Dagur - 04.06.1993, Side 6
Menningarvetur í S-Ping:
Nokkurra viðburða minnst
Það voru ungir Þingeyingar sem riðu á
vaðið með leikstarfsemi sl. haust þegar
Leikklúbbur Framhaldsskólans á Húsa-
vík, Píramus og Þispa, setti upp Jeppa á
Fjalli eftir Ludvig Holberg í nóvember.
Leikstjóri var Sigurður Hallmarsson, sem
jafnframt fór með titilhlutverkið. Þessa
ágætu sýningu hefðu svo miklu fleiri
mátt sjá, því væntanlegir leikhúsgestir
sýndu henni óverðskuldað tómlæti og
létu unga fólkið leika fyrir ósetnum
bekkjunum að megninu til.
Þetta var í annað sinn á árinu sem
Jeppi á Fjalli var sýndur í Samkomuhús-
inu, því danskur gestaleikhópur sótti
Leikfélag Húsavíkur heim með vekrið í
haust.
I febrúar vissu áhugasamir leikhús-
menn í Suður-Þingeyjasýslu hreinlega
ekki í hvom fótinn þeir ættu aö stíga
fyrst, eða hvaða sýningu skyldi sækja á
undan annarri. Leikfélag Húsavíkur setti
á svið barnalcikrit fyrir fólk á öllum
aldri; Ronju ræningjadóttur eftir Astrid
Lindgren, í þýðingu Einars Njálssonar,
bæjarstjóra. Brynja Benediktsdóttir leik-
stýrói verkinu, en mjög var vandað til
uppsetningar þess. Titilhlutverkið var í
höndum Júlíu Siguróardóttur en Eiður
Pétursson fór með hlutverk Birkis. Ingi-
mundur Jónsson lék Matthías ræningja-
foringja og hélt þar með upp á 40 ára
leikafmæli sitt. Helgi Pétursson gerói
tónlist við verkið.
Aö Ydölum tókst hið unga leikfélag
Búkolla á við stóra hluti. Sigurður Hall-
marsson leikstýrði þar Piógi og stjörnum
eftir Sean O’Caesy. Aóalbjörg dóttir
hans fór með eitt aðalhlutverkanna á
ákaflega eftirminnilegan hátt. Mjög mik-
ill metnaður og vinna var lögð í uppsetn-
inguna og fátt til sparað. Miklu fleiri
hefðu mátt sækja sýningar á verkinu, en
ef til vill hafa áhyggjur heima fyrir dreg-
ió úr fólki að verja kvöldstund til íhugun-
ar um erfiða baráttu á írlandi fyrr á öld-
inni.
Það mátti verja bráðskemmtilegu
kvöldi að Breiðumýri þar sem leikdeild
Umf. Eflingar setti á svið Deleríum bú-
bónis eftir Jónas og Jón Múla Árnasyni.
María Siguróardóttir leikstýrði og Jón Fr.
Benónýsson fór með eitt aðalhlutverk-
anna og fór vel með. Það var virkilega
gaman að sjá þetta verk á ný eftir 30 ár.
Mikið afrek var unnið á Húsavík í
apríl er þar var sett á svið sýning á norsk-
um söngleik, Lifandi skógi. Nemendur
sjöunda bekkjar frumsýndu verkið á ár-
legri skólaskemmtun og tóku allir 50
nemendumir beinan þátt í sýningunni,
ásamt 12 manna hljómsveit Tónlistar-
skólans sem Ámi Sigurbjamarson stjóm-
aði. Line Wemer var söngstjóri verksins
en Guðrún K. Jóhannsdóttir leikstjóri. Á
sumardaginn fyrsta komu 110 Norðmenn
í heimsókn til Húsavíkur, þar af 70 börn
sem stigu upp á svió til jafnaldra sinna
og héldu þau tvær sýningar á söngleikn-
um í sumarbyrjun. Verður þetta framtak
jafnt áhorfendum sem ungu þátttakend-
unum mjög minnisstætt.
Natalia Chow, söngkennari setti upp
óperettu með nemendum sínum sem
nemendatónleika í sal Borgarhólsskóla 2.
maí. Helgi Pétursson aðstoöaði við und-
irleik og söngnemar fluttu lögin úr óper-
ettunni. Góð aðsókn var á tónleikana og
góður rómur að þessu framtaki gerður.
Natalia hélt einnig tvenna einsöngstón-
leika síðsumars, bæði á Húsavík og í
Mývatnssveit.
Framhaldsskólinn á Húsavík hélt upp
á afmæli sitt á haustdögum með aðstoð
Ingvars Þórarinssonar, bóksala er kostaði
tónleikahald Jónasar Ingimundarsonar pí-
anóleikara í skólanum. Um morguninn
hélt Jónas afar skemmtilegt erindi með
tóndæmum fyrir nemendur á sal og lék
fyrir þá, og um kvöldið voru haldnir tón-
leikar fyrir almenning þar sem listamað-
urinn náði afar vel til áheyrenda.
Fjórar sýningar voru haldnar í Safna-
húsinu á Húsavík 1992. Kári Sigurðsson
var með myndlistarsýningu í júní og Þor-
gerður Sigurðardóttir í ágúst. Aðalbjörg
Jónsdóttir var með málverkasýningu og
sýndi handunna muni um mánaðamót
okt.-nóv. og Siguróur Þórir sýndi mál-
verk og teikningar í desember.
I apríl var sýning í Safnahúsinu sem
lengi hafði verið beðið eftir: Þá kom
Jóndi, Jón Kristinsson bóndi og listamað-
ur í Landeyjum með verk sín. Jóndi er
fæddur Húsvíkingur en hafði ekki sýnt
þar fyrr.
Góður gestur kom einnig í Safnahúsið
13. mars, er Thor Vilhjálmsson kom og
spjallaði við tilheyrendur um verk sín og
tilveruna. Það var Lionsklúbbur Húsavík-
ur sem hafði samvinnu við Safnahúsið
um þessa heimsókn. Natalia Chow kom
fram við sama tækifæri og söng við und-
irleik Helga Péturssonar.
Safnahúsið er orðin glæst umgjöró
hinnar lifandi listar sem stöðugt streymir
til hússins af auknum áhuga og er slíkt
vel við hæfi. I fyija voru haldnir sex tón-
leikar í húsinu: I febrúar söng Margrét
Bóasdóttir með Tríói Reykjavíkur. Sr.
Öm Friðriksson hélt píanótónleika í
febrúar og Pavol Kovac frá Slóvakíu í
júní. Gunnar Guðbjömsson tenórsöngv-
ari og Jónas Ingimundarson píanóleikari
héldu tónleika í júlí. Comelia Thorspeck-
en flautuleikari og Cordula Hacke píanó-
leikari héldu tónleika í júlí og Sólrún
Bragadóttir sópransöngkona söng einnig
í júlí við undirleik Þórarins Stefánssonar.
Margrét Bóasdóttir söng í Safnahús-
inu í febrúar sl. við undirleik Kristins
Amar Kristinssonar.
Hér er engan vegin upptalin tæmandi
skrá yfir menningarviðburði í héraði á
þessum vetri, og t.d. hefur fjöldi tónleika
þar sem einsöngvarar, kórar og hljóð-
færaleikarar hafa komið fram verið
haldnir.
Ingibjörg Magnúsdóttir.
Að lokinn frumsýningu á Ronju ræningjadóttur: Ingimundur Jónsson og Brynja Bene-
diktsdóttir.
6