Dagur - 22.07.1993, Síða 1
76. árg. Akureyri, fimmtudagur 22. júlí 1993 136. tölublað
I Venjulegir og . »/, demantsskornir ? trúlofunarhringar Y Afgreiddir samdægurs
GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI
1
Evrópa í öllu sínu veldi á Pollinum
Nítjánda skemmtiferðaskip sumarsins, sjálf Evrópa, kom til Akureyrar í gærmorgun. Um borð voru 541 farþegi og 301 í áhöfn, sam-
tals voi-u því 842 um borð. Evrópa er af þeim sem til þekkja flaggskip skemmtiferðaskipaflotans og þar eru salarkynni stórglæsileg.
Heimahöfn Evrópu er Bremen í Þýskalandi. Evrópa er engin smásmíði. Skipió er 200 metrar að lengd og djúprista þess er 8,4 metr-
ar. I dag kl. 14 er von á tveim skemmtiferðaskipum til Akureyrar og eru þau bæði gamlir kunningjar. Arkona leggst að Eimskipafé-
lagsbryggjunni en Maksim Corkiy heldur sig úti á miójum Polli. Meðfylgjandi mynd tók Pjetur í gærmorgun þegar veriö var að ferja
farþegana frá borði og upp á land í rútur, sem fluttu þá austur í Mývatnssveit. óþh
Kaupfélag Eyfirðinga:
Sumar-
slátrim sauð-
fjár hefst
ámorgun
Sumarslátrun sauðfjár hefst hjá
Sláturhúsi Kaupfélags Eyfirð-
inga á morgun, föstudag. Þá
verður slátrað 30 lömbum frá
Brúnum í Eyjafjarðarsveit og
áformað er að lömbum verði
slátrað á hverjum föstudegi
fram að venjubundinni haust-
slátrun ef aðstæður leyfa.
Oli Valdimarsson, sláturhús-
stjóri á Akureyri, sagöi í samtali
við Dag að gcrt væri ráð lýrir að
slátra svipuðum fjölda af lömbum
á hverjum föstudegi fram að
venjubundinni sláturtíó cf fé feng-
ist til slátrunar. Ætlunin mcð sum-
arslátruninni væri meðal annars að
kanna hvort markaður væri fyrir
nýtt, ófrosið lambakjöt um sumar-
tímann til hliðar viö frosið kjöt, en
nýja kjötió verður boðið á sama
veröi og eldra kjötið. Oli sagói að
ekki hefói verið kannað til hlítar
hver áhugi bænda væri fyrir sum-
arslátruninni en kvaðst gera ráð
fyrir aó unnt rcynist aó fá lömb til
slátrunar. Fyrstu sláturlömbin
koma frá Brúnum í Eyjafjarðar-
sveit, cn þar hefur sauðburður ver-
ið látinn fara fram á lcngri tíma en
vcnja cr til í því augnamiði að
lcngja sláturtíðina. Oli kvað ekki
ólíklcgt að bændur kysu að losna
við lömb til slátrunar þar sem fé
gengi heimavið -- cf til vill á tún-
um - áður en dilkarnir færu aó
safna fitu. ÞI
„Þetta er sjónhverfing
ef ekki hrein blekking“
- sagði Guðmundur Bjarnason eftir fund Qárlaganefndar í gær
Skoðana-
könnun í
Kjarnaskógi
Undanfarna daga hefur stað-
ið yfir könnun á vegum
Skógræktarfélags Eyfirðinga
varðandi útivistarsvæðið í
Kjarnaskógi. Góð þátttaka
hefur verið en könnunin er
m.a. gerð til þess að skoða
samsetningu þess hóps sem
notfærir sér útivistarsvæðið.
„Við erum að kanna hverjir
þaó eru sem koma og í hvaða
tilgangi, auk þess sem við
spyrjum hvað það er sem fólki
finnst að helst megi bæta,“
sagði Aðalsteinn Svanur Sig-
fússon hjá Skógræktarfélag-
inu. „Við erum m.a. að leita
eftir skömmum og eins virkar
þetta sem hugmyndabanki.
Það koma kannski fram góóar
hugmyndir sem okkur hefóu
aldrei dottið í hug en ekkert
mál er að framkvæma.“
Aðalsteinn Svanur sagði
könnunina einnig gerða til
þess aó auðvelda stefnumótun.
Samsetning hópsins verður
skoðuð og niðurstöðurnar
bornar saman við könnun sem
gerð var fyrir fimm árum.
