Dagur


Dagur - 10.05.1994, Qupperneq 9

Dagur - 10.05.1994, Qupperneq 9
IÞROTTIR Þriðjudagur 10. maí 1994 - DAGUR - 9 HALLDÓR ARINBJARNARSON Everton slapp á undraverðan hátt - Chelsea felldi Sheff. Utd. á lokamínútunni - Ipswich nokkrum sek. frá falli - Oldham fylgdi Swindon og Sheff. Utd. niður Graham Stuart skoraði tvö af mörkum Everton, sem bjargaði sér frá falli með æfintýralegum sigri á Wimbledon. Um helgina var leikin lokaum- ferðin í Úrvalsdeildinni á Eng- landi og nú var fallbaráttan í al- gleymingi þar sem mörg lið voru í fallhættu fyrir þessa síð- ustu leiki. Swindon var fallið í 1. deild, en ekki var útséð um hvaða tvö lið yrðu að fylgja þeim niður í 1. deild. Og ekki vantaði dramatíkina og spenn- una sem var gífurleg og undir lok leikjanna voru liðin ýmist áfram uppi eða fallin niður eftir því sem staðan breyttist á völl- unum. En lítum þá á síðustu umferðina á laugardag. ■ Everton varð aó sigra Wim- bledon til þess aó hafa raunhæfa möguleika á aö foróa sér frá falli og þrátt fyrir aö leika fyrir troð- fullum heimavelli virtist sem lióið hefði þegar í upphafi kastaó frá sér öllum mögulcikum. Strax á 4. mín. náöi Dean Holdsworth for- ystu fyrir Wimbledon meö marki úr vítaspyrnu sem dæmd var á klaufalega hendi innan teigs hjá Anders Limpar. Ekki batnaói ástandió hjá Everton þcgar Gary Ablctt skoraði sjálfsmark á 20. mín. er hann reyndi aö bjarga eftir skot Andy Clarke. En þaó verður aö segja leikmönnum Everton til hróss aó ekki gáfust þeir upp og Graham Stuart lagaói stööuna með marki úr vítaspyrnu 4 mín. síöar eftir aö Limpar hafói fiskað ódýra vítaspyrnu. Síöari hálfleik- urinn var ævintýri líkastur fyrir Everton og eftir að Stuart hafði bjargað á línu fyrir Everton sneri Úrslit í vikunni Coventry - Blackburn 2:1 Leeds Utd - Sheffield Wed 2:2 QPR - West Ham 0:0 Oldham - Sheffield Utd 1:1 Man. Utd - Southampton 2:0 Chelsea - Coventry 1:2 Oldham - Tottenham 0:2 1. deild Grimsby - Nott. For. 0:0 Barnsley - Millwall 0:1 Charlton - Bristol City 3:1 Leicester - Bolton 1:1 Wolves - Sunderland 1:1 Luton - WBA 3:2 Bolton - Luton 2:1 Evrópukeppni bikarhafa Úrslitaleikur Arsenal - Parma 1:0 Um helgina Úrvalsdeild Aston Villa - Liverpool 2:1 Blackburn - Ipswich 0:0 Chelsea - Sheffield Utd 3:2 Everton - Witnbledon 3:2 Newcastle - Arsenal 2:0 Norwich - Oldham 1:1 Sheffield Wed-Man.City 1:1 Swindon - Leeds Utd 0:5 Tottenham - QPR 1:2 West Ilain - Southampton 3:3 Manchester Utd - Coventry 0:0 1. deild Bolton - Barnsley 2:3 Bristol City - Peterborough 4:1 Charlton - Middlesbrough 2:5 Crystal Palace - Watford 0:2 Grimsby - Millwall 0:0 Nott. ham For - Sunderland 2:2 Oxford - Notts County 2:1 Portsmouth - WBA 0:1 Southcnd - Derby 4:3 Stoke City - Luton 2:2 Tranmere - Birmingham 1:2 Wolves - Leicester 1:1 liðið vörn í sókn og Barry Horne náöi að jafna leikinn með glæsi- legu langskoti í stöng og inn. Stu- art skoraði síöan sigurmark Ever- ton með lúmsku skoti er 9 mín. voru til leiksloka og glæsilegur, en óvæntur sigur Everton var í höfn og Úrvalsdcildarsætinu sem virtist gengið þeim úr greipum var