Dagur - 11.02.1994, Blaðsíða 12

Dagur - 11.02.1994, Blaðsíða 12
Bautinn til sjávar og sveita Glæsilegt kjöt- og fiskhlaðborð föstudags-, laugardags- og sunnudagskvöld Lambahryggur kryddaður íslenskum jurtum. Kálfasneiðar barbecue Grísaréttur Creóla. Innbakaður lax að rússneskum hætti Orly steiktar rækjur með súrsætri sósu. Skelfisksalat. Kr. 1.290,- Spilliefnamót- taka opnuð á Akureyri Sorpeyðing Eyjafjarðar, byggðasamlag, og Enduvinnsl- an hf. á Akureyri hafa undir- ritað saming um að Endur- vinnslan annist mótttöku á spilliefnum á EyjaQarðarsvæð- inu og hefst starfsemin nk mánudag, 14. febrúar. í fram- tíðinni er áætlað að setja einnig upp og reka móttökustöðvar fyrir brotamálma og er þeim fyrirhugaður staður í Krossa- nesi. Utstöðvar til móttöku spilli- efna verða í framtíðinni á Greni- vík, Dalvík og Ólafsfirói en þaó efni sem safnast hér á svæðinu verður sent Sorpu í Reykjavík til eyðingar. I samræmi við ákvæði mengunarvarnareglugerðar hefur Hollustuvemd ríkisins unnió til- lögur að starfsleyfi við móttök- una. GG Sveinn Jónsson í Kálfsskinni, formaður Sorpeyðingar Eyjafjarðar bs., og Gunnar Garðarsson, verkefnastjóri, við gám scm geyma mun umhverfisskaðleg spilliefni. Mynd: Robyn fslandsbankamótið: Alþjóðlegt skákmót á Akureyri - Bosmumaðurinn Sokolov og fleiri stórmeistarar mæta Annað alþjóðlega skákmótið á Akureyri, Islandsbankamótið, sem jafnframt er til minningar um Ara Guðmundsson, hefst miðvikudaginn 16. febrúar og stendur til 28. febrúar. Kepp- endur eru tólf, fimm erlendir og sjö íslenskir, og eru þekktir stórmeistar í þeim hópi. Sá stigahæsti er Ivan Sokolov frá Bosníu. Skákfélag Akureyrar stendur fyrir mótinu en félagið fagnaói 75 ára afmæli sínu sl. fimmtudag og er mótió lióur í afmælishaldinu. Að sögn Rúnars Sigurpálssonar, blaðafulltrúa Skákfélagsins, eru meðalstig keppenda á alþjóðlega mótinu 2483 sem þýðir aó mótið erí 10. styrkleikaflokki. Eftirtaldir skákmenn mæta til leiks: Ivan Sokolov, Bosníu (2650 stig), Jóhann Hjartarson (2595), Loek van Wely, Hollandi (2585), De Firmian, Bandaríkjunum (2580), Margeir Pétursson (2550), Helgi Ólafsson (2535), Henrik Danielsen, Danmörku (2480), Þröstur Þórhallsson (2470), Klaus Berg, Danmörku (2440), Björgvin Jónsson (2380), Gylfi Þórhallsson (2295) og Olafur Kristjánsson (2235). Líklegt þykir að fjórir stiga- hæstu skákmennimir verði í topp- baráttunni og má nefna að Jóhanni hefur ávallt gengið mjög vel á Ak- ureyri. Þá er Margeir helsta von Skákfélags Akureyrar og Helgi er óstöövandi á góðum degi. Auk Margeirs tefla Gylfi og Ólafur, stigalægstu mennirnir, fyrir Skák- félag Akureyrar og heimamenn vonast náttúrlega til að þeir standi í stóru köllunum. Mótið hefst kl. 17 á miðviku- daginn og er teflt í Alþýðuhúsinu við Skipagötu, 4. hæð. Rúnar sagði að aðstaða væri fyrir áhorf- endur og skákskýringar í gangi. Tellt verður á hverjum degi fram til 28. febrúar og þá um kvöldið verður lokahóf og verðlaunaaf- hending. SS Vaxandi veiði í Mývatni Alþýðubandalagið á Akureyri: Sigríður fékk yfír 95% atkvæða í skoðanakönnun Flest bendir til þess að í efstu sætum framboðslista Alþýðu- bandalagsins á Akureyri fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor verði sama fólk og fyrir síð- ustu kosningar. Þetta má ráða af niðurstöðum skoðanakönn- unar alþýðubandalagsmanna um röðun á framboðslista flokksins fyrir kosningarnar í vor. Ríflega helmingur alþýðu- bandalagsmanna á Akureyri tók þátt í könnuninni, sem ekki er O VEÐRIÐ í gær rauk hann upp um há- degisbil með hvassri sunna- nátt og gerir Veðurstofan ráö fyrir að í dag verði áfram allhvöss sunnanátt. Á morg- un verður veðrið á hægari sunnan- og suðvestlægum nótum með 2-5 stiga hita. Á sunnudag og mánudag er spáð úrkomulausri sunna- nátt og 0-7 stiga hita. bindandi um skipan efstu sæta listans. Um 30 