Dagur - 01.09.1994, Blaðsíða 7

Dagur - 01.09.1994, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 1. september 1994 - DAGUR - 7 Frá Sauðárkróki. Spcnnandi vcrður að fylgjast með undirbúningi framboða í kjördæminu fyrir komandi kosningar til Alþingis. ætlaði sér fram í Norðurlandskjör- dæmi vestra. Ekki tókst að ná í Vilhjálm Eg- ilsson meðan á vinnslu greinarinnar stóð en Hjálmar Jónsson vildi hvorki játa því né neita að hann hefði áhuga á öðru af tveimur efstu sætum listans. „Við erum í góðu sambandi við þrír, Pálmi, Vilhjálm- ur og ég, og við komum til með að ráða ráðum okkar,“ sagði Hjálmar. Stillt var upp á lista flokksins fyrir síðustu kosningar en ekki er búið að taka ákvörðun um hvernig vali á frambjóðendum verður háttað nú. „Mér sýnist ým- islegt benda til að um prófkjör verði að ræóa og það yrði þá væntan- lega seint í haust eða snemma vetr- ar. Það liggja cngar samþykktir fyrir en mér heyrist vera nokkur vilji til þess,“ sagði Pálrni Jónsson. Ragnar gefur áfram kost á sér Alþýðubanda- lagsmenn í Norð- urlandskjördæmi vestra eru snemma í því og 20. júní sl. fund- aði kjördæmisráð á Blönduósi. Þar var kjörin kjör- nefnd sem er að störfum. I haust fundar kjördæmis- ráð á nýjan leik og þá verður ákveð- ið hvort efnt verður til forvals eða gengið frá listanum. Alþýðubandalagið hefur einn þingmann í kjördæminu, Ragnar Arnalds. Hann lýsti því yfir á fund- inum á Blönduósi að hann myndi gefa kost á sér áfram og má telja nokkuð öruggt að hann leiði listann nú sem fyrr. Kvennalistinn með og önnur framboð ekki útilokuð Stefnt er að framboði kvennalista í Norðurlandskjördæmi vestra, eins og í öðrum kjördæmum. Ekki hefur verið ákveðið hvemig, né heldur hvenær, verður valið á listann. Kvennalistinn hlaut 327 atkvæði, eða 5,2%, í síðustu kosningum, sama hlutfall og í kosningunum 1987. í bæöi skiptin vantaði allmik- ið upp á að þingsæti ynnist en það dregur ekki kjarkinn úr kvenna- listakonum í kjördæminu. „Viö að- stoðuðum við að koma konu inn annars staðar,“ segir Agústa Eiríks- dóttir, sem átti sæti á listanum síð- ast. H-listi Heima- stjórnarsamtak- anna hlaut 105 at- kvæði, eða 1,6%, í kosningunum 1991. Hörður Ingimarsson frá Sauðárkróki skip- aði þá efsta sæti listans og hann segir koma til greina að bjóða frani á nýjan lcik. „Þau ntálcfni sem við settum fram og lögöum áherslu á voru knýjandi 1991 en í dag er bráðnauð- synlegt að finna lausn á þeim,“ segir Hörður. „Þjóðin stendur frammi fyr- ir sívaxandi erfióleikum og atvinnu- leysi og viö vöruðum við þessu öllu, t.d. samningum við önnur ríki sem myndu kosta þúsundir manna at- vinnuna en á þessu er ekki tekið. Forsendumar fyrir framboði Heima- stjómarsamtakanna eru því ná- kvæmlega þær sömu í dag og 1991 og ég tel framboð alls ekki útilok- að.“ En gæti Hörður hugsað sér að taka aftur efsta sætið á listanum? „Eg get vel hugsað mér að stuðla að pólitískum framfömm í landinu, á þeim málefnalegu forsendum sem við vorum með, og í sjálfu sér gæti ég hugsað mér að gera það undir hvaða merki sem er. Númcr eitt er að málefnin séu skynsamleg,“ sagði Hörður Ingimarsson. Þ-listi Þjóöarflokks og flokks mannsins hlaut 97 atkvæði, eða 1,5%, 1991. Hólmfríður Bjamadótt- ir á Hvammstanga leiddi þá listann og hún segir ekkert farið að ræða hvort boðið verði fram nú. „Per- sónulega myndi ég álíta skynsam- legt að bíða aóeins og sjá hvort ein- hver uppstokkun verði á flokkakerf- inu, t.d. vegna Jóhönnu Sigurðar- dóttur. En það er aldrei aó vita nema fólk vilji gera eina tilraun enn, þótt mér finnist það satt að segja frekar ósennilegt á þessari stundu,“ sagði Hólmfríður. Aðspurð, hvort hún myndi sjálf gefa kost á sér á slíkan lista, sagðist hún ckki hafa hugleitt það en taldi það ólíklegt þar sem aðstæður