Dagur - 10.05.1994, Page 15

Dagur - 10.05.1994, Page 15
MiNNING Þriðjudagur 10. maí 1994 - DAGUR - 15 Theódór Kristjánsson Tjarnarlandi Fæddur 12. mars 1908 - Dáinn 1. maí 1994 Meó nokkrum oróum vil ég minn- ast frænda míns Theodórs Krist- jánssonar á Tjamalandi sem nú hefur kvatt þetta jarðlíf og er laus úr þeim fjötrum sem það líf býr mannanna bömum á langri ævi. Eg geri mér hugmynd um aó þaó sé eins og aö afklæóast þungum brynjum herklæða að losna við þreyttan og sjúkan líkama, skipta um jarðvist og fá tækifæri til að klæðast nýjum líkama, að hefja nýtt líf í nýju umhverfi handan þeirrar miklu móðu sem vió öll eigum eftir aó fara yfir um fyrr eða . síðar. Þar sem feður vorir og horfnir ættingjar og vinir eru fyrir til aó taka á móti þeim sem koma og fagna nýjum gestum. Thcodór var fæddur á Ytri- Tjörnum í Eyjafirði 12. mars 1908, sonur hjónanna Kristjáns Helga Benjamínssonar og Fanncyjar Friðriksdóttur. Hann var fimmti í aldursröð 12 systkina er voru; Laufey Sigríöur, Benjamín, Inga, Auður, Theodór, Svava, Baldur Helgi, Bjartmar, Valgarður, Hrund, Dagrún og Friðrik. Af þessum systkinum eru áður látin Laufey Sigríóur, Benjamín, Inga, Auður og Bjartmar. Theodór ólst upp á Ytri-Tjörn- um, og átti þar heima fyrri hluta ævi sinnar. Snemma fékk hann áhuga fyrir vélum og vann hjá Vélasjóöi ríkisins um árabil. Hann var einstaklega laginn að fást við vélar, bíla og önnur tæki, eins og honum væri í blóð borið þekking og glöggskyggni á samsetningu véla, gerði vió hvað sem var, stundum ótrúlega hluti sem aðrir réðu ekki við. Hann var auk þess hagur meö afbrigðum bæði á tré og jám og vandvirkur maður í alla staói. Lengi vann hann meó skurð- grölur að framræslu mýra, var ótrúlegt hvað hann gat haldið gömlu vírgröfunum lengi gang- andi með lagni sinni og áhuga. Þó ekki hafi Theódór hlotið lang- skólamenntun var hann mjög vel sjálfmenntaður á ýmsum sviðum. Hann var bókhneigður eins og móóir hans og flest hans systkini og víðlesinn. Einkum hal'ói hann gaman að þjóðlegum fróóleik. Hann var líka mjög vel hagmæltur og gerði hnyttnar og skemmtilegar vísur sem margar verða lengi í minnum hafðar og alltaf var stutt í kímnigáfuna. Ein af hans síóustu vísum er svona: „Á mér lengur ekki er gáll og ekkert vinn til nytja en ég strita eins og Njáll alltafviðað sitja." Trúlega hcfur hugur hans staðió „Rödd í speglunum“ frá Hörpuútgáfunni Hörpuútgáfan hefur sent frá sér ljóðabókina Rödd í speglunum eftir Jóhann Hjálmarsson. Þctta er fjórtánda ljóöabók skáldsins. I bókinni hljóma þær raddir sem menn komast ekki hjá að hcyra og taka afstöóu til; rödd upprunans sem um leið er rödd ljóðsins, áleitnar raddir umhverfis skáldsins og umheims. í llokki lausmálsljóða um Reykjavík speglast bernska og æska og hvernig hið liöna og nútíminn skipta sköpum. Þetta eru cinskon- ar minningar í frjálslegu formi, í senn glataður tími og fundinn. Hörpuútgáfan gefúr út „Nóttin hlustar á mig“ Hörpuútgáfan hefur sent frá sér ljóóabókina Nóttin hlustar á mig eftir Þuríði Guðmundsdóttur. Þctta er sjöunda ljóðabók