Dagur - 18.05.1993, Qupperneq 5
Þriðjudagur 18. maí 1993 - DAGUR - í
Bandalag starfsmanna ríkis og bæja:
Einkavæðing má ekki
byggjast á trúarsetningum
markaðshyggjumanna
- opið bréf til flölmiðla
„Fyrir Alþingi liggja nú frumvörp
um einkavæðingu á opinberum
stofnunum, og til stendur að bjóða
út margvíslega starfsemi sem fram
til þessa hefur verið starfrækt af
opinberum aðilum. I sumum til-
vikum er ráðgert að stíga skref í
átt til einkavæðingar í áföngum
með því að gera stofnanir fyrst að
hlutafélögum í eigu opinberra aö-
ila en taka síðar ákvörðun um sölu
hlutabréfa.
BSRB telur að rangt sé að al-
hæfa um rekstrarform. I sumum
tilvikum er skynsamlegra að fyrir-
tæki annist starfsemi á opnuin
markaði en í öðrum tilvikum er
betra að reksturinn sé í höndum
opinberra aðila. I enn öðrum til-
vikum er ekki augljóst hvor kost-
urinn er heppilegri. Opinber þjón-
usta á að vera sveigjanleg og sí-
breytileg í ljósi breyttra aðstæðna,
tækniframfara o.s.frv. Starfsfólk á
hverjum stað þekkir öörum fremur
til viðkomandi starfsemi og á því
að vera með í ráðum þegar breyt-
ingar eru til umræðu. BSRB hefur
ítrekað boðið til viðræðna um
þessi efni og beitt sér fyrir um-
ræðu um reynslu erlendra þjóða í
þessum efnum.
Reynsla annarra þjóða
Einkavæðing hefur verið áberandi
í þjóðfélagsumræðunni í ná-
grannalöndum okkar undanfarin
ár og víða komist í framkvæmd,
þótt í mismiklum mæli sé. í hlið-
stæðri umræðu hér á landi liggur í
augum uppi að við eigum að
skoða reynslu annarra þjóða af
einkavæðingu og læra af henni.
Um er að ræða meðferð opinberra
eigna - fjármuni almennings í
landinu og þjónustu við hann - og
ekkert annað en ábyrgðarleysi að
renna blint í sjóinn meó fram-
kvæmd mögulegrar einkavæðing-
ar.
★ Reynslan crlendis frá er í
mörgum tilvikum sú, að þegar
einkavætt hefur verið á sviðum
þar sem ekki er samkeppni hef-
ur þjónustan ekki batnað. Sums
staðar hefur þjónustan versnað
til muna. í sumum tilvikum hef-
ur hún batnað hjá ljársterkum
aðilum en versnað hjá þeim sem
hafa minni efni. Iðulega hefur
einkavæðing við fákeppnisað-
stæður virst hagkvæmur kostur
fyrst í stað en reynst kostnaðar-
meiri síðar meir.
★ Reynslan erlendis frá er sú
að hæst launuðu starfsmennirn-
ir hafa hækkað stórkostlega í
launum en launakjör annarra
hafa rýrnað eða staðið í stað.
Þetta kann að einhverju leyti að
skýra hvers vegna yfirmenn eru
oft á tíðum fylgjandi því að gera
stofnanir að hlutafélögum - það
gefur þeim aukið sjálfdæmi um
eigin kjör.
★ Reynslan erlendis frá segir
að fólk hafi misst vinnuna í stór-
hópum þegar ríkisfyrirtæki
hafa verið einkavædd. Þetta hef-
ur einnig átt við þegar ýmsir
starfsþættir hafa verið boðnir
út. A tímum atvinnuleysis er
það ábyrgöarhluti að fækka
starfsfólki nema að mjög vel at-
huguðu máli, og þá ekki án þess
að skoða málin í stærra sam-
hcngi. Hvað vinnst t.a.m. með
því að segja upp fólki, greiða því
atvinnuleysisbætur og vísa því
aftast í atvinnuleysisbiðraðirn-
ar?
★ Reynslan erlendis frá gef-
ur ástæðu til að ætla að cinka-
væðing og útboð hafi beinlínis
stundum verið ákveðin til þess
að rýra kjörin og draga úr rétt-
indum starfsfólks. Útboð á ræst-
ingu er dæmi um réttindamissi
jafnhliða fækkun starfsfólks.