bjargaó. ■ Ipswich var eitt þeirra liða sem voru í bráðri fallhættu áður en leikir laugardagsins hófust og þeirra bcið hið erfióa verkefni að sækja Blackburn heim og aó minnsta kosti jafntefli úr leiknum. Það tókst, liðin gerðu marka- laust jafntefli í mjög opnum leik sem var fullur af marktækifærum, en jafnteflió sennilega réttlát úrslit. Það kom síðan í ljós eftir að flaut- að hafði verið til leiksloka í öðr- um leikjum að jafnteflið hafói dugað Ipswich til áframhaldandi veru í deildinni, en naumt var það. ■ Sheffield Utd. hefur bjargað sér á síðustu stundu frá falli undanfar- in ár og margt benti til þess að sú yrði raunin nú. Liðið mætti Chelsea á útivelli, en þar sem Chelsea er að búa sig undir úr- slitaleik FA-bikarsins um næstu helgi voru möguleikar Sheff. Utd. til þess að ná stigi taldir góðir. Jo- stein Flo náði síðan forystu fyrir Sheff. Utd. með góðu skoti snemma leiks og allt leit vel út. Jakob Kjeldbjerg jafnaði þó í síð- ari hálfleik með skalla fyrir Chels- ea, en Glyn Hodges náði forystu fyrir Sheff. Utd. að nýju 2 mín. síðar er hann slapp í gegn um vörn Chelsea. Mark Stein náði að jafna fyrir Chelsea á nýjan leik er 13 mín. voru til leiksloka og á síðustu mín. leiksins skoraói Stein síðan sigurmark Chelsea eftir sendingu frá Dennis Wise og sendi þar með Sheffield lióió niður í 1. deild. ■ Danny Williamson náði forystu fyrir West Ham á 11. mín. í leik liðsins gegn Southampton sem ekki var sloppið vió falldrauginn. Matthew Le Tissier náði aö jafna með glæsilegu marki úr auka- spyrnu á síðustu mín. fyrri hálf- leiks og síóan lagði hann upp mark fyrir Neil Maddison og Southampton þar með komið yfir. Martin Allen jafnaði í 2-2 fyrir West Ham, en Le Tissier náði að nýju forystu fyrir Southampton mcö marki úr vítaspyrnu eftir að Iain Dowie hafði verið hindraður í teignum. Undir lokin varð Kcn Monkou miðverði Southampton það á að skalla boltann í eigið mark aðþrengdur af Lee Chapman og leiknum lauk því með jafntefli 3-3, en stigið dugði Southampton til að halda sæti sínu í deildinni. ■ Sean McCarthy skoraði fyrir Oldham á útivelli gegn Norwich með góðu skoti strax á 14. mín. og gaf liði sínu von um aó halda sæti í deildinni. Heimamenn höfðu þó undirtökin í leiknum og voru óheppnir aó skora ekki fyrr en á 72. mín. að Robert Ullathorne afgreiddi sendingu frá Neil Ad- ams í netið. Adams var keyptur frá Oldham fyrr í vetur og þetta mark sem hann lagði upp fyrir Norwich varó til þess að fella Oldham niður í 1. deild. Þrátt fyrir að bæði lió fengju góð færi undir lokin lauk leiknum með jafntefli og það dugði ekki Oldham. ■ Aston Villa sigraði Liverpool á Villa Park 2-1 þrátt fyrir að Robbie Fowler næði forystunni fyrir Liverpool í leiknum. Þaö var Dwight Yorke sem svaraði með tveim mörkum fyrir Villa og tryggði liði sínu sigurinn í lcikn- um. ■ Newcastle sigraði nýbakaða Evrópubikarmeistara Arsenal með 2-0 sigri á heimavelli. Andy Cole og Peter Beardsley úr vítaspyrnu skoruðu mörkin fyrir Newcastle. ■ Sheffield Wed. og Manchester City gerðu 1-1 jafntefli í leik sín- um þar sem Gordon Watson náði