henn- ar hefðu brcyst. F-listi Frjálslyndra bauð einnig fram í kjördæminu síðast. Telja má afar ólíklegt aó af framboði hans verði nú en listinn hlaut aðeins 25 atkvæði í kosningunum 1991. JHB Pálmi Jónsson. m f*- f Ragnar Arnalds. Hörður Ingi- marsson. Handverk: Samkeppni um hönnun á minjagrípum og minní nytjahlutum úr íslensku hráefini Handvcrk - reynsluverkefni stendur fyrir samkeppni um hönnun á minjagripum og smærri nytjahlutum úr íslensku hráefni. Samkeppnin cr opin öllum sem áhuga hafa á íslensku handverki. Þátttakcndur gcta verió einstak- lingar eða hópar. Hér gefst hand- verksfólki og hönnuðum gott tækifæri til að vinna saman og skila samciginlegri tillögu. Hug- myndum má skila á tcikningu með sýnishorni af því hráel'ni sem nota skal eða sem tilbúnum hlutum, Þátttakendur geta því valió þá leið sem hentar þeim best til að koma sínum hugmynd- um á framfæri. íslenskt hrácfni að mcginhluta er skilyrði fyrir þátttöku. Hægt er aó nálgast lista yftr íslensk hrá- efni sern fáanleg eru hjá skrif- stofu Handverks. Keppninni cr skipt í fimm flokka eftir uppruna hráefnisins. A - íslensk tré B - Hráefni frá landbúnaði - ull C - Hráefni ffá landbúnaði - annað D - Hrácfni frá sjávarútvcgi E - Hrácfni úr íslenskri náttúru Vcitt verða tvenn verðlaun í hvcrjunt flokki, ein fyrir bcsta minjagripinn og cin fyrir bcsta nytjahlutinn. Auk áðurnefndra verðlauna verða veitt ein verð- laun fyrir þjóðlegasta hlutinn eða hugmyndina. Sá hlutur getur ver- ið í hverjum hinna flokkanna sem cr. Alls verða vcitt 11 verð- laun hver allt að 100.000 kr. Eftirfarandi aðilar hafa veitt fé til verðlauna: Smáverkefnasjóður Landbúnaóarins, Þjóðhátíöar- nefnd, Skógrækt ríkisins, ís- lenskur skinnaiðnaður og Land- græöslusjóður. Sérstök áhersla verður lögð á að aðstoða verólaunahafa við að koma sínum hugmyndum í fram- lciðslu. Formaður dómnefndar er Eyj- ólfur Pálsson. Aðrir dómnefndar- menn eru Asrún Kristjánsdóttir, Bima Kristjánsdóttir, Bjöm Th. Bjömsson, Elín Sigurðardóttir, Gcrður Hjörleifsdóttir og Ómar Sigurbergsson. Allar nánari upplýsingar og keppnisgögn fást á skrifstofu Handvcrks, Laufásvegi 2, 101 Rcykjavík, sírni 91-17595. Til- lögur skulu bcrast á sarna stað fyrir föstudaginn 4. nóvembcr kl. 12 á hádegi. Verölaunaafhending fer fram 26. nóventber nk. og verður nánar auglýst síðar. Friíitatilkynning. □ □ I '□ ' □’ □□ *□“ □* „ ;.a:jc ° n r □ □ □ Líkamsræktin Hamri Vetrardagskráin í pallaþreki og leikfimi hefst af full- um krafti 5. september. Vertu ekki of sein(n), hringdu strax og kynntu þér tímana. Lokaðir kvenna- og karlatímar. Kl. Mán. Þriöj. Miðvd Fimmtud Föstud. Laugard. 11- 12 barnae. 12- 13 karlap. 13- 14 frh. 2 18- 19 byrj. 1 karlap. byrj. 1 karlap. byrj.1 19- 20 byrj.2 frh. 2 byrj. 2 frh. 2 byrj. 2 20- 21 frh. 1 gönguh. frh. 1 gönguh. frh. 1 4 vikna námskeið 3x í viku kr. 3000 + 10 tíma Ijósakort kr. 4.500,- Vatnsgufubað, nuddpottur og frábærir Ijósabekkir. Kennarar: Harpa Örvarsdóttir og Elín Sigurðardóttir. Nýjungar! Nýjungar! Nýjungar! Barnaeróbikk fyrir börn á aldrinum 5-8 ára. Létt dansspor og leikir. Gönguhópur. Upplagt fyrir konur sem eru að byrja að hreyfa sig. Útiganga, leikfimi, áhersla á maga, rass og læri. Skráning og allar upplýsingar um tímana í Hamri, sími 12080. Ath! Mánaðarkort í tækjasalinn aðeins kr. 2.400, ótak- mörkuð mæting. Opið frá kl. 9-23 virka daga og til kl. 18 um helgar. J ■m I Um helgina fimmtudag og föstudag Halli Reynis og Jón Ingólfs Laugardag Haili Reynis og Jón Ingólfs halda uppi fjonnu Tískusýning kl. 22 frá YERO mODA Sunnudag Kaffihlaöborð kl. 15- 8. Lifandi tónlist Verö: Fullornir kr. 600, börn kr. 200. Muniö breyttan opnunartíma. Strandgötu 49 • Sími 12757 r

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.