Dagur - 20.07.1994, Side 11
IÞROTTIR
Miðvikudagur 20. júlí 1994 - DAGUR -11
HALLDÓR ARINBJARNARSON
Knattspyrna, 2. flokkur:
Jafntefli hjá Þór
- bikarleikir um helgina
Þórsarar léku við FH í 2. flokki
karla um helgina. Spilað var á
malarvelli Þórs og að sögn Ei-
ríks Eiríkssonar þjálfara var
leikurinn fremur leiðinlegur og
endaði með markalausu jafn-
tefli. Þess má geta að 12 spjöld
voru gefln, þar af 2 rauð.
Um næstu helgi leika bæði Þór
og KA í bikarkeppni 2. flokks.
KA leikur heima viö UBK kl.
14.00 á laugardaginn og liðin
mætast á Islandsmótinu á sama
tíma daginn eftir. Þórsarar voru
hins vegar afar óheppnir3 fengu
útileik við Fram sem er Islands-
og bikarmeistari í þessurn flokki,
auk þess sem Þór verður með tvo
leikmenn í banni.
Golf, Sauðárkrókur:
Opna Flugleiðamótið
Opna Flugleiðamótið í golfí var
haldið á Hlíðarendavelli við-
Sauðárkrók um helgina síðustu.
Keppt var í karla-, kvenna- og
unglingaflokki bæði með og án
forgjafar. Flugleiðir gáfu öll
verðlaun sem voru afar glæsileg
að vanda.
Sigurvegarar í karla- og
kvennaflokkum án forgjafar hlutu
Evrópuferð að eigin vali á ein-
hverri flugleið Flugleiða og aðrir
verðlaunahafar hlutu flugferð inn-
anlands. Urslit urðu þessi:
Karlar án forgjafar:
1. Eiríkur B. Jónsson, GKJ 156
2. Eiríkur Haraldsson, GA 157
3. Guójón B. Gunnarsson, GSS 162
Karlar með forgjöf:
1. Eiríkur Haraldsson, GA 139
Knattspyrna:
Akureyrarmót
Hcr koma nýjustu úrslit úr Akurcyr-
armóli yngri flokka í knattspyrnu.
3. flokkur karla:
Þór-KA 2:2
Janus Þór Valdimarsson skoraöi
bæói mörk Þórs en Gunnþór Jónsson
skoraói bæði mörk KA.
3.11. kvenna:
KA-Þór 1:1
Sólveig Rósa Siguróardóttir skoraói
fyrir KA.
A íslandsmótinu vann KA 6:0 og þá
skoraði Rósa M. Sigbjömsdóttir 2,
Eva Moralcs I og Rannveig I.
Einnig vann KA Tindastól 5:0 í þess-
um flokki.
5.11. karla, Þór-KA:
A-lið 2:0
Gunnar Konráðsson og Andri Rúnar
Karlsson skoruóu mörk Þórs. '
B-lió 3:1 Fyrir Þór skoruóu Siguróur
B. Sigurósson 1 og Dýri Hreióarsson
2. Ingvar Karl Hermannsson skoraói
mark KA.
C-lið 3:1
Gestur Arason, Andrés Jónsson og
Gunnar Öm Sigfússon skoruðu mörk
Þórs. Einar L. Frióriksson skoraði
fyrir KA.
D-lið 6:3
Fyrir Þór skoruöu Siguróur F. Sig-
urósson 3, Hreiöar Eyfjörð Hreiðars-
son og Birkir H. Björgvinsson I.
Fyrir KA skoraói Pálmar I, Helgi
Jónasson og Óli Már 2.
E-lið 0:4
Magnús Þórisson skoraði 3 mörk fyr-
ir KA og Nonni 1.
