Dagur - 17.05.1994, Qupperneq 8
8 - DAGUR - Þriðjudagur 17. maí 1994
I-listinn veifar réttu tré
Fyrir átta árum síóan, þegar nýr
meirihluti var myndaður á Dalvík
í kjölfar kosninga, var dagsskip-
unin að segja aldrei nema góöar
fréttir af ástandi á staðnum. Lík-
lega hefur ekkert ákvæði í mál-
efnasamningi haldið jafn vel, og
það meira að segja út yfir gröf og
dauða þess meirihluta sem þá var
myndaður, því enn í dag eru sumir
svo gagnteknir, að ef það er nefnt
aó það kunni að vera rispa á
glansmyndinni þeirra þá er brugó-
ist við meö nánast bernskum
hætti.
En því mióur hefur glansmynd-
in ekki blasaö vió öllum og þó við
höfum verið býsna upptekin af því
sem vel hefur gengið, svo sem
þróunarstarfi frystihúss KEA, vel-
gengni Sæplasts, umsvifum SFD
og fleiru sem frumherjar á ýmsum
sviðum hafa verið að takast á vió,
þá höfum við ekki getaó lokað
augunum fyrir því aö erfiðleikar
hafa víða gert vart viö sig. Mörg
dalvísk fyrirtæki hafa gengið í
gegnum miklar hremmingar og
sum ekki lifað þær af. Þeir sem
neita að horfast í augu við það eru
ekki líklegir til að læra af reynsl-
unni.
Sjálfstæðismenn á Dalvík halda
sig á þessum þekktu glansmynda-
slóðum í umfjöllun sinni um mál-
efni Dalvíkur nú í kosningabarátt-
unni. Það má þó segja að seilst sé
örlítió lengra en venjulega til aö
fréttirnar hljómi vel. Þannig segja
þeir aó á sama tíma og veiðiheim-
ildir landsmanna í botnfíski hafi
minnkaó þá hafí veióiheimildir á
Dalvík aukist. Það er erfitt að
finna þessari fullyrðingu stað ef
horft er til tonnafjöldans þar sem
veióiheimildir skipa á Dalvík eru
rúmlega tvö þúsund tonnum minni
nú en árið 1990 og tæplega fimm
þúsund tonnum minni en t.d. árið
1988, og tonnunum fækkar ár frá
ári.
Sama er að segja um hlutdeild-
ina í heildarbotnfiskkvótanum.
Sjálfstæðismenn nota töluna
2,38% fyrir árið 1994. Á henni er
síðan byggó fullyróingin um að
allt sé nú í góðu gengi, enda hafi
hlutdeildin einungis verið 2,12%
árið 1990. Um þetta er það að
segja að árið 1990 var hlutdeild
Dalvíkur í sögulegu lágmarki,
„Sjálfstæðismenn á
Dalvík halda sig á
þessum þekktu
glansmyndaslóðum
í um§öllun sinni
um málefni Dalvíkur
nú í kosningabar-
áttunni. Það má þó
segja að seilst sé
örlítið lengra en
venjulega til að
fréttirnar hljómi vel.“
nema menn vilji rifja upp árið
1992/93 þegar hlutdeildin fór nió-
ur í 1,86%. Sambærileg tala fyrir
fiskveiðiárið 1993/94 er hinsvegar
2,18% samkvæmt upplýsingum
Sjávarútvegsráðuneytisins. Þá hef-
ur Snorri Snorrason keypt Baldur
(áður Þórhall Daníelsson) til Dal-
víkur og er það ein ástæða þess að
Svanfríður Jónasdóttir.
talan hækkar frá 1.86%. Frá þess-
ari tölu á síðan eftir aó draga
kvóta Sæness sem var ekki skráð í
sinni nýju heimahöfn strax eftir
sölu, og Haraldar, en hann var
sem kunnugt er seldur burt af
staðnum eftir að núgildandi kvóta-
ár hófst.
