Dagur - 26.08.1993, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 26. ágúst 1993 - DAGUR - 15
Iþróttir
Halldór Arinbjarnarson
Knattspyrna, 2. flokkur karla:
KA siglir lygnan sjó
- eftir sigur á Stjörnunni 2:1
Á þriðjudagskvöldið mættust á
KA-velli 2. flokkur Stjörnunn-
ar og KA í Islandsmótinu. Sigur
var báðum mikilvægur til að
tryggja sæti sitt í deildinni og
það voru Akureyringar sem
höfðu betur með tveimur mörk-
um Brynjólfs Sveinssonar en
Stjarnan svaraði einu sinni.
Leikurinn var hinn fjörugasti
en nokkuð fast leikinn og af mikl-
um ákafa eins og títt er um 2.
flokks leiki. KA var meira með
boltann en kappið í sóknarleik
KA var á tíðum helst til mikið
meðan sóknir Stjömunnar voru
heldur markvissari. Eitt mark var
skorað í fyrri hálfleik og það gerði
Brynjólfur Sveinsson á glæsilegan
hátt eftir góðan undirbúning fé-
laga sinna.
Það voru aðeins 5 mínútur liðn-
ar af síðari hálfleik þegar Stjam-
an jafnaði og var þar á ferð Jón
Haukur Baldvinsson. KA sótti í
sig veðrið eftir markið og átti 2
góð færi strax á eftir og voru
ýmsir á því að boltinn hefði verið
kominn inn í annað skiptið.
En Stjarnan átli líka sín færi og
hefði allt eins getað náð foryst-
unni. Sóknir KA þyngdust eftir
því sem á leið en góður mark-
vörður Stjömunnar sá við Akur-
eyringum lengi vel þar til Brynj-
ólfur Sveinsson komst einn í
Knattspyrna, íslandsmót:
Úrslitakeppni hinna ýmsu flokka
gegn eftir um 35 mínútna leik og
sendi boltann af öryggi í netið.
Skömmu síðar fékk Stjaman víti
eftir að Óskar Bragason hafði var-
ið boltann nteð hendi á marklínu
og litið rauða spjaldið í kjölfarið.
En Stjarnan misnotaði vítið og
KA hirti öll stigin. KA er nú ör-
uggt með sæti sitt í deildinni.
Liðið hefur 16 stig og á 2 leiki eft-
ir.
ívar Bjarklind og Þorvaldur Makan Sigbjörnsson gera hér harOa hríO aO
Stjörnumarkinu og hafa komið boltanum framhjá varnarmanni Garðabæj-
arliðsins. Mynd: Halldór
,,
Þríþraut Islandsbanka:
Fyrir krakka 7-12 ára
Nk. sunnudag verður þríþraut
íslandsbanka haldin í 2. skipti
en í fyrra þótti keppnin takast
sérlega vel. Þátttökurétt hafa
krakkar á aldrinum 7-12 ára og
er þeim skipt í flokka eftir aldri.
Keppnin hefst kl. 13.00 við úti-
bú Islandsbanka við Hrísalund.
Frjálsar:
Mmnmgarmót
ÞorleifsArasonar
Að frumkvæði frjáls-
íþróttafólks USAH hefur
Ungmennasamband Aust-
ur- Húnvetninga ákveðið
að standa fyrir minningar-
móti um Þorleif Arason.
Ætlunin er að mót þetta
sem að sjálfsögðu er kast-
mót verði haldið árlega.
Fyrsta mótið verður haldið
í dag á Vorboðavelli og hefst
kl. 19.00. Sráning verður á
staðnum. Veitt verða verð-
laun fyrir 3 efstu sætin í
hverri grein, en auk þess
verða veitt sérstök verðlaun
fyrir bestan árangur karla og
kvenna skv. stigatöflu FRI.
Keppnisgreinar em kúluvarp
karla og kvenna, kringlukast
karla og kvenna, spjótkast
karla og kvenna og sleggju-
kast karla. Húnvetningar eru
hvattir lil að heiðra minningu
hins látna félaga með því að
fjölmenna á völlinn.
Golf:
Unglingameist-
aramót íslands
áAkureyri
Unglingameistaramót ís-
lands í golfi er að þessu
sinni haldið á Akureyri og
hefst á morgun kl. 8.00.
Reiknað er með um 130
keppendum af öllu landinu
og þar á meðal eru allir
okkar efnilegustu kylfing-
ar.
Keppt er í 2 aldursflokk-
um, 15-18 ára drengir og
stúlkur og flokki 14 ára og
yngri. Meðal þátttakenda er
Akureyringurinn Sigurpáll
Geir Sveinsson, sem er einn
þeirra sem verða að teljast
hvað sigurstranglegastir hjá
strákunum. í yngri flokki rná
einnig nefna Ömar Halldórs-
son frá Akureyri en hann
þykir mjög efnilegur. Nánar
verður fjallað um mótið í
laugardagsblaði Dags.
