Dagur - 10.05.1994, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 10. maí 1994
FRÉTTIR
Sæplast hf.:
Samningur um 1000
ker til Frakklands
Sæplast hf. á Dalvík hefur gert
samning um sölu á 1000 plast-
kerum til Frakklands. Kerin
verða sett þar í sjö togara sem
verður breytt fyrir útgerðaraðila
en sá aðili á fímm skip til viðbót-
ar sem mögulegt er að breytt
verði í byrjun næsta árs og þá
yrði gerður viðbótarsamingur
við Sæplast hf.
Kristján Aðalsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Sæplasts hf., segir
að fyrir tveimur árum hafi fyrir-
tækið selt ker í hliðstætt verkefni í
Frakklandi og síðan þá hafi um-
ræddur útgerðaraðili haft til
skoðunar að breyta skipum sínum.
Vinna við fyrsta skipið hófst í gær
og veröa fyrstu kerin send utan
innan fárra daga. Síðustu kerin í
samningnum verða afhent í haust.
Kristján segir að hér sé um að
ræða sem svarar fímm vikna fram-
leiðslu af 460 kerum. Verómæti
samningsins er á bilinu 15-20
milljónir.
Telja verður talsverðar líkur á
að næsta vetur verði framhald á
verkefninu enda hefur útgerðarað-
ilinn skrifað undir viljayfírlýsingu
um breytingar á hinum skipunum
fimm sem hann gerir út. JOH
Bridgefélag Akureyrar 50 ára:
Bridgeveisla framundan
- íslandsmótið í parakeppni og afmælismót BA
Nemendur Síðuskóla voru að hefjast handa við að myndskreyta vegg skól-
ans. Verkinu á að vera iokið fyrir stjörnudaginn á fimmtudag og þá verður
upplýst hver höfundur þess er og honum veitt verðlaun. Mynd: þi.
Síöuskóli 10 ára:
Sérstök þemavika
og stjörnudagur
Bridgefélag Akureyrar heldur
upp á 50 ára afmæli sitt á þessu
ári og af því tilefni verður
bridgeveisla á Akureyri dagana
12.-15. maí eins og flestir bridge-
áhugamenn vita. íslandsmótið í
parakeppni verður spilað dag-
ana 12. og 13. maí og í kjölfarið
Þrotabú E. Árnason
& Co hf:
Lýstar kröfur 46
milljónir króna
Upphæð lýstra krafna í þrotabú
E. Árnason & Co hf., Kaupangi
v/Mýrarveg á Akureyri, nemur
46 milljónum króna en skiptar-
fundur var haldinn fyrir
skömmu. Skiptastjóri er Björn
Jósef Arnviðarson hdl.
Þrotabúið á fasteign í Kaupangi
auk einhvers af lausafé, en næsta
skrefið veróur aö koma eignum í
verð, þ.e. selja þær, en líklegt er
talió að veðhafar leysi eignina til
sín. Stærsti kröfuhafínn í þrotabú-
ið er Landsbanki Islands, sem á
ríflega 50% krafna, og bankinn er
jafnframt stærsti veðhafmn.
Skiptalok gætu orðió um mitt
næsta sumar ef sala á eignum
gengur eftir. GG
Skóverksmiðjan Skrefið á
Skagaströnd hefur látið útbúa
sérstakt spjald sem fest verður á
framleiðsluvörur fyrirtækisins
til áminningar um mikilvægi ís-
Ienskra iðnaðarstarfa. Eins og
sjá má á meðfylgjandi mynd
prýðir þjóðfáninn framhlið
spjaldsins og í grunninum er
mynd af höndum með textanum
„Islenskar hendur“.
verður síðan afmælismót BA.
Afmælismótið er haldió með
stuðningi Akureyrarbæjar, KEA
og Sparisjóös Glæsibæjarhrepps.
Spilað veröur í Iþróttahöllinni og
hefst spilamennskan kl. 10.30
laugardaginn 14. maí og verða
spilaðar tvær umferðir þann dag.
Þriðja umferðin verður spiluó
sunnudaginn 15. maí og er gert
ráð fyrir að verðlaunaafhendingu
verði lokið um miðjan dag.
Spilað verður um vegleg pen-
ingaverðlaun, kr. 150.000,- fyrir
fyrsta sæti, kr. 100.000.- fyrir ann-
að sæti, kr. 50.000.- fyrir þriðja
sæti, kr. 30.000,- fyrir fjórða sæti,
kr. 20.000.- fyrir limmta sæti og
kr. 10.000,- fyrir sjötta til tíunda
sæti. Þátttökugjald er aðeins kr.
3.000,- á spilara.
Ekkert liggur ennþá fyrir hvort
tekst að endurreisa rekstur
Kaldbaks hf. á Grenivík, sem
var úrskurðaður gjaldþrota 30.
mars sl. Guðný Sverrisdóttir,
Pétur Ingjaldur Pétursson,
framkvæmdastjóri Skrefsins hf„
segir að merkið sé hannað á HJ
Teiknistofu á Akureyri. Kristján
Hjartarson, einn af starfsmönnum
fyrirtækisins, hefur lagt fyrirtæk-
inu til nokkrar lausavísur sem birt-
ar verða á bakhlið spjaldsins og
snúast þær um mikilvægi þess fyr-
ir kaupendur að velja íslenskt.
Skráning í mótið stendur yfir
þessa dagana og gengur vel. Hægt
er að skrá sig hjá Jónínu Pálsdótt-
ur, Ormarri Snæbjörnssyni og á
skrifstofu Bridgesambandsins.