Mjög góð þátttaka hefur
verið í könnuninni sem farið
var af stað mcð í síðustu viku
enda mikill fjöldi sem notfær-
ir sér þá aðstööu sem er að
finna í Kjarnaskógi. KR
Fundur var haldinn í fjárlaga-
nefnd Alþingis í gær og mætti
Friðrik Sophusson, fjármála-
ráðherra, á fundinn til að gera
grein fyrir tillögum ríkisstjórn-
arinnar um skiptingu fjár tii at-
vinnuskapandi verkefna á land-
inu. Að sögn Guðmundar
Bjarnasonar (B), þingmanns
Norðurlands eystra og fulltrúa í
tjárlaganefnd, kom fram á
fundinum að eyrnamerktum
fjárveitingum yrði ekki breytt
en fjárlaganefnd fengi að koma
að málinu þegar tveimur stór-
um safnliðum yrði skipt niður.
Það kom líka fram að um helm-
ingurinn af þessum milljarði
króna eru Ijárveitingar sem áð-
ur höfðu verið ákvcðnar. Guð-
mundur talar um sjónhverfingu
eða blekkingu í þessu sam-
bandi.
„Það sem kom mér mest á
óvart á þessum fundi voru upp-
lýsingar frá fjármálaráðherra um
að um það bil helmingur af þess-
um milljarði, eða 470 milljónir
króna, er aðeins staðfesting á fjár-
veitingum sem ákveðnar voru í
fjárlögum 1992 en ekki var unnið
fyrir á því ári. Nú held ég að þaö
hafi verið almennur skilningur
fjárlaganefndar og Alþingis aó
menn fengju að nýta sér þær fjár-
veitingar sem búið var aó ákveða
á fjárlögum hvers árs þótt þær hafi
ekki verið uppeyddar fyrir áramót.
Mér finnst þetta vera sjónhvcrf-
ing, ef ekki hrein blekking,“ sagði
Guðmundur.
Hann sagði að fjármálaráðherra
hefói upplýst að þessi helminga-
skipting milljarðsins í ný verkefni
og staðfestingu á eldri fjárveiting-
um hefði veriö geró með fullri
vitund og vilja aðila vinnumark-
aóarins. Nýjar fjárveitingar nema
því aðeins 570 milljónum en ekki
1.045 milljónum eins og flestir
hefðu staóið í trú um.
„Þetta skýrir náttúrlega líka af
hverju einstök verkefni eru sér-
merkt, samanber margumræddur
framhaldsskóli í Grafarvogi, end-
urbætur á Bessastöðum, fram-
haldsskólarnir á Laugarvatni og í
Vestmannaeyjum og Þjóöarbók-
hlaðan. Þetta eru allt saman
ákvarðanir sem voru teknar í fjár-
lögum síðasta árs. Mér finnst þetta
vera sjónarspil og því til staðfest-
ingar má nefna aö sumir aóilar
voru búnir að nýta sér fjárveiting-
ar frá síðasta ári og þær eru auð-
vitaó ekki á þessum lista, cn það
skýrir þá skoðun að menn töldu
sig hafa rétt til þess að fara í
framkvæmdir samkvæmt fjárveit-
ingu fyrra árs,“ sagði Guðmundur.
Safnliðirnir sem um ræðir eru
annars vegar 184 milljónir króna
í vióhald húseigna ríkisins og hins
vegar 150 milljónir í skóla og
stofnanir menntamálaráðuneytis-
ins. Fjárlaganefnd fær að fylgjast
með hugmyndum viðkomandi
ráóuneyta um skiptingu þcssara
Stjórn Dalbæjar - heimilis aldr-
aðra á Dalvík samþykkti á fundi
síðdegis í gær að ganga til
samninga við Daltré hf. á Dalvík
um að byggja viðbyggingu við
Dalbæ.
Þrjú tilboð bárust í þessar fram-
kvæmdir og var sáralítill munur á
þeim, en tilboð Daltrés var þcirra
lægst.
fjármuna, væntanlcga í byrjun
ágúst, cn Guðmundur sagói að
fjármálaráðherra hcfói ekki rætt
sérstaklcga um Akureyri í því
sambandi, aöeins talað um óskil-
grcindar 10-20 milljónir sem
hugsanlega rynnu þangað.
„Hann vcifaði lista upp á það
að Akureyringar hcfðu fcngið svo
mikið af fjárlögum yfirstandandi
árs í skóla, sjúkrahús og hafnar-
framkvæmdir að þcir gætu varla
búist vió mikið hærri fjárupphæð-
um,“ sagði Guðmundur.
Ekki náóist í fjármálaráðherra
vegna þessa máls í gær. SS
Um er að ræða 438 fermetra
hús að flatarmáli á tveim hæðum.
Verkió felst m.a. í uppsteypu
hússins, frágangi á þaki og ein-
angrun, málningarvinnu og ísetn-
ingu glugga og hurða.
Takist samningar við Daltré
hefjast framkvæmdir mjög fljót-
lega. Verkinu skal að fullu lokið
1. júní á næsta ári. óþh
Viðbygging við Dalbæ á Dalvík:
Leitað samninga við Daltré