Dagur - 23.06.1994, Side 7

Dagur - 23.06.1994, Side 7
MINNIN Cm Fimmtudagur 23. júní 1994 - DAGUR - 7 ^ Finnur Krístjánsson Fæddur 20. júní 1916 - Dáinn 16. júní 1994 Finnur Kristjánsson lést á Húsavík 16. júní 1994, sjötíu og átta ára gamall. Finnur var fæddur á Hall- dórsstöðum í Kinn í Suóur-Þing- eyjarsýslu, 20. júní 1916. Foreldr- ar hans voru hjónin Kristján Sig- urósson bóndi á Halldórsstöðum, Siguróssonar bónda þar Þorsteins- sonar bónda á Þóroddsstað, Grímssonar í Fremstafelli, og kona hans Guðrún Sigurðardóttir frá Draflastöðum í Fnjóskadal. Meö Finni er genginn einn af merkum forystumönnum íslenskr- ar samvinnuhreyfmgar, en hans kynslóð átti mikinn þátt í því að marka djúp framfaraspor í þaö velferðarkerfi sem þjóðin eignað- ist á árunum fyrir og eftir síóari heimsstyrjöldina. Þar naut sam- vinnuhreyfingarinnar við í ríkum mæli, með uppbyggingu atvinnu- lífs til sjávar og sveita. Finnur Kristjánsson óx upp úr jarðvegi hinna þingeysku forystu- manna samvinnuhreyfingarinnar sem brutu ísinn með stofnun Kaupfélags Þingeyinga árið 1882. Þrátt fyrir endurtekin stóráföll sigldu þeir fari sínu heilu í höfn og tryggðu þar með framtíð fé- lagsins. Hugsjónir forystumann- anna urðu smám saman að áþreif- anlegum veruleika og þar með var stigið stórt skref í sjálfstæðisbar- áttu Islendinga. Verslunin var flutt inn í landið í hendur Islendinga sjálfra. Þegar við veltum því fyrir okk- ur hvaða ástæður ollu því að þessi tilraun þingeysku bændanna til stofnunar félags til verslunar á samvinnugrundvelli tókst, þá beinast augun fyrst aö mönnunum sjálfum sem skipuðu forystuliðið, en á þessum árum þóttu Þingey- ingar bera af öðrum landsmönnum um menningu og mannval. Þótt fáir Þingeyingar kæmust í skóla, gekk kynslóðin ótrúlega fast fram í að afla sér menntunar, bóklegrar og verklegrar og jafnskjótt og kallió kom, fundust leiðtogaefni í hverri sveit, hvort sem var um þátttöku í sjálfstæðisbaráttu þjóð- arinnar, búnaðarsamtökum eða verslunarfélagsskap. Sérstök vakning varð til, þjóðlið Þingey- inga, vakning sem mótaðist af nýjum pólitískum straumum og ýtti undir gagnrýna hugsun, sem vildi brjóta flest mál til mergjar. Islenska bændasamfélagió var að rétta úr sér undan aldagömlu fargi kúgunar, fáfræði og fátæktar. Þessir pólitísku straumar, undir forystu skeleggra og framsækinna forystumanna, fengu útrás í bar- áttu fyrir öflugum framgangi fé- lags í eigu fólksins sjálfs, baráttu sem fleytti Kaupfélagi Þingeyinga yfir brim og boóaföll fyrstu árin. Stofnun Kaupfélags Þingeyinga og sú harðskeytta barátta sem háð var fyrir lífi þess, fæddi af sér hugsjónir og hugmyndafræði hinnar íslensku samvinnustcfnu. Fyrr en varði höfðu þær hugsjóntr borist um gjörvallt landið og raun- ar skapað nýtt land og nýja ís- lenska hugmyndafræói og árið 1902 stofnuðu Þingeyingar Sam- band ísl. samvinnufélaga, en það átti eftir að verða sterkur hom- steinn íslenskrar samvinnuhreyf- ingar á þessari öld. Finnur Kristjánsson