Dagur - 22.07.1993, Síða 11
Fimmtudagur 22. júlí 1993 - DAGUR - 11
Iþróttir
Svanur Valgeirsson
Getraunadeildin í kvöld:
Tekst Þórsurum að skora gegn
spútnikliði FH á Akureyrarvelli?
Þórsarar mæta FH-ingum í 9.
umferð Getraunadeildarinnar í
knattspyrnu á Akureyrarvellin-
um í kvöld. Liðið hefur ekki náð
sér á strik í síðustu leikjum og
hefur það aðeins náð tveimur
stigum í síðustu fjórum leikjum,
þremur i Islandsmóti og einum
í bikar. Liðið er nú um miðbik
deildarinnar en talsverðar
sveiflur geta orðið til beggja
átta á stöðu liða eftir leiki um-
ferðarinnar.
Þórsarar eru nú um miðja deild
meó 11 stig og hefur gengið í síð-
ustu leikjum ekki verið eins og
menn hefðu kannski vonað.
„Mér líst vel á leikinn. Þetta
hefur verið erfitt hjá okkur und-
anfarið en ég er að vona að þetta
fari að ganga betur. Vandamálið
hjá okkur er aó við náum ekki að
skora og meðan það gerist ekki er
ekki við því að búast að vió vinn-
um leiki,“ sagði Hlynur Birgis-
son, varnarmaðurinn sterki hjá
Þór. Hann sagði FH-inga vera á
mikilli siglingu þessa dagana og
því mætti búast við erfiðum leik.
„Þeir minna mig að mörgu leyti á
okkur eins og við vorum í fyrra.
Menn reiknuðu fyrirfram ekki
með neinu af þeim en á meðan
hugarfarið er í lagi hjá leikmönn-
unum sjálfum ganga hlutirnir
upp.“
Fjórir leikir verða leiknir í
kvöld og einn annað kvöld. Fylkir
tekur á móti IBV, Víkingur fær
Keflvík í heimsókn og Valsmenn
fara upp á Skaga. KR mætir síðan
Fram í Frostaskjólinu annaó
kvöld. SV
Knattspyrna, 2. og 3. deild:
„Mikilvægasti leikur sumarsiiis“
- segir Marteinn Geirsson, þjálfari
Leifturs, um leik kvöldsins í Ólafsfírði
Þrír leikir verða leiknir í 10.
umferð 2. deildar í knattspyrnu
í kvöld. Norðanliðin Leiftur og
Tindastóll verða í eldlínunni,
hinir síðarnefndu í Reykjavík,
en KA leikur annað kvöld. Fyrir
leikina í kvöld er Leiftur í 3.
sæti deildarinnar með 17 stig
en Tindastóll er hins vegar í 3.
neðsta sæti. Dalvíkingar taka á
móti Völsungum í slagnum í 3.
deildinni.
Leiftursmenn eiga heimaleik að
þessu sinni og fá Stjörnuna úr
Garóabæ í heimsókn. Með sigri
geta þeir jafnað Stjörnuna aö stig-
um. ^
„Þetta er án efa mikilvægasti
lcikurinn okkar á tímabilinu og
við vcrðum að vinna til þess að
missa þá ckki frá okkur. Ef við
náum aó taka þá er ég viss um að
við verðum í baráttunni um sæti í
1. deild að ári,“ sagði Marteinn
Geirsson, þjálfari Leifturs.
Tindastóll á erfiöan leik fyrir
höndum gegn ÍR í Reykjavík.
Gengi liðsins hefur verið brokk-
gengt það sem af cr en með góð-
um sigri heima gegn Þrótti
Reykjavík í síðustu umferð vonast
mcnn til þess að dæmið fari að
ganga betur.
„Allir leikirnir sem við erum að
spila núna eru mjög mikilvægir
og við megum ekkert við því að
tapa stigum. Það er mikil spenna í
þessu en ég á von á að við séum
eitthvað að rétta úr kútnum,“
sagði Pétur Pétursson, þjálfari
Tindastóls.