Að loknu afmælismóti BA
veróur dregió í fyrstu umferð í
Bikarkeppni Bridgesambands Is-
lands. Skráningarfrestur er til mið-
vikudagsins 11. maí og er tíma-
áætlun umferðanna þessi: Fyrstu
umferð skal lokið í síóasta lagi 26.
júní, annarri umferð í síðasta lagi
24. júlí, þriðju umferð í síóasta
lagi 21. ágúst og fjórðu umferð í
síðasta lagi 11. september. Eins og
áður er keppnisgjaldið, kr. 3.000.-,
innheimt fyrir hverja umferð.
Skráning fer fram á skrifstofu
Bridgesambandsins. KK
sveitarstjóri Grýtubakkahrepps,
segir að unnið sé markvisst að
málinu og ekki hafí enn sem
komið er komið bakslag í það.
„Það er spurningin hvort og þá
hversu langan tíma þetta tekur, en
þaó hefur í þaó minnsta ekki kom-
ið bakslag. En því er ekki aó neita
að manni finnst þetta ganga heldur
rólega,“ sagói Guðný í samtali við
Ðag.
Orlygur Hnefill Jónsson, lög-
fræðingur á Húsavík, er skipta-
stjóri þrotabúsins og hann hefur
þegar auglýst eignir þess til sölu.
óþh
Sérstök þemavika stendur yfír í
Síðuskóla. í stað hefðbundinnar
kennslu vinna nemendur ýmis
verkefni undir leiðsögn kennara
sinna. Mörg verkefna þessarar
þemaviku tengist Akureyri,
bænum og nánasta umhverfí
auk þess sem 10 ára afmælis
skólans er minnst.
Starf þemavikunnar er byggt
upp með ýmsum verkefnum sem
tengjast myndmennt á einhvern
hátt og vinnur hver bekkur meðal
annars eitt myndverk í varanlegu
formi sem komið verður fyrir í
skólanum. Nentendur sjöunda
bekkjar fengu þaó verkefni að
myndskreyta einn vegg skólahúss-
ins. Efnt var til samkeppni um
myndefni og varð mynd eins nem-
anda fyrir valinu. Næstkomandi
fimmtudag verður sérstakur
stjörnudagur í Síóuskóla þar sem
10 ára afmælisins veróur minnst
og veróur þá skýrt frá því hver er
höfundur myndverksins.
Stjörnudagur Síðuskóla hefst
stundvíslega kl. 9.30 á fimmtu-
dagsmorgun, uppstigningardag,
og kl. 10.00 verður lagt upp í
skrúðgöngu þar sem nemendur,
foreldrar og starfsfólk skólans
ganga hring um skólahverfið en
Lúórasveit Akureyrar fer fyrir
göngunni.
Þá veróa flutt stutt ávörp og að
þeim loknum hefst fjölbreytt dag-
skrá þar sem nemendur skólans
annast ýmsar uppákomur. Má þar
nefna andlitsmálun og mynda-
töku, götubolta, hlutaveltu og
skiptimarkað þar sem nemendur
geta skipt á ýmsu á borð viö
körfu- og fótboltamyndir, lykla-
kippur, derhúfur og mörgu fleiru.
Þá verður myndlistarhorn opið þar
sem tækifæri gefst til að mála
sameiginlegt málverk meó þekju-
litum og einnig söguhorn þar sem
nemendur og foreldrar semja sög-
ur saman. Einnig má nefna keppni
í karaoke og hjólreiðakeppni og
sýningar verða á vinnu nemenda í
stofum og á göngum skólans. ÞI
Akureyri:
Blettaskoöun Krabbameinsfélags-
Skóverksmiðjan Skrefið:
Ný merki á skóna
Þrotabú Kaldbaks hf. á Grenivík:
Áfram unnið að því að
koma hjólunum af stað
Adalfundur
Akureyrardeildar hrossaræktarsambands
Eyjafjarðar og Þingeyjarsýslna
verður haldinn í Skeifunni miðvikudaginn 11.
maí kl. 20.30.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
ins og Heilsugæslustöðvarinnar
Félag íslenskra húðlækna,
Krabbameinsfélag Akureyrar og
nágrennis og Heilsugæslustöðin
á Akureyri sameinast um þjón-
ustu við almenning föstudaginn
13. maí næstkomandi. Fólk sem
hefur áhyggjur af blettum á húð,
getur komið á Heilsugæslustöð-
ina á Akureyri þar sem húðsjúk-
dómalæknar skoða blettina og
meta hvort ástæða er til nánari
rannsókna.
Þetta er í fjórða sinn sem þessir
aðilar sameinast urn blettaskoóun
í sumarbyrjun. Sums staðar er-
lendis er hliðstæð þjónusta orðin
árviss, enda er reynslan af henni
góö og dæmi eru um aó varhuga-
veróar breytingar á húó hafi fund-
ist tímanlega.
Sent kunnugt er hefur tíðni
húðkrabbameins aukist síóustu
áratugi. Ár hvert eru skráð meira
en þrjátíu ný tilfelli af húðkrabba-
meini hér á landi. Mikilvægt er að
fara til læknis ef fram koma breyt-
ingar á húð, eins og blettir sem
stækka, eru óreglulega litir, eða
breytast og sár sem ekki gróa. Á
flestum heilsugæslustöðvum, í
mörgum apótekum og á skrifstofu
Krabbameinsfélags Akureyrar og
nágrennis, Glerárgötu 24, 2. hæð,
er hægt að fá fræóslurit um sól-
böð, sólvörn og húðkrabbamein.
í dag og á morgun verður tekið
á móti tímapöntunum vegna
blettaskoðunarinnar á föstudaginn
ísíma 22311. JÓH