Eins og nafnið gefur til kynna
er keppnin þrískipt. Hlaupnir
verða 800-1500 m eftir aldri, síð-
an er spymukeppni á reiðhjólum
og lokum verður keppt í bolta-
kasti. í reiðhjólakeppninni koma
keppendur ekki með sín eigin hjól
heldur verða hjól á staðnum.
Skráning fer fram í útibúum ís-
landsbanka og einnig á sunnu-
dagsmorgun við útibúið í Hrísa-
lundi.
Undanfarnar vikur hafa verið í
gangi tennisnámskeið í KA-hús-
inu. Þetta mun vera í fyrsta
skipti, í það minnsta í langan
tíma, sem hér er boðið upp á
skipulagða tenniskennslu. Að
sögn aðstandenda, Ragnheiðar
Sverrisdóttur og Luigi Bart-
olozzi, eru þau mjög ánægð með
hvernig þessi frumraun tókst og
stefna ótrauð á að mæta aftur
næsta sumar en þau eru bæði
búsett í Mílanó. Luigi er sjálf-
stætt starfandi arkitekt en
einnig menntaður tenniskenn-
ari.
„Við getum ekki annað en ver-
ið ánægð því fólkið er ánægt. Að-
sóknin var líka ágæt miðað við að
þetta er í fyrsta skipti sem boðið
er upp á svona námskeið og tennis
ekkert leikinn hér að heita má,“
sagði Ragnheiður. Þau sögðu
einnig virðingarvert að fólkið sem
kom hafði í raun enga tryggingu
fyrir því að framhald yrði á nám-
skeiðinu nú en þau sögðust þó
vera staðráðin í að mæta aftur
næsta sumar. Að þesu sinni var
boðið upp á 10 tíma námskeið og
alls sóttu þau 17 manns.
Mest voru það byrjendur sem
sóttu námskeiðin og varla nema
tveir sem eitthvað höfðu komið
nálægt tennis. Hlutfall kynjanna
var svipað. I vetur er stefnan að
stór hluti þeirra sem á námskeið-
inu voru haldi kunnáttu sinni við
og hafi fasta tíma í KA-húsinu.
Flestir á námskeiðinu að þessu
sinni voru ungt fólk en Ragnheið-
ur og Luigi segja tennis þó ekki
síður henta eldra fólki, ólíkt því
sem margir fullorðnir haldi.
Aldrei er of seint að byrja að
þeirra sögn og meiri líkur á að
áhugi þeirra eldri smiti út frá sér
til þeirra yngri.
Veggtennis hefur nokkuð verið
stundaður á Akureyri og því ekki
óeðlilegt að spumingar vakni um
Senn dregur til úrslita á íslands-
móti og bikarkeppni hinna
ýmsu flokka í knattspyrnu. Úr-
slitakeppni 2. deildar kvenna
og 4. deildar karla hefst um
helgina og sama má segja um
marga yngri flokka. Hér á eftir
fylgir yfirlit urn það sem er að
gerast á næstunni.
Sem kunnugt er taka Dalvíkur-
stelpur þátt í úrslitakeppni 2.
deildar kvenna og keppa um 2
laus sæti í 1. deild ásamt þremur
öðmm liðum. Leikin er einföld
umferð, allir við alla og em leikir
Dalvíkur eftirfarandi: Haukar-
Dalvík, 3. sept. kl. 18.00, Reynir-
hvort tennis sé eitthvað frábrugð-
inn. Luigi sagði svo vera þó hann
vildi síður en svo kasta rýrð á
veggtennis sem slíkan. Völlurinn í
tennis er ntun stærri og hreyfing-
amar allt aðrar. Tennis henti e.t.v.
breiðari hópi og auðveldara sé að
stjóma hraðanum.
Luigi sagðist hafa tekið eftir
því að allir þeir sem námskeiðin
sóttu virtust eiga auðvelt með að
læra tennis og svo virðist sem
íþróttaiðkun liggi almennt vel fyr-
ir fólki hér. Einnig minntust þau á
hversu gaman það væri ef eitthvað
Dalvík, 5. sept. kl. 16.00 og Dal-
vík- Höttur, 12. sept kl. 14.00. Að
þessum leikjum loknum kemur í
ljós hvort Dalvíkurstelpur fara
upp eða ekki.
KS og Hvöt keppa í úrslita-
keppni 4. deildar karla. Leikið er
eftir útsláttarfyrirkomulagi, heima
og heiman og það lið kemst
áfram sem samanlagt skorar fleiri
mörk í báðum leikjunum. Mark á
útivelli gildir tvöfalt ef markatala
verður jöfn. í 8 liða úrslitum leik-
ur Hvöt við KBS, heima í dag kl.
17.30 og úti 2. september. KS
leikur úti við Ægi nk. laugardag
og heima 1. septemberkl. 17.30.
Mynd: Robyn
félag í bænum tæki tennis upp á
sína arma því áhuginn hjá al-
menningi virtist svo sannarlega
vera til staðar.
