Dagur - 24.02.1994, Blaðsíða 7

Dagur - 24.02.1994, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 24. febrúar 1994 - DAGUR - 7 MINNIN Cm Steinþór Þóraráisson Fæddur 3. nóvember 1951 - Dáinn 16. febrúar 1994 Látinn er í Reykjavík, kær vinur, Steinþór Þórarinsson, smiður og bankamaóur. Oðru sinni, á tiltölu- lega skömmum tíma, kveójum við hjónin góðan vin og félaga frá barn- æsku, sem hefur lotið í lægra haldi langt um aldur fram fyrir vágesti krabbameins. Steinþór Þórarinsson fæddist á Akureyri 3. nóvember 1951 og var því liðlega 42 ára þegar hann andað- ist á Landspítalanum þann 16. þcssa mánaðar. Steinþór var sonur hjón- anna Valnýjar Eyjólfsdóttur, sem lif- ir einkason sinn og Þórarins Lofts- sonar, bókbindara, sem lést fyrir lió- lega ári. Ættir sínar rakti Steinþór til Scyóisfjarðar og í Hörgárdal. Auk Steinþórs eignuðust þau hjón eina dóttur, Rögnu, f. 1950, sem gift er Þorgrími Magnússyni, pípulagning- armeistara á Akureyri. Auk bama sinna ólu þau Valný og Þórarinn dóttursoninn, Þórarinn Amason, að nokkru leyti upp. Það var alla tíð augljóst að sérlega kært var með þeim systkinum og þcgar Þórarinn yngri fæddist varð hann Stcinþóri strax mjög náinn og augastcinn ömrnu sinnar og afa. Stcini Þórarins, cins og hann var ávallt kallaður, ólst upp í góðu atlæti í Hólabrautinni á Akureyri, scm ligg- ur að íþróttavclli bæjarins. Því var það afar eðlilcgt að Steini lcitaði ungur á völlinn til íþróttaiðkana, enda bráðger og miklum kostum bú- inn. Hann varð lljótt flcstum jafn- öldrum sterkbyggóari og hraustari. Þaó var því engin l'uröa að forystu- menn íþróttamála á Akureyri vcittu þessum knáa svcini fljótt athygli. Þaö var sama hvort var í spretthlaup- um, langhlaupum, spjótkasti, liand- bolta, skíðum cðá lötbolta og lleira mætti tclja, alls staðar var hann í fremstu röð. Það var ckki ósjaldan að kallað var í Stcina að allokinni lot- boltaæfingu og hann beóinn að keppa fyrir KA í einhverri grcin frjálsra íþrótta. Og ckki var að sök- um að spyrja, Stcini sló öllum við. Það var hins vegar fótboltinn scm smám saman tók hug hans allan. Á þcini árum var ckki algengt að strák- ar utan af landi vcktu sérstaka at- hygli knattspymuforystunnar í land- inu og væru valdir í úrvalslið. Hvorutveggja var að vió utanbæjar- nicnn tókum á þcim árum ekki þátt í Islandsmótum yngri llokka auk þcss scm verkefni unglingalandsliða voru mun umfangsminni en nú cr. Stcini Þórarins var þó cinn afar fárra utan Sv-homsins sem valinn var í úrvals- lið. Steini Þórarins var komungur, cða 17 ára þegar hann hóf að lcika með 1. dcildarliði IBA í knattspymu. Upp frá því lék Steini samflcytt með IBÁ meðan það var og hét og síðan mcð KA. Sumarið 1980 var síðasta sumarið sem Steini spilaði með KA, cn þá um haustið varð hann fyrir slysi við vinnu sína, sem batt endi á iársælan knattspymulcril hans. Snemma hneigðist Steinþór til bóklestrar, enda alinn upp í mikilli návist og natni við bækur, bæði hvaö snerti innihald og útlit. Steini varó fljótt alæta á bækur og las jöfnum höndum höfuðskáldin sem og það sem léttara er talið. Þess vegna varó Steini lljótt mörgum jafnöldrum sín- um fróðari um land og þjóð. Eg er ekki viss um að mörgurn hafi verið kunnugt um hversu margfróður Stcini var. Hann var þeirrar gcrðar að hann miklaðist aldrei af eigin geróum eóa þekkingu, var ef til vill á stundum hógværari en góðu hófi gcgndi. Steinþór Þórarinsson bar ekki til- finningar sínar á torg. Engu að síóur var hann sérlega hjartahlýr og til- finninganæmur. Mörgum sinnum átt- um við löng samtöl um allt milli himins og jarðar, samtöl sem við geymdum og geymum um ókomna tíó hvor fyrir sig. í þeim samtölum var víða komið vió, talað um íþróttir, stjómmál, fjölskyldur okkar og lífið og tilvcruna almennt. Oft á tíðum fengum við séð tilveruna í öóru ljósi eftir þcssi samtöl, sem voru okkur báðurn afar mikilvæg. Eftir að Steinþór lauk nánii við Gagnfræðaskóla Akurcyrar 'vann hann ýmiss störf þar til hann hóf tré- smíðanám. Alls staðar var hann vcl liðinn hvort heldur af samstarls- mönnum cða vinnuveitendum, cnda gegnheill og vandaður maður. 011 störf vann Steini af mikilli natni og trúmcnnsku. Eg held að honum hal'i ætíð verið nokkur eftirsjá í því aó nýta ckki námshæfileika sína og góða grcind til frekara náms. Sumarið 1973 kom ung og fallcg stúlka sunnan úr Rcykjavík til sum- ardvalar á Akureyri. Hún heitir Lauf- cy Jóhannsdóttir, dóttir Hclgu Jónas- dóttur, kcnnara og Jóhanns Indriða- sonar, vcrkfræóings, scm er borinn og bamfæddur Akurcyringur. Þaó cr skcmmst l'rá að segja að Laul'ey og Stcini fclldu hugi saman og gengu í hjónaband 1975. Með þcini var mik- iö jafnræði og kærleikur. Laufcy cr kennari við Hlíðaskóla. Þau bjuggu á Akurcyri til 1986 þcgar þau lluttu búferlum til Reykjavíkur þar sem Steini hóf störf hjá Islandsbanka og starfaði þar til dauóadags. Þau eiga þrjú yndisleg böm, Helgu f. 1978, AtlaRúnarf. I980og Hildi f. 1986. Þó svo aó öllum væri ljóst hvcrt stefndi, bjó þó von í brjóstum að Steini rnundi ná bata. Ekki síst var von og trú Steina mikil. Hann baróist hetjulegri baráttu, dyggilcga studdur af sínum nánustu, scm og góðurn vinuni. Þcirri baráttu cr lokið. Sökn- uður ríkir meðal þeirra scm kynntust Steinþóri Þórarinssyni. Mestur er missir og söknuður eiginkonu, bama, móður og systur, sem sjá á eftir eig- inmanni, föður, syni og bróður í blóma lífsins. Það cr mikil huggum hamii gcgn að hafa átt þess kost aö kynnast Steinþóri Þórarinssyni, scm alla tíð gaf meira en hann þáði. Eftir lifa minningar um óvenju vandaöan úrvalsmann. Megi góóur guð styrkja alla þá sem um sárt eiga að binda. Guðbjörg og Sigbjörn Gunnarsson. I dag viljum við gömlu skólasystk- inin minnast Steinþórs Þórarinsson- ar. Upphafsspor hvers og cins inn í skólakcrfið á sjötta áratugnum var mismunandi, - sumir lóru beint í bamaskóla en aórir hófu þessa göngu sína 6 ára með smá forskólafræðslu. Algengt var aó við krakkamir á Akureyri byrjuóum námió í Fjólu- götunni, í Elísabetarskóla eða hjá Jennu og Hreióari. Síðan beið okkar bamaskóli í Þorpinu, á Brekkunni eða í Oddeyrarskóla. Þannig var meó okkur krakkana sem fæddumst árið 1951, - við byrj- uðum dreift cn söfnuðumst síðan saman þegar tími var til kominn í Gagnfræðaskólanum á Akureyri ásamt krökkum úr nágrannabyggó- unum. Vissulega vorum við niörg, en svo virtist sem allir þckktu alla og kynnin jukust eftir því sent árunum tjölgaði. En sá tími kom að við drcifðumst á nýjan leik. Sumir fóru í mennta- skóla og þaðan í nieira nám. Aðrir, þar á meðal Steinþór Þórarinsson, tóku gagnfræðapróf vorió 1968 og héldu þaðan í ýmsar áttir á mannlífs- brautinni. Sumir héldu út á vinnu- markaðinn, - aðrir hugðu á sérnám og þá helst í cinhvcrri iðn. Steini Þórarins fór í Iðnskólann ásamt mörgum jafnöldrum og lauk þaðan prófi í smíðum. Þegar maður cr ungur og lífið blasir við lítt mótað og spcnnandi, sýnist leiðin framundan vcra nokkuó grcið marga áratugi fram. Dauðinn er atburóur sem cr huganum fjarlæg- ur og ekki hal'ður með út á frama- brautina. En í tímans rás kcmur ann- að í ljós, og við crum minnt á að dauðinn virðircngin aldursmörk. Við gömlu skólasystkinin úr Gagnfræðaskólanum á Akurcyri scm l'ædd erum árið 1951 höfum rcynt að halda við gömlum kynnurn og láta ekki sameiginleg spor æskunnar niást út í slóó tímans. Við höfum rcynt aó kalla hópinn saman nú síó- ari árin á 5 ára frcsti, svona rétt til að styrkja þá hugsun að cnn erum við ung og þótt árunum fjölgi slitna ckki þræöir góðra kynna og vináttu. Sl. vor mættum við fjölmörg á cina slíka samveru og glöddumst yllr cndurfundum, skoðuöum gamlar rnyndir og dáðumst að útliti og góðri endingu livcrt hjá öðru. Þaó var spurt og spjallað, og Ijóst var að við, ckki síður cn aðrir árgangar, vorum ckki laus undan áföllum þcssa jarðlífs. Þá nýverió höfðum við kvatt cina kæra skólasystur og llciri voru vinirnir sem höfðu cndanlcga kvatt hópinn þcgar lengra til baka var litið. Steini Þórarins var cinn al' þcini sem kom á samvcruna þcnnan vor- dag í fyrra. Það gladdi okkur að sjá hann, því við vissum þá að hann gekk ckki hcill til skógar. Hann var hress aó vanda, þó duldist okkur ekki aö hinn kraftmikli lótboltajaxl var oróinn bcygður undan þeirri byrði sem sjúkdómurinn var. En nú þcgar hinn jaröncski tími hcfur numið staö- ar í lífsslóð hans l'innst okkur mikils virði aó hafa fcngið að ciga þcssa stund mcð honum, og vió vitum að hann sjálfur gladdist yfir samvcr- unni. Flest okkar sáu Stcina ekki aftur, því lcióir okkar liggja í allar áttir og annríki hversdagsins tckur við. En nú cr góðs vinar og skólalclaga sárt saknaó, og citt skarðið cnn cr komiö í hóp gömlu skólasystkinanna, scm minnir okkur á það að ckkcrt cr sjáll'- sagt í þessari veröld. Steini var kappsfullur ljúl'ur drengur, sem skapaði sér scss í minningu okkar og þar mun liann lifa þó hann sjáll'ur hafi nú gcngið frá þjáningunni til þess lífs sem okk- ur ölluni er heitið um síðir í ríki himnanna. Vió vottum ciginkonu hans, böm- um og ástvinum öllum okkar innilcg- ustu samúð. Minningin um Steina rnun lifa í okkar hópi um ókornin ár. Dagur lengisl, leika sér geislar frá vermandi sól uni vinarmynd. Falla tár á troðna slóð. Þar gróa blóni í gengin spor. (Pctur Þórarinsson). Göniul skólasystkini. Fleiri minningargreinar um Steinþór Þórarinsson bíða birt- ingar. EYJÓlftir Krístjánsson heldur uppí Qörínu í kvöld Ath. þeir gestír sem mæta snemma fá ókeypis fordrykk Opiö alla helgína Kaffi °S kökur Sfeðakai. ’dJllllllllllllllililllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllilllllllllllllllh' I Stórdans- I leikur I SSSól I ( á Hótel Húsavík | | föstudaginn 25. febrúar kl. 23-03. | 16 ára aldurstakmark. | NEF 1 •nimimmiiiimmmiiiimiininimminmmiimiiiiiiiiiiiiiititiiiiiimiii?. Kirkjuhátíð barnanna 1994 Sunnudaginn 27. febrúar veröur kirkjuhátíð barnanna haldin í Akureyrarkirkju kl. 11.00. Söngur, sögur, lofgjörð og bænir. Allir velkomnir. Boðið veröur upp á ferðir frá eftirtöldum stöðum: Glerárkirkju, Ólafsfirði, Dalvík, Hrísey, Árskógi, Þelamörk og Hrafnagili. Nánari upplýsingar hjá sóknarprestum.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.