Dagur - 11.02.1994, Síða 3
FRETTIR
Föstudagur 11. febrúar 1994 - DAGUR - 3
Nýtt leiðakerfi Strætisvagna Akureyrar tekið í notkun:
Aukin samtenging hverfa og enda-
stöð á Ráðhústorgi á meðal
„Upphaf þessara breytinga, sem
nú er verið að gera á leiðakerf-
inu, má fyrst og fremst rekja til
vaxandi byggðar í Glerárhverfi.
Nauðsynlegt var orðið að tengja
yngsta hverfið, Giljahverfi, við
leiðakerfið til þess að auka þjón-
ustu vagnanna við íbúa þess. Þá
hafa ýmsar breytingar orðið við
Óseyri og nærligggjandi götur;
mörg þjónustufyrirtæki eru nú
staðsett í því hverfi sem áður
var að mestu byggt iðnfyr-
irtækjum og kalla þær breyting-
ar á auknar mannaferðir og
þjónustu almenningsvagna við
fólk sem þangaö þarf að sækja.
Með breytingunum tengist
Norðurbrekkan einnig betur við
ferðir strætisvagnanna því nú
aka þeir inn í hverfið í stað þess
að áður þurftu íbúar þess að ná
þeim í flestum tilvikum við
Þingvallastræti,“ sagði Stefán
Baldursson, framkvæmdastjóri
Strætisvagna Akureyrar, um
hið nýja leiðakerfi sem nú er
verið að taka í notkun.
Stcfán sagði að þegar athugað
hafi verið hvcrjar breytingaþarlir
á Ieiðakerfinu væru hati komið í
ljós aó hentugra væri að
skipuleggja kcrfið að nýju frá
grunni í staó þcss aó gcra cinstak-
ar staðbundnar brcytingar á því.
Ein megin breytingin sem hið nýja
kerfi fæli í sér væri aukin tcnging
á milli Glerárhvcrfis og þess hluta
bæjarins er væri fyrir innan Glcrá
og byggðist það á þeirri nýjung
sem akstur vagnanna um Hlíðar-
braut og efstu brúna á Glerá er. Þá
hafi verið leitast við að byggja hiö
nýja leiðakerfi upp meö tilliti til
vinnustaða og skóla.
Erfitt væri þó aó fylgja skóla-
tíma fyllilega eftir, því nokkuð
misjafnt væri hversu snemma
kennsla hæfist á morgnana - það
gæti hlaupið á allt að 30 mínútum
á tímanum á milli klukkan 8.00 og
8.30 á milli skóla og jafnvet ein-
stakra deilda. Því gætu sumir
ncmendur, sem notfærðu sér þjón-
ustu vagnanna, oróið að fara 10
eða jafnvel 15 mínútum fyrr af
stað að heiman cn skólatími þeirra
segði til um.
Um vinnustaðina sagði Stcfán
aó l'arið væri lcngst niður á Odd-
cyri í fyrstu átta feróunum á
morgnana. Það sé gcrt vegna þcss
að nokkuó margt fólk vinni ncöst
á cyrinni og miðist þessar feróir
fyrst og fremst við upphaf vinnu-
tíma þess. Stefán sagói að á
morgnana og einnig á kvöldin
verði tvcir vagnar í umferð cn um
miðjan daginn verði þrír vagnar í
akstri þannig að ferðatíðni breytist
úr ferðum á 30 mínútna fresti í
akstur á 20 mínútna frcsti. Með
hinu nýja leiðakerfi breytast enda-
stöðvar skólavagnsins á morgn-
ana. Hann fer af stað frá Strand-
götu, ekur um Oddeyrina, þaóan
um Glerárhverfi norður að Bugðu-
síðu og til baka um Þórunnar-
stræti.
Stefán Baldursson sagði aó
þægilegra veröi fyrir skólanema
úr Glerárhverfi, norðan Bugðu-
síóu að nota almenna hringleið
vagnanna um hverfið, þaö er leið
VIB, sem færi norðar um hverfið
á sama tíma.
