Dagur - 23.06.1994, Síða 4

Dagur - 23.06.1994, Síða 4
4 - DAGUR - Fimmtudagur 23. júní 1994 LEIÐARI------------------------------ Nýtt síldarævintýri að heQast? ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI, SÍMI: 96-24222 ÁSKRIFT KR. M. VSK. 1400 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125 RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.), ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON AÐRIR BLAÐAMENN: HALLDÓR ARINBJARNARSON (íþróttir), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 96-41585, fax 96-42285), GEIR A. GUÐSTEINSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON LJÓSMYNDARI: ROBYN REDMAN PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 96-27639 Ef til vill er aö hefjast nýtt síldarævintýri. Að minnsta kosti má binda viö það vonir í ljósi þess að gamla, góða Norðurlandssfldin fannst við miðlín- una milli íslands og Noregs. Norðurlandssfldin hef- ur ekki gert vart við sig í landhelgi íslands í rúman aldarfjórðung og það hljóta því að teljast góð tíð- indi að hún skuli nú aftur komin. Vitað var að Norðurlandssildin mundi láta sjá sig aftur í landhelgi íslands, en fáa grunaði að það myndi gerast á þessu ári. En síldin er óútreiknan- leg eins og dæmin sanna. Nú eru mörg stór „ef“ varðandi hegðan sfldar- innar og veiðar hennar við íslands strendur. Við vitum í raun afskaplega lítið hvort við getum vænst þess að síldin sé komin til að vera hér hluta úr ári eða hvort þessi sfldarfundur var tilfallandi, ef svo má að orði kornast. Þess vegna verðum við að fara gætilega, við megum ekki taka of stór skref í einu. Hrun sfldarstofnsins á sínum tíma var efnahags- legt áfall sem við hljótum að hafa lært nægilega mfldð af til þess að fara að öllu með gát. Vísindamenn þora ekki að segja fyrir um það að svo komnu máli hvort ætla megi að hrygningar- stofn norsk-íslensku síldarinnar fari að ganga aftur til íslands eins og hér á árum áður. Ef það kemur á daginn bendir ffest til þess að síldin muni verða í það minnsta sex mánuði á ári, um sumartímann þegar gæði hennar eru mest, í íslenskri lögsögu. Þar með myndi skapast grundvöllur fyrir nýju síld- arævintýri. Magnús Þór Hafsteinsson, fiskifræðingur við Há- skólann í Tromsö, ritar athyghsverða grein í nýj- asta tölublað Fiskifrétta um norsk-íslenska síldar- stofninn. Þar segir hann að ef hrygningarstofn síld- arinnar byrji að ganga aftur til íslands verði samn- ingsstaða íslendinga til muna sterkari. Orðrétt segir Magnús: „Til þess að stunda sumarveiðar úr stofninum yrðu Norðmenn, Færeyingar og Rússar annað hvort að freista gæfunnar við Jan Mayen eða í Síldarsmugunni, eða seraja um veiðiheimildir í íslenskri lögsögu. Verði þetta að veruleika er ljóst aö samningsstaða íslendinga varöandi nýtingu stofnsins gæti orðið allsterk. Á skömmum tíma yrði Norðmönnum „hrókerað" úr forustuhlutverki sem þeir hafa í dag og íslendingar tækju stöðu þeirrra. Þetta yrðu mikil umskipti frá því ástandí sem ríkt hefur fram að þessu, þar sem Norðmenn hafa nán- ast haft stofninn í hendi sér allan ársins hring, og að líkindum yrði það verulegt áfall fyrir norskan sfldanitveg. “ Skólamál eru líka atvinnumál Á síðustu mánuðum hefur umræð- an um skólamál og uppeldis- og þjónustuhlutverk grunnskólans tekið