Dagur - 09.09.1994, Blaðsíða 1

Dagur - 09.09.1994, Blaðsíða 1
Sextán ára á stolnum bíl: Gripinn með fíkniefni - hefur viðurkennt nokkur innbrot og fíkniefnaneyslu Afimmta tímanum í fyrrinótt barst lögreglu á Akureyri tilkynning um innbrot í Dekkja- höllina við Draupnisgötu. Við eftirgrennslan kom í Ijós að það- an hafði horfið bifreið sem síðan sást fara norður úr bænum. Lög- reglan á Dalvík náði ökumann- inum sem reyndist hafa amfet- amín í fórum sínum. Hann er aðeins 16 ára og hefur lögregla áður haft af honum afskipti. Lögreglan á Dalvík sá bílinn koma frá Arskógssandi og stefna inn Þorvaldsdal. Lögreglan elti og náði manninum og Akureyrarlög- reglan kom síðan til aðstoðar. Við leit á fundust fíkniefni í fórum mannsins. Um var að ræóa amfetamín og hefur hann jafn- framt viðurkennt hassneyslu. Viö yfirheyrslur hefur maðurinn játaó fleiri innbrot sl. nótt en síðdegis í gær var hann enn í yfirheyrslu og málið í rannsókn. Umræddur maö- ur er aðeins 16 ára gamall og þ.a.l. án ökuréttinda en hefur áður kom- ið við sögu lögreglu vegna bif- reiðaþjófnaðar. HA Varöskipiö Óðinn frá Hammerfest í dag: Skildi eftir slas- aða sjómenn - en tók olíu og sjúkragögn Varðskipið Óðinn heldur frá Hammerfest í Norður- Nor- egi í dag áleiðis í Smuguna eftir að hafa tekið olíu, kost og sjúkragögn fyrir lækninn sem er um borð. Um 40 íslenskir togar- ar eru á veiðum í Smugunni, og er mikil ánægja meðal sjómann- anna með nærveru varðskipsins en um 800 íslenskir sjómenn eru á þessum slóðum. Koma Óðins til Noregs virtist ekki vekja mikla athygli íbúa Hammerfest þrátt fyrir deilu þjóðanna, en Qöldi norskra fjölmiðlamanna tók hins vegar á móti skipinu. Varðskipið Óóinn verður í Bar- entshafi fram eftir septembermán- uði, jafnvel lengur ef íslensku tog- aramir halda áfram veióum á þessum slóðum. I gær var veiði fremur treg á þessum slóðum eftir mokveiði undanfama daga. Varð- skipið kom í gær úr Smugunni meó fimm sjómenn og einn blaða- mann frá Morgunblaðinu, en fjórir sjómannanna voru slasaðir á hendi og einn í baki. Sjómennirnir eru af togurunum Júlíusi Geirmundssyni frá Isafirói, Snorra Sturlusyni frá Reykjavík, Margréti frá Akureyri og Sigli og Siglfírðingi frá Siglu- firói. Reiknað var með að sjómaó- urinn af Siglfirðingi færi aftur með Óöni í Smuguna eftir rann- sókn á sjúkrahúsinu í Hammer- fest, en hinir héldu heim á leið. GG Rekstur KEA fyrstu 6 mánuði ársins: Mun betri afkoma - batinn fyrst og fremst þakkaður lægri fjármagnskostnaði Uppgjör fyrir rekstur Kaup- félags Eyfirðinga fyrstu 6 mánuði þessa árs liggur nú fyrir. Um er að ræða rekstur móður- fyrirtækisins eingöngu án dótt- urfyrirtækja. Niðurstöður upp- gjörsins sýna að umskipti hafa orðið til hins betra í rekstri fé- lagsins miðað við sömu mánuði í fyrra. Velta móðurfyrirtækisins hefur aukist um 5% miðað við síðasta ár og var nú 3.887 milljónir, launa- greióslur hafa aukist um 1% voru 623 millj., hagnaóur fyrir fjár- magnsliói nam 136 millj. saman- borið við 128 millj. fyrir sama tíma í i'yrra. Fjármagnsgjöld að frádregnunt fjármagnstekjum voru 103 millj. til gjalda samanborið við 229 millj. í fyrra og nú varð hagnaður af rekstri 24 millj. sam- anborið við tap fyrstu 6 mán. síð- asta árs sern nam 107 millj. Batinn að þessu sinni er fyrst og fremst þakkaður lægri fjár- magnskostnaði. 