höfund- ar. Ljóðin í bókinni eru í þrem fiokkum. Sá fyrsti nefnist Tjarn- Ijóð, annar Blóm þagnarinnar og þriðji fiokkurinn ber hcitið Nóttin hlustar á mig. Þuríður Guðmundsdóttir vakti athygli sem Ijóöskáld við útkomu fyrstu Ijóóabókar hennar „Aðeins eitt blóm“ árið 1969. Seinni bæk- ur hennar hafa staófest að rödd hennar á sterkan hljómgrunn í samlélaginu. „Nóttin hlustar á mig“ er 55 blaðsíður. Mynd á kápu er eftir Björgu Þorsteinsdóttur. Prent- vinnslu annaðist Oddi hf. Jóhann Hjálmarsson hefur sent frá sér ljóðabækur og auk þess skrifaó um bókmenntir, listir og menningarmál. Hann hefur verið bókmenntagagnrýnandi Morgun- blaósins frá 1966. Rödd í speglunum er 59 blað- síður. Prentvinnslu annaðist Oddi hf. til þess að komast frekar til mennta, en ekki komust allir í skóla í þá daga eins og nú er. Hamingjumaður varð hann í sínu lífi og átti því láni að fagna að eignast frábæra eiginkonu og lífs- förunaut og stóran hóp mannvæn- legra barna. Hann kvæntist Guð- mundu Finnbogadóttur frá Patreks- firói árið 1946 og stofnuðu þau sitt fyrsta heimili á Ytri-Tjömum. Þau eignuðust saman 9 böm; Olaf Helga, Fanneyu, Kristján Helga, Finnboga Helga, Vigdísi Helgu, Auói, Theodór, Svöfu og Gunn- hildi Freyju. Díönu Sjöfn átti Guð- munda áður en þau Theódór gift- ust. Það var stór hópur barna á Ytri- Tjömum á þessum árum, þar sem tvær fjölskyldur bjuggu og minn- ist ég margs af samskiptum okkar krakkanna og Thcódórs frænda sem alltaf var hinn rólegi maður sem ekkert gat haggað þó mikið gengi á. Hann var yfirleitt hæglátur maður og dulur cn glaóur á góðri stund. Eitt af því sem einkennt hef- ur gömlu Tjarna-systkinin er hvaó þau hafa verið samheldin og góðir vinir og haft gaman af félagsskap hvers annars. Bíl eignaðist Thcódór á undan öðrum og man ég svo vcl eftir Rauðhettu sem var lengi til og skólabíll í hreppnum. Þetta var amerískur herbíll að uppruna sem Theódór setti saman, byggði yfir tréhús og innréttaði. Hann hafói lengi þann starfa með höndum aó fiytja skólabömin í barnaskólann. Munu margir minnast þessa sér- staka bíls og trausts ökulags Theodórs frá þessum árum. Einstaklega hefur Guómunda reynst manni sínum góður lífsföru- nautur. Þaó var aðdáunarvert aó sjá hvað hún hcl'ur verið manni sínum og fjölskyldunni kærlciksrík og góó þrátt fyrir að vera sjálf ckki hraust. Hvað hún í vcikindum og erfðleikum síðustu missira hefur verið þolinmóð og mild. Það hlýt- ur alltaf að vera sár söknuður að verða viðskila við ástvin sinn og lífsförunaut. En huggunin felst í trúnni á endurfundi við léttari að- stæóur. Ég votta Guðmundu og allri fjölskyldunni mína innilegustu samúð vió fráfall Theodórs og bió guð að blessa minningu hans. Kristján Baldursson. Glæsibæjarhreppur Kjörskrá vegna sveitarstjórnarkosninganna 28. maí 1994 liggur frammi á Sílastöðum. Kærufrestur til sveitarstjórnar vegna kjörskrárinnar rennur út kl. 12.00 á hádegi 14. maí 1994. Oddviti. ATH! Manchester United aðdáendur sem hafa áhuga á að ganga í „United klúbbinn“ hafi samband við Gunnar í síma 26032 og 26161. Öxnadalshreppur