óx upp úr jarðvegi frumherja samvinnu- hreyfingarinnar. Hann stundaði nám í héraðsskólanum að Laugum 1933-1935 og brautskráðist frá Samvinnuskólanum árið 1938. Að því námi loknu var hann ráðinn kaupfélagsstjóri Kaupfélags Sval- barðseyrar hinn fyrsta janúar 1939. Því starfi gegndi hann í fjór- tán ár. Ungur í starfi kaupfélags- stjóra vann hann sér traust á Sval- barðseyri með því að skila góðum rekstri í þessu tiltölulega litla kaupfélagi. Þaó var því ekki að ástæðulausu að Finnur var ráðinn kaupfélagsstjóri Kaupfélags Þing- eyinga á Húsavík 1953, þegar Þórhallur Sigtryggsson lét þar af kaupfélagsstjórastarfi. Finnur gegndi kaupfélagsstjórastarfinu á Húsavík við góðan orðstír til árs- loka 1979 og hafði þá verið kaup- félagsstjóri í fjörutíu ár. Hann var kjörinn í stjóm Sambandsins 1960 og varaformaður stjórnar þess frá 1975 til og með 1984. Þá gegndi hann fjölmörgum öðrum störfum utan starfa í samvinnuhreyfing- unni. Hann var kjörinn í bæjar- stjórn Húsavíkur 1962 og sat þar í stjóm til ársins 1974. Hann sat í stjórn Fiskiðjusamlags Húsavíkur 1953 til 1962. Forstöðumaður Safnahúss Húsavíkur var hann frá 1. mars 1980 þar til 1. ágúst 1992, en var þó eftir það viðloóandi við safnió. Var sjómarformaóur Bif- reióa- og vélaverkstæðisins Foss á Húsavík 1953-78. Þá sat Finnur í stjóm Garðræktarfélags Reyk- hverfinga, var meðritstjóri Arbók- ar Þingeyinga frá árinu 1980. Þá sá hann um ritstjóm Boðbera, rits Kf. Þingeyinga. Fjölmörg önnur félagsstörf hafði Finnur haft með höndum. Hinn níunda september 1939 kvæntist Finnur Hjördísi Björgu Tryggvadóttur Kvaran f. 27.8. 1920, prests að Mælifelli í Skaga- firði og konu hans Önnu Gríms- dóttur Kvaran. Giftingardagurinn reyndist mikill hamingjudagur í lífi þeirra Finns og Hjördísar. Jafnræði var með þeim hjónum, þau voru bæði samrýmd og góð- um gáfum gædd, myndarleg á velli og hjónaband þeirra var mjög farsælt. Finnur og Hjördís eignuð- ust þrjú börn, þau eru: Tryggvi, f. 1. jan. 1942, giftur Aslaugu Þor- geirsdóttur og eiga þau þrjú börn, Guðrún, f. 12. febrúar 1945, gift Pálma Karlssyni og eiga þau þrjú böm og Anna, f. 16. sept. 1949, gift Ólafi Gunnarssyni og eiga þau tvö börn. Hinn 6. mars 1991 lést Hjördís snögglega og var þá mik- ill harmur kveðinn að Finni og fjölskyldu hans. Hjördís hafði ver- ið hinn styrki förunautur Finns í gegnum árin, missirinn var því sár. Hann bar þó harm sinn vel og trúlega hafa störf hans við Safna- húsió létt honum stundir, en þar sökkti hann sér niður í störfin. Hinn 17. júní 1976, sæmdi forseti Islands Finn, riddarakrossi hinnar íslensku fálkaoróu. Við fráfall Finns verður mér hugsað til samstarfs okkar í sam- vinnuhreyfingunni um áratuga skeið. Hann var einn af þeim í stjórn Sambandsins sem var mjög virkur, hafði margt til málanna að leggja, enda ríkur af reynslu frá hinum margþættu störfum í því héraði þar sem vagga samvinnu- hreyfingarinnar stóó. Að vonum varó Finnur fyrir miklum von- brigðum með