manns fengu til- nefningar í könnuninni. Sigríður Stefánsdóttir, bæjar- fulltrúi, hlaut afgerandi stuóning í fyrsta sætið, yfir 95% greiddra at- kvæða. Sigrún Sveinbjörnsdóttir, sálfræðingur og formaður félags- málaráðs, hlaut yfir 75% atkvæóa og nánast sama stuðning fékk Heimir Ingimarsson, bæjarfulltrúi. Sigrún fékk einu atkvæði meira en Heimir. I fjórða sæti Ienti Þröstur Ásmundsson, kennari og formað- ur menningarmálanefndar. Hann fékk yfir 55% atkvæða. Hilmir Helgason, formaður uppstillinga- nefndar Alþýðubandalagsins, lenti í fimmta sæti meö yfir 40 % at- kvæóa og Kristín Sigfúsdóttir, kennari og formaður Alþýóu- bandalagsfélagsins á Akureyri, lenti í því sjötta með yfir 40% at- kvæða. Kristín sagði í samtali við Dag að könnunin væri ekki bindandi um skipan efstu sæta, en hins veg- ar væri ljóst að hún yrði mjög lciðandi við endanlegt val á lista flokksins. Kristín sagði ákveðið að listinn myndi líta dagsins ljós fyrir næstu mánaöamót. óþh Ágæt veiði hefur verið í Mý- vatni nú eftir áramótin og til muna líflegri en mörg undan- farin ár. Ágæt veiði var einnig í Mývatni síðla síðasta sumars og haust og svo virðist sem meira hafi komist upp af fiski nú en oft áður. Góð veiði er því rök- rétt framhald af því. Fiskurinn er frekar smár en mjög bragð- góður. Héðinn Sverrisson á Geiteyjar- strönd segir að töluveró ásókn sé í Mývatnssilunginn víða að af land- inu. M.a. hafi töluvert verið selt til Vestmannaeyja og eru það fyrst og fremst verslanir sem eru að út- vega sínum vióskiptavinum sil- unginn, bæði reyktan og ferskan. Vaxandi áhugi er fyrir því að koma austur að Mývatni og veiða jegnum ísinn, þ.e. stunda dorg- veiðar, en ekki hafa verið skipu- lagðar fcróir austur í því skyni. Það var reynt fyrir 1970 en dagaði uppi í kjölfar þess aó veiðin datt þá niður og hefur ekki verið reynt aftur. Veiði er stunduð frá mörgum bæjum við Mývatn og selja bænd- ur afurðirnar bæði reyktar og fer- skar og geta þessar veiðar gefið sæmilega af sér í aðra hönd þegar vel veióist. Héðinn segir að fyrir 1970 hafi veióin verið umtalsverð búbót fyrir mývetnska bændur og því hafi það komið illa við marga að veiðin skyldi bregðast á sama tíma og samdrátturinn í landbún- aði jókst hröðum skrefum. GG Þessi mynd var að visu ekki tekin í Mývatnssveit. Hún sýnir Matthías Matthíasson að dorgveiðum á dögunum skammt frá Lciruncsti við Akurcyri. Sigluprðnr og Fljótahreppur: Sameming í biðstöðu - stóru spurningunum ósvarað Engin hreyfing er komin á sam- einingarhugmyndir Siglfirðinga og Fljótamanna og telur Björn Valdimarsson, bæjarstjóri á Siglufirði, allt eins víst að málið verði saltað fram yfir sveitar- stjórnarkosningarnar í vor. Bæjarstjórn Siglufjaröar sam- þykkti í desembermánuði sl. að fela bæjarráði að skoða möguleika á sameiningu Siglufjaröar og Fljótahrepps. Samþykkt bæjar- stjórnar fylgdu þau skilyrði aó svör við nokkrum grundvallar- spurningum þyrftu að liggja fyrir áður en farió yrði út í sameining- arviðræður. I þessu sambandi var talað um verkefnatilflutning frá ríki til sveitarfélaga og hvaða tekjustofn- ar myndu fylgja með, nánari út- færslu á því hvernig Jöfnunarsjóð- ur verði nýttur til tekju- og þjón- ustujöfnunar og hvort og þá hvernig sjóðurinn verði notaður til að hafa áhrif á sameiningu sveitar- félaga. „Við höfum ekki fengið nein svör við stóru spurningunum enn- þá og ég hef ekki heyrt að þeirra sé að vænta á næstunni. Mér skilst líka á Fljótamönnum aó þeir séu ekki á þeim buxunum að vinna í svona máli núna og þaö verður sennilega látið bíóa fram yfir sveitarstjórnarkosningar. En við höldum öllu opnu með þessari samþykkt," sagði Bjöm. SS TILBOÐ ÞVOTTAVÉL 800 SN. VINDA 14 ÞVOTTAKERFI SP.ROFI TILBOÐSVERÐ KR. 53.580 STGR KAUPLAND Kaupangi v/Mýrarveg, simi 23565

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.