Dagur - 23.06.1994, Page 1
Akureyri, fímmtudagur 23. júnf 1994
117. tÖIublað
Venjulegir og
demantsskornir
trúlofunarhringar
Afgreiddir samdægurs
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Hágangur í strangri gæslu
Þessar myndir voru teknar um borð í Hágangi II þegar hann var við veiðar á hinu umtalaða Svalbarðasvæði á dög-
unum. Islensku skipin eru hvert á fætur öðru að tínast til hafnar og Hágangur varð fyrstur til að leggjast að bryggju
á Vopnafirði í gær. Drangey og Hcgrancsið komu til Sauðárkróks seint í gærkvöld og Bliki kemur til Dalvíkur fyrir
hádcgi í dag. Eins og fram kemur annars staðar á síðunni hcfjast sjópróf í Héraðsdómi Norðurlands cystra í dag sem
óskað er eftir fyrir hönd útgerða þriggja síðasttöldu skipanna. A stærri myndinni má sjá eitt af skipum norsku
strandgæslunnar í humátt á eftir Hágangi cn á innfelldu myndinni svcimar þyrla strandgæslunnar yfir skipinu.
Myndir: Vióar Júlíusson.
Síld í Krossanes
s
Igærmorgun landaði Sigurður
VE 1050 tonnum af síld hjá
Krossanesverksmiðjunni á Ak-
ureyri.
Verksmiójan hefur þar með
tekið á móti um 1300 tonnum því
á sunnudaginn landaði Guðmund-
ur Olafur OF 250 tonnum á leið í
slipp. Það er nokkuð fátítt að síid
berist í Krossanes og starfsmaóur
sem Dagur ræddi vió í gær taldi
að liðin væru 2-3 ár síðan það
gerðist síðast.
Ekki náöist í framkvæmda-
stjóra verksmiójunnar í gær en
Hólmsteinn Hólmsteinsson,
stjórnarl'ormaður, sagði aö vissu-
lega væri þetta ánægjulegt og von-
andi yrói framhald á löndunum
hér. Sagði hann að þcssi 1300
tonn dygóu til 2-3 sólarhringa
bræðslu. JHB
Dalvík:
Um 20 umsóknir
um bæjarstjórann
Igær höfðu borist hátt í 20
umsóknir um stöðu bæjar-
stjóra á Dalvík, en umsóknar-
frestur rann út sl. þriðjudag.
Bjarni Gunnarsson, formaður
bæjarráðs Dalvíkur, sagði í gær að
hugsanle ra væru ennþá umsóknir
í pósti oi þvt gæti fjöldi umsókna
farið yl'ii 20. Bjarni sagði að um-
sóknirnai yrðu kynntar á fundi
bæjarráðs í dag. óþh
Stjórn Arkitektafélags íslands um samkeppni um skipulag og íbúðir í Snægili á Akureyri:
Hvetur arkitekta á Akureyri
til að taka ekki þátt
Þrír handteknir
vegna neyslu
á amfetamíni
Rannsóknarlögreglan á Ak-
ureyri hefur nú til meðferð-
ar fíkniefnamál þar sem þrír
menn hafa játað neyslu á
amfetamíni.
A mánudaginn voru tveir menn
handteknir í Mióbæ Akureyrar
vcgna gruns um fíkniefnaneyslu.
Við yfírheyrslur daginn eftir ját-
uöu þeir neyslu á amfetamíni. I
kjölfarið var þriðji maöurinn
handtekinn og viðurkenndi hann
einnig neyslu á amfetamíni. Málið
er ekki fullrannsakað.
Daníel Snorrason, lögreglufull-
trúi, segir að vegna aukins umtal
um fíkniefnaneyslu sé fyllsta
ástæða til að hvetja foreldra og
aðra til að vera á varðbergi og
hafa samband við lögregluna lciki
grunur á aó eitthvað misjafnt sé á
feróinni. Þeir sem ekki vilja láta
nafns síns getið eða snúa sér beint
til lögreglunnar geta lesið inn upp-
lýsingar á símsvara og er númerið
25784. JHB
Lægstbjóðandi
hættir við
Unnið er að samningum við
verktakafyrirtækið Fjölni
hf. um byggingu leikfimihúss við
Oddeyrarskóla á Akureyri.
Á bæjarráðsfundi 9. júní sl.
voru kynnt tilboð í vcrkió og
reyndust þau vera fjögur. þar af
tvö þau lægstu frá Vör hf. Bæjar-
ráð samþykkti 9. júní að fela bæj-
arstjóra að taka upp viðræður við
lægstbjóðanda, Vör hf., um vcrk-
ið.
Jakob Björnsson, bæjarstjóri og
formaður bæjarráðs, sagði í gær
að Vör hf. hafi mcð bréfí sagt sig
frá tilboðinu og því hafi verið
ákveðió að ganga til viðræðna við
þann tilboðsgjafa sem næst kom,
Fjölni hf.
Hallgrímur Skaptason, fram-
kvæmdastjóri Varar hf„ vildi ckki
tjá sig um þetta mál að svo
stöddu. óþh
Idag kl. 13.30 hefjast sjópróf
hjá Héraðsdómi N. eystra
vegna atburðanna á svokölluðu
fiskverndarsvæði við Svalbarða.
Það er LÍÚ sem óskar eftir sjó-
prófum fyrir hönd Blika hf. vegna
Blika EA 12, Skagfirðings hf.
vegna Hegraness SK 2 og Skjald-
ar hf. vegna Drangeyjar SK 1.
