Dagur - 10.05.1994, Page 8
8 - DAGUR - Þriðjudagur 10. maí 1994
ÍÞRÓTTIR
HALLDÓR ARINBJARNARSON
Greifatorfæran haldin í 4. sinn:
Einar vann Greifa-
bikarinn til eignar
Þýska knattspyrnan:
Bayern Miinchen meistari
- mál Eyjólfs Sverrissonar skýrast næstu daga
Fyrsti hluti íslandsmótsins í tor-
færu, Greifatorfæran, fór fram í
malargrúsunum ofan Akureyrar
sl. laugardag. Það er Bflaklúbb-
ur Akureyrar sem heldur mótið
og í 4. sinn með stuðningi veit-
ingahússins Greifans. Þriðja árið
í röð sigraði Akureyringurinn
Einar Gunnlaugsson í útbúnum
flokki, nú á bfl sínum, Norð-
dekk-Drekinn og fyrsti Greifa-
meistarinn, Helgi Schiöth á
Frissa fríska, varð í 2. sæti. Ein-
ar er frá Akureyri og Helgi Eyja-
fjarðarsveit og því tvöfaldur
norðlenskur sigur að þessu
sinni. í götubflaflokki sigraði
Ragnar Skúlason.
Einar keyrói Norðdekk-Drek-
ann af miklu öryggi alla keppnina.
Hann hlaut fuilt hús stiga úr fyrstu
þraut, náði síðan forystunni eftir
4. þraut, hlaut flest stig keppenda
úr 5. þrautinni og síðustu þrautina,
sem var tímabraut, ók hann af
skynsemi og lauk keppni með
1505 stig. Hann náði því í 20 stig
í baráttunni um Islandsmeistaratit-
ilinn.
Helgi Schiöth á Frissa fríska
var allan tímann í toppbaráttunni
og tryggði sér 2. sætið með góð-
um akstri í tímabrautinni. Hann
hlaut einnig tilþrifaverðlaunin fyr-
ir glæsilegt stökk í 5. þraut og
sýndi einnig í heildina mest tilþrif
kcppenda. Helgi hlaut 1425 stig
alls í keppninni og 15 stig til Is-
landsmeistara.
Islandsmeistarinn í götubíla-
llokknum frá síðasta ári, Þorsteinn
Einarsson, keppti nú í útbúna
llokknum og stóð sig mjög vel.
Hann varð jafn Helga að stigum
fyrir tímabrautina en varó að sætta
sig við 3. sætið meó 1375 stig.
Sigurður Axelsson á Fríðu Grace
var í 2. sæti á eftir Einari áöur en
lagt var í síðustu þraut en bíllinn
bilaði í næst síóustu þrautinni og
hann gat því ekki verið meira með
og datt nióur í 5. sætið.
Islandsmeistari síðasta árs,
Gísli G. Jónsson á Kókómjólk-
inni, byrjaói vel og hafði forystu
eftir 3 þrautir. I 4. og 5. þraut
gekk honum hins vegar afleitlega
og varð aó sætta sig við 6. sætið.
Þórir Schiöth á Jaxlinum varð fyr-
ir bilun í 1. þraut, missti af þremur
næstu og þrátt fyrir að vera fljót-
astur í tímabrautinni varð hann að
gera sér næst síóasta sætið að
góðu.
Afföll hjá götubílum
Aðeins 4 keppcndur mættu til
leiks í götubílaflokki og keppnin
stóð milli Ragnars Skúlasonar og
Kjartans Guðbrandssonar. Ragnar
hafði forystu allt frá upphafí og
sigraói með 1515 stig en Kjartan
hlaut 1260.
Mikil afföll uróu í þessum
flokki. Vélin í bíl Guómundar
Sigvaldasonar hrundi daginn fyrir
keppni, Raf'n H. Guðmundsson
varð að keyra á framdrifmu nær
alla keppnina eftir að hafa brotið
drifskaft í 1. þraut og smávægileg
bilun varð til þess að Siguróur Þ.
Jónsson missti af þremur fyrsu
þrautunum. Hann er á bíl sem
gaman verður að fylgjast með í
sumar og á án efa eftir aö blanda
sér í toppbaráttuna.
Svíþjóðarferð
Á morgun fara nokkrir af bestu
bílunum og ökumönnunum til
Svíþjóðar og taka þátt í Noróur-
landakeppni ásamt Svíum, Norð-
mönnum og Finnum. Keppt verð-
ur ytra 21. og 28. maí. Seinna í
sumar koma síðan frændur okkar
hingað til lands og þá lýkur Norð-
urlandamótinu. Mánuður er í
næstu torfærukeppni hérlendis
sem verður á Hellu.
Greinilegt var á laugardaginn
að menn voru að spara bíla sína
fyrir þessa ferð enda ekkert gam-
anmál að lenda í veltu og þurfa að
smíða bílinn upp á nýtt á þremur
dögum. Keppnin á laugardaginn
gekk afar vel og var mótshöldur-
um til sóma á 20 ára afmælisári
Bílaklúbbs Akureyrar.
verkusen, Frankfurt og Dort-
mund sér UEFA- sæti.