forystunni fyrir ShelT. Wed., en Uwe Rosler náði síðan að jafna fyrir City. ■ Swindon kvaddi Úrvalsdeildina meó 5-0 ósigri á heimavelli gegn Leeds Utd. Brian Deane skoraði tvívegis fyrir Leeds Utd. og þeir David White, Chris Fairclough og Rodney Wallace sitt markió hver. ■ Tottenham tapaði enn einum leiknum á heimavelli, nú fyrir Q.P.R., þar sem Teddy Shering- ham skoraði mark Tottenham í leiknum. Trevor Sinclair skoraði hins vegar tvö mörk fyrir lió sitt Q.P.R. og þar með tryggði hann liðinu öll þrjú stig leiksins. ■ A sunnudag mættust lið Manc- hester Utd. og Coventry á Old Trafford í Manchester í hálfgerð- um sýningarleik þar sem úrslit leiksins skiptu ekki rnáli. Fjörug- um leik liðanna lauk mcð marka- lausu jafntefli, cn þessa leiks verður einna helst minnst sem síð- asta deildarleiks Bryan Robson með Man. Utd. Hann hefur um árabil verið einn albesti leikmaður liðsins og raunar um langt árabil besti leikmaður deildarinnar. Hann hefur nú ákveðið að leika ckki áfram með félaginu að leik- tímabilinu loknu. 1. deild Síðasta umferð 1. deildarinnar var leikin á sunnudag og því er nú ljóst hvernig mál hafa skipast í þeim herbúóum að mestu leyti. Crystal Palace og Nottingham For. hafa tryggt sér sæti í Úrvals- deildinni að ári, en þriðja liðið kemur úr hópi Millwall, Leicester, Tranmere og Derby en þau munu leika úrslitakeppni um lausa sætið. Peterborough, Oxford og Birm- ingham féllu hins vegar niður í 2. deild og var mjög mjótt á munum, þar sem markatala skildi að Birm- ingham og W.B.A. Þ.L.A. Pat Nevin og fclagar í Tranmere fara nii í úrslitakcppnina um laust sæti í úrvalsdcild. Lokastaðan Úrvalsdeild: Man. Utd 42 27 11 4 80: 38 92 Blackburn 42 25 9 8 63: 36 84 Newcastle 4223 8 11 82: 41 77 Arsenal 421817 753: 28 71 Leeds 42 18 16 8 65: 39 70 Wimbledon 42 18 11 13 56: 53 65 Sheff.Wed 42 16 16 10 76: 54 64 Liverpool 4217 916 59: 5560 QPR 42 16 J214 62: 61 60 Aston Villa 42 15121546: 5057 Coventry 42 14 14 14 43: 4556 Norwich 42 12 17 13 65: 61 53 West Harn 42 13 13 16 47: 58 52 Chelsea 42 13 1217 49: 53 51 Tottenhain 4211 12 19 54: 5945 Manch. City 42 9 181538: 4945 Everton 42 12 8 22 42: 6344 Southampton 4212 7 2349: 6643 Ipswich 42 9 16 17 35: 5843 Sheff. Utd 42 8 181642: 6042 Oldham 42 9 13 2042: 6840 Swindon 42 5 15 22 47:10030 1. deild: Crystal Pal. 46 27 9 10 73:4690 Nott. Forest 46 23 14 974:4983 Millwall 461917 1058:4974 Leicester 46 19 161172:59 72 Tranmere 4621 10 1669:5372 Derby 46 2011 15 73:6871 N. County 46 20 81865:6968 Wolves 461717 1260:47 68 Middlesbro 46 18 13 15 66:54 67 Stoke 46 1813 1557:5967 Charlton 46 19 81961:5865 Sundcrland 46 19 8 19 54:57 65 Bristol City 46161614 47:5064 Bolton 4615 141763:6459 Southend 46 17 82163:67 59 Grimsby 461320 1352:47 59 Portsmouth 4615131852:5859 Barnsley 46 16 7 23 55:67 55 Watford 46 15 9 22 66:8054 Luton 461411 2156:6053 WBA 461312 2160:6951 Birniingham 46 1312 2152:69 51 Oxford 46 1310 2354:7549 Peterboro 46 8 13 25 48:76 37 Bryan Robson Iék sinn síðasta deildarlcik mcð Man. Utd. um helgina.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.