Oskað er eftir sjóprófum vegna
þeirra atburða þegar skip norsku
strandgæslunnar réðust aó íslensk-
um togskipum þar sem þau voru
að veiðum við Svalbarða. Til-
gangur sjóprófanna er að leiða í
ljós hvort skipstjórnarmenn
norsku strandgæsluskipanna, sem
hlut áttu að máli, hafi meó fram-
ferði sínu brotið í bága við alþjóð-
Stjórn Arkitektafélags íslands
hefur sent arkitektum á Ak-
ureyri bréf þar sem þeir eru
hvattir til að taka ekki þátt í
samkeppni húsnæðisnefndar
legar siglingareglur, stefnt í hættu
lífi og öryggi skipverja og skipa,
valdið útgerðum skipanna fjár-
hagslegum skaóa meö athæfí sínu
eða á annan hátt brotið í bága vió
lögmæta hagsmuni íslenskra ríkis-
borgara.
Ásgeir Pétur Ásgeirsson, hér-
aðsdómari, segir að kallaðir verði
fyrir þeir aðilar sem eigi hags-
muna að gæta í þessum málum,
skipstjórnarmenn á viökomandi
skipum og aðrir þeir 'sem borió
geta vitni um atburði, hugsanlega
skipverjar af öðrum íslenskum
skipum. LIÚ hafi einnig sent til-
kynningu til norska sendiráðsins
um sjóprófin og þaó verði að
koma í ljós hvort fulltrúar þcirra
mæti. JHB
Akureyrar um skipulag bygging-
arreits og hönnun félagslegra
íbúða á byggingarsvæðinu í
Snægili 2-36 á Akureyri.
I bréfi stjórnar Arkitektafélags
Islands kemur fram að henni hafi
borist bréf frá Svani Eiríkssyni,
arkitekt á Akureyri, þar sem hann
lýsi áhyggjum sínum vegna sam-
keppni urn skipulag og íbúðir í
Snægili. Síðan segir orðrétt í bréf-
inu: „Stjórn félagsins vekur af því
tilefni athygli félagsmanna sinna á
því, að þessi samkepnni er ekki
háð skv. samkeppnisreglum fé-
lagsins og uppfyllir því ekki ýmis
grundvallarskilyrði, sern eiga að
tryggja faglega og réttláta umfjöll-
un úrlausna. Má í því sambandi
einnig ncfna, að greiðsla fyrir um-
beóið vinnuframlag er alltof Iág.
Stjóm félagsins hvetur félags-
mcnn til að taka ekki þátt í þessari
samkeppni og marka þannig for-
dæmi fyrir samstöðu gegn ófag-
legum vinnubrögðum við undir-
búning framkvæmda.“
í gögnum frá Húsnæðisskrif-
stofunni á Akureyri, sem eru dag-
sett 11. maí sl. býður húsnæðis-
nefnd bæjarins arkitektastofum á
Akureyri að skila inn frumdrögum
aö skipulagi nefnds byggingarreits
og hönnun félagslegra íbúða á
byggingarsvæðinu Snægil 2-36.
„Tilgangurinn er að velja hönnuð
til þess að ganga frá endanlegum
tillögum og fullnaðarhönnun,“
eins og segir orðrétt í gögnum frá
húsnæðisskrifstofunni. Fram kem-
ur að markmiðið sé að skipuleggja
svæði og húsgerð þannig að henti
fyrir byggingu félagslegra íbúða
og er áætlaó að framkvæmdir
hefjist á næsta ári „og svæðið
byggist upp eftir því sem þörf fyr-
ir félagslegar íbúðir á Ákureyri
þróast og heimildir fást frá Hús-
næðisstofnun ríkisins."
Hugmyndum bcr aó skila fyrir
kl. 16 28. júní nk.
Svanur Eiríksson, arkitekt,
sagði í samtali við Dag að ástæð-
an fyrir því að hann hafí vísað
málinu til stjórnar Arkitektafélags
Islands væri einfaldlega sú að
hann vildi fá fagfélagið til þess aó
skera úr því hvort húsnæðisnefnd
Akureyrar stæöi þarna eðlilega að
málum.
Svanur sagði aó frá sínum bæj-
ardyrum séó væri málið ósköp
einfalt. Húsnæðisnefnd væri með
þessum vinnubrögðum að sýna
starfandi arkitektum á Akureyri
ótrúlega lítilsvirðingu sem ekki
væri hægt að horfa framhjá. Enn
eina ferðina væri verið að fara
framhjá samþykktum samkeppnis-
reglum og ætlast væri til að arki-
tektar settu einhver frumdrög á
blað scm hvorki yrðu fugl né fisk-
ur. Svanur sagðist einfaldlega fara
fram á að húsnæðisnefnd ynni
samkvæmt samkeppnisreglum
Arkitektafélagsins. Þá bendir
Svanur á að miðað við að íbúðirn-
ar í byggingarreitnum séu 70-80
talsins megi gróft áætla að hér sé
um að ræóa byggingarverkefni
upp á 600 milljónir króna. I ljósi
þess sé ótrúlegt að svo illa skuli
staðið að fyrsta verkþættinum,
hönnuninni. óþh
Staöa bæjarstjóra
á Blönduósi:
Fjölmargar
umsóknir
Umsóknarfrestur um starf
bæjarstjóra á Blönduósi
rann út sl. þriðjudag og hafa
íjölmargar umsóknir borist.
Pétur Arnar Pétursson, forseti
bæjarstjómar, vildi ekki upplýsa
nákvæmlega um fjölda umsókna
en sagði þær á milli 15 og 20.
„Við munum setjast yfír þessar
umsóknir næstu daga og vonandi
liggur niöurstaða fyrir í næstu
viku,“ sagði Pétur Arnar. KK
Héraösdómur N. eystra:
Sjópróf vegna at-
burðanna við Svalbarða