þróun mála í Sam- bandinu síðustu árin. Sama gildir um þann sem skrifar þessar línur. Það er þó mikil bót í máli, að sam- vinnuhreyfingin á íslandi heldur velli. Stærri kaupfélögin starfa mörg af þrótti. Enn er þó þörf á öflugu samvinnustarfi hér á landi, þótt umhverfið hafi breyst. í þeirri þróun sem nú ríkir á íslandi, þegar þeir ríku verða ríkari með hverju ári sem líóur, en þeir fátæku fá- tækari, er enn meiri þörf fyrir öfl- uga samvinnuhreyfingu hér á landi. Þetta kemur ósjálfrátt upp í hugann þegar skrifuð er minning- argrein um þann samvinnumann sem starfaði í 45 ár í forystusveit hreyfingarinnar, frá því að gegna kaupfélagsstjórastarfi 23ja ára í fjörutíu ár, til þess að vera í stjórn Sambandsins og varaformaður stjómar frá 1960 til loka árs 1984. Fráfall Finns Kristjánssonar ætti að minna samvinnumenn á það, aö tími er kominn til þess að bretta upp nýjum ermum í sam- vinnuhreyfingunni til þess að að- laga samvinnustarfiö enn frekar hinu breytta umhverfi, sem við nú búum við. Mættu menn þá hafa í huga það sem Þingeyingarnir geróu er þeir stofnuðu fyrsta kaupfélagið á Islandi. Við Margrét kveójum góðan vin um leið og við vottum bömum Finns og fjölskyldum þeirra inni- lega samúð. Guð blessi minning- una um Finn Kristjánsson. Erlendur Einarsson. Félagar í Framsóknarfélagi Húsa- víkur kveðja í dag fyrrverandi for- mann sinn og bæjarfulltrúa með viróingu, þökk og söknuði. Utför Finns Kristjánssonar fer í dag fram frá Húsavíkurkirkju. Finnur var fæddur að Halldórs- stöðum í Ljósavatnshreppi. Hann gegndi starfi kaupfélagsstjóra í 41 ár, fyrst hjá Kaupfélagi Svalbarðs- eyrar frá 1939, en frá 1953 til árs- loka 1979 hjá Kaupfélagi Suður- Þingeyinga á Húsavík. Finnur kvæntist Hjördísi Björgu Tryggvadóttur Kvaran frá Mælifelli í Skagafirði 9. sept 1939. Þeim varð þriggja barna auðið. Hjördís lést 6. mars 1991. Frá ársbyrjun 1980 var Finnur forstööumaður Safnahússins á Húsavík og þar starfaði Hjördís ötullega við hlið hans að upp- byggingu safnanna. Fyrir rúmum fjórum árum sæmdi forseti Islands Finn fálkaorðunni fyrir störf að safnamálum. Hann lét af starfi forstöðumanns í júlí 1992, starfaói við hlið Guðna Halldórssonar for- stöðumanns Safnahússins síðustu tnisserin, og annaðist m.a. útgáfu Arbókar Þingeyinga. Finnur sat í stjórn Fiskiójusam- lags Húsavíkur 1953-67. Hann sat í stjóm SíS frá 1960 og varð vara- formaður 1975. Hann gegndi margvíslegum trúnaðarstörfum um dagana, var formaður ung- mennafélagsins Gaman og alvara í Ljósavatnshreppi á sínum yngri árum, organisti og söngstjóri við Svalbarðskirkju og starfaði síðan í sóknamefnd Húsavíkurkirkju. Finnur var bæjarfulltrúi fyrir Framsóknarfélag Húsavíkur 1962- 1974. Hann var um árabil formað- ur félagsins og gegndi fyrir það fjölda trúnaðarstarfa, allt til dauðadags. Félögum er minnis- stæð koma Finns á skrifstofu fé- lagsins í vor, er unnið var aó upp- stillingu B-listans fyrir bæjar- stjórnarkosningarnar. Finnur hélt þar áhrifamikla