Kjörskrá fyrir Öxnadalshrepp vegna kosninganna sem fram eiga að fara 28. maí 1994, liggur frammi að Auðnum frá 4. maí til 28. maí. Kærufrestur er til 14. maí kl. 12.00 á hádegi. Oddviti. ByggÖastofnun Utboð Utanhússmálning Byggðastofnun óskar eftir tilboðum í utanhúss- málningu á Strandgötu 29 á Akureyri. Verkinu skal lokið eigi síðar en 10. júní 1994. Útboðsgögn verða afhent á Teiknistofunni FORM, Kaupangi v/Mýrarveg, sími 26099, frá og með þriðjudeginum 10. maí 1994. Tilboðin verða opnuð á sama stað mánudaginn 16. maí 1994 kl. 11.00. Menntamálaráðuneytið Styrkur til háskóla- náms í Japan Japönsk stjórnvöld bjóða fram styrk handa íslendingi til rannsóknanáms í háskóla í Japan háskólaárið 1995- 96. Ætlast er til að styrkþegi hafi lokió háskólaprófi og sé yngri en 35 ára, miðað er við 1. apríl 1995. Þar sem kennsla við japanska háskóla fer fram á japönsku er til þess ætlast aö styrkþegi leggi stund á japanska tungu um a.m.k. sex mánaða skeið. Umsóknum um styrkinn, ásamt staðfestum afritun prófskírteina, meðmælum og heilbrigðisvottorði, skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 15. júní nk. Sérstök umsóknareyðu- blöð fást í ráðuneytinu. Menntamálaráðuneytið 5. maí 1994. H FERÐAMALA- W FULLTRÚI Ferðamálanefnd Dalvíkurbæjar auglýsir laust til umsóknar starf ferðamálafulltrúa Dalvíkur. Allar nánari upplýsingar veitir formaður nefndarinnar Hannes Garðarsson í síma 96-61694 á kvöldin. Umsóknarfrestur er til 20 maí. Ferðamálanefnd Dalvíkurbæjar. FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á ÍSAFIRÐI Ljósmóöireöa hjúkrunarfræð- ingur með Ijósmæðramenntun óskast nú þegar í fasta stöðu og til afleysinga á FSÍ Um er að ræða eina stöðu af þremur á stofnuninni við fæðingarhjálp og umönnun sængurkvenna og nýbura. Ljósmæðurnar skipta á milli sín vöktum og bakvöktum. Einnig sinna Ijósmæðurnar mæðravernd á heilsugæslustöð og ómskoðunum. Á FSÍ er mjög góð aðstaða fyrir fæðingarhjálp og sængurkonur. Öll tæki og búnaður eru ný og fullkomin. Fæðingar á undanförnum árum hafa verið frá 70-100 á ári, þar af allt að 11 keisaraskurðir. Hafið samband við hjúkrunarforstjóra FSÍ í vs. 94-4500, eða Sigrúnu Magnúsdóttur, Ijósmóður í vs. 94-4500 eða hs. 94-4348 og kannið málið. Við bjóðum áhugasömum að koma vestur og kynna sér að- stæður. Hjúkrunarfræðingar óskast (fastar stöður í sumar, eða haust, og í sumara- fleysingar á 30 rúma blandaða legudeild (hand- og lyf- lækningar, öldrunarlækningarog fæðingarhjálp). Um er að ræða venjulega vaktavinnu á sjúkrahúsi, sem tekur í notk- un nýja 25 rúma legudeild eftir næstu áramót. Framundan er því skemmtilegt og skapandi starf fyrir áhugasama hjúkrunarfræðinga við skipulagningu og þróun legudeilda og uppbyggingu hjúkrunar- meðferðar. Hafið samband við hjúkrunarforstjóra, Hörð Högnason, f vs. 94-4500 eða hs. 94-4228, eða Rannveigu Björnsdóttur deildarstjóra í vs. 94- 4500 eða hs. 94-4513 og kynnið ykkur málið. Við bjóðum áhuga- sömum að koma vestur og kynna sér aðstæður.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.