1 fyrra voru ljár- magnsgjöld mjög há, m.a. vegna gengisfellingar í júní það ár og einnig voru vextir mun hærri þá en nú. Magnús Gauti Gautason kaup- félagsstjóri kvaðst afar ánægður með að uppgjörið sýndi bata í rekstri en hvort hann væri nægjan- legur yrði síðan að koma í ljós. „Við bíðum með að segja mikið um þetta þar til 8 mánaða uppgjör liggur fyrir en nú er unnið aó því. Inn í því uppgjöri verða einnig dótturfyrirtæki Kaupfélagsins," sagði Magrtús Gauti. Hann sagði niðurstööuna svipaða því og búist var við, sumt hafi gengið lakar og sumt betur. Þróunin hefur verið sú að af- koma í verslun og afuróareikning- um hefur batnað en ýmist versnað eða staðió í stað í iðnaðar-, þjón- ustu og sjávarútvegsgreinum. Reiknað er meó aó 8 mánaða upp- gör liggi fyrir um miðjan október og þá sést betur hver staðan cr. HA Forstoðumaöur Atvinnumálaskrifstofu Akureyrarbæjar: Líklegt að Hallgrímur Guð- mundsson verði ráðinn umsækjendur voru Ármann Sverrisson, Ásbjörn Dagbjarts- son, Elín Antonsdóttír, Frímann Frímannsson, Guðrún Gísla- dóttir, Svava Theodórsdóttir og Hallgrímur Guðmundsson. Hall- grímur var bæjarstjóri í Hvera- gerði á sl. kjörtímabili en þar áð- ur bæjarstjóri að Höfn í Horna- firði. Bæjarstjóraskipti urðu í Hvcra- gerði eftir síðustu kosningar, m.a. vegna þess að Sjálfstæðisflokkur- inn vann þá hreinan meirihluta, en Hallgrímur segir aó ráðning hans hafi verið ópólitísk en honum hafi ekki samið við núverandi forseta bæjarstjómar og því hafi endur- ráóning ekki verið á dagskrá af beggja hálfu. Finnur Birgisson arkitekt, vara- formaður atvinnumálanefndar Ak- ureyrar, segist ekki geta staðfest að Hallgrímur verði ráðinn í starf- ið, en vissulega hafi málið verið reifað við hann og væntanlega verði gengið til samninga við hann á næstunni. Eftir eigi að koma í ljós hvort um semst milli hans og atvinnumálanefndarinnar. Formaður hennar, Guðmundur Stefánsson, er í sumarfríi fram í næstu viku og er þá fyrirhugað að boða fund og taka ákvörðun uni ráðningu forstöðumanns. Hallgrímur Guðmundsson segir að sér sé ekkert að vanbúnaði aó koma norður ef af ráðningu verð- ur, og vilji þá hraða því vegna skólagöngu barnanna, en hann sé m.a. með búslóð í Hafnarstræti 41, fasteign sem hann er eigandi að. GG Dröfn hf. á Sauðárkróki: Rækjuframleiðslan orðin meiri en á öllu sl. ári Aþessu ári hefúr rækjuverk- smiðjan Dögun hf. á Sauð- árkróki unnið liðlega 1.400 tonn af rækju, en hæst hefúr verk- smiðjan komist í að vinna 1.250 tonn á heilu ári. Á árinu 1993 var framleiðslan rétt um 1.000 tonn. Enn eru eftir þrír og hálfur mánuður af árinu svo ársfram- leiðslan gæti farið í rúm 1.800 tonn ef tekið er mið af meðal- talsframleiðslu. Tómas Ástvaldsson, verkstjóri hjá Dögun hf., segir ástæðu þess- arar miklu framleiðslu vera góða veiði, fleiri báta og ekki síst batn- andi afurðaverð í Bretlandi og því Ieita menn eftir meira hráefni þeg- ar bjartsýnin í rækjuiðnaðinum fer vaxandi að nýju. Tómas segist vona aó horft sé nú fram til betri tíðar í rækjuveiðum og vinnslu á íslandi. Innfjarðarrækjuveiói hófst ekki á Skagafirði haustiö 1993 fyrr en í nóvembermánuði, en framan af hausti var rækjuveiði bönnuð á Skagafirói vegna mikillar smáýsugöngu á rækjuslóð. Heild- arkvótinn 1993 til 1994 var 500 tonn, en Hafrannsóknastofnun hefur gefið út bráðabirgðakvóta sem er 1.000 tonn á Húnaflóa, 350 tonn á Skagafjörð, 500 tonn á Skjálfanda og 600 tonn á Öxar- fjörð. Haustleiðangur Hafrann- sóknastofnunar hefst 12. septem- ber nk. á Arnarfirði á rannsóknar- skipinu Dröfn og síðan verða veiðisvæðin fyrir Norðurlandi könnuð. Veiðileyfi kunna því í fyrsta lagi að verða gefin út í byrj- un októbermánaðar ef ekkert hamlar veiðum eins og smáýsugangan gerði á Skagafirði sl. haust. Þessi aukna vinnsla á árinu hjá Dögun hf. hefur ekki kallaó á auk- ið starfslið, starfsmannafjöldinn er 15 manns og unnið á einni vakt. Dögun hf. á útgerðarfyrirtæki sem heitir Marver og gerir út rækjubát- inn Haföm. Einnig kaupir verk- smiójan rækjuaflann af þremur öðrum bátum, þ.e. Jökli frá Sauð- árkróki, Sólborgu frá Fáskrúós- firði og Snæfara frá Hafnarfirði, sem væntanlega verður á rækju- veiðum hjá Dögun hl'. til næstu áramóta. Framkvæmdastjóraskipti hafa orðið hjá fyrirtækinu. Ómar Gunnarsson hefur hafið störf hjá Samskipum í Reykjavík en Ágúst Guðmundsson tekið við fram- kvæmdastjórastöðunni