Pepsi-
2. Kristján Guðjónsson, GH 142
3. Einar Öm Jónsson, GOS 144
Konur án fprgjafar:
1. Ámý L. Ámadóttir, GSS 169
2. Andrca Ásgnmsdóttir, GA 171
2. Sólveig Skúladóttir, GH 200
Konur nteð forgjöf:
1. Ámý L. Ámadóttir, GSS 145
2. Halla B. Erlendsdóttir, GSS 147
3. Andrea Ásgrímsdóttir, GA
Unglingar án forgjafar:
1. Orvar Jónsson, GSS 156
2. Gunnlaugur Erlendsson, GSS 160
3. Kári Emilsson, GKJ 164
Unglingar með forgjöf:
1. Davíð Már Jónsson, GKJ 128
2. Eggert Jóhannsson, GA 128
3. Örvar Jónsson, GSS 134
Opið unglingamót í golfi
á Húsavík:
»i-mótið
Golfklúbbur Húsavtkur heldur
opið 18 holu unglingamót nk.
laugardag 23. júlí og hefst það kl.
10.00. Keppt verður í flokkum
15-18 ára drengja og stúlkna og
14 ára og yngri drengja og
stúlkna með og án forgjafar.
Þetta mót kemur í staðinn fyrir
unglingaflokkinn sem vera átti á
Opna Húsavíkurmótinu 6.-7. ágúst
en þá stendur Unglingameistaramót
Islands yfir.
Skráning í Pepsi-mótið er í s.
96-41000 til kl. 19.00 föstudag 22.
júlí. Upplýsingar um rástíma í
sama síma milli kl. 20.30 og 22.00.
Evrópumót drengjalandsliða:
Fjórir að norðan
Þann 2.-8. ágúst nk. mun ís-
lenska drengjalandsliðið í knatt-
spyrnu taka þátt í Norðurlanda-
mótinu sem fram fer í Dan-
mörku. íslenska liðið hefur verið
valið og í því eru 4 Norðlending-
ar.
Þetta eru KA-mennirnir Þor-
leifur Árnason og Orvar Gunnars-
son og frá Völsungi koma Dagur
Sveinn Dagbjartsson og Ásmund-
ur Gíslason, markvörður. Auk ís-
lendinga taka lið frá Noregi, Eng-
landi og Danmörku þátt í mótinu.
Gunnar Már Másson er hcr að skora fyrsta mark lciksins fyrir Leiflur. Hann fékk scndingu inn fyrir vörnina og
afgrciddi boltann laglcga í markhornið. Mynd: KK
Knattspyrna, 2. deild karla:
Leiftur eitt á toppnum
- eftir afar mikilvægan 3:0 sigur á Grindavík
Keppni er nú hálfnuð í 2. deild
karla í knattspyrnu en 9. umferð
lauk sl. mánudagskvöld. Þá fór
fram á Ólafsfirði sannkallaður
stórleikur þegar efstu lið deild-
arinnar, Leiftur og Grindavík,
áttust við. Heimamenn sigruðu
3:0 og fara því með 3ja stiga for-
skot í 1. sæti í síðari umferðina.
Leikurinn bar þess merki aó
verið var að berjast um toppsæti
og barist var um hvern bolta. Þeg-
ar leið á fyrri hálfleik náóu Leift-
ursmenn yfirhöndinni, beittu
grimmt „rangstöðutaktík" sem
Grindvíkingar féllu iðulega í. Lít-
ið var um færi en á 40. mín. skor-
uðu Leiftursmenn fyrsta markið.
Gunnar Már Másson fékk stungu-
sendingu inn fyrir vörnina og
afgreiddi boltann laglega í netið.
Fyrri hálfleikur fór dauflega af
stað en á 5. mín. fengu Leifturs-
menn aukaspyrnu. Upp úr henni
spiluðu Páll Guðmundsson og
Gunnlaugur Sigursveinsson sín á
milli sem endaði með föstu skoti
Páls á markið. Boltinn fór í einn
varnarmanna Grindvíkinga og
þaðan í nctið. Staðan var því orðin
2:0.
Eftir þetta opnaðist leikurinn
meira og Leiftursmenn lögðu
meiri áherslu á vörnina. Þeir áttu
þó tvö mjög góð færi á 13. og 16.
mín. Gestirnir fengu einnig 3 góð
færi í síðari hálfleik, tvisvar varði
Þorvaldur Jónsson glæsilega með
úthlaupi en þriðja skotió fór fram-
hjá. Skömmu fyrir leikslok skor-
aði síðan Páll Guðmundsson 3.
markið og öruggur sigur var í
höfn.
