Dagur - 20.07.1994, Qupperneq 12
Athugað með kaup
áhafnarbáti
Akureyrarhöfn hefur verið að
athuga með kaup á nýjum
og stærri hafnarbáti, til að leysa
af hólmi Mjölni, bát hafnarinn-
ar. Fyrirspurnir hafa verið send-
ar 4 innlendum og 12 erlendum
skipasmíðastöðvum.
Að sögn Guðmundar Sigur-
bjömssonar, hafnarstjóra, hefur
Mjölnir um 2,5 tonna togkraft,
sem er ekki nóg til aó aðstoóa tog-
ara og flutningaskip nema í mjög
hagstæóu veðri. Þá er talið að með
tilkomu flotkvíar á Akureyri sé
þörf fyrir öflugri hafnarbát.
„Við erum að líta í kringum
okkur eftir bát með 11-12 tonna
togkraft, hvort heldur sem nýjum
eða notuðum og höfum leitaó okk-
ur upplýsinga um veró báta af
þeirri stæró bæði hér heima og er-
lendis.“
Guðmundur segir aó málin
verói skoóuð enn frekar á næst-
unni og hann vonast til aö niður-
staða fáist fljótlega um það hvort
af kaupum á nýjum báti verði. KK
Húsavík:
Sýra í flug-
vélarolíu
Vart varð við sýru í olíutanki
einkaflugvélar frá Húsavík
fyrir um það bil mánuði síðan.
Sýni af olíunni var sent erlendis
til rannsóknar og svar hefur enn
ekki borist um hvaða tegund
sýru er að ræða eða hvernig hún
hefur hugsanlega komist í tank-
inn.
Flugvélin er í eigu fjögurra
Húsvíkinga og eins Akureyrings.
Einn eigandanna hafði nýlega
flogið vélinni, m.a. til Reykjavík-
ur, þegar þess varð vart að ekki
var allt með felldu. Annar eigandi
var að gera reglubundna könnun á
öryggisatriðum fyrir flugtak, er
hann varð þess var að mælikvarði
í olíutanknum var tærður. Þá þeg-
ar var haft samband vió Flugfélag
Noróurlands, sem hefur haft eftir-
lit með vélinni. Náð var í vélina til
Húsavíkur og olíunni tappað af
henni. Umtalsvert tjón varð á vél-
inni.
Lögreglunni á Húsavík var
tilkynnt um málið. Þröstur Brynj-
ólfsson, yfirlögreglumaður segir
að ckki sé vitað hvort um sak-
næmt athæfi sé að ræða eða að
sýran hafi lent í geyminum fyrir
mistök eða slysni. Beðið er niður-
stöðu rannsóknar á sýnunum,
hvers konar efni sé um að ræða og
hvaðan það er hugsanlega kornið.
Þegar það er vitað kemur í ljós
hvort lögreglan og/eóa Loftferða-
eftirlitið annast framhaldsrann-
sókn málsins. IM
Á morgun verður fremur hæg
breytileg átl; skúrir víða um
land - einkum síðdegis. Hiti
verður 10-18°C - hlýjast norð-
austanlands. Horfur á föstu-
dag: Suðvestanátt og skýjað
um vestanvert landið en víða
bjart veður austan til. Hiti 10r
20°C - hlýjast austanlands. Á
laugardag verður suðaustanátt
og rigning á Suður- og Vestur-
landi en skýjað með köflum
norðaustanlands. Hiti 12-20°C
- hlýjast noróanlands.
VEÐRIÐ
Að undanförnu hafa staðið yfir lagfæringar á aðstöðu siglingaklúbbsins
Nökkva við Höephner á Akureyri. Svæðið hefur verið stækkað og húsi kom-
ið fyrir á fyllingunni, þar sem m.a. er búninga- og félagsaðstaða félagsins.
Með þessum framkvæmdum, sem iýkur á næstunni, verður aðstaða sigl-
ingamanna bætt tii muna. Mynd: Robyn
Ráðhúsið á Dalvík:
Ágæt rækjuveiði í Flæmska hattinum:
Sunna landaði fyrir
50 milljónir í vikunni
Agæt rækjuveiði hefur verið í
Flæmska hattinum við Ný-
fundnaland en sjö fslensk skip
eru þar að veiðum.
Arnarnesið og Sunnan frá
Siglufirði eru í hattinum og hefur
gengið ágætlega. Sunnan landaði
270 tonnum á Nýfundnalandi í
vikunni og var aflaverðmæti um
50 milljónir kr. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Þormóði Ramma á
Siglufirði, sem gerir skipið út,
hefur það verið að veiða 10-12
tonn á sólarhring.
Baldur EA frá Dalvík er einnig
við veiðar á svæóinu og sam-
kvæmt upplýsingum frá útgerð-
inni ganga veiðar ágætlega. Skipið
hefur verið við veiðar í hálfan
mánuð en hefur enn ekki landað.
