Dagur - 04.06.1993, Síða 7

Dagur - 04.06.1993, Síða 7
Menningarviðburðir í Eyjafjarðarsveit í Eyjafjarðarsveit á sér staö - eins og víóar - margvísleg menning og sennilega líka einhver ómenning en sem betur fer var ég ekki beðin að fjalla um hana. Menningarviðburöir hafa þar af leió- andi fjölmargir orðið frá síðasta aðal- fundi MENOR fyrir um það bil ári. Eftir miklar vangaveltur og heilabrot hef ég ákveðið að láta þessara getið: A haustdögum ‘92, nánar tiltekið í endaðan október, settu Freyvangsleik- húsið og Ungmennafélagið Árroóinn upp árlegan kabarett. Á sama tíma var unnið að endurvakningu á blaðaútgáfu á svæð- inu. Blaðið hlaut nafnið Eyvindur og kom fyrsta tölublað út í byrjun aðventu og annað laust fyrir páska. Þegar leið nær jólum voru haldin tvö aðventukvöld með andagift og ýmis kon- ar tónlistarívafi (kannski á ég ekkert að telja þau meó, - hvaö með messur?) Þá var Tónlistarskóli Eyjafjarðar með eitt- hvað af tónleikum en sumir þeirra fuku undan skafrenningi fram á útmánuði (eitt aðventukvöld fauk alveg út í buskann). Þá trúi ég að einhverjar barnasamkomur hafi verið haldnar á svæðinu um jólin. Eftir áramót voru framin nokkur þorrablót. Fljótt úr þeim hófust æfingar Leifur Guðmundsson setur Menningar- hátíð í Eyjafjaðarsvcit. hjá Freyvangsleikhúsinu á Ljóni í síð- buxum eftir Björn Th. Bjömsson, frum- sýnt var í byrjun april. Á svipuðum tíma var Hrafnagilsskóli með sína árshátíð og kirkjukórar æfóu veraldlegan söng af kappi. í kringum sumarmál var síðan haldin Menningarhátíð í Eyjafjaróarsveit sem stóð í rúma viku. Kenndi þar margra grasa, m.a. var boðið upp á margskonar tónlistarflutning, bæði hljóðfæraleik af ýmsum toga sem og söng, einsöng, tví- söng, kvartetta og kóra, haldió var ljóöa- kvöld, leiksýningar og sýningar á mynd- list og listiðnaði. Dagskrá þessarar Menningarhátíðar var blanda af framlagi heimamanna og gesta. I kjölfar alls þessa hélt Félag aldraðra kaffisamsæti með skemmtidagskrá og sýningu á listmunum unnum af félags- mönnum. I byrjun maí var Tónlistarskólinn meó þrenna tónleika og Galgopar Iokuðu svo vertíðinni með tónleikum í Freyvangi um miðjan maí. Vel má vera að einhverjum þyki þessi upptalning annað hvort of eða van, nema hvort tveggja sé. Við því á ég ekkert svar annað en það að mér þótti viðfangsefnið hált í höndum. Emilía Baldursdóttir. Úr Norður-Þingeyjarsýslu í nóvember setti Leikfélag Raufarhafnar upp leikritið Hart í Bak eftir Jökul Jakobsson í leikstjórn Margrétar Óskars- dóttur. Þaö stóó aldrei til að ferðast neitt með þá sýningu, en það stóð til að hafa fleiri sýningar á staðnum. Stórhríðar og ófærð komu í veg fyrir það. Leikklúbburinn á Kópaskeri sýndi Júpiter hlær eftir A,J. Cronin. Komið var fram í febrúar og tíó góð, farið var með sýninguna til Þórshafnar, Raufarhafnar og í Skúlagarð. Leikstjóri var Einar Þor- bergsson. Leikfélag Þórshafnar sýndi í mars samantekt úr verkum Jónasar Árnasonar við tónlist eftir Jón Múla og fleiri. Sýn- ingin var nefnd I sal hans hátignar. Leik- stjóri var Sigurgeir Scheving. Farið var með sýninguna í Skúlagarð og til Raufar- hafnar. Helga Þórdís Guðmundsdóttir hélt pí- anótónleika á Kópaskeri, Raufarhöfn og Þórshöfn í mars. Helga Þórdís var að ljúka einleikara- og kennaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík. I janúar var nýbyggt safnaðarheimili á Raufarhöfn vígt vió hátíðlega athöfn og líka nýtt kirkjuorgel. Þá sömu helgi boð- aði Kirkjukórasamband N.-Þing til söng- daga á Raufarhöfn og fékk þau Margréti Bóasdóttur og Jón Stefánsson til að leið- beina. Þessir söngdagar voru opnir öllu söngglöðu fólki í Norðursýslunni. Rauðakrossdeildin á Þórshöfn stóð fyrir hátíð til fjáröflunar fyrir sjúkrabíl. Hin ýmsu félagasamtök tóku þátt í hátíð- inni af miklum myndarbrag. Á fimmtíu ára afmæli Kvenfélaga- sambands Noröur Þingeyinga var haldin afmælishátíð í Skúlagarði fyrir kven- félagskonur og gesti þeirra. Flutt var blönduð dagskrá - flytjendur voru á öll- um aldri og alls staðar að úr sýslunni. Fleira mætti nefna. Aðventusamkom- ur voru haldnar og kirkjukórar sungu fleira en sálma og víðar en í kirkjum, tónlistarskólar störfuðu og héldu yfirleitt tónleika tvisvar á vetrinum, grunnskóla- nemendur settu upp leiksýningar og aðrar sýningar, viö fengum gesti og okkar fólk lét ljós sitt skína í öðrum sýslum. Auk alls þessa voru svo hin ýmsu félagasam- tök með hefðbunda starfsemi: héldu árs- hátíðir, þorrablót, keppnir og námskeið. Svo spyrja þéttbýlisbúamir gjaman hvemig við í dreifbýlinu getum drepið tímann yfír veturinn. Oftast svara ég með nokkurri þykkju að við þurfum ekki aö drepa tímann - við notum hann. Anna Helgadóttir, Kópaskeri. 7 i I \

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.