Dagur - 01.09.1994, Síða 11

Dagur - 01.09.1994, Síða 11
Fimmtudagur 1. september 1994 - DAGUR - 11 ÍÞRÓTTIR S/EVAR HREIÐARSSON Akureyrarmót: Þórsarar meistarar - lögðu erkifjendurna í KA, 3:2 Akurcyrarmeislarar Þórs í knattspyrnu 1994. Mynd: KK Þórsarar eru Akureyrarmeistar- ar í knattspyrnu eftir 3:2 sigur á KA í fjörugum leik. Þórsarar voru betri aðilinn í leiknum og áttu sigurinn skilinn. Þórsarar byrjuðu leikinn betur og Bjarni Sveinbjörnsson og Hlynur Birgisson fengu ágæt færi á fyrstu tíu mínútunum en skot þeirra voru máttlaus og hættulítil. KA-menn komu betur inn í leik- inn þegar líóa tók á hálfleikinn og á 17. mínútu skoraði Halldór Kristinsson fallegt skallamark cn dómari leiksins sá eitthvað at- hugavert í teignum og dærndi markið af. Fyrsta markið kom á 26. mínútu og það skoraði Þórir Askelsson fyrir Þór meó ágætu skoti utan vítateigs sem Eggert Sigmundsson virtist hafa cn rann til í markinu og náði ekki til bolt- ans, 1:0. Hreinn Hringsson fékk gott færi til að bæta við marki tíu mínútum síðar en skot hans fór framhjá. A 49. mínútu náði Höskuldur Þórhallsson að jafna metin fyrir KA en hann hafði komið inná í hálfleik. Há sending kom fyrir markió sem Olafur Pétursson náði ekki að halda eftir að hart var sótt aö honum og Höskuldur skallaói í autt markiö. Þórsarar tóku forustu á ný á 61. mínútu þegar aö Júlíus Tryggvason skallaði af krafti í netið eftir aukaspyrnu frá Páli Gíslasyni. Leikmenn KA voru þó ekkert á því að gefast upp og tæp- um fjórum mínútum síðar jöfnuðu þeir á ný. Varamaðurinn Gísli Guðmundsson átti þá glæsilega sendingu inn fyrir vörn Þórsara og Þorvaldur Sigbjörnsson skoraði af öryggi. Jafnræði var með liðunum þar til að um tíu mínútur voru til leiksloka en þá fóru Þórsarar að sækja af krafti. A 43. mínútu brá varnarmaóurinn Þórir Askelsson sér í sóknina og fyrirgjöf hans fór beint upp í hönd vamarmanns KA og vítaspyrna dæmd. Bjarni skor- aði af alkunnu öryggi úr spyrn- unni og sigurinn var Þórsara. Þórsarar virtust mun öruggari með boltann en KA-menn en bar- áttan skilaði KA miklu og jafntefli hefói sennilega verið sanngjörn úrslit. Þórir Askelsson var bcsti maður Þórsliðsins að þessu sinni en hjá KA var Bjarki Bragason sterkastur. Dómari leiksins var Þorsteinn Arnason og átti hann afspyrnu- slakan lcik. Bæði lið voru mjög ósátt við rnarga dóma hans og oft fróðlegt aö geta sér til um á hvað hann var að dænia. Golf: Hverjir fara út? Nú er spennan farin að aukast í Grcifamótinu í golfi og enn óljóst hverjir verða í efstu sætum og hijóta utanlandsferð. Keppn- in heidur áfram í dag en þá fer fram 10. mótið af 13. Fylkir Þór Guðmundsson hcfur enn forustu á samanlögðum stig- um bæði með og án forgjafar en hann hefur tekió þátt í öllum mót- unum. Haraldur Júlíusson kemur honum næstur og á góða mögu- leika á að næla sór i utanlandsferð. í kvennaflokki cr cinungis spilað með forgjöf og þar hefur Andrea Ásgrímsdóttir forustu. Enn eru miklir möguleikar á aó ná efstu mönnum og því tilvalið fyrir menn að taka þátt. Blak: Bandarískur þjálfari og leikmaður til KA Blakdeild KA hefúr gengið frá samningum við bandarískan leikmann til að þjálfa og spila með meistaraflokki karla í vet- ur. Hann heitir Mike Whitcomb og er 26 ára gamall miðjusmass- ari. Mike Whitcomb spilaði með blakliói UCLA háskólans í heima- landinu en sá skóli er þekktur fyrir að ala upp afreksfólk í íþróttum. Hann var þrisvar valinn í svokall- að All American lió, sem er úr- valslið úr öllum háskólum í Bandaríkjunum. Hann hcfur góð- an grunn sem þjálfari því hann hefur verið aðstoðarmaður A1 Scates, sem er einn virtasti blak- þjálfari Bandaríkjanna, undanfarin ár. A1 Scates er þjálfari UCLA há- skólaliðsins auk þess sem hann rekur virtar þjálfunarbúðir á sumr- in. Síðustu tvö sumur hefur Whitcomb einnig verið að keppa sem atvinnumaður í strandblaki. Hann er tæpir 2 metrar á hæð og þykir afburöa sterkur miðjusmass- ari. Mike Whitcomb kemur til landsins eftir rúnia viku og tekur þá við þjálfun liðsins en blaktíma- bilið hefst í byrjun októbcr. Forráðamenn KA fengu upp- lýsingar um Whitcomb hjá Al HM 95 í handbolta: Slembiforsala hefst í dag tímabært að tryggja sér miða I