★ Reynslan af skattlagningu
einkafyrirtækja er sú að erfitt
hefur reynst að ná eðlilegri
skattheimtu. Opinberar stofn-
anir sem hafa skilað hagnaði
skila aðeins broti af honum í
gegnum skattgreiðslur eftir að
þeim hefur verið breytt í einka-
fyrirtæki. Verulegur hluti þess
arðs sem áður rann til sam-
neyslunnar rennur nú til nýrra
eigenda á markaði.
Auglýst eftir röksemdum
Á sínum tíma var Bifreiðaeftirlitió
gert að einkafyrirtæki. Nú er talað
um þvottahús ríkisspítalanna, tób-
akseinkasöluna, lyfjaverslunina,
Póst og síma og þannig mætti
ál'ram telja.
Það er lágmark aö röksemdir
komi fram með og á móti. Því
miður hefur sú ekki orðið reyndin.
Ráðamenn láta alhæfingar og al-
mennar stefnuyfirlýsingar nægja
og hafa iðulega komist upp með
slíkt án þess að vera krafðir um að
færa rök fyrir máli sínu.
Fjölmörg dæmi má taka um
þetta. Um nýframlagt lyfjadreif-
ingarfrumvarp var t.d. skírskotað
til þess sem hlyti að gerast við þær
breytingar sem frumvarpið boó-
aöi. Þannig var staðhæft: „Það
segir sig sjálft að slíkt mun hafa í
för með sér mikla verðlækkun..."
Það er ekkert sem segir sig sjálft í
þessu sambandi, reyndar margt
sem bendir til að lyfjaverð muni
hækka við breytingarnar.
Póstur og sími er annað dæmi
um yfirborðskennda umræðu af
þessu tagi á opinberum vettvangi.
Þegar áform um að gera Póst og
síma að hlutalélagi voru kynnt var
vitnað til almennrar pólitískrar
stefnu og skírskotað almennt til
faglegs mats. Staðreyndin er hins
vegar sú að þau faglegu rök sem
færð hafa verið fram um breytingu
á Pósti og síma í opinberri um-
ræðu hér á landi hafa gengið í
þveröfuga átt en þá að tilefni sé til
einkavæðingar. Reyndar má furðu
gegna að slík áform séu uppi í
ljósi þess að á daginn hefur komið
að þjónusta Pósts og síma er ein
sú ódýrasta í heimi.
I sumum tilvikum er skírskotað
til almennrar stefnuyfirlýsingar
ríkisstjómarinnar, svo sem í at-
hugasemdum með frumvarpi til
laga um breytingu á lögum um
verslun ríkisins með áfengi og
tóbak. Þar segir einfaldlega að
frumvarpió sé „í samræmi við fyr-
irheit í stefnuyfirlýsingu ríkis-
stjórnarinnar um að draga úr ríkis-
umsvifum þar sem þess sé kost-
ur...“ En hér væri nær að spyrja
hverjir eru kostirnir og hverjir eru
gallamir við slíkar breytingar í
stað þess að gefa sér að hvar sem
hægt sé að koma einkavæðingu
við skuli það gert.
Ábyrgð Alþingis, fjölmiðla
og samtaka á vinnumarkaði
Það hlýtur að vera á ábyrgð al-
þingismanna, fjölmiðla og sam-
taka á vinnumarkaði að stuðla að
málefnalegri umræðu um kosti og
galla á hverju tilviki um sig. Þaó
er mjög varasamt að áform sem
byggja á almennri stefnu og lítt
grunduðu mati nái fram að ganga
án allrar gagnrýninnar umræðu.
Rekstrarform á ekki að vera
takmark í sjálfu sér. Spyrja þarf
um kosti og galla á rekstrarformi
með tilliti til þeirrar þjónustu sem
veitt er, tilkostnaðar og vinnufyr-
irkomulags - og ef eitthvað má til
betri vegar færa þarf aó ígrunda
hverju þurfi að breyta og þá hvers
vegna. Ef til dæmis talið er nauð-
synlegt að gera stofnun að hlutafé-
lagi þarf aö spyrja hvers vegna -
til að auka sveigjanleika í rekstri?
Hvernig, hvaða ákvarðanir er ekki
hægt að taka nú sem hægt er með
breyttu rekstrarfyrirkomulagi?