E.t.v. hefur bikarleikurinn setió
í Grindvíkingum en leikurinn ein-
kenndist fyrst og fremst af baráttu
á kostnað samspilsins. Hjá Leiftri
var Páll Guðmundsson afar sterk-
ur en Lúkas Kostic mest áberandi
hjá gestunum. KH
Knattspyrna, 2. deild karla:
HK sterkara heima gegn KA
KA sótti HK heim í 9. umferð 2.
deildar karla í fyrrakvöld og
mátti sætta sig við 1:3 tap fyrir
frísku Kópavogsliðinu. HK var í
neðsta sæti fyrir leikinn gegn
KA og nú þegar deildin er hálfn-
uð fer að hitna í kolunum.
„Þeir voru miklu grimmari en
við. Einfaldar sendingar rötuðu
ekki rétta leið og við náðum okkur
aldrei á strik. Næstu tveir leikir
eru útileikir og það veróur á bratt-
ann aó sækja. Eg sé samt enga
ástæðu til annars en vera bjart-
sýnn,“ sagði Erlingur Kristjáns-
son, annar tveggja þjálfara KA,
allt annað en ánægður eftir leik-
inn.
HK ætlaói sér greinilega sigur í
leiknum og hóf hann af krafti. Eft-
ir 28 mín. skoraði Sigurður Örn
Jónsson fyrir HK en Sigþór Júlí-
usson náói aó jafna fyrir hlé,
nokkuð gegn gangi leiksins.
Besti maður vallarins, Helgi
Kolviðsson, kom HK yfir á 10.
mín síðari hálileiks og Gunnar
Guómundsson bætti því 3. við í
3:1 sigri. HK var mun beittara í
öllum aðgerðum meðan leikur KA
var frekar marklaus og sigurinn
því sanngjarn. En hið unga lið KA
á tvímælalaust framtíðina fyrir sér
ef þolinmæði er sýnd.
Sigþór Júlíusson skoraði mark KA.
Mjólkurbikarkeppnln:
Þór-Fram á sunnudaginn
Knattspyrnudeildir Þórs og
Fram hafa komist að sam-
komuiagi um að leikur þeirra í
8-liða úrslitum Mjólkurbikar-
keppninnar fari fram nk.
sunnudag 24. júlí en ekki á
mánudaginn eins og upphafleg
áætlun gerði ráð fyrir.
Þaö verður því kl. 20.00 nk.
sunnudagskvöld sem flautað
verður til lciks og að honum
loknum kemur í ljós hvort lió-
anna kemst í undanúrslit. Breyt-
ingin er gerð meó þaö fyrir aug-
um að sem flestir eigi þess kost
að sjá leikinn. Þórsarar gera sér
vonir um aó Akureyringar fjöl-
menni á völlinn og sjái spenn-
andi vióureign. Á þessari stundu
er ekki annaó vitað en hinir 3
leikimir fari fram á mánudags-
kvöld. Það eru Fylkir-Stjaman,
UBK-KR og Grindavik-ÍBV.
Staðan
2. deild karla
Þróttur N.-Selfoss 0:1
HK-KA 3:1
IR-Víkingur 2:4
Fylkir-Þróttur R. 1:2
Leiftur-Grindavík 3:0
Leiftur 9 7 1 1 23: 8 22
Grindavík 9 6 1 2 20 8 19
Þróttur R. 953 1 15: 7 18
Víkingur 94 3 2 13:11 15
Selfoss 94 23 9 :13 14
Fylkir 9414 16:16 13
KA 9306 12:14 9
HK 92 1 6 5 :13 7
Þróttur N. 9 1267 17 5
ÍR 9 1 2 6 8 :21 5
Munib
ódýru
morgun-
tímana
fró kl. 9-14
Abeins kr. 270
Sólbabsstofan Hamri
sími 12080.