Dagur - 22.07.1993, Page 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 22. júlí 1993
íbúðir á söluskrá
HJALLALUNDUR:Stórglæsileg 3ja herb. íbúö í fjölbýli á 4. hæð 93.9
m2. íbúöin er öll með parketi, á baöherbergi er vatnsgufa, svalir eru
yfirbyggöar og eru mjög sólríkar. Vandaðar innréttingar. Ákv. sala.
AOALDALUR:Sumarbústaöur í landi Núpa í Aðaldal. Bústaöurinn er
41 m2 með 17 m2 verönd. Selst meö öllum útbúnaði. *
FNJÓSKADALUR: Tveir sumarbústaðir í landi Reykja í Fnjóskadal.
Tilvalið fyrir félagasamtök. Stutt í alla þjónustu s.s. sund hjá lllugastöð-
um.
BEYKILUNDUR:6 herbergja einbýlishús 196,6 m2 m/bílskúr. Lóð er
vel ræktuð með góðu gróðurhúsi. Eldhús með góðri innréttingu, parket
á gólfi. Sjónvarpshol með parketi, stofa með teppi, gangur með
parketi, herb. með teppum. Eign f góðu ástandi. Ákv. sala.
STÓRHOLT:5 herb. efri hæð í tvíbýli 146,7 m2 m/bílskúr. Stigaupp-
ganga er rúmgóð ríieð teppi. Lítið herb. yfir stigauppgöngu, 3 herb.
með skápum og dúklögð. Eldhús er rúmgott og bjart með góðu útsýni,
eldhúsinnrétting grændrapp. með palesander í forstykkjum. Þvottahús
og búr innaf eldhúsi.
TÍSKUVÖRUVERSLUN: Tfskuverslun í fullum rekstri til sölu og
afhendingar strax. Uppl. á skrifstofu ekki í síma.
Höfum kaupanda að 200 m2 einbýlishúsi á syðri brekku.
Brekkugötu 4 ■ 600 Akureyri
S 21744 og 21820 • Fax 27746
Gunnar Sólnes hrl., Jón Kr. Sólnes hrl. og Árni Pálsson hrl.
Sölumenn: Oddur Óskarsson og Ágústa Ólafsdóttir.
Toyota 4Runner sjsk. Nlssan Patrol (björgunarsv.útg.)
árg. '91. Ekin 48.000 árg. '86. Ekinn 190.000
Isuzu Crew-Cab
árg. '92. Ekinn 28.000
Mazda 626 GLX
árg. '88. Ekin 47.000
Suzuki Swift GTi
árg. '88. Ekinn 75.000
Toyota Tercel
árg. '86. Ekinn 137.000
Renault 19 Chamade
árg. '91. Ekinn 36.000
MMC Colt GL
árg. '89. Ekinn 70.000
Vegna mikillar sölu undanfariö
vantar okkur bíla d stabinn
WBÍLASAIAN
BHAVAí
GIERÁRGÖTU 36 ■ SÍMI21705
Fréttir
Lendingar á Akureyrarflugvelli í júní:
- á þjóðhátíðardaginn lentu 166 flugvélar
Júnímánuður var metmánuður
hvað lendingar flugvéla á Ak-
ureyrarflugvelli varðar sam-
kvæmt upplýsingum sem
Gunnar Oddur Sigurðsson,
umdæmisstjóri Flugmála-
stjórnar á Norðurlandi, hefur
tekið saman. Alls lentu 823
flugvélar á flugvellinum í júní
og eru það væntanlega fleiri
lendingar en áður eru dæmi
um í júní að mati Gunnars
Odds. Hinn 17. júní lentu 166
flugvélar þar frá morgni til
kvölds.
Tölurnar snúast allar um lcnd-
ingar en að sögn Gunnars Odds
þarf fjöldi lcndinga ekki að fara
saman við flugtök - ekki af því
að lentar flugvélar fari landleið-
ina frá Akureyri heldur - vegna
þess að vcl getur komið cða far-
ið í öðrum mánuði.
Lendingar í farþegaflugi voru
385 talsins en í þeirri tölu er
bæði áætlunar- og leiguflug.
í einka- og kennsluflugi voru
408 lendingar. „í þeirri tölu er
útsýnisílug sem var 17. júní; þó
að það sé með farþega þá telur
maður það ekki sem farþega-
flug,“ sagði Gunnar Oddur Sig-
urðsson í samtali við Dag en
mcð farþegaflugi er átt við flug
þar sem tilgangurinn er að flytja
farþega frá einum stað til annars.
í sjúkraflugi voru samtals 16
lendingar á Akureyrarflugvclli í
júní.
Erlendar vélar, sem táldar
voru sérstaklega, voru 8 talsins.
Undir liðinn önnur umf'erð
flokkar Gunnar Oddur 6 lend-
ingar. í þeim flokki cr um að
ræða vélar Flugmálastjórnar og
Landhelgisgæzlunnar eða lcnd-
ingar vegna prólunar á vclum
sem eru að koma úr skoðun eða
viðgerö.
Gunnar Oddur tók einnig
saman lcndingar á Akureyrar-
flúgvelli þjóðhátíðardaginn frá
kl. átta aö rnorgni til kl. tíu að
kvöldi og voru þær alls 166 tals-
ins. Að jafnaði voru því 12 lend-
ingar á klst. eða á fimm mínútna
lresti.