Rækjukvóti hefur ekki valdió
mönnum víðlíka áhyggjum og
botnfiskkvótinn þar sem heildar-
kvóti rækju hefur verið að aukast
ár frá ári og Sjávarútvegsráðu-
neytið jafnvel bætt við kvótann á
miðju fiskveiðiári eins og í ár. Þaó
er hinsvegar ekki heldur afsökun
fyrir því aó nota ranga tölu eins og
þeir sjálfstæóismenn á Dalvík
gera. Samkvæmt upplýsingum
Sjávarútvegsráðuneytisins er hlut-
deild Dalvíkur í rækju fyrir fisk-
veiðiárið 1993/94 ekki 6,69 eins
og sjálfstæðismenn segja heldur
3,31 % og það meó sama fyrirvara,
eftir er að draga frá rækjukvóta
Sæness og Haraldar. Fyrir árið
1990 er ekki reiknuð út hlutdeild,
enda giltu aðrar reglur þá en nú.
Það er mikilvægt að vera bjart-
sýn. Það er hinsvegar alvarlegt
umhugsunarefni að frambjóðend-
ur Sjálfstæðisflokksins skuli, nú í
kosningabaráttunni, nota tölur
sem ekki fást staófestar af þeim
aðila sem úthlutar kvótanum,
Sjávarútvegsráóuney ti n u.
Svanfríður Inga Jónasdóttir.
Höfundur skipar efsta sæti I-listans á Dalvík
fyrir bæjarstjórnarkosningarnar 28. maí nk.
Úlfur-ÚIfur!
Ég sé mig knúinn til að svara efsta
manni I-listans, Svanfríói Ingu
Jónasdóttur, þar sem hún hefur
kallaó úlfur, úlfur og fullyrt aö
hlutfall Dalvíkur í heildarkvóta
hafi minnkað á undanförnum ár-
um. Orökstuddar dylgjur um
kvótamál Dalvíkinga, sofandahátt
bæjarstjórnar og hugmyndafátækt
okkar D-listamanna eru með svo
miklum ólíkindum, að þaó þarf
bæði áræði og kjark til þess að slá
ryki í augu Dalvíkinga með þess-
um hætti. Staóreyndir tala hins
vegar sínu máli en upplýsingar í
meðfylgjandi töflum eru byggðar
á opinberum tölum.
Samkvæmt mínum kokkabók-
um leiðir meðfylgjandi tafia í ljós
að ekki er um samdrátt að ræða,
heldur aukningu og það allveru-
lega. Hlutfall Dalvíkur í botnfisk-
kvóta hefur aukist um 13.9% og
400,000
350,000
* 300,000
k 150,000
| lao.ooo
50.000
0
01-02 02-03
um 129% í rækjukvótanum. Fá
sveitarfélög á Islandi geta státað
af slíkri aukningu, sér í lagi á tím-
um mikils samdráttar í afla og
margfaldri kvótaskerðingu.
En nóg um kvótamálin aó
sinni. Mig langar að vita með
hvaða hætti I-listinn ætlar að örva
starfsemi fiskmarkaðar á Dalvík á
tímum samdráttar í afla? Aó mínu
viti þarf aukinn kvóta til en það er
einmitt þaó sem viö D-listamenn
viljum meó kvótabankanum. Og
vió skulum svo sannarlega vona
að leiðin liggi enn frekar upp á
við hér þegar kvótinn eykst á ný.
Heldur hefur farið lítió fyrir því
í skrifum þínum Svanfríður Inga,
hvaó núverandi bæjarstjórn hel’ur
gert fyrir íbúa Dalvíkur og hvað
hún hefur lagt af mörkum í þágu
tjölskyldunnar. En það má nátt-
úrulega ekki minnast á það eða
hvað? Ég ætla nú samt að gera
það og sýna fram á að núverandi
bæjaryfirvöld eru ekki alvond eins
og þú virðist ýja aó.
Friðrik Gígja.
„Hlutur Dalvíkur í
botnfiskkvóta hefur
aukist um 13,9% og
um 129% í rækju-
kvótanum. Fá sveitar-
félög á Islandi geta
státað af slíkri aukn-
ingu, sér í lagi á tím-
um mikils samdráttar
í afla og margfaldri
kvótaskerðingu“.
stofnað hlutafélagið HAMAR sem
keypti NÓA EA 477 og margt
fleira mætti telja.
