrja á því að opna hana. Það tók tæpan sólarhring að gera við veginn og var hann opn- aður snemma á mánudagsmorg- un. Það var vélsleðamót á ísafiröi um helgina og því margir á suður- leið. Það komst þó enginn lengra en til Hólmavíkur og var margt um manninn hér aðfaranótt mánudags. AMG-Hólmavík Tilkomumikill foss þar sem áður var vegur. Skarðið var um 15 m að breidd og 10 m djúpt.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.