Alls eru sjö íslensk skip vió
veiðar í Flæmska hattinum. Auk
þeirra þriggja, sem þegar hafa ver-
ið talin, eru þar Andvari frá Vest-
mannaeyjum, Skutull og Hafrafell
frá Isafirði og Otto Wathne frá
Seyóisfirói. JHB
Góð veiði í Smugunni:
Drangey og Hegranes á
heimleið með fullfermi
Góð veiði hefur verið í Smug-
unni síðustu daga. Drangey
og Hegranes eru á heimleið með
fúllfermi og nokkur fjöldi skipa
er á leið til veiða á svæðinu.
Drangey og Hegranes voru um
tíma einu íslensku skipin í Smug-
unni, ásamt Óttari Birtingi og
Rex, sem bæði sigla undir henti-
fána, og nokkrum færeyskum
skipum. Veiðin var treg til að
byrja með en hefur verið ágæt
undanfarna viku.
Einar Svansson, framkvæmda-
stjóri Fiskiðjunnar Skagfirðings á
Sauðárkróki, sem gerir út Drangey
og Hegranes, sagðist í gær ekki
hafa nákvæmar upplýsingar um
afla skipanna en vissi þó að þau
voru með fullfermi og a.m.k. 100
tonn af söltuöum þorski hvort
skip, rúm 200 tonn upp úr sjó á
hvort. Skipin landa á Sauðárkróki
í lok vikunnar og halda aftur í
Smuguna um eða upp úr helginni.
Tiltölulega fá skip eru í Smug-
unni eins og er en vitað um all-
mörg á leiðinni, m.a. Örvar, Múla-
berg, Frosta, Blika, Má og Há-
gangana. JHB
Tvö útilistaverk samþykkt
Urslit í samkeppni Bæjar-
stjórnar Dalvíkur og Spari-
sjóðs Svarfdælinga um útilista-
verk við Ráðhúsið á Dalvík voru
birt sl. mánudag. Tilgangur
samkeppninnar var að fá fram
tillögur, sem til þess væru falln-
ar að útfæra í fullri stærð. Um
tvö listaverk er að ræða, annars
vegar verk sem staðsett verður
fyrir framan Ráðhúsið og hins
vegar listaverk sem ætlaður er
staður á lóð Ráðhússins, sem
markast af Hólavegi og Goða-
braut. Jóhanna Þórðardóttir er
höfúndur annars verksins og
Sigurður Guðmundsson hins.
Dómnefnd skipuð af bæjar-
stjóm Dalvíkur, Sparisjóói Svarf-
dæla og Sambands íslenskra
myndlistarmanna ákvað að velja
fjóra þátttakendur til að gera til-
lögur að listaverkum í lokaðri
samkeppni að undangengnu for-
vali eftir aö auglýst hafði verið
eftir áhugasömum þátttakendum.
Rúmlega 20 myndlistarmcnn
sendu inn gögn. Dómnefnd valdi
fjóra myndlistarmenn til þátttöku í
keppninni; Jóhönnu Þórðardóttur,
Rúrí, Sigurð Guðmundsson og
Sólveigu Eggertsdóttur og var
þeim öllum greitt fyrir tillögu-
gerðina.
Dómnefnd sem skipuð var
Friðriki Friórikssyni, Valdimar
Bragasyni, Dóróþeu Reimarsdótt-
ur, Steinunni Þórarinsdóttur og
Guðjóni Ketilssyni var sammála
um að allar tillögumar uppfylltu
ákvæói keppnislýsingar og skil
þeirra og frágangur þótti fullnægj-
andi. Einnig er það álit dómnefnd-
ar að verkin séu fallega unnin og
beri vitni Iistrænum metnaói.
Dómnefnd ákvað að ntæla mcð
tillögum og útfærslu Jóhönnu
Þórðardóttur á verki sem hún kall-
ar Öldu og á Sjófuglum Sigurðar
Guðmundssonar. Gert er ráð fyrir
aó útilistaverkunum verði komið
upp um miðjan septembcr 1994 ef
um það semst. Tillögur myndlist-
armannanna fjögurra munu vera
til sýnis í Ráðhúsi Dalvíkur til
mánudagsins 25. júlí 1994. TT
Útblástur.
Mynd: Robyn
Allt fyrir garðinn
í Perlunni við
□
KAUPLAND
Kaupangi v/Mýrarveg. simi 23565
r““n
C-634 XT
þvottavél
18 þvottakerfi
5 kg þvottur
Hitabreytirofi
600 snúninga
Rústfrír pottur
Frábært verö 39.900,- stgr.
. ra KAUPLAND
Kaupangi v/Mýrarveg, sími 23565^J