Dagur - 22.07.1993, Side 3
Fimmtudagur 22. júlí 1993 - DAGUR - 3
Fréttir
Verkalýðshreyfingm svarar vaxta-
hækkuniim bankanna af hörku
- kjarasamningar í hættu ef stjórnvöld grípa ekki í taumana
Formenn landssambanda innan
ASÍ komu saman til fundar í
gær vegna vaxtahækkana síð-
ustu daga og eru mjög harðorð-
ir í yfirlýsingu sinni eftir fund-
inn. Þar segir m.a. að svo virð-
ist sem erfitt ætli að reynast að
opna augu bankanna fyrir því
að langtímahagsmunum „er
best borgið með lækkun vaxta
en ekki með því að blóðmjólka
þá viðskiptamenn sem eftir
standa,“ eins og segir orðrétt í
yfirlýsingunni.
„Það er krafa verkalýðshreyf-
ingarinnar við þessar aðstæöur að
stjórnvöld grípi þegar í taumana,
þannig að fyrirætlanir bankanna
nái ekki fram að ganga. Að öðr-
um kosti kunna að skapast þau
skilyrði að kjarasamningar verði
lausir í haust. Komi til þess hlýtir
hin pólitíska ábyrgð á þeim af-
leiðingum sem slíkt kann að hafa
að hvíla á herðum ríkisstjómar-
innar,“ segir í yfirlýsingu verka-
lýðsforystunnar.
Þar cr bent á að í kjarasamn-
ingunum í vor hafi verið gengið
út frá stöðugu verðlagi á samn-
ingstímanum, lítilli verðbólgu og
lækkandi vöxtum.
Stöðugt hafi vcrið gengið á
móti þessum forsendum, nú slðast
meó ákvörðunum og yfirlýsing-
um bankanna. „Það er því ljóst að
með framgöngu sinni eru bank-
amir að vinna gegn markmiðum
kjarasamninganna og draga úr
líkindum á því að forsendur
verði til að framlengja þá nú í
haust.“ JÓH
Þjóðgarðurinn í Jökulsárgljúfrum:
Mikiðumað
vera um helgina
Mikið verður um að vera í
þjóðgarðinum í Jökulsár-
gljúfrum um helgina. Boðið
verður upp á gönguferðir við
allra hæfi undir leiðsögn land-
varða og barnastundir verða
fyrir yngstu borgarana.
Um helgina verður boðið upp
á stutta og létta gönguferð í
Vesturdal kl. 20, gengið verður í
Eyjuna, plöntur skoðaðar og ým-
islegt fieira. A laugardag verður
farið í fuglaskoðunarferð kl. 12
úr Vesturdal. Gengió verður suð-
ur meö Jökulsá, framhjá Karli
og Kerlingu að Kallbjargi. Þaðan
verður gengið um Svínadal og til
baka í Vesturdal. Þessi ganga
veróur um 4-5 klst. löng. A laug-
ardag kl. 17 verður svo farið í
stutta gönguferð um botn As-
byrgis. A sunnudaginn veróa
barnastundir kl. 11 bæöi í Vest-
urdal og Asbyrgi. Fariö verður í
leiki, sagðar sögur og náttúran
skoðuð.
(Úr fréttatilkynningu frá Náttúruverndarráði)
Sjálfboðaliðasamtökin:
Vmna í Mývatnssveit
fram yfir helgi
Nú stendur yfir fimmta vinnu-
ferð Sjálfboðaliðasamtakanna í
sumar. Að þessu sinni er unnið
að hindrun náttúruskemmda
við Dimmuborgir og Kröflu í
Mývatnssveit.
Frá 18.-21. júlí var unnið við
heftingu sandfoks og lægfæringu
göngustíga í Dimmuborgum. I dag
flytur hópurinn sig að Kröfiu og
lagfærir þar göngustíga og merkir
leiðir við Leirhnjúk. Verkinu lýk-
ur i sunnudag.
Atján manns á vegum samtak-
anna eru að störfum í Mývatns-
sveit þessa dagana og líklegt er að
Kjarnaskógur:
Breytingar á
umferð vegna
skátamótsins
Vegna landsmóts skáta í
Kjarnaskógi vikuna 25. júlí til
1. ágúst verður að breyta tíma-
bundið umferð um útivistar-
svæðið, eins og segir í fréttatil-
kynningu frá Skógræktarfélagi
Eyfirðinga.
