Dagur - 10.05.1994, Blaðsíða 7

Dagur - 10.05.1994, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 10. maí 1994 - DAGUR - 7 \ Handknattleiksdeild KA: Sigmar Þröstur og Valdimar bestir - Þorvaldur Þorvaldsson nýr formaöur deildarinnar Lokahóf meistaraflokks hand- knattleiksdeildar KA fór fram um síðustu helgi. Þar voru mættir leikmenn og stjórn ásamt mökum og einnig tímaverðir, dómarar og aðrir þeir sem starfað hafa hvað mest fyrir deildina í vetur. Ymis verólaun voru veitt við þetta tækifæri; stjórn deildarinnar útnefndi Valdimar besta leikmann Lcó Örn Þorleifsson þótti hafa sýnt niestar framfarir í meistaraflokki í vctur. ársins, hann fékk líka viðurkenn- ingu fyrir að hafa skorað flest mörk og kemur það líklega fáum á óvart. Viðurkcnningu fyrir mestu framfarirnar hlaut Leó Örn Þor- leifsson og þá var Stefáni Arn- aldssyni dómara veitt sérstök vió- urkcnning i'yrir vel unnin störf fyrir hönd KA. Þá voru veitt verólaun- þeim þrcmur leikmönnum sem dóm- nefnd Leikskrár KA í vetur taldi hafa staðið sig best. Sigmar Þröst- ur Óskarsson hlaut flest stig og hlaut að launum helgarferð með gistingu fyrir tvo frá Flugleiðum og afnot af bílaleigubíl frá Bíla- leigu Akureyrar. í ferðinni. I öðru sæti var Alfreð Gíslason þjálfari. Hann lekk máltíð fyrir tvo með öllu á Fiðlaranum og þriðja sætið hreppti Valdimar Grímsson, sem hlaut að launum veglega matar- körfu frá Kjarnafæði. í hófinu tilkynnti Valdimar aö hann hefði fullan hug á aó leika með KA næsta vetur og munu at- vinnumálin þar ráöa mestu. Þá tilkynnti Sigurður Sigurósson for- maður að hann væri endalega hættur störfum. Við af honurn hef- ur tekið Þorvaldur Þorvaldsson, fyrrum varaformaður. VG Logi Már Ólafsson afhendir Vaidimari Grímssyni viðurkenningu fyrir að vcra kosinn besti lcikmaður mcistaraflokks af stjórn handknattieiksdcildar. Myndir: VG Bjarni Sveinbjörnsson skorar sigurmark Þórs í leiknum án þess að Steingrímur Birgisson komi vörnum við. Þórsar- ar hafa nú vænlega stöðu fyrir seinni Akurcyrarmótsleikinn scm fram fer síðsumars. Mynd: Haiidór. Akureyrarmót í knattspyrnu: Dæmið snérist við - nú fara Þórsarar með 1:0 sigur í síðari leikinn Fyrri leikur KA og Þórs í Akur- eyrarmótinu í knattspyrnu fór fram á sunnudaginn á malar- velli KA. Segja má að dæmið hafí snúist algerlega við frá því í fyrravor. Þá léku liðin á malar- velli Þórs og KA-menn sigruðu með einu marki gegn engu. Nú voru það Þórsarar sem skoruðu eina mark leiksins og hafa því vænlega stöðu fyrir síðari leik- inn. Hann fer fram á Akureyrar- velli seinna í sumar. Leikurinn lor rólega af staó og bæði lið þreifuðu fyrir sér. KA sótti heldur meira í byrjun cn eng- in veruleg marktækifæri litu dags- ins ljós. Það var síðan þcgar um 20 mín. voru liónar sem fyrsta og reyndar eina mark leiksins kom. Boltinn barst upp að KA-markinu og svo virtist sem ekki væri veru- leg hætta á ferðum. En Eggert markvöróur KA missti af boltan- um, Dragan Vitorovic, hinn nýi leikmaður Þórs, náði honum og sendi l’yrir rnarkið þar sem Bjarni Sveinbjörnsson var réttur maður á réttum stað eins og svo oft áður. Bjarni átti í litlum vandræðum með að skila boltanum yfír mark- línuna. Bæði lió fengu nokkur sæmileg tækifæri í síðari hállleik en mark- verðir liðanna höfðu þó lítið að gera og lokatölur 1:0. Lcikurinn bar þess greinileg merki að vera leikinn á möl og leikmenn áttu greinilega í nokkr- um