I 3. deild eru Völsungar á góðri
siglingu og hafa staðið sig vel
það sem af er. Dalvíkingar eru
ekki langt undan á stigatöflunni
og eru til alls líklegir þegar liðin
mætast á Dalvík í kvöld. SV
Kvennalandslið, U-20:
Keppir á Norðurlanda-
móti í Danmörku
Landslið íslands í knattspyrnu
kvenna, U-20, var valið á dög-
ununi. Það niun taka þátt í
Norðurlandamóti í Danmörku
2.-8. ágúst og hefur Logi Ólafs-
son, þjálfari, valið stúlkurnar
sem eiga að leika. Þær eru eftir-
farandi:
Steindóra Steinsdóttir, UBK,
Birna Björnsdóttir, Val, Asthildur
Helgadóttir, KR, Hrafnhildur
Gunnlaugsdóttir, KR, Ásdís Þor-
gilsdóttir, KR, Helga Ósk Hann-
esdóttir, UBK, Margrét Ólafsdótt-
ir, UBK, Soffía Asmundsdóttir,
Val, Kristbjörg Ingadóttir, Val,
Magnea Guðlaugsdóttir, IA, Auð-
ur Skúladóttir, Stjörnunni, Ás-
gerður Ingibergsdóttir, Stjörn-
unni, Hjördís Símonardóttir,
UBK, Olga Færseth, UBK, Katr-
ín Jónsdóttir, UBK og Rósa
Steinþórsdóttir, Sindra. SV
Marteinn Geirsson,
urs.
þjáifari Leift-
Hlynur Birgisson hefur leikið vel nicð Þórsliðinu það seni af er og á crfitt
verkcfni fyrir höndum í kvöld þar eð franilínumenn FH eru allskæðir.
Myml: Pjctur.
Greifamótið í golfí:
Dræm þátttaka kvennamia
byrjað klukkan 13. Menn geta
ráðið því hvenær dagsins þeir
spila. Eftir tvær umferðir er
staðan sem hér segir.
Þriðja umferð Greifamótsins í
golfi verður spiluð í dag. Farið
hefur verið af af stað með
keppni í kvennaflokki en þar eð
þátttaka hefur verið dræm er
spurning hvort hægt verður að
halda áfram með hana. Spilað
er á hverjum fimmtudegi og
Knattspyrna, 2. flokkur:
Akureyrarliðin töpuðu
- Þór fyrir ÍBK - KA fyrir KR
geta nýtt gott færi þegar boltinn
fór í innanverða stöngina og út. I
stað þess að komast inn í leikinn
með því að minnka muninn voru
það KR-ingar sem gerðu tvö síð-
ustu mörkin og unnu eins og áóur
segir 5:1.
Kristján Kristjánsson, þjálfari
Þórs-strákanna, sagði lið Keflvík-
inga það besta sem hann hafi séð
í riðlinum.
„Þcir voru miklu bctri en vió
og voru komnir með unnin lcik
strax í leikhléi. Þetta var erfióur
leikur þar eð völlurinn var blautur
og háll,“ sagði Kristján.
Gestirnir skorðu strax á fyrstu
mínútum leiksins cn Guðmundur
Hákonarson náði að jafna fyrir
heimamenn á 8. mínútu. Eftir það
hafði IBK mikla yfirburði og
komu tuðrunni þrisvar í net
heimamanna fyrir hlé. Strax eftir
hlé kom síóan fimmta markið en
Elmar Eiríksson náði að minnka
muninn fyrir Þór úr vítaspyrnu
áður en flautað var til leiksloka.
SV
Bæði lið í 2. flokki Akureyrarfé-
laganna í knattspyrnu léku í
fyrrakvöld og töpuðu stórt. Þór
tók á móti IBK á Þórsvelli og
tapaði 2:5 en KA fór suður til
Reykjavíkur og niátti sætta sig
við tap, 5:1. Liðin eiga bæði að
leika um helgina; Þór við Þrótt
á Þórsvelli á laugardag og KA
viðVíkingá sunnudag.
„Það var hrikalegt að tapa
þessu svona stórt. Eg hugsa í raun
aó sigurinn hafi verið sanngjarn
en það var allt of mikið að fá á sig
5 mörk,“ sagði Gunnar Gunnars-
son, þjálfari KA-strákanna. Hann
sagði erfitt þegar hann fengi ekki
að nota sitt sterkasta lið; burðarás-
arnir væru á fullu með meist-
araflokki og fengju því ekki aó
leika alla leikina.
KR-ingar höfðu 2:0 yfir í leik-
hléi og bættu þriðja markinu við
skömmu eftir að lcikur hófst að
nýju. KA náði að minnka muninn
meö ágætu skallamarki frá Omari
Kristinssyni og hefði svo átta aö
Knattspyrna:
Islandsmót og bikar hjá yngri flokkum
Leikið var í bikarkeppni og ís-
landsmóti hjá yngri flokkum fé-
laga í síðustu viku og hér á eftir
fylgja úrslit og markaskorar í
einstökum leikjum.