ræðu og hvatti fé- laga óspart til aó gefa kost á sér til starfa. Taldi hann sveitarstjómar- mál skemmtileg, og auk þess skyldu þegnanna að leggja hönd á plóginn og axla ábyrgó. Finnur beitti sér af áhuga að þeim trúnaðarstörfum er hann tók að sér. Hann ætlaðist einnig til að aðrir tækju til höndunum og var einstaklega laginn að hvetja fólk til dáða, en alltaf var leikið á já- kvæðu nótumar í mannlegu sam- skiptunum og fólk látið finna að hann treysti því vel til að takast á við verkefnin. Finnur átti sérlega gott samstarf við unga fólkió og margir kveója hann í dag með hugann fullan af minningum um góð ráð og leióbeiningar inn á fé- lagsmálabrautina. Síðasta verk Finns í lífinu var að víkja góðu að ungu fólki, færa unglingum í bæj- arvinnu á lóðinni hans hressingu. Framsóknarfélag Húsavíkur sendir Tryggva, Guðrúnu og Onnu, mökum þcirra, bömum og bamabömum og öðrum aðstand- endum, innilegar samúðarkveðjur. Félagið mun lengi búa að miklu og góðu tilleggi Finns, er hann af skynsemi, reisn og jákvæðni lagði á ráðin og fann flöt á málunum. Megi Finnur í friði fara og ganga á ný um grænar grundir við hlið Hjördísar. Við þökkum kynn- in og kveðjum góóan vin og fé- laga. Fyrir hönd Framsóknarfélags Húsavíkur, Ingibjörg Magnúsdóttir. Kveðja frá Safnahúsinu á Húsavík. Finnur Kristjánsson, fyrsti for- stöðumaöur Safnahússins, er í dag jarósunginn frá Húsavíkurkirkju. Undirritaðir senda hér fáeinar lín- ur við leióarlok en Finns verður nánar minnst í Safna, ársriti Safnahússins sem og í Árbók Þingeyinga. I ársbyrjun 1980 var Finnur valinn til að veita Safnahúsinu forystu. Stefnt var aö formlegri opnun þess þá um vorið og hvíldi því lokafrágangur og undirbún- ingur undir sýningarstarf á honum sem og konu hans, Hjördísi Tryggvadóttur Kvaran, sem starfaði með honum frá upphafi, í hálfu starfi, allt þar til hún lést 6. mars 1991. Sameiginlega kornu þau skikkan á starfsemina eftir því sem fjármagn leyfði, sköpuðu ákveðið viðmót gagnvart gestum og verkefnum án þess að ganga eftir stimpilklukku í störfum sín- um. Oft var unnið langt fram á kvöld fyrstu árin og drifkrafturinn var umhyggja og áhugi fyrir starf- semi hússins. Finnur kaus að láta af starfi forstöóumanns í júlílok 1992 en starfaói allt til hinstu stundar í hlutastarfi jafnframt því að ritstýra Árbók Þingeyinga og sjá um afgreióslu hennar til þakk- látra kaupenda. Áhuginn var samur allt til loka því þann 16. júní sl„ daginn sem kallið kom, var hann við opnun myndlistarsýningar í Safnahúsinu. Hann vantaði fjóra daga upp á sjötugasta og áttunda árið. Þó var eins og kallið kæmi of snemma því auðvelt var að gleyma aldri þar sem hugurinn var svo virkur og síungur. Við kveðjum Finn þakklátir fyrir að hafa kynnst hon- um, unnið með honum að málefn- um Sáfnahússins og eignast vin- áttu hans. Bömum hans og að- standendum öðrum sendum við samúðarkveðjur. Halldór Kristinsson, Guðni Halldórsson. Það er stundum talið hið eina ör- ugga við lífið, að