Dagur - 11.02.1994, Síða 11
IÞROTTIR
Föstudagur 11. febrúar 1994- DAGUR -11
HALLDÓR ARINBiARNARSON
Blak, 2. deild karla:
Langur leikur
á Bjargi
A miðvikudagskvöldið áttust
iið KA2 og SA/Óðins við í 2.
deild karla í blaki. Liðin
keppa í Norðurlandsriðli
ásamt Snerti frá Kópaskeri og
UMSE.
Leikið var í íþróttahúsinu á
Bjargi og var hart barist. Leikur-
inn varð 5 hrinur og tók nærri
hálfan 3ja tíma. Lokatölur urðu
þær að KA vann 3:2. SA/Óóinn
vann fyrstu tvær hrinumar, 15:9
og 17:15 og stóó sú scinni í 30
niínútur. Þá tók úthald að þverra
hjá ieikmönnum SA/Óóins, KA
gekk á lagið og vann næstu 3
hrinur, 15:13, 15:11 og 15:9.
KA er nú með 6 stig og SA/Óð-
inn 5 aó loknum tveimur leikj-
um. Snörtur og UMSE hafa 2
stig og hafa leikið einn leik.
Júdómenn
íParís
Fjórir íslenskir júdómenn taka
um helgina þátt í sterkasta júdó-
móti ársins í A-flokki á þessu
ári, Paris tournament. Þetta ein
Vemharð Þorleifson úr KA, og
Ármenningarnir Halldór Haf-
steinsson, Eiríkur Ingi Kristins-
son og Karel Halldórsson. Mótið
er sem fyrr segir þaö sterkasta á
þcssu ári og jafnast á við HM og
ÓL. Mótið er boðsmót og hafa
íslcndingar átt þar fulltrúa sl. 10
ár. Eins og fram hefur komið í
Degi er mótió í París hið fyrsta í
tveggja mánaða löngu keppnis-
fcrðalagi Vemharós Þorleifsson-
ar um hin ýmsu lönd Evrópu og
er Matsumae cup í Kaupmanna-
höfn næst í röðinni að viku lið-
inni. Þar keppir einnig KA-mað-
urinn Sævar __ Sígursteinsson
ásamt 5 öðrum íslendingum.
Frjálsar:
Meistaramót ís-
lands innanhúss
Meistaramót íslands innan-
húss fer fram um helgina. í
kvöld kl. 21.00 fer frani
keppni í atrennulausum stökk-
um í Kaplakrika og mótið
hefst síðan á morgun í Bald-
urshaga í Laugardal með
spretthlaupum kl. 10.00 og
verður fram haldið eftir há-
degi í Kaplakrika.
Búast má við óvenju spennn-
adi kcppni og fjölmargir norð-
lenskir keppendur veróa t sviðs-
ljósinu. I atrennulausuin stökk-
unum verður spennandi að
fylgjast með íslandsmeistaran-
um og íslandsmethafanum Flosa
Jónssyni, sem nú kcppir fyrir
UFA. Jón Amar Magnússon úr
UMSS verður án efa framarlega
í mörgum greinum og ekki þarf
að koma á óvart þó Islandsmetin
fjúki. Sunna Gestsdóttir, USHA,
cr líklcg til afreka í langstökki
og Birgitta Guðjónsdóttir,
UMSE, í kúluvarpi. Mótinu lýk-
ur síódegis á sunnudag og
mótshaldari er FH.
Frá ÍBA:
A-stigs námskeið
- skráningu líkur á
mánudag
íþróttabandalag Akureyrar
stendur fyrir A-stigs námskeiöi
fyrir þálfara í íþróttahöllinni
dagana 18.-20. febrúar. Skrán-
ing er í síma 12098 og rennur
skráningarfrestur út nk. mánu-
dag. Þjálfarar og iðkendur eru
hvattir til þátttöku.
Handbolti, 1. deild karla:
Stjaman mætír í Höllína
Sævar Arnason gaf hvergi cftir þcgar Þórsarar lögðu KR á dögunum og
svífur hér í átt að markinu. Mynd: Robyn.