Á Ólympíulcikvanginum í
Munchen voru 63 þús. áhorfendur
saman komnir til að sjá sína menn
tryggja sér meistaratitilinn. Fyrri
hálfleikur var markalaus. I upp-
hall síöari hálfleiks skoraði ný-
kjörinn knattspyrnumaður ársins í
Þýskalandi, Lothar Matthaus.
Brotið var á honum rétt utan víta-
teigs. Hann tók spyrnuna sjállúr
og skoraöi af öryggi. Tíu mínútum
síðar tryggði Jorginho Bæjurum
cndanlega meistaratitilinn með
glæsilegu marki. Ljóst er að lið
Bayern kemur sterkt til leiks
næsta vetur með nýjan þjálfara,
Trapattoni, sem áður þjálfaði Ju-
ventus og franska snillingin Papin,
sem kemur frá AC Milan.
Eyjólfur Sverrisson og félagar í
Stuttgart enduðu tímabilið meó
öruggum sigri á Dresdcn, 3:0.
Eyjólfur kom inn á þegar rúmur
hálftími var liðinn og átti góðan
dag cins og allt liðið. I stuttu
spjalli við Dag eftir leikinn sagði
hann að sín mál kæmust á hreint
alla næstu daga en hann er nú að
skoða tilboð frá nokkrum liðum,
Frissi fríski á flugi. Helgi Schiöth fékk tilþrifavcrðlaunin fyrir þetta glæsi-
lega stökk og ekki að ástæðulausu.
Kókómjólkin er vel fallin til siglinga. Það sýndi íslandsmeistarinn Gísli G.
Jónsson áþrcifanlcga í tímabrautinni. Myndir: Halldór.
Arsþing Körfuknattleikssambandsins:
Dregið í riðla
- samþykkt að fjölga í úrvalsdeildinni
□□ —_
□□ ’□“ □^'^
'iÆ: Q D D
Munib
ódýru
morgun-
tímunu
frú kl. 9-14
Abeins kr. 270
Sólbabsstofan Hamri
sími 12080.
Ársþing KKÍ var haldið um
helgina. Þar var samþykkt að
fjölga liðum í deildinni úr 10 í 12
og einnig breytt fyrirkomulag á
úrslitakeppninni. Þá var dregið í
riðla í úrvalsdeildinni fyrir
næsta vetur.
Saman í riðli eru annars vegar:
Njarðvík, ÍA, Haukar, Snæfell,
Borgarnes og Þór. Hins vegar:
ÍBK, Grindavík, KR, Tindastóll,
Valur og ÍR. Leikin cr fjórföld
umferð innan hvors rióils og tvö-
föld milli rióla.
Fyrirkomulag úrslitakeppninn-
ar er þannig að 3 efstu lió hvors
riðils komast áfram auk tveggja
stigahæstu liöa þar á eftir, samtals
8 lió. Með þcssu ættu alltaf sterk-
ustu lióin að komast áfram þó
riðlar verói missterkir. Neðsta lió
deildarinnar fellur. I 8-lióa úrslit-
um þarf tvo unna leiki til að kom-
ast áfram, þrjá í undanúrslitum og
4 í úrslitum. Því gætu liðin tvö
sem leika um Islandsmeistaratitil-
inn þurft að eigast 7 sinnum við.
Norðdekk-Drekinn klifrar hér upp eina brekkuna. Greifameistarinn 1992-
1994, Einar Gunnlaugsson, situr við stýrið.
Lokaumferð þýsku úrvalsdeild-
arinnar í knattspyrnu fór fram á
laugardaginn. Með sigri Bayern
á Schalke tryggði liðið sér meist-
aratitilinn í 13. sinn. Aðeins stigi
á eftir meisturunum endaði lið
Kaiserslautern gott tímabil með
góðum sigri á Hamborg. Auk
þessara tveggja Iiða tryggðu Le-
m.a. í Þýskalandi og Frakklandi.
Árni Hermannsson,
Þýskalandi.
Lokastaðan
Werder-Gladbach
Leipzig-Lcverkusen
Duisburg-Frciburg
Baycrn-Schalke
Wattenscheid-Karlsruhc
Dortmund-Niirnberg
HSV-Kaiserslautern
Köln-Frankfurt
Stuttgart-Dresden
Baycrn 34 1710 7 68:37 44
Kaisersl. 34 18 7 9 64:3643
Leverkusen 34 14 11 9 60:47 39
Dortmund 34 15 9 10 49:45 39
Frankfurt 3415 8 11 57:41 38
Karlsruhc 34 14 10 10 38:30 38
Stuttgart 34 13 11 10 51:43 37
Bremen 34 13 10 11 51:44 36
Duisburg 3414 8 12 41:52 36
Gladbach 34 14 7 13 65:59 35
Köln 34 14 6 14 49:51 34
HSV 34 13 8 13 48:52 34
Dresdcn 34 10 14 10 33:44 30
Schalke 3410 9 15 38:50 29
Frciburg 34 10 8 16 54:57 28
Niirnberg 34 10 8 16 41:55 28
Wattenschcid 34 6 11 17 48:70 23
Leipzig 34 311 20 32:69 17