öll munum við deyja að lokum. Samt hnykkti okkur við að frétta andlát Finns Kristjánssonar að kvöldi 16. júní sl„ því lengstum fylgdi honum sá kraftur og lífsgleði, að hann hreif aðra með sér. Finnur var fæddur 20. júní 1916, og því nær 78 ára er hann lést. Hann ólst upp á Halldórs- stöóum í Kinn og átti jafnan seig- ar rætur í þingeyskri mold og bændamenningu. Hann nam við Samvinnuskól- ann í Reykjavík og hlaut þar gott veganesti fyrir starfsama ævi. Þaðan fylgdi honum einnig heim í Þingeyjarsýslu prestsdóttir úr Skagafirði, Hjördís Tryggvadóttir Kvaran, eiginkona, félagi og vinur um langa ævi. Það var sérstaklega gaman að heyra þau rifja upp fyrstu kynni sín og búskaparár og sjá hversu birta þessara ára entist þeim vel. Finnur var kaupfélagsstjóri á Svalbarðseyri um 14 ára skeió, en það mun hafa verið árið 1953, þegar Þórhallur Sigtryggsson lét af störfum, sem Finnur gerðist kaupfélagsstjóri Kaupfélags Þing- eyinga á Húsavík. Þáverandi stjórnarformaður KÞ, Karl Krist- jánsson, komst svo aó orði, að það væri „hæfilegt verkefni“. Þetta mat reyndist fyllilega réttmætt og happasælt fyrir kaup- félagið og hinar þingeysku byggð- ir, sem áttu framundan mikið blómaskeið með vaxandi fram- leiðslu og hraðri uppbyggingu til sjávar og sveita. Kaupfélagið var burðarás í þeirri þróun. Þegar Finnur hvarf frá Kaupfé- lagi Þingeyinga í árslok 1979, gerðist hann forstöðumaður Safnahússins á Húsavík, og þar tókst þc.m hjónum enn að skila æmu dagsverki, þótt komió væri á nýjan vc tvang. Kynn mín af Finni hófust þeg- ar ég kc m fyrst til verka hjá KÞ. Eg sé Itann ennþá fyrir mér sem sívökulan eljumann, sem jafnan var rcióubúinn að vaða eld og brennistein fyrir kaupfélagið, þeg- ar þess þurfti. Samtímis fylgdist hann með starfi og framkvæmdum til sjávar og sveita og reyndi lengstum aó greiöa fyrir öllu því sem hann taldi geta oróið til hags- bóta. Þá var ekki síður ánægjulegt aó kynnast hlýrri kírnni hans og frá- bærri frásagnarlist, sem var þó ætíð græskulaus. Það er því að vonum, sem Finns Kristjánssonar er minnst með söknuði í sveit og bæ. Þó er enn mciri ástæða til að glcðjast yf- ir störfum hans, og sporunum sem hann markaði meðal okkar. Vió Jónína þökkum samfylgdina og hlýhug allan, um leið og við vott- um eftirlifandi ættingjum samúð okkar. Hreiðar Karlsson. Veiðidagur fiöl- skyldunnar á sunnudag Veiðidagur fjölskyldunnar verður að vcnju síðasta sunnudag í júní, að þessu sinni 26. júní. Bændur við Langavatn í Laxárdal hafa sýnt þann velvilja að bjóða til ókeypis veiða í vatninu þennan dag. Uppistaðan í veiði vatnsins er smá murta og urriði. Fiskurinn er mjög vel haldinn og því sérlega góóur til átu. Fólki skal bent á að aðra daga eru seld veiðileyfi í vatnió á vægu verði. Tilvalið er fyrir fjölskyldur í helgarakstri að koma þama við og freista gæfunn- ar. Allar upplýsingar er að fá hjá Stangaveiðifélaginu Flúóum í síma 96-23118, Siguróur.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.