dag hefst svokölluð „slembi- forsala“ á leiki í Heimsmeist- arakeppninni í handbolta. Með því að senda meðfylgjandi kaupbeiðni til ferðaskrifstof- unnar Ratvís komast áhuga- samir í pott sem dregin verða úr nöfn þeirra heppnu. Ekki er hægt að velja ákveðna leiki heldur ræóur tilviljun því á hvaóa leiki mióarnir gilda. Þó er hægt að velja á milli leikja á Ak- ureyri og Stór-Reykjavíkursvæð- inu, auk þess sem settur verður upp skiptimarkaður fyrir slembi- miðana þegar nær dregur mótinu. I pottinum verða 5000 miðar og því verður efiaust barist um hvern mióa. Þar af eru 250 miðar á útsláttarkeppnina og ef heppnin er með er mögulegt að fá miða á sjálfan úrslitaleikinn. Að sjálf- sögóu er leyfilegt að fylla út fieiri en eina beiöni til að auka möguleika sína á að fá mióa en kaupbciðnir þcssar munu birtast í Degi út næstu viku. Fólk getur sent inn beiönir fram til 10. sept- embcr en eftir þann tíma vcrður dregið úr innsendum miðurn í viðurvist fógeta. Aðrir möguleik- ar eru einnig á því að tryggja sér miða. Hægt er að ganga í stuön- ingsmannahópinn „Fólkið Okk- ar" cn þar cr takmörkuð þátttaka og einnig er hægt að kaupa tvær geröir af kortum sem gilda á leikina. Annars vegar er um að ræða Alkort, sem gildir á 10 leik- kvöld, og hins vegar Forkort, scm gildir á lciki í cinum ákveónum riðli. 95 KAUPBEIÐNI Nafn: Heimilisfang: Simi: □ EuroCH Visa.nr: Gildistimi: □ Póstkrafa: □ Stór-Reykjavikursvæðið Q. Akureyri . . . . Undirskrift 1 slembimiði Þú fyllir út bupbeiúni/r og velur hvort þú viljir sjá leikina á Akureyri eáa Stör-Keykjavikuravaeðinu. I slembimiðapottinum verða 5000 miðar og þvi er ekki 'óruggt aí þú fáir miða. Slembimiðinn gildir á eitt leikkvöld sem eni 2 eða 3 leikir. I pottinum verða 250 miðar á útsláttarkeppnina og eru þeir mun verömeiri. Ef heppnin er met þér getur þú fengið mida á úrslitaleikinn fyrir aðeins 2500 kr.l Þeir aðilar sem verfa dregnir út fá skriflegt svar fyrir I október og greiía þeir 2500 kr. fyrir slembimiíann. i---------------------m # RA+VÍS l(IL>„ M*S Pósthólf 170,602 Akureyri. einkasOluaoiu S: 96-12999, 96-12800, 91-641522 Scates sem hældi honum í hástcrt. Pétur Olason, fyrirliði KA, er ánægður meó að hafa fengið hann sem þjálfara og félaga. „Þetta veróur öðruvísi. Við erum búnir að vera mcð kínverskan þjálfara sem er rneð vissar aðfcrðir við þjálfun og það verður allt annaó að fá bandarískan mann," sagði Pétur í samtali við Dag. Komandi tímabil leggst vel í Pétur og hann er bjartsýnn á gengi KA-manna. „Þetta lítur ágætlega út fyrir vetur- inn. Þaó er langt síðan það hefur verið byrjaó svona snemma að æfa á fullu cn við erum búnir aó vera að í tvo mánuði. Það er enn óljóst með mannskap en þctta lítur ágætlcga út cins og cr. Mér sýnist aó þaö verði bara býsna sterkur hópur hjá okkur. Vió crunt alltaf með stóran hóp, hátt í tuttugu nienn sem koma til með að æfa," sagði Pétur að lokum. Landsliöiö: Einn leikur, eitt mark í fyrrakvöld lék íslenska lands- liðið í knattspyrnu æfingaleik gegn Sameinuðu arabísku furstadæmunum á Laugardals- velli. íslendingar sigruðu í Ieikn- um, 1:0, og skoraði Þórsarinn Guðmundur Benediktsson eina mark leiksins. Islendingar höfðu mikla yfir- burói í lciknum en það var ckki fyrr en fjórar mínútur voru til lciksloka að Guómundur Bcne- diktsson skoraði sigurmarkiö með góðu skoti úr ntiðjum teignum. Þetta var fyrsti A-landslcikur Guðmundar en hann hcfur spilað rnjög vcl meö Þórsliðinu í sumar. Hann kom inná sem varamaður á 67. mínútu og færði aukið líf í sóknarleikinn. Leikurinn var ætl- aður sem upphitun fyrir landsleik- inn gcgn Svíum í næstu viku og vcröur fróðlegt að sjá hvort frammistaða Guðmundar hafi tryggt honum sæti í hópnum. Það þykir þó líklcgra að hann verói notaður með U21 árs lióinu á þriðjudag. Ásgeir Elíasson, lands- liðsþjálfari, tilkynnir hóp sinn á rnorgun. HfeL' .. aí . — V ' i » V Guðmundur Bcnediktsson skoraði fallcgt inark fyrir landsliðið. _ □□ -íg'a ‘Q’ □□ “a° [iTi" ' ~ 31° 2 0° Kvenna- og karlatímar í pallaþreki og eróbikk hefjast mánudaginn 5. september. SKRÁNING HAFIN. (Auglýst nánar síðar). Líkamsræktin Hamri sími 12080.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.