En til er fólk, sem hvorki skilur
né vill skilja það sem vel er gert
og finnur sér fróun í því að sverta
það sem á undan er gengið, rang-
túlka það og leggja út á versta
veg sem ekki hefur heppnast full-
komlega. Það var líka refurinn
sem sagói að berin væru súr, þeg-
ar hann náði þeim ekki!
Eitt af því góða við bæjar-
stjórnarkosningar er að þá er litið
yfir farinn veg og metið það sem
á undan er gengið, gott og illt.
Dalvíkingar mega vel við una á
þessum tímamótum því í dag er-
um vió í forystusveit sveitarfélaga
á Islandi og erum vel aó því kom-
in. Þessa stöðu má þakka ábyrgð
og stefnufestu bæjaryfirvalda og
er sú staða staðfesting á því að rétt
helur verió haldið á málum okkar
Dalvíkinga.
Við D-listamenn erum stað-
ráónir að halda áfram uppbygg-
ingarstarfi okkar, Dalvík og íbú-
um til heilla, ef við fáum til þess
umboð bæjarbúa.
Friðrik Gígja.
Höfundur er sjómaöur og skipar 8. sæti á D-
lista fyrir bæjarstjórnarkosningarnar á Dalvík.
I
f
1990 1991 '91-'92 '92-'93 '93-'94
Atvinnuhúsnæði
við Fjölnisgötu til leigu eða sölu.
ca. 65 fm.
Upplýsingar í síma 96-27680 eða hs. 96-23860
Bæjaryfirvöld hafa stutt vel við
einstaklinginn og fjölskylduna
með því t.d. að lækka útsvar og
fasteignagjöld, gert átak í um-
hverfismálum, dagheimilismál-
um, skólamálum, sorpmálum,
samgöngumálum, aukið alla al-
menna þjónustu við íbúana, yngri
sem eldri, lagt mikla rækt við
uppbyggingu íþrótta- og æsku-
lýðsstarfs og síðast en ekki síst
hafa atvinnumálin verió þannig
aó atvinnuleysi cr nánast mjög lít-
ið miðaó við mörg önnur sveitar-
félög. En það vill nú oft verða
þannig að þaó gleymist sem vel
er gert.
Þú minnist á Atvinnuþróunar-
sjóð og gefur í skyn að bæjarfé-
lagið hafi liðið fyrir það hversu
stutt cr frá stofnun hans. Hitt nefn-
ir þú ekki, að bæjarsjóður hefur
varið miklum fjármunum til at-
vinnumála á Dalvík, en mér finnst
það ekki vera aðalatriðið hvort
þeir koma úr Atvinnuþróunarsjóði
eóa bæjarsjóði. Stutt hefur verið
vió bakió á nýjum hugmyndum og
vöruþróun og nægir þar aó nefna
Draumableiuna, Isstöðina og Fisk-
eldi Eyjafjarðar í því sambandi.
Aukið var hlutafé í SFD hf. og
Akureyri:
Útskriftartónleíkar
í Tónlistarskólanum
Davíó Þór Bragason, píanóleikari,
heldur útskriftartónleika á sal
Tónlistarskólans á Akureyri í
kvöld kl. 20.30. Á efnisskrá cru
verk eftir J.S. Bach, L.v. Beetho-
ven, F. Chopin, K. Szymanowski,
S. Prokffief, Jón Leifs og Hjálmar
H. Ragnarsson. Tónleikarnir eru
liður í 8. stigs prófi hans frá Tón-
listarskólanum.
Davíð Þór fæddist í Reykjavík
árið 1973. Hann hóf pínaónám á
Dalvík hjá Nigel Lillicrap og hef-
ur síðan lært hjá ýmsum píanó-
kennurum á Dalvík og Akureyri
en síðustu 4 ár hefur aóalkennari
hans verið dr. Marek Podhajski.
Davíð lauk stúdentsprófi af
eðlisfræóibraut MA vorió 1993 en
á námsárum sínurn í MA var hann
tvívegis valinn til að keppa fyrir
Islands hönd á Olympíuleikunum
Davíð Þór Bragason.
í eðlisfræði, fyrst í Finnlandi 1992
og í Bandríkjunum 1993. Tónleik-
arnir eru öllum opnir og aðgangur
ókeypis. Fréllalilkynning.