vandræðum meó að hcmja knöttinn. Agæt tilþrif litu þó dags- ins ljós inn á á milli sem yljuðu áhorfcndum í blíðviðrinu á sunnu- daginn. Leikurinn lofar þó býsna góöu varðandi sumarió hjá Akureyrar- liðunum. Greinilegt er að sá liðs- styrkur sem Þór hefur lengið frá því í fyrra á eftir að koma liðinu vel í sumar. Bjarni er eitraður frammi, Dragan mjög öfíugur á miðjunni og Ormarr Örlygsson Handknattieikskonur á Akureyri hyggja á stofnun meistaraflokks: Eigum sama rétt og strákarnir - fundur í Hamri í kvöld kl. 21.30, þar sem allir eru veikomnir Það hefur vakið nokkra athygli að meðan handknattlcikur karla hefúr blómstrað á Akur- eyri hefur bærinn ekki átt meistaraflokkslið í kvennaflokki. Handknattlciks- konur úr Þór og KA hafa nú ákveðið að taka höndum saman og setja á stofn meistaraflokk, sem sendur verður til keppni næsta haust. Boðað hefur verið til fundar um málið í kvöld, kl. 21.30 íHamri. Bæði Akureyrarfélögin hafa á undanförnum árum verið að byggja upp yngri flokka kvenna í handbolta og hjá KA mun tölv- erður hópur ganga upp í 2. flokk næsta ár. Þessar stelpur munu ekki fá verkefni að óbreyttu og hugmynd þeirra sern að þessu standa er að félögin sendi sarn- eiginlegt lió til kcppni í mcist- araflokki, 2. flokki og jafnvel 3. flokki. Dágóður hópur handknatt- leikskvenna cr í bænum sem eng- in verkefni hefur haft undanfarin ár en Þór var síóast meó rneist- araflokk 1989-1990. Því gæti orðið um stcrkt lið aö ræða. Hugmyndin er að senda liðið til keppni í 2. deild kvenna, sem stendur til að koma á fót næsta vetur. Konumar sem að þessu standa segja staðrcynd að stclpur hafi mjög á brattan að sækja varðandi tímaleigu í íþróttahús- um og hvergi staðið jafnfætis karlaflokkunum. Þetta þarf að breytast því eins og þær benda á þá ciga stclpur alveg sama rétt og strákar í þcssum cfnum sem öðr- um. A fundinn í kvöld eru hvattir til aö mæta allir sem áhuga hafa á málinu cða eiga hagsmuna að gæta, eiga t.d. stelpur í handbolt- anum hjá KA eða Þór. í fram- haldi af fundinum cr síðan ætlun- in að ræða við stjómir handknatt- leiksdeilda félaganna varðandi framtíðina. þarl' ckki að kynna. Hið unga lió KA baröist mjög vel á miðjunni og meó Steingrím Birgisson og Halldór Kristinsson sem kjölfest- una í vörninni er liðið til alls lík- legt í sumar. Þá vantaði fyrirlið- ann Bjarna Jónsson á sunnudag- inn. Knattspyrna: Þór-ÍBV á Akureyri Stjórn knattspyrnudeildar Þórs tók um það ákvörðun í gær að leikur Þórs og IBV í 1. umferð Islands- mótsins verður leikinn á Akureyri eins og mótaskrá kveóur á um. IBV hafði sem kunnugt er farið fram á aó víxla heimaleikjum þessara liða. Leikurinn fer fram þann 23. maí nk. og ef Akureyrar- völlur veróur ekki orðinn leikhæf- ur verður spilaó á grasvelli Þórs. Knattspyrna: JMJ-mót KDA Fimm leikjum er nú lokið í JMJ móti Knattspyrnudómarafélags Akureyrar. í fyrsta leik mótsins gerðu Dalvík og SM jafntefli, þá vann KA 3:2 sigur á Þór, SM og Magni gerðu 0:0 jafntefli og Dal- vík sigraði lið Þórs 4:3. KA og Þór mega ekki nota 8 leikja- hæstu menn sína úr hinu JMJ- mótinu. í gærkvöld Iéku Þór og Magni en úrslit lágu ekki fyrir þegar blaóið fór í vinnslu. Dalvík og KA lcika á Dalvík í kvöld kl. 19.00 og á fimmtudag leika Dalvík-Magni kl. 11.00 og KA-SM kl. 14.00. Mótinu lýkur á laugardag kl. 14.00 en þá leika Þór-SM og Magni-KA.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.