Dagur - 26.08.1993, Page 9
Fimmtudagur 26. ágúst 1993 - DAGUR - 9
Böðvar Jónsson frá Gautlöndum, forscti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, Ilalldór Blöndal, landbúnaðarráðhcrra
og Kristrún Eymundsdóttir.
Danssýning Fiðrildanna frá Egilsstöðum var einn af hápunktum kvöldsins.
Umf. Efling mætti með atriði úr Dclcríum búbónis.
Tónlist
Björa Thoroddsen og
tríóið Skipað þeim
Jazztónleikar voru haldnir á
veitingastaðnum Við Pollinn 24.
ágúst. Til leiks voru mættir gít-
arleikarinn Björn Thoroddsen
og jazztríóið Skipað þeim. I
tríóinu eru Gunnar Gunnars-
son, sem leikur á hljómborð,
Jón Rafnsson, bassaleikari, og
trommuleikarinn Arni Ketill
Friðriksson.
Björn Thoroddsen átti fallega
sóló í upphafslaginu Softly, as the
Morning Sunrise. Fyrir utan þaö
fóru tónlcikarnir heldur stirölega
af staö og stóð svo frani undir hlé.
Hljóðfæraleikararnir virtust ekki
nteira en svo ná sarnan og því var
nokkur bragur reiðileyjis á sam-
lcik þcirra. Þar viö bættist, að
styrkstilling kontrabassa Jóns
Rafnssonar var þess eðlis, að
lægri tónar drundu óþægilega, raf-
magnshljóðfærió, sem Gunnar
Gunnarsson lók á, lét heldur
óskcmmtilega í eyrum; var eins og
rafmagnaður xylófónn á efri hluta
borðsins cn þungt á hinum neðri,
trommuleikur Arna Ketils var á
stundum ckki svo lipur sem skyldi
og Björn Thoroddsen virtist ekki
ná fyllilega sambandi við raf-
magnaða kassagítarinn, senr hann
lék á í nokkrum fyrstu lögununr á
tónleikunum.
Þrátt fyrir þctta brá fyrir fag-
lcgurn hlutum í flutningi fjór-
menninganna. Þar má nefna blús,
sem hljómsveitarmcðlimir kölluðu
Fatafellu bhis, en í honum átti
Björn Thoroddscn lipurlcga sóló á
rafmagnsgítar, sem hann hal'ði þá
tekið upp í stað kassagítarsins, og
Gunnar Gunnarsson sýndi laglega
takta á hljómborðið bæði í blúsn-
um og einnig í All the Things You
are. I því lagi náði Jón Rafnsson
einnig snotru sólói á bassann.
Sanrleikur var mun betri í
seinni hluta tónleikanna. Styrkur
bassans var betur stilltur og
hljómboróið nokkru þægilegra.
Árni Ketill var léttari á trommurn-
ar og Björn Thoroddsen í meiri
ham. I þessum hluta var ýmislegt
snoturlega gert. Þar má nefna vel
útfært sóló Gunnars Gunnarssonar
í Stella by Starlight og talsverðan
hita í leik hans í ýmsum öðrum
lögum. Einnig var mjög laglega
leikið í samleik bassa og gítars í
inngangi að Yesterdays, en í því
lagi átti Gunnar Gunnarsson
einnig góða takta. Þá kont lagió
Take the A-Train skemmtilega út
ekki síst í talsvert „prógrama-
tísku“ sólói Björns Thoroddsens.
Árni Ketill hætti sér smávegis
út í „trommubreik“, en þó ekki
nema í einu lagi. Hann mætti
gjarnan vera djarfari við sóló af
ýmsu tagi, þar sem ltann virðist
hafa getu til þess, en þyrfti að lipr-
ast á þessu sviði. Slíkt fæst ekki
nema mcð ástundun og æfingu.
I veitingahúsinu Við Pollinn
háir það mjög tónlistarflutningi,
þar scm hljómborðs, eða öllu
hcldur píanós, cr þörf, að ekki
skuli vera viðunandi hljóðfæri í
húsinu. Salarkynni eru engan veg-
inn slæm til þess að njóta til dæm-
is jazzs og andi staðarins er við
hæll. Hljóðfærisleysið setur hins
vegar óþægilegar hömlur, sem
æskilegt væri að nema brott til
dæmis með góóum, hæfilega stór-
um flygli.
Haukur Ágústsson.
Vtnlr Dóra á
ferð um landið
Hin ástsæla hljómsveit Vinir
Dóra hcfur tónleikafcrð til
kynningar á gcisladiskinum
„Mér líður vel“ á fimmtudaginn
kentur, 26. ágúst í Sjallanum
Akureyri.
Vinir Dóra hafa á undan-
förnum árum verió cin
skcmmtilcgasta tónleikasvcit
landsins og þótt víðar væri leit-
að. Hápunktur ferils þeirra til
þessa var í sumar er þeir spil-
uóu á 500 þúsund manna tón-
listarhátíð Chicago Blues Festi-
val. Vinir Dóra fcngu í fyrra
Clio vcrðlaunin, fyrir tónlist
sína í auglýsingu fyrir hið
þekkta körfuknattleikslið Chic-
ago Bulls.
Mér líður vel er þriðji geisla-
diskur þeirra félaga og heyrist
þar árangur af samstarfi þeirra
viö goðsagnir á borð við Jimmy
Dawkins, Billy Boy Amold, Pi-
netop Perkins, Chicago Beau,
Dcttru Farr, Shirley King o.fl.
Vinir Dóra vcrða á eftirtöld-
um stöðurn næstu daga:
26. og 27. ágúst. Sjallinn,
Akureyri.
28. ágúst. Bíókaffi, Siglufirði.
29. ágúst. Bakkinn, Húsavík.
30. ágúst. Hótel Tangi,
Vopnafirði.
Fréttatilkynning.
Ný dönsk á Norðurlandi
Hljómsveitin Ný dönsk leikur
fyrir Norðlendinga dagna 27. og
28. ágúst næstkomandi. Á
föstudcginum 27. vcrður lcikið i
Sjallanum cn þar hcfur hljórn-
svcitin gert risaböll á árinu.
Skemmst er að minnast
páskanna og síðah mættu Nýd-
anskir hclgina eftir 17. júní og
varð úr dúnduraðsókn. Kynnt
vcrður nýtt MEGA-X mónitor-
kerl't og er ætlunin að láta hár
hljómsveitarmeðlima standa aft-
urí skjóli sprcngikrafts þessa
MEGA-X kerfis sem Gunnar
Ámason hljóðmaður er nýbúinn
aö flytja inn. Laugardaginn 28.
ágúst halda Nýdanskir til Ýdala
og lcika þar. Þcir Jónsi, Gossi,
Seppi, Bangsi og Ólsi ásamt að-
stoöarmönnum hyggjast þá gefa
allt sitt til þess að setja aðsókn-
armet í húsið og er stefnan sett
á 1500 ntanns. „Allt annað yrði
áfall“, var haft cftir yfirmannin-
um nýráðna, honum Seppa
Hjöll.
Frcttutilkynning.