2. flokkúr kvenna:
KS-VöIsungur 3:0
Ása G. Sverrisdóttir skoraói 1,
Telma B, Birkisdóttir 1 og Guð-
laug Dröfn Þórhallsdóttir 1.
ÍBA-Tindastóll 3:0
Ingibjörg Ólafsdóttir skoraöi tví-
vegis og Harpa Reynisdóttir 1
mark. Þegar undankeppni er
hálfnuð er IBA meó fullt hús
stiga.
3. flokkur karla, bikarkeppni:
Leiftur/Dalvík-KA 6:4
Ólafur Ingi Steinarsson, Anton
Ingvason, Daníel Jóhannsson,
Heiðar Sigurjónsson, Finnur
Gunnlaugsson og Ingi T. Sverris-
son skoruðu mörk Dalvíkur/Leift-
urs en því miður náðist aðeins í
markaskorara tveggja marka KA.
Óskar Bragason gerði 2 mörk fyr-
ir liðið. Þrátt fyrir tapið er KA
komið áfram á fleiri mörkum
skoruðum á útivelli þar sem fyrri
lcikurinn fór 3:0 fyrir KA.
Völsungur-Þór 2:4
Mörk Völsungs gerði Arngrímur
Agnarsson en fyrir Þór skoraði
Örlygur Helgason 3 mörk og Am-
ar Sigurðsson eitt.
3. flokkur karla, ísandsmót:
Þór-KS 5:0
Örlygur Helgason 2, Bjarni Guð-
mundsson 1, Jakob Gunnlaugsson
1 og Arnar Sigurðsson 1.
4. flokkur karla:
KA-Völsungur (A) 2:0
Jóhann Traustason og Heimir
Árnason skoruöu mörkin.
KA-Völsungur (B) 6:0
Haraldur Logi Hringsson og
Sverris Jónsson skoruðu 2 mörk
hvor, Baldur Ingvasson 1 og
Anton Ingi Þórarinsson 1.
5. flokkur karla:
Þór-Leiftur/Dalvík (A) 6:0
Þórður Halldórsson 3, Sindri G.
Ólafsson 2, Gunnar Valur Gunn-
arson 1.
Þór-Leiftur/Dalvík (B) 5:1
Mörk Þórs gcrðu: Ásgeir Hall-
dórsson 2 og þeir Eyjólfur Hann-
esson. Siguröur Grétar Guð-
mundsson og Ingvar Erlingsson
eitt nrark hver. Mark Leift-
urs/Dalvíkur skoraöi Arnar Óli
Jónsson.
KA-Völsungur (A) 2:0
Öm Kató Hauksson og Jóhannes
Gunnarsson skoruðu mörkin
KA-Völsungur (B) 2:1
Steinn Bragason og Ólafur Páls-
son skoruðu mörk KA en Einar
Gíslason fyrir Völsung. HA/SV
Kvcnnaflokkur:
Erla Adólfsdóttir, 35 h. (12 stig)
Jónína Pálsdóttir, 38 h. (9 stig)
María Dan, 38 h. (9 stig)
Keppni, án forgj:
Örn Arnarson, 33 h. (12 stig)
RíkarðurRíkarðsson, 33 h. (10 stig)
HalldórRafnsson, 35 h. (7,5 stig)
Ómar Halldórsson, 34 h. (7,5 stig)
Sverrir Þorvaldsson, 37 h. (5,5 stig)
Valdemar Öm Valsson, 33 h.
(5,5 stig)
Karlar, með forgj:
Valdemar Örn Valsson, 32 h. (10 stig)
Ómar Halldórsson, 32 h. (10 stig)
Karl Stcingrímsson, 32 h. (10 stig)
Öm Amárson, 33 h. (6 stig)
Ríkarður Ríkarósson, 33 h. (6 stig)
Rafn Kjartansson, 33 h. (6 stig)
SV
Knattspyrna:
Sveinbjörn í banni
Einungis tveir Ieikmenn af
Norðurlandi voru úrskurðaðir í
leikbann á fundi Aganefndar á
þriðjudag.
Sveinbjörn Hákonarson, fyrir-
liði Þórs, fékk að líta rauða
spjaldiö í leiknum gegn Val á
dögunum og veður því fjarri góöu
gamni í kvöld þegar félagar hans
mæta FH-ingum á Akureyrarvelli.
Örvar Eiríksson, Dalvík, verður
ekki með liði sínu þegar það fær
Völsung í heimsókn í kvöld. SV