Dagur - 23.06.1994, Page 6

Dagur - 23.06.1994, Page 6
6 - DAGUR - Fimmtudagur 23. júní 1994 - Hvað finnst þér tim afsögn Jóhönnti Sígurðardóttur? Sptcrníng vikunnar — spurt á Akureyrí Jakob Jónsson: Mér fannst þetta rétt af henni miðað við aðstæður, en hefði viljað hafa hana áfram sem ráöherra. Harpa Garðarsdóttir: Ég hefði viljað hafa hana áfram og mér fannst ekki rétt af henni að segja af sér. Gústaf Oddsson: Ég hefði endilega viljað hafa hana áfram og finnst það ekki eðlilegt af henni að segja af sér. Brynja Sverrisdóttir: Ég hefði viljaö hafa hana áfram, en mér fannst gott hjá henni að standa við sannfær- ingu sína. Einar Finnsson: Ég er bara ánægður með af- sögn hennar, mér finnst hún hundleiðinleg. LETTIB , . í, Lettishagar á Kaupvangsbökkum verða opnir föstudaginn 24. júní og laugardaginn 25. júní frá kl. 20.00-21.30. Hagagjöld borguð á staónum, gjald pr. hross kr 2.000.- fyrir félagsmenn en 4000.- fyrir utanfélagsmenn. Öll hross þurfa skilyrðislaust að vera merkt haganúmeri á vinstri síðu, ómerkt hross verða fjarlægð úr högum félagsins og farið með sem óskilahross. Haganefnd. Tónleikar í Dalvíkurkirkju KA heimilið við Dalsbraut, sími 23482 ☆ Nýjar perur. ☆ Munið ódýru morguntímana. ☆ Ný frábær vatnsgufa. ☆ Komið og fylgist með ungu og efnilegu afreksfólki við leik og störf í góða veðrinu. Ódýrir tímar í stóra íþróttasalnum í sumar. Tónleikar verða í Dalvíkurkirkju föstudaginn 24. júní kl. 21. Fríður Sigurðardóttir, sópran, og Halla S. Jónasdóttir, sópran, syngja ein- söng og tvísöng. Kári Gestsson leikur með á píanó. Á efnisskránni eru íslensk tví- söngslög í meirihluta en einnig eru einsöngslög eftir Sibelius, Börresen o.fl. íslenskir höfundar eru Eyþór Stefánsson, Pétur Sigurðsson, Jón Bjömsson, Bjami Þorsteinsson, Sigurður Þórðarson, Þórarinn Guðmundsson, Friðrik Jónsson, Karl O. Runólfsson, Sigurður Demetz Franzson, Björgvin Þór Valdimarsson og Ingi T. Lárus- son. - á föstudagskvöld Miðasala er við innganginn. Fríður Sigurðardóttir er fædd aó Vatni í Haukadal í Dalasýslu. Ung að árum flutti hún til Reykja- víkur þar sem hún hefur búið síð- an. Hún stundaði söngnám í Nýja tónlistarskólanum og lauk þaðan 9. stigs prófi árið 1992. Söng- kennari hennar frá upphafi hefur verið Sigurður Demetz Franzson. Halla Soffia Jónasdóttir er bor- in og barnfædd á Dalvík. Hún stundaði nám í Tónlistarskóla Dalvíkur veturinn 1978-1979 og sótti söngtíma hjá Sigurði Dem- etz, sem þá bjó á Akureyri. Árið 1980 hóf Halla nám í Nýja tónlist- arskólanum í Reykjavík, en þá var Demetz orðinn söngkennari þar. Flytjendur á tónlcikunum í Dalvíkurkirkju. Frá vinstri: Kári Gestsson, Halla S. Jónasdóttir og Fríður Sigurðardóttir. Sumarlínan í bamofötum hefur aldrei verib faUegri. Ódýror gollabuxur, bolir, gallar, skór. Nýkomið gott úrval af blúndu og öðru efni í gluggatjöld. Einnig ný sending af acrylgami, prjónagami, prjónasilki, viscose-, glansgalla-, jogging- og ódým rúmfataefni. Þor sem leitin byrjar og endar Burtfararprófi úr skólanum lauk Halla með tónleikum í apríl 1986. Kári Gestsson er Dalvíkingur eins og Halla. Hann stundaði nám við Tónlistarskólann á Akureyri og tók burtfararpróf þaðan árió 1972. Framhaldsnám stundaði Kári í London. Hann var skóla- stjóri Tónlistarskóla Dalvíkur árið 1975-1981. Hann hefur á undan- förnum árum starfað með ýmsum einsöngvurum og kórum. Síðast- lióin 13 ár hefur Kári starfað sem píanókennari við Tónlistarskóla Kópavogs. Þess má geta aó fyrirhugað er að gefa út geisladisk meó þeirri efnisskrá sem fiutt verður í Dal- víkurkirkju. (Fréttalilkynning) „Þjófstart að djassklúbbi Karólínu og listasumars“ I kvöld kl. 22 mun djasstríóió „Skipað þeim‘- leika í Deiglunni á Akureyri ásamt saxófónleikaran- um Sigurói Flosasyni. Þeir Gunn- ar Gunnarsson, Jón Rafnsson og Árni Ketill hafa leikið saman í tæp þrjú ár og nokkum sinnum fengió til liðs við sig gestasóló- ista, m.a. Finn Eydal, gítaristana Gunnar Ringsted og Björn Thor- oddsen og norsku söngkonuna Magni Wentsel. Siguró Flosason þarf vart að kynna fyrir djassáhugafólki. Hann hefur verió einn okkar fremsti djassleikari um árabil og auk þess starfaó með mörgum þekktum er- lendum tónlistarmönnum. Hann hefur leikið inn á iiokkrar djassplötur en gaf í fyrra út þá fyrstu undir eigin nafni. Listasumar ’94 er að fara af stað og mun ásamt Café Karólínu standa fyrir djassklúbbi á hverjum fimmtudegi frá og með 30. júní fram í ágústlok. Að þessu kvöldi standa djasstríóið og Café Karó- lína en Vikirig Brugg, Hótel KEA og Listasumar ’94 fá sérstakar þakkir fyrir veitta aðstoð. Sem fyn segir hefja þeir félag- ar í „Skipað þeim“ leikinn um kl. 22 í kvöld. Áðgangur er ókeypis og verður reyndar sú venja við- ,höfó hvað varðar djassklúbbinn í sumar og er fólk hvatt til að mæta og eiga notalegar stundir. (Fréllatilkynning)

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.