miklum breytingum. Þar ber auðvitað hæst aó í nýafstöónum sveitarstjómakosningum bar víðast á stefnumarkandi umræóu um þau mál og að þessu sinni óháð ein- stökum byggingaframkvæmdum. Fólk var farió að tala um mikil- vægi þess aö bæta og efla starf- semi skólanna til að þeir gætu þjónað betur uppeldi og menntun til framtíðar. Einnig er áberandi að fjölmargir gera sér grein fyrir því nú hversu sjálfsagt þaó er að fela skólanum að koma til móts við breytilegar þarfir fjölskyldna varð- andi gæslu, heimanám og tóm- stundastörf af margvíslegum toga fyrir bömin þar sem fámennisfjöl- skyldan ræður illa við að taka alla ábyrgó á bömunum með því vinnuoki sem framfærslan krefst. Hér á eftir vil ég freista þess að draga saman það sem upp úr stendur í þessarri umræðu og hvemig það getur tengst þeirri skipulagsvinnu sem við höfum unnið að í Barnaskóla Akureyrar. í framhaldi af því dreg ég síðan saman hversu mikla þýðingu aukin starfsemi skólanna getur haft fyrir atvinnulífið hér í bæ. Breytt þjónustumunstur: Einsetning skólanna mun koma til framkvæmda hér í bænum á þessu og væntanlega á næsta ári. Ákvarðanir hafa verið teknar varð- andi Lundarskóla og Oddeyrar- skólann og Bamaskólinn hefur fengiö fyrirheit bæjaryfirvalda um húsnæði í Iþróttahöl 1 inni sem á aö geta leyst málið tímabundið með- an unnið verður að frambúðar- skipulagi; - (þar sýnist mér ein- ungis eftir að ganga frá formsatrió- 5. grein um í samskiptun milli skólans og forráðamanna íþróttamannvirkja). Því miður var áskorun skólastjóra grunnskólanna um að vinda bráó- an bug að einsetningu allra skól- anna ekki svaraö af nægilegri al- vöm af fráfarandi bæjarstjóm þannig að Síðuskólinn og Glerár- skólinn bíða einsetningar, en nú liggur það þó fyrir aö hér er ekki um að ræða mjög kostnaðarsama framkvæmd ef menn vinda sér í málið og nýta frumkvæði stjóm- enda og starfsfólks skóla um leið og fyrirliggjandi húsnæði er tekió til nýtingar eftir föngum. Þessi að- gerð á ekki að þurfa að bíða nema til næsta árs. Lenging kennslutíma í sam- ræmi vió áform gildandi laga er þar meó orðin að veruleika um leið og skólarnir taka frumkvæðið eins og raunin hefur orðiö í öðrum byggðarlögum svo sem Seltjarnar- nesi, Hafnarfirði og nú í Reykja- vík. Þar hefur aó sjálfsögóu verið byggt á reynslu af tilraunastarfi eins og td. í Fossvogsskóla sem boðió hefur upp á lengdan kennslutíma og víðtækari þjónustu alveg síðan 1989, Mýrarhúsaskóla og tilrauninni með „heilsdags- skóla“ eins og það var kallað í öll- um grunnskólum Reykjavíkur. Þjónusta við alla ■ ekki bara „forgangshópa“ Bamaskóli Akureyrar hefur lagt fram rökstudda beióni um að sam- fara einsetningu og skólatíma allra frá morgni verói kennsludagurinn lengdur (amk. hjá yngstu bömun- um) og komió á víðtækri þjónustu viö þá sem þess óska og þess þarfnast. Ný skólanefnd tekur við okkar erindi þar sem fráfarandi skólanefnd taldi sig ekki hafa um- boð til slíkra skuldbindinga. Vegna skipulagningar komandi skólaárs gefur auga leiö aö ekki er hægt að taka mjög langan umhugs- unartíma. Undirbúningsvinnan hefur þegar farió fram og starfs- fólk og foreldrar hafa látið í ljós ótvíræðan stuðning viö fyrirliggj- andi tillögur - bíða raunar eftir formlegu svari. í tillögum skólans felst eftirfar- andi; 1) Einsetning, þannig að allir hefja nám frá morgni (helst á sama tíma) - þannig verður hætt aó kenna yngri börnum eftir klukkan þrjú á daginn og ferskasti náms- tíminn notaður fyrir alla. 2) Óskað hefur verið eftir því að fá að stíga marktæk skref til Benedikt Sigurðarson. lengingar kennslutíma í samræmi við fyrirheit laga td. þannig að nemendur fái að lágmarki 6 kennslustundir á dag þannig að skólinn eigi auðvelt með að annast um börnin til kl 14:00 daglega. 