Mesta flugumferóin var frá kl.
15-16 hinn 17. júní. „Þá voru 25
lcndingar cða næstum því á
tveggja mínútna fresti þannig aó
þeir höfðu ærió nóg að snúast
flugumferðarstjóramir, Gunni
Egils og Sverrir Vilhjálms, sem
voru á vöktum þennan dag,“
sagói Gunnar Oddur aö lokum.
GT
Fuglafundur á Raufarhöfn
Mynd: SBG
Rannsóknastofnun HA og Nýsköpunarsjóður námsmanna:
Hagnýting sjávar-
gróðurs og botndýra
„Við þróum ekkert nýtt heldur
förum við aðallega eftir því
hvað er á markaði erlendis. Svo
könnum við hvað við eigum hér
heima og hvort þær tegundir
eru í nýtanlegu magni eða
ekki,“ segir Gunnlaugur Sig-
hvatsson en hann starfar að
verkefni sem hefur fengið styrk
sem nemur tveimur mannmán-
uðum úr Nýsköpunarsjóði
námsmanna og sambærilega
fjárhæð frá Háskólanum á Ak-
ureyri þar sem Gunnlaugur og
félagi hans, Steinar Svavarsson,
nema sjávarútvegsfræði. Þeir
vinna nú að öflun grunnupplýs-
inga til að auðvelda nýtingu á
van- eða ónýttum tegundum
sjávarfangs og -gróðurs við
strendur íslands - sem nýttar
eru til manneldis erlendis.
Nýsköpunarsjóður námsmanna
var stofnaður að frumkvæði Stúd-
entaráðs Háskóla Islands og „í
samræmi við samþykkt ríkis-
stjórnarinnar 30. júní 1992,“ eins
og segir í 1. gr. reglna um úthlut-
un styrkja úr Nýsköpunarsjóði.
Annað verkefni sem fékk styrk
úr sjóónum að þessu sinni er á
vegum Iðnþróunarfélags Eyja-
fjarðar um nýja vinnslu- og pökk-
unaraðferð á hörpudiski og mark-
aðssetningu í Evrópu - sem ekki
virðist vanþörf á eftir meðferð
franskra stjórnvalda á markaðs-
setningu íslensks hörpudisks.
Aó sögn Guðrúnar Guðmunds-
dóttur, starfsmanns sjóósins, bár-
ust að auki þrjár styrkumsóknir frá
Háskólanum á Akureyri - rekstrar-
deild og heilbrigðisdeild - en
þeim var hafnað.
Alls bárust 261 umsókn en
styrkir voru veittir til 118 verk-
efna - og í mesta lagi sem nemur
tveimur mannmánuðum á hvert
verkefni. Hátt á annað hundrað
íslenskir námsmenn starfa því fyr-
ir tilstilli sjóðsins í sumar.
Þess má geta að auk 10 millj-
óna króna fjárveitingar úr ríkis-
sjóði veitti Reykjavíkurborg 5,8
milljónum til Háskóla Islands
sem eyrnamerktar voru reykvísk-
um námsmönnum og úthlutaði
stjórn nýsköpunarsjóðs því fé í
samræmi við þaó.
Gunnlaugur og Steinar nema
sjávarútvegsfræði við sjávarút-
vegsdeild Háskólans á Akureyri
og munu ljúka fjögurra ára námi í
vetur og vor.
Verkefnið er unnió í samvinnu
við Þróunarsamtök Vestfjarða og
er það kostað aó hálfu af Rann-
sóknastofnun Háskólans á Akur-
eyri - auk styrksins lrá Nýsköp-
unarsjóði; nemur hvor styrkur
sem svarar tveimur mannmánuð-
um. Umsjónarmaður verkefnisins
er Jón Þórðarson, forstöðumaður
sjávarútvegsdeildar H.A.
Að sögn Gunnlaugs gcngur
verkefnið m.a. út á aó kanna að-
gengi aö ónýttu sjávarfangi og -
gróðri, þ.e. hvort það svarar á
annað boró kostnaöi að nálgast
tegundina og vinna hana.
Sem áður segir starfa tveir
nemendur í sjávarútvegsfræði við
verkefnið og hófst vinnan í byrj-
un júní og stendur í tvo mánuði.
Gunnlaugur segir að vegna hins
skamma tíma sé aðeins unnió að
frumvinnu við hið viðamikla verk.
Samkvæmt verkefnislýsingu
er hins vegar ætlunin að leita til
fyrirtækja eða einstaklinga sem
hafa áhuga á áframhaldandi
vinnslu verkefnisins. GT
Listasumar '93
Fimmtudagur 22. júlí: Samkomu-
húsið kl. 20.30; rokktónleikar. Frant
komá hljómsveitirnar Hún andar,
Skrokkabandið, Limlest ég er lim-
lest - frú Roosevelt segir frá og
Barningur, auk fleiri andans jöfra.
Akureyrarkirkja kl. 20; tónleikar á
gítarhátíð. Hlíf ^ Sigurjónsdóttir,
fiðla, og Símon H. Ivarsson, gítar.
Skrifstofa Listasumars er í
Kaupvangsstræti 23, sími 12609.