Endastöð frá Þórunnar-
stræti að Ráðhústorgi
Með nýja leiðakerfinu mun enda-
stöð Strætisvagna Akureyrar
fiytjast frá Þórunnarstræti fyrir of-
an Fjórðungssjúkrahúsið og niður
á Ráðhústorg þar sem vagnarnir
munu standa á meðan biðtími
stendur yllr í framtíóinni. Stefán
sagði aö þessi breyting ætti ekki
að hafa teljandi óþægindi í för
með sér fyrir farþega, þó gæti
komið fyrir að farþegar úr Glerár-
hverfi cr ætluðu sér upp á brckku
þyrftu aö bíða citthvað þar til vió-
komandi vagn færi af staó að nýju
eóa þá að taka annan vagn er færi
fyrr af stað frá torginu.
Með tilkomu endastöðvar
nýjunga
strætisvagnanna við Ráðhústorg
þrengdist um bílastæði þar sem
vagnarnir munu staðnæmast fyrir
framan hús Nýja bíós og bifreiða-
stöður á eyjunni fyrir framan hús-
ið verða að hverfa. Stefán sagði að
mikilvægt væri aó ökumenn virtu
þetta nýja umráðasvæði strætis-
vagnanna og fyndu bílum sínum
önnur stæði.
Kerfið reynt til mánaðamóta
Stefán Baldursson sagði að í flest-
um tilvikum ætti hið nýja kerfi að
koma betur út - þjóna bæjarbúum
bctur. Þó gætu alltaf einhverjar
undantekingar komið fram og
brcytingar scm þessar væru við-
kvæmar fyrir sumt fólk. í fyrsta
lagi þyrfti fólk að læra nýtt leiða-
kerfi og þegar einstaklingar væru
búnir að aðlaga sig einhverju föstu
kerfi og móta sér daglcgar venjur
út frá því þá ættu þcir stundum
erfitt meó að sætta sig við breyt-
ingar.
Ætlunin væri aö rcyna kcrtló það
sem eftir væri af þessum niánuði
en þá yrði það tekiö til end-
urskoðunar mcð tilliti til ágalla og
hvcrnig unnt verði að brcgðast við
þeim. Að því loknu yrði gclln út
leiðabók fyrir vetraráætlun Stræt-
isvagnanna og sumaráætlunin yrði
síðan kynnt meó vorinu. ÞI
Græna hjólið:
Búvélamiðlun
í Víðigerði
Búvélamiðlun, sem gengið
hefur undir nafninu
GRÆNA HJÓLIÐ, hefur
verið starfrækt undanfarin
ár í Vestur-Húnavatnsssýslu
af Búnaðarsambandi héraðs-
ins en flytur nú um set að
Víðigerði í Þorkelshóls-
hreppi í Vestur-Húnavatns-
sýslu en þar er starfrækt
verkstæði og þjónusta af
ýmsu tagi fyrir bændur auk
þess sem bíleigendum, sem
íeið eiga um Húnavatnssýsl-
ur, hefur staðið þjónusta
verkstæðisins í Víðigerði til
boða.
Þessi þjónusta býður upp á
skráningu tækja, verkfæra og
búnaðar ýmiss konar sem
bændur vilja selja og er greitt
fyrir það ákveðið gjald. Síóan
er hægt að leita til þeirra í
Víðigerói ef viðkomandi van-
hagar um eitthvað sérstakt og
eru þá gefnar upplýsingar um
það hvar viðkomandi hlut eða
tæki er að finna. Gegnun
Græna hjólió hafa ólíklegustu
hlutir verið seldir, allt frá raf-
magnsgiröingum og upp í stór-
ar gröfur. Þessi þjónusta er
ckki bundin við norðlenska
bændur, og m.a. hafa bændur á
Suðurlandi nokkuó leitað til
þessar upplýsingamiðlunar.
Þetta er eina upplýsingamiðl-
unin sem sérhæfir sig í þjón-
ustu við bændur en einnig hef-
ur verið hægt að fá álíka upp-
lýsingar gegnum Gulu línuna.
GG
Þre
s
Takid
Ilorkurjininsursalu
lú bjóóum TÍÓ 30%
aiilíaafslált í sérTÖrudeild
ofau á útsöluveró sem var
40"S0°/o afsláttiir
HAGKAUP
Grœói • Irval • Þjónusta
Allir
krakltar fá
ókeypis íspinna
frá Enimess
í dag frá kl. 16