3) Komió verói á lágmarks- mötuneyti sem boðið geti upp á smurt brauð og ávexti auk mjólk- urvara og drykkja. Um leið verði hugaö aó því að bjóða upp á að- sendar máltíðir fyrir þá sem þess óska. 4) Skólinn sækir um heimild til að starfrækja gæslu aó loknum skóladegi og á frídögum í sam- ræmi við þarfir fjölskyldnanna þannig að börnin gætu dvalið í umsjá skólans 1-3 (4) klukku- stundir eftir atvikum og 1 til 5 daga eftir því sem vinnumunstur foreldra gefur tilefni til. Foreldrar mundu standa straum af vinnu- launum við slíka gæslu. Nú eiga aðeins „forgangshópamir" aðgang að skóladagheimili og þá allan daginn alla daga. 5) Skólinn áformar að bjóða upp á heimanámsaðstoð, og bóka- safnsþjónustu fyrir þá sem kjósa að greióa fyrir þaó og einnig ger- um við ráó fyrir að fá að bjóða upp á fjölbreytt tómstundastaif á veg- um skólans sem nemendur geta sótt í beinu framhaldi af skólatím- anum sínum. 6) Tilboð tónlistarskóla, mynd- listarskóla, dansskóla, íþrótta má aó sjálfsögðu tengja vió eða inn í skóladag barnanna og byggja þar á reynslunni sem fengin er í Reykja- vík og á Húsavík ásamt því sem unnið hefur verió hér á vegum Tónlistarskólans. * Avinningur allra! Hér er ekki ástæða til að eyða mörgum orðum á það hvílíkan ávinning unga fólkið getur haft af betri skóla. Fjölþjóóleg samkeppni og breytt heimsmynd neyða okkur til að bregðast við til aó bæta stöðu uppeldis og menntunar - því hefur þegar verið frestað of lengi. Við vitum að samfelldur skólatími meó aukinni, fjölbreyttri kennslu þar sem systkin eiga samleið í skóla gefa fjölskyldunni möguleika á meira öryggi og bættum samskipt- um. Við vitum líka að foreldrar verðskulda aó vita af bömum sín- um á öruggum stað meðan þeir eru í sinni vinnu - þannig munu þau njóta aukinna afkasta og vellíðun- ar í starfi. Umferðin mun ganga betur og slysum ætti að fækka - einkum ætti að fækka slysum á þeim börnum sem ganga annars sjálfala langa tíma tíma úr degi. Þegar skólinn bregst við breyttum þörfum fjölskyldunnar og hjálpar öllum foreldrum til aó standa undir ábyrgð á uppeldi barna sinna, án afskipta annarra opinberra stofn- ana, þá em líkur til að samstaða um uppeldi bamanna muni aukast og þá mun menntunarlegur ávinn- ingur ekki láta á sér standa. Verði það módel sem verið hef- ur að þróast síðustu missiri notað hér í bæ eins og við höfum lagt það fram í Barnaskóla Akureyrar mun það einnig hafa afgerandi þýðingu fyrir vinnumarkaðinn. Taflan sem fylgir hér með þarfnast ekki frekari skýringa, en rétt er aó undirstrika að 40-80 störl' sem þar eru nefnd byggjast á nýrri þjónustuveltu, og að kennslustörf- in sem geta verió allt að 21 má í upphafi fjármagna með sparnaði í rekstri skóladagheimila og síðar má líta svo á að fjármunirnir komi til þess rekstrar sem aukinn hlutur grunnskólanna