Sextánda umferð 1. deildar
karla í handknattleik hefst í
kvöld og þá leika Þór og Stjarn-
an í íþróttahöllinni á Akureyri.
Hefst leikurinn kl. 20.30. KA
leikur við Víkinga á morgun í
Víkinni. Sá leikur hefst kl. 16.30
og verður sýndur í beinni út-
sendingu á Stöð 2.
Jan Larsen, þjálíári Þórs, sagði
menn vera sammála um hvað
hefði farið úrskeiðis gegn IR á
miðvikudagskvöldið og því væri
grundvöllur fyrir að kippa því í
liðinn. „Það voru hraðaupphlaupin
sent urðu okkur að falli. Viö náð-
unt ekki að klára þau og var refsað
mcð marki í kjölfarið. Andinn í
liöinu er góður og nteðan allir
lcikmenn leggja sig 100% fram er
ekki viö þá að sakast þó illa gangi.
Það cr athyglisvert að nú eru
eingöngu leikmenn í liðinu sern
aldir hala verið upp hjá Þór, engir
aðkeyptir eins og hjá sumum öðr-
urn. Eg vill einnig þakka áhorf-
endum hversu vcl þcir studdu við
bakið á okkur gegn KR og vona
að þcir geri það líka í kvöld.“
Gunnar Einarsson, þjálfari
Stjörnunnar, var hóflega bjart-
sýnn. „Miðað við stöðu lióanna í
deildinni eigum við að vinna lcik-
inn en þaö er ekkert sjálfgefið í
handbolta og við tökum þennan
leik alvarlega og vanmetum ekki
Þórsara."
Mikil íþróttahelgi að Laugum í Reykjadal:
Gninnskólamót í dag og
Bikarglíma íslands á morgun
Mikið verður um að vera aö
Laugum í Reykjadal um helg-
ina. Þar ber hæst tvö stórmót í
íþróttum; annars vegar árlegt
Grunnskólamót þar sem allir
grunnskólar í báðum Þingeyjar-
sýslum mæta til leiks og á morg-
un verður haldin þar Bikar-
glíma íslands.
Grunnskólamótiö hefst í dag kl.
10.00. Þar mæta sem fyrr segir
keppendur frá öllum grunnskólum
í báðum Þingeyjarsýslum og er
þctta í fyrsta skipti scm 100%
mæting er á mótió. Það eru 7.-10.
bekkur sem þarna keppa í fót-
bolta, körfubolta, sundi, frjálsunt,
glímu og skák. Keppcndur veróa
urn 400 talsins. Það er íþróttabraut
Framhaldsskólans á Lauguni sem
sér um mótshaldió og er þetta lið-
ur í þjálfun nemenda. Engir verð-
launapcningar verða vcittir á mót-
inu og engin stig reiknuð heldur
lögð áhersla á léttan anda og heið-
arlcgan lcik. Mótinu lýkur meó
kvöldvöku og diskótcki í kvöld.
Bikarglínia Islands er eitt
stærsta glímumót vctrarins og bú-
ast rná við öllum sterkustu glírnu-
mönnum landsins. Mótiö hefst kl.
14.00 á laugardag og vcrður keppt
í nokkrum aldursflokkum. Heima-
mcnn í HSÞ mæta sterkir til leiks
aó vanda og cru 18 kcppendur
skráðir til leiks frá sambandinu,
nær allir úr Mývatnssveit.
Skíðaganga:
Bikar- og punktamót
í Hlíðarfjalli um hclgina
Annað bikarmót vetrarins í
skíðagöngu fer fram á morgun í
Hlíðarfjalli. Til leiks eru skráðir
allir sterkustu göngumenn okk-
ar að undanskildum ólympíu-
förunum og því má búast við
spennandi keppni. Á sunnudag-
inn verður síðan punktamót.
AIls eru tæplega 40 keppendur
skráðir til leiks í bæði mótin.
Á bikarmótinu á morgun er
gengið með hefðbundinni aðferö
og verður fyrsti flokkur ræstur kl.