Einstefna verður á aðalvegi
þannig að ekið verður inn í
Kjarnaskóg frá Eyjafjarðarbraut
og út til norðurs í átt aó Þórunn-
arstræti. Ökumenn verða því að
fara neöri leióina inn í skóginn og
út úr honum efri leiðina.
Skátar hafa heimild til að taka
gjald af þeim sem koma á móts-
svæðiö.
Starfsemi Skógræktarfélags
Eyfirðinga í Kjarna verður hins
vegar óbreytt og Gróðrarstöðin
opin eins og venjulega. SS
nokkrir nemendur M.A. bætist
við fyrir helgina.
í fréttatilkynningu frá Sjálf-
boðaliðasamtökunum segir m.a.:
„Avinningur sjálfboóaliðanna er
aö sjá árangur erfiðis síns við að
hindra náttúruskemmdir og að
kynnast náttúru þessara staóa,
jafnframt í vinnu sem í frístund-
um, einnig að kynnast fólki með
svipuð áhugamál í góðum hópi.“
KR
Fnjóskadalur:
Bflvelta
Fólksbifreið skemmdist tölu-
vert þegar hún valt út af veg-
inum á móts við Háls í
Fnjóskadal sl. þriðjudags-
kvöld.
Lögreglunni á Húsavík var
tilkynnt um slysið um kl. 22 á
þriójudagskvöld. Að sögn lög-
rcglu urðu engin meiósl á
fólki.
Hjá lögreglunni á Þórshöfn
fengust þær upplýsingar að sl.
mánudagskvöld hafi bifreið af
gerðinni Colt verið ekið á
kyrrstæóa Audi bifrejó á móts
við grunnskólann. Ökumanni
Colt-bifreiðarinnar varð ekki
meint af, en aó sögn lögreglu
varð verulegt eignatjón. óþh
Grillað á Húsavík
Sigurður Hall, matreiðslumeistari
og fleiri snillingar verða við grill-
ið hjá Matbæ á Húsavík í dag frá
þrjú til sex. Að sögn þeirra hjá
Kaupfélagi Þingeyinga veróur
grillið kynt til að lífga upp á rign-
inguna og kynna afurðir úr lamba-
kjöti.
Atvinnumálanefnd Akureyrar:
Harðorð mótmæli til
ríkisstjórnarinnar
Á fundi atvinnumálanefndar
Akureyrar sl. þriðjudag var
samþykkt ályktun um skiptingu
ríkisstjórnarinnar á fé til at-
vinnuskapandi verkefna.
Ályktunin er svohljóðandi:
„Atvinnumálanefnd Akureyrar
lýsir yfir megnri óánægju með til-
lögur ríkisstjórnarinnar um skipt-
ingu þess milljarós, sem verja á
til atvinnueflingar. Nefndin bendir
á, að þrátt fyrir aó atvinnuleysi á
Akureyri sé með því mesta sem
gerist í landinu og hvert stóráfallið
á eftir öðru í atvinnumálum hafi
dunið yfir, er ekki gert ráð fyrir í
tillögunum að einni einustu krónu
verði varið sérstaklega til at-
vinnueflingar í bænum. Atvinnu-
málanefnd Akureyrar mótmælir
harðlega þessum tillögum og
krefst þess að þær verði teknar til
endurskoðunar strax og að fullt
tillit verði tekið til hins alvarlega
atvinnuástands sem er í bænum."
óþh
Átan að stríða loðmibræðslimum
Mokveiði er áfram á loðnumið-
unum, en áta hefur aukist aftur
í loðnunni og minnkar það af-
köstin hjá bræðslunum. Áð sögn
Hilmars I»órs Hilmarssonar,
verksmiðjustjóra á Þórshöfn, er
þetta ekki óvanalegt; einhverjar
sveiflur séu alltaf á átumagn-
inu.
Minna var orðið um átu í þeirri
loðnu sem skipin komu með um
helgina, en í byrjun vertíðarinnar.