í þjónustuveltu op- inberra aöila í samræmi við áform laga. Hvað sem mönnum annars finnst um þá nýju hugsun sem hér er byggt á er hitt þó alveg víst að 50 etv. 110 störf sem byggjast að miklu leyti á nýrri veltu geta aldrei talist smámál þegar vinnuna sár- vantar. Þaó getur heldur ekki talist réttlætanlegt að fresta aðgerðum einu sinni enn - atvinnuleysið er jú staóreynd og því þarf að eyða. Hér getur ljóslega farið saman virk að- gerð gegn atvinnuleysi og alvöru þróun á átt til betra uppeldis og menntunar fyrir börnin okkar. Kemur það ekki öllum til góóa? Akureyri 14. júní, á ári fjöl- skyldunnar! Benedikt Sigurðarson. Höfundur er uppeldisfræóingur og vinnur aó því aö Ijúka meistaragráóu í skólastjórnun vió háskóla í Vancouver í Canada. Hann hefur ver- iö skólastjóri Bamaskóla Akureyrar síðan 1985. Bcnedikt Sigurðarson Mai/júní 1994 Aukin þjónustuvclta í grunn.skólum Akurcyrar Saniantckt Mióaó \ ið aó allir grunnskólar bæjarins fái rvmra húsnæói og vcrði cinsctnir - kcnnsla vcrði aukin og skóiadagnr allra barna \crði jafnlangur - boðió vcröi upp á lágmarks mfítuncyti - öllum vcrði boðið upp á örugga vist frá lokuni kcnnslutinia lil loka \ innudags - ganghrautanarsla \crði liluii af daglcgum störfum við h\crn skóla - rcglulcgl tómstundastarf\crði slarfrækt innan skólanna og taki \ ið aö loknuin kcnnslulinia - hcimanámsaðstoð og |i jónusta hókasafna siandi ölluni lil boöa að lokinni kcnnslu. un on notendur! Starfsemi Barna. Lund. Odd Gler Síðttsk. Gagnfr. samtals notendur/ fjármögnun/velta ■ ' ■ . ■ . ■ Mötuneyti, afgreiðsla og önnur 1-2 1-2 0,5-1 1-2 2-3 1-2 6.5-12 allir nem. sem Greitt af not. ca.50% þjónusta viö hádegishlé. kjósa Ný velta aö hluta! Vistun 6-8 ára (eæsla í 1-3 klst. 2-3 2-3 0,5-1 2-3 3-4 9,5-14 eftir þörfum Greiöist af notendum. cftir þörf og mv. Icngd skólad.) fjölskyldna Ný velta! Heimanámsaðstoð og þjónusta 1-2 1-2 0,5-1 1-3 2-4 1-2 6,5-14 eftir þörfum Greiðist af notendum bókasafna eftir skóladag. fjölskyldna Ný velta! Tómstundastarf og klúbbar 1-2 1-2 0,5-1 1-3 2-4 1-2 6,5-14 eftir óskum Greiðist af not. ca.50% (auk starfsemi lista og íþrótta) fjöiskyldna Ný velta amk. að hluta! Gangbrv. og jjangav. (ný störf) 2-3 2-3 1-2 2-4 4-8 11-20 ný þörf - Greiðist af Akureyrarbæ. Kennsla: Greiðist með sparnaði í lágmark 30 vikust. 1,8 1,4 0,7 1,6 2,5 0 8,1 nem í 1 -5.b rekstri skóladagheimila - 32 vikust. 2,8 2,3 l.l 2,5 3.9 0 12,6 nem.í l .-6.b. (þörf fyrir slíkan rekstur 35 vikust. 4,8 3,7 1,8 4,4 6,5 0,6 21,3 nem.í 1 .-I0.b. fellur niður með lengingu - 30/35 vik. 3,0 2,7 1,3 3,2 4,6 0,6 14,9 nern.i l .-lOb, kennsludags i skólum) * 1) Aðkeypt þjónusta 1-2 1-2 0,5-1 1-2 1-3 1-2 5,5-12 eftir óskum Ný velta - gieitt af not. Samtals hver skóli 10-19 9,5-19 4,5-9 10-21,5 16,5-31 4-9 54-110 * I) Við samninga \ ið ríkis\aldið um vcrkcfnaskiptingu skiptir máli að skilgrcina umfang grunnskólans |iannig að slærri hlutur þjónustu\cltu opinhcrra aðila komi til landshyggðarinnar. Þannig kcmur til haka að vcrulcgu lcyti sá kostnaður scm Akurcyrarhær tckur á sig mcð lcngingu kcnnslutínia allra harna: - |)ó lita mcgi á sparnað, scm vcgur að fullu á móti i upphafi, scm tilflutning fjármuna. Skólamá! ern likn atvinnumáU

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.