Þau Ragnheiður og Luigi vildu
koma á framfæri þakklæti til Pét-
urs í KA-húsinu fyrir samstaifið
og einnig Aðalsteins Sigurgeirs-
sonar í íþróttahöllinni sem lánaði
net. Þá veittu fyrirtækin Kjama-
fæði og Messinn grill Móasíðu
þeim einnig stuðning. Þau sögðust
hlakka mjög til að koma næsta
sumar og þá yrðu þátttakendur
vonandi enn fleiri.
Úrslitakeppni 2. flokks kvenna
fer fram í Mosfellsbæ og hefst í
dag. Þar leikur ÍBA ásamt 5 öðr-
um liðum sem skipt er í 2 riðla.
ÍBA er í riðli með Stjömunni og
IA. Efstu lið að lokinni riðla-
keppninni leika um íslandsmeist-
aratitilinn. Fyrsti leikur ÍBA er
við Stjömuna á morgun kl. 17.00
og síðan við IA á laugardag kl.
14.00.
Þegar hefur verið greint frá
stöðu mála í 3., 4. og 5. flokki
karla á Islaridsmótinu. Fram og
Valur leika til úrslita í 3. flokki,
Fram og KA í 4. flokki og Valur-
ÍBK í 5. flokki. Leikur Fram og
KA hefst kl. 11.00 nk. sunnudag
á Valbjamarvelli.
Þá er það bikarkeppni 3. flokks
stráka. Þar eiga Þór og KA eftir
að útkljá hvort liðið leikur til úr-
slita við Val eða Fram. Fyrri leik-
ur Þórs og KA í þessum undanúr-
slitum er á KA-velli 5. september
kl. 17.00 og sá síðari 11. septem-
ber kl. 17.00. Að lokum er vert að
ítreka að bikarúrslitaleikur KA og
Fram í 2. flokki karla fer fram á
Akureyrarvelli þriðjudaginn 14.
septemberkl. 17.00.
Golf:
Greifamót
Á hverjum flmmtudegi er leikið
í Greifamótinu í golfi og í dag
verður engin undantekning þar
á. Nú eru 6 mót búin og línur
farnar að skýrast þó víðast sé
þröngt á toppnum og ófyrirséð
með úrslit.
Síðasta fímmtudag urðu úrslit
þessi:
Karlar með forgjöf:
1.-3. Aðalsteinn P. Eiríksson 32/10 stig
1.-3. Friðrik E. Sigþórsson 32/10 stig
1 .-3. Benedikt Brynleifsson 32/10 stig
4.-5 Öm Amarson 33/6,5 stig
4.-5. Ólafur Búi Gunnlaugss. 33/6,5 stig
Karlar án forgjafar:
1. Öm Amarson 35/12 stig
2. Egill Orri Hólmsteinsson 39/10 stig
3. -5. Haraldur Ringsted 40/7 stig
3.-5. Haraldur Júlíusson 40/7 stig
3.-5. Aðalsteinn P. Eiríksson 40/7 stig
Konur með forgjöf:
1. Erla Adolfsdóttir 33/12 stig
2. Jónína Pálsdóttir 34/10 stig
3. María Daníelsdóttir 36/10 stig
4. Halla Sif Svavarsdóttir 37/7 stig
Að lokum fylgir staðan ásamt
fjölda móta hjá hverjum og ein-
unt.
Karlar með forgjöf:
1. Ólafur Búi Gunnlaugsson 32,83/5
2. Númi Friðriksson 20,25/6
3. Guðbjöm Garðarsson 20.00/4
Karlar án forgjafar:
1. ÖmAmarson 50/5
2. Egill Orri Hólmsteinsson 31/4
3. Sverrir Þorvaldsson 22,50/4
Konur með forgjöf:
1. María Daníelsdóttir 46,50/6
2. Jónína Pálsdóttir 40,00/5
3. Hulda Vilhjámsdóttir 39,00/4
Blak, stúlknalandslið U-18:
Leíkið á Ilúsavík
og Akiireyri
Stúlknalandslið íslands og Fær-
eyja í blaki leika 3 leiki á Norð-
urhtndi um helgina. Fyrst þann
29. á Húsavík kl. 13.00 og kl.
20.00 á Akureyri. Síðan kl.
14.00 á Húsavfk daginn eftir.
Bergljót Borg, Elísabet Jóns-
dóttir og Jóna E. Jóhannsdóttir
úr KA eru í liðinu og Bjami
Þórhallsson þjálfar. Liðin búa
sig nú undir Norðurlandamótið.
Tennisnámskeiðin í KA-húsinu vel heppnuð:
Komum aftur næsta sumar
- segja þau Ragnheiður Sverrisdóttir og Luigi Bartolozzi
Ragnheiður Sverrisdóttir og Luigi Bartolozzi eru ónægð með útkomuna á
fyrsta tennisnámskeiðinu í KA-húsinu og stefna á framhald að ári.