Dagur - 23.06.1994, Blaðsíða 5
LESEN DAHORN IÐ
Fimmtudagur 23. júní 1994 - DAGUR - 5
Dagskrárstefha sjónvarpsins
Guðjón Eyjólfsson, Kjalarsíðu
14d Akureyri, skrifar:
Eg vil hér með skora á starfs-
menn sjónvarps að taka tii end-
urskoðunar dagskrána og nióur-
röðun dagskrárefnis.
1. Þaó er engu líkara en þcir
skammist sín fyrir að sýna
fræðslumyndir og leitist við aó
sýna þær á versta hugsanlega
sjónvarpstíma, ýmist kl. 18.30 eða
19. Eg skora á starfsmenn sjón-
varpsins aó sýna fræðslumyndir á
kvöldin cða um helgar.
2. Er það meðvituð stefna hjá
sjónvarpinu aó halda að börnum
efni sem á ekkert erindi vió þau
og koma í veg fyrir að þau njóti
efnis sem þau hafa ánægju af? Því
vill ég ekki trúa. Mikið líklegra er
að þau skemmdarverk á dag-
skránni sem unnin eru um þcssar
mundir séu framin af starfsmönn-
um sem vita ekki hvað þeir eru aö
gera. Hvaó á maður að halda þeg-
ar bandarísk heimildarmynd um
grimmdarverk í fyrrum lýðveldum
Júgóslavíu er sýnd kl. 19 eins og
gert var 10. júní sl. og þáttur eins
og Mótorsport er sýndur kl. 22.
Sonur minn sem er á fjórða ári
hefur mestan áhuga á þeim þætti
af heimilisfólkinu, en hann er auð-
vitað löngu farinn að sofa. Annaó
dæmi um samskonar klúóur er frá
13. júní þegar sjónvarpið sýndi frá
17. júní 1994
Aðalsteinn Olafsson, Lyngholti
20 á Akureyri, sendi blaðinu eft-
irfarandi ljóð sem hann nefnir
einfaldlega „17. júní 1994“.
Ein lílil þjóð við eld og ís
og öldu barðist stríða
þar sjaldan virtist sigur vís
og sundin lokuð víða
en fólkið reyndi að forðast grand
til frelsis sótti að vonum
því varð til dýrðlegt draumaland
hjá dœtrum þess og sonum.
Og þeim sem eignast dýran draum
hver dagur sigurfœrir
í baráttu við storm og straum
sitt stœrsta margur lœrir
og til að eignast eina sál
menn ortu fögur Ijóðin
þá flestum tókst að forðast tál
svofrjáls og glöð varð þjóðin.
En gœta fengins frelsis þarf
þessfull er þörfað vonum
og þó við dýran eigum arf
skal ekki sóa honum
á tímamótum þarfhver þjóð
að þroska krafta sína
aðfinna gull á feðraslóð
en frelsi engu týna.
íslandsmóti barna og unglinga í
samkvæmisdönsum kl. 22.
3. Af hverju í ósköpunum er
„Gangur lífisins“ og „Sækjast sér
um líkir“ sýndir á sama kvöldi?
Höfóa þeir ekki til svipaðs áhorf-
endahóps?
4. Húrra! Nú hillir undir að
einn mislukkaðasti dagskrárliður
gjörvallrar fjölmiðlasögunnar á Is-
Brynjólfur Brynjólfsson skrifar:
Vökvun sem fer fram á trjá-
gróðri við bílastæðið í miðbæ Ak-
ureyrar vill stundum ganga úr
skorðum eins og meófylgjandi
mynd sýnir. Uði frá vökvuninni
nær yfir akbrautina og bleytir bíla
sem þama aka um. Alltaf er vont
Sigurður Sigmundsson skrifar:
Ég vil þakka fyrir góða þjóöhá-
tíðardagskrá á Akureyri, alveg
sérstaklega á Hamarkotsklöppum
sem var mjög hátíðleg stund á fal-
legum stað. Þar fór fram helgi-
stund sem allir þrír sóknarprest-
arnir á Akureyri tók þátt í og
kirkjukórar beggja kirkna mynd-
uðu einn kór. Sjaldan hef ég heyrt
þjóðsönginn betur sunginn. A
klöppunum heyrðist allt vel, bæði
landi, Dagsljós, hætti. Það er stór-
furðulegt að sjónvarpió, sem virð-
ist sárþjáð af peningaleysi, skuli
nú ausa úr sjóðum sínum í dag-
skrárlið sem gefur hugtökunum
„yfirborðsmennska“ og „sóun“
nýja og dýpri merkingu.
Það er líka hlálegt að sjónvarp-
ið skuli á ári fjölskyldunnar leggja
til atlögu við kvöldmatinn klukk-
að fá bleytu á bílinn, hvort sem
hann er hreinn eða ekki. Því ætti
dcildin aó sjá til þess að bæði gæti
farið saman, vökvun og eðlilegur
akstur okkar um bílastæðið. í dag
snúa margir bílar við til þess að
forðast bleytuna.
söngur og mælt mál, en við Lysti-
garðinn hal'ói ég ekki gagn af dag-
skránni.
Svo er hér ein ábending. Þaö
vantaði bekki á báða þessa staði
fyrir fólk sem þurfti á því að
halda. Á Hamarkotsklöppum
þyrftu að vera bekkir og svona eitt
til tvö borð því margir koma þar
og skoða stytturnar og njóta út-
sýnisins.
an sjö. Er þaó ætlunin að ryójast
inn í rniðjan matartímann með
hamagangi og látum? Menn virð-
ast hafa hugsað mcira um að gefa
stjúpsystur sinni, Stöð 2, öflugt
spark í afturcndann, en að gera
betur við áhorfendur.
5. Ég skora á alla landsmenn aó
horfa á þátt sem heitir „Völundur"'
og er sýndur á laugardögum kl.
18. Ástæðan er ekki sú að þetta sé
svo skemmtilegur þáttur - alls
ekki - ástæðan er sú að þar er á
ferðinni illa dulbúið áróðursefni
sem innrætir andúð á veiðimönn-
um og fiskimönnum og slíkum
„óþjóðalýó“.
Það hlýtur að vera yfirmönnum
Ríkisútvarpsins ærið umhugsunar-
efni að starfsmenn þeirrar stofn-
unar taka til sýninga efni sem veg-
ur að sjálfum tilverugrundvelli ís-
lensku þjóðarinnar, það er skyn-
samlegri og hóflegri nýtingu nátt-
úruauðlinda. Það væri betra fyrir
íslensku þjóðina að sýna stilli-
myndina, en aö sýna ungum börn-
um áróðursmynd sem er nákvæm-
lega í sama anda og áróður Green-
peace-manna.
KJALLARINN
HrísaIuncK
NýkoMNAR
SNyRTÍVÖRUR FrÁ
MARqRET Astor
Herra^ oq
dÖIVIUÍllVIUR Frá Joop
HrísaLuncIí
Þar sem qÆði oq UqT verö Fara saman
Góð þjóðhátíðardagskrá