13.00. Drengir 13-14 ára ganga 5
km og þar eru 11 keppcndur
skráöir til leiks. I stúlknaflokki,
13-15 ára, cru 6 keppendur á skrá
og þar má búast við Olafsfirðing-
unum Lísebet Hauksdóttur og
Svövu Jónsdóttur sterkum. Stclp-
unar ganga 3,5 krn. I piltaflokki,
15-16 ára, er vitað aö Þóroddur
Ingvarsson er í góðu formi en fær
án efa harða keppni. Keppcndur í
llokknum cru 6 og ganga þeir 7,5
km. Olafsfirðingurinn Kristján
Hauksson sigraði á síðasta bikar-
móti í flokki 17-19 ára. Nú mæta
hins vegar ísfirðingar til lciks og
munu sækja fast að honuni. Þar
fara frcmstir Árni Freyr Elíasson
og Gísli Einar Árnason. Piltarnir,
sem cru 6 talsins, munu ganga 15
km. Sigurgeir Svavarsson og
Haukur Eiríksson munu að öllum
líkindum bítast um sigurinn í full-
orðinsllokki. Sigurgeir hafði bctur
síðast en el'tir er að sjá hvað gerist
nú. Karalarnir ganga 30 km og eru
keppendur 7 talsins.
Á punktamótinu á sunnudag
eru sömu keppendur skráðir til
leiks. Þá veröur hins vegar gengið
með frjálsri aðferð og vegalengd-
irnar eru styttri. Einnig vcrður
kcppt í flokkum 11-12 ára.
Punktamótið hefst kl. 11.00.
Körfubolti, 1. deild karla:
Þór gegn Reyni
Þórsarar spila einn lcik um
hclgina í 1. deild karla í körfu-
bolta. Þá koma Reynismenn í
heimsókn og hefst viðureign
lióanna kl. 14.00 á morgun í
íþróttahöllinni. Gengi liðanna í
deildinni hcfur verið meó
nokkuó ólíkum hætti í vetur.
Þórsarar eru á toppi A-riðils og
hafa aóeins tapað þremur leikj-
um þaó sem af er vetrar meðan
Reynismenn hafa unnið einn
og hlotið 2 stig. Næsm hclgi
veróur hins vegar stórleikur í
Höliinni þegar topplió riðl-
anna, ÍR og Þór, eigast við.
íþróttir
helgarinnar
Blak:
1. deild karla:
Laugardagur.
Stjaman-KA kl. 15.30
Sunnudagur:
Þróttur R-KA kl. 15:15
Handbolti
Föstudagur:
L deild karla:
Þór-Stjaman kl. 20.30
Laugardagur:
1. deild karla:
Víkingur-KA kl. 16.30
Íshokkí:
Laugardagur
SA-SR kl. 17.00
Körfubolti:
Föstudagur:
L deild kvenna:
ÍS-Tindastóll kl. 20.00
Laugardagur:
1. deild karla:
Þór-Reynir kl. 14.00
Sunnudagur:
L deild kvenna:
ÍBK-Tindastóll kl. 14.00
Skíði:
Laugardagur
Hlíðarfjall:
Bikarmót í göngu.
Akureyrarmót í svigi:
13-14 ára stúlkur og drengir.
Sunnudagur:
Akureyrarmót í svigi:
15-16 ára og karlar og konur.
Punktamót í göngu.
Þorrablót
Þórs
Þorrablót Þórs veröur
haldió í Hamri
laugardagínn 12. febrúar
kl. 19.30.
Mióasala í Hamri,
símí 12080.
Miðaverö kr. 1.200,-
Ball að loknu borðhaldi.
Opíð hús
eftir að borð-haldí lýkur.
Sækjum gesti ef óskað er.
íþróttafélagið Þór
K.A. heimilið
v/Dalsbraut, sími 23482.
Innanhússmót
í knattspyrnu
fyrir 35 ára og eldri fer fram í íþróttahúsi KA 25.-26.
febrúar nk.
Öllum félögum og áhugamannahópum heimil þátttaka.
Upplýsingar og skráning fer fram í KA-húsinu til 15.
febrúar.