Hér þarf að spyrja hvort ekki sé
hægt að framkvæma breytingar
við núverandi rekstarskilyrði?
Hvers eðlis er sú hagræðing sem
iðulega er nefnd í þessu sam-
bandi? Á aó fækka störfum? Eða
er það ef til vill hreint ekki hag-
ræðing sem vakir fyrir mönnum?
í ÁTVR var bruggað brennivín.
Sú framleiðsla var einkavædd, að
sögn í hagræðingarskyni. Síðar
kom á daginn að unnið var að
þessari framleiðslu á lagerum
ÁTVR þegar álag var þar Iítið við
önnur störf. Enda kom á daginn að
verð á þessum vörum hækkaði við
breytinguna. Forsvarsmenn
ÁTVR voru hins vegar ekki
spurðir opinberlega álits áður en
einkavæðingin átti sér stað. Nú
má spyrja um ávinninginn vegna
einkavæðingar tóbakssölunnar og
sölu á þvottahúsi Ríkisspítala,
breytinga á Pósti og síma, Lyfja-
verslunar ríkisins og þannig mætti
áfram telja. Yrði þetta betra fyrir
skattborgarann, neytandann? Yrði
þetta hægkvæmara fyrir viðkom-
andi stofnun? Hvað meö hagnað
og arð; á aö skapa aró af starfsem-
inni, hvert á hann að renna, hvaða
áhrif hefði breytingin á atvinnu-
ástand, hvað með önnur sjónar-
mið?
Meginmálið hlýtur að vera að
fara vel með sameiginlegar eignir
almennings og tryggja góða þjón-
ustu. Einkavæðingaráform mega
því ekki byggjast á órökstuddum
trúarsetningum markaóshyggju-
manna heldur verður að sýna fram
á með rökum að þessi áform eigi
rétt á sér. I þeim efnum hljóta
ábyrg stjórnvöld að hafa hags-
muni eigendanna, almennings í
landinu, að leiðarljósi.
Það er hlutverk fjölmiðla að
stuðla að gagnrýninni og mál-
efnalegri umræðu um þjóðþrifa-
mál. Þess vegna er þeim nú
skrifað opið bréf til að hvetja þá
til að búa svo um hnúta að fram
fari ítarleg umræða í landinu
áður en almenningseignir eru
settar á markað."
Sjávarútvegsdeildin
á Dalvík - V.M.A.
veturinn 1993-1994.
Skipstjórnarnám:
Kennt er til skipstjórnarprófs, 1. og 2. stigs.
Fiskiðnaðarnám:
Kennt er til fiskiönaöarmannsprófs.
Almennt framhaldsnám:
1. bekkur framhaldsskóla.
Heimavist á staðnum.
Umsóknarfrestur til 10. júní.
Upplýsingar í símum 61083, 61380, 61160, 61162.
Skólastjóri.
Héraðssýning -
kynbótadómar
Breytingar vegna veðurs.
1. Miðvikudagur 19. maí kl. 9.00.
Lögmannshlíðarvöllur. Sýningarröö eftir
mótsskrá. 4 v. hryssur, 5 v. hryssur, 3 v. stóö-
hestar, 4 v. stóðhestar, 5 v. stóöhestar og geld-
ingar.
2. Fimmtudagur 20. maí kl. 9.00.
Lögmannshlíðarvöllur. Sýningarröð eftir móts-
skrá. Hryssur 6 v. og eldri og stóðhestar 6 v. og
eldri.
3. Föstudagur 21. maí kl. 9.00.
Flötutungur.
4. Laugardagur 22. maí kl. 10.00.
Melgerðismelar. Yfirlitssýning.
Hrossaræktarsambandið.
Búnaðarsamböndin.
ER SKEMMTILEGIIR
TÍMIFRAMENDM?
Ekki nema í góðum télagsskap. Hringdu og prótaóu
Símastefnumótið þar sem fjöldi fólks ó öllum aldri hefur
fundið sér félaga. Þetta er spennandi og skemmtileg
leið til að kynnast nýju fólki.
Þetta er spennandi, þetta er rómantískt, þetta er öruggt.
Minútan kostar 39,90 kr.
SÍMASTEFNIJMOT
NORÐURLANDS
Teleworld