Nú hefur átan hinsvegar aukist
aftur, en hún gerir það aó verkum
að loónan brotnar mun fyrr niður
og verður þá að graut sem er erf-
iður í bræöslu. Sökum þessa geta
loðnuverksmiðjurnar ekki tekið
viö nema vissu magni af loðnu í
einu, því átumikil loðna fer illa í
geymslu. Þetta hægir aðeins á
bræðslu og segja má aó það komi
sér illa þegar veiðin er slík að bát-
arnir fylla sig á innan vió hálfum
Menn eru himinsælir yfir góðri loðnuvertíð það scm af er. Þcssi mynd var
tekin í loðnubræðsiunni á Þórshöfn á dögunum. Mynd: sbo
sólarhringi.
„Menn eru nú yfirleitt svo
ánægðir með að loðnuvertíóin sé
loksins hafin að menn skæla ekki
út af þcssu með átuna, enda fcr
hún væntanlega niður aftur,"
sagði Hilmar Þór Hilmarsson.
SBG
Árlegt mót á Vindheimamelum 30. júlí-1. ágúst:
Opnara mót en venjulega
- mótið opið hestamönnum af öllu landinu
Hestamannamótið á Vind-
heimamelum, sem verður um
verslunarmannahelgina, verður
opið öllum, nema í keppni ung-
linga. Það er breyting frá því
sem verið hefur. Sömuleiðis
verður haldið áfram með nýtt
sýningaratriði sem tekið var
upp á Fjórðungsmótinu, svo-
kallaða gæðingaíþrótt.
Að sögn Gísla Halldórssonar,
eins forsvarsmanna mótsins, verð-
ur mótið mun opnara þetta árið en
venja er til og gæti það því orðið
stærra í sniðum. Nú geta hesta-
menn af öllu landinu verið með,
en áður hefur mótið verió bundið
við Skagafjörð og Norðurland
vestra. I keppni unglinga gildir þó
annað, þar keppa unglingar frá Ól-
afsfirði, Siglufirði, Húnavatns-
sýslum og Skagafirði.
Haldið verður áfram með nýj-
ung í gæðingakeppni sem tekin
var upp á Fjórðungsmótinu, það er
sýningaratriði sem kallast gæð-
ingaíþróttir og er nokkuó frá-
brugðið því sem áður kallaöist
gæðingakeppni. Af öðrum atrið-
um má nefna að Björn Sveinsson
á Varmalæk sýnir hinn fræga hest
Hrímni og Sigurbjöm Bárðarson
sýnir Vídalín. Mótið hefst föstu-
daginn 30. júlí kl. 9 með dómum
kynbótahrossa og endar sunnu-
daginn 1. ágúst.
Dagskrá:
Föstudagurinn 30. júlí
Kl. 9.00: Dómar kynbótahrossa.
Laugardagurinn 31. júlí
Kl. 10.00: Töltkeppni - 200 m
völlur.
Kl. 10.00: Eldri flokkur unglinga
Yngri flokkur unglinga.
Kl. 13.00: Gæðingaíþróttir A fl.
Gæóingaíþróttir B fl. Skeió, fyrri
sprettur. Yfirlitssýning kynbóta-
hrossa: Bjöm og Hrímnir - Sig-
urbjörn og Vídalín.
Sunnudagurinn 1. ágúst
Kl. 11.00: Gæðingaskeið
Kl. 13.00: Töltúrslit Yngri fl.
unglinga - úrslit. Eldri fl. ung-
linga - úrslit. Björn og Hrímnir-
Sigurbjörn og Vídalín. Kynbóta-
hross, úrval.
Kl. 16.00: Skeió, seinni sprettur.
Gæðingaíþróttir B fl. - úrslit.
Gæðingaíþróttir A fl. - úrslit.
Verðlaun í skeiói: 250 m 1. verðl.
75.000,- 2. veról. 30.000,- 3.
verðl. 20.000,- 150 m 1. verðl.
40.000,- 2. veról. 20.000,- 3.
verðl. 15.000,-
Opin keppni í gæðingaíþrótt-
um, tölti og gæðingaskeiði. I ungl-
ingakeppni leiða saman hesta sína
Ólafsfirðingar, Siglfirðingar, Hún-
vetningar og Skagfirðingar.
Skráning hjá Magnúsi Lárus-
syni á Hólum í síma 95-36587
dagana 26. og 27. júlí frá kl. 10-
22.
Aðgangseyrir kr. 1.500,- fyrir
alla dagana. Kr. 1.000,- á sunnu-
dag. sþ