Dagur - 09.03.1994, Blaðsíða 2

Dagur - 09.03.1994, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 9. mars 1994 FRÉTTIR Steinullarverksmiðjan á Sauðárkróki: Samdráttur ekki fyrirsjáanlegur - rekstrartap um 47 milljónir, sem rekja má til gengisbreytinga á síðasta ári „Ég hefði gjarnan viijað geta sýnt betri afkoniu,“ sagði Einar Einarsson, framkvæmdastjóri SteinuIIarverksmiðjunnar á Sauðárkróki, í samtali við Dag en rekstrartap verksmiðjunnar varð um 47 milljónir króna á síðasta ári. Borið saman við árið á undan er rekstrarafkoma fyr- ir fjármagnskostnað og afskrift- ir um það bil 6,5 milljónum króna betri en á síðasta ári en árvissar gengisfellingar vega að sögn Einars þungt í fjármagns- kostnaði fyrirtækisins og gengis- tap vegna erlendra langtíma- lána varð um 47 milljónir króna, sem jafngildir nákvæm- lega tapi ársins. Hefðu gengis- breytingar ekki komið til hefði rekstur fyrirtækisins staðið á núlli. | Heildarsala Steinullarverk- smiðjunnar var rúm 5200 tonn á síðasta ári, sem er um 2,7% aukning frá árinu áður. Tekjur fyrirtækisins jukust úr 367,9 milljónum í 378 milljónir eða um 2,8% á milli ára. Söluverðmæti afurða á innanlandsmarkaói var um 248 milljónir en 240 milljónir á ár- inu 1992. Útflutningsverðmæti nam 126 milljónum, sem er um 4% aukning frá árinu áöur. Eignir verksmiðjunnar nema nú 775,7 milljónum og skuldir eru 630 milljónir. Eigið fé samkvæmt uppgjöri er því 145,6 milljónir króna. Einar Einarson sagöi að þróun rekstrarins á síðasta ári hafi verið með þeim hætti að afkoman sé jákvæð síðari hluta ársins. Einnig sé um jákvæða afkomu aó ræða fyrstu tvo mánuði þessa árs og framhaldið lofi góðu verði ekki um gengisfellingar eða sveiflur í verðlagi að ræða, en vegna er- lendra skulda sé fyrirtækið mjög viðkvæmt fyrir slíkum breytingum. Helstu vióskiptalönd Steinullar- verksmiðjunnar eru Bretland, Hol- land og Þýskaland en fyrirtækið hefur einnig selt talsvert af fram- ieiðslu sinni til Færeyja. Að sögn Einars Einarssonar, framkvæmda- stjóra, hefur sá markaður nú að mestu tapast vegna efnahags- ástands á eyjunum. Þrátt fyrir það séu sæmilegar horfur hvað útflutn- ing varðar á þessu ári. Nú vinna 43 starfsmenn í Stein- ullarverksmiðjunni í 40,5 stöðu- gildum. I dag er unnið á þrískipt- um vöktum, átta tímar hvcr vakt, en áður var unnið á tveimur tólf tíma vöktum. „Eg geri ráð l'yrir að við höldum þessu vaktafyrirkomu- lagi áfram. Ekki er fyrirsjáanlegur samdráttur í framleiðslunni né fækkun starfsfólks og ef verðlag verður stöðugt megum við vænta betri afkomu fyrir þetta ár en það síðasta," sagði Einar Einarsson, framkvæmdastjóri. ÞI austan Eyjafjarðar Okkur hefur verið falið að selja fasteignina EKRU í landi Ytri-Varðgjár. Húsíö er timburhús á steyptri neðri hæö, ásamt bílskúr um 190 fm. Vönduð eign, ekki alveg fullgerð. 7000 fm. leigulóð. Skipti á eign á Akureyri koma til greina. Allar nánari upplýsingar veitir FASTEIGNA & M SKIPASAuSK NORÐURLANDSO Ráöhústorgi 5, 2. hæð gengið inn frá Skipagötu Opið virka daga frákl. 9.30-11.30 og 13.15-17. Sölustjóri: Pétur Jósefsson Lögmaður: - Benedikt Ólafsson hdl. IT Aðalfundur íþróttafélagsins Þórs: Fjárframlög til félaganna Enn er hœgt að gera reyfarakaup þar sem geísladiskar eru gersemi Hafnarstræti 98 • 000 Akureyri • Sími 12241 og íþróttahús í brennidepli Á aðalfundi íþróttafélagsins Þórs í síðustu viku var Aðal- steinn Sigurgeirsson endurkjör- inn formaður félagsins. Aðrir í stjórn eru Rúnar Antonsson, varaformaður, Friðrik Adolfs- son, ritari, Einar Sveinn Olafs- son, gjaldkeri, og Gunnþór Há- konarson, spjaldskrárritari. Varamenn voru kjörnir Bene- dikt Guðmundsson, Kristinn Sig- urharðarson __ og Gunnar Bill Björnsson. Á fundinum var rætt vítt og breitt um hin ýmsu hags- munamál félagsins en ekki var gefin út nein ályktun. Aðspurður sagói Aóalsteinn Sigurgeirsson að vissulega hefði bygging íþróttahúss á félagssvæói Þórs borið á góma, enda eitt af helstu málum sem vinna þyrfti að í framtíðinni. Hann vildi hins veg- ar ekki staðfesta þaó að Þórsarar hefðu verið að bera víurnar í for- svarsmenn stjórnmálaflokkanna sem bjóða fram til bæjarstjórnar- kosninganna í vor en útilokaði þó ekki aukinn þrýsting þegar fram lióu stundir. „Fyrst viljum við fá svar við bréfi okkar til bæjaryfírvalda varðandi úttektina á peningamál- um Þórs og KA, en við verðum væntanlega kallaðir fyrir bæjarráð á fimmtudaginn. Eg held að við ættum að ljúka því máli fyrst áður en við snúum okkur að íþróttahús- inu," sagði Aöalsteinn, en draum- ur Þórsara er aó konia upp cigin íþróttahúsi mcó tengingu við fé- lagsheimilið Hamar. SS Kirkjuvika í Akureyrarkirkju: Helguð imgmeimum og íjölskylduiuii Kirkjuvika í Akureyrarkirkju stendur nú yfir og er að þessu sinni haldin undir einkunnarorð- unum „Ár fjölskyldunnar í kirkj- unni". Öllum tólf ára börnum er boðið í heimsókn í kirkjuna þar sem þau skoða kirkju og safnað- arheimili og þiggja veitingar. Að sögn Þórhalls Höskuldssonar, sóknarprests, er hugmyndin með þessari nýbreytni í starfsemi kirkjuvikunnar að ná til sem llcstra ungmenna og vekja þau til umhugsunar um gildi íjöl- skyldunnar. Öllum tólf ára börn- um hafi verið boðið í heimsókn í kirkjuna og rætt við þau um hvers virði góð og samhent fjöl- skylda sé. Þá segir Þórhallur einnig ákveðið aó heimsækja alla framhaldsskólana og ræöa um gildi fjölskyldunnar við nemendur þeirra. ÞI • STORI Blómahúsinu, Hafnarstræti 26-30 Akureyri, sími 96-22351 BOKAMARKAÐURINN » Þúsundir maiuia og kvenna komu um sfðusti helgi. Og allir ánægðir. 5DAGAR OPIÐ: MÁNUD. TIL LAUGARD. KL. 10:00-19:00 SUNNUD. KL. 13:00-19:00 FYRST Á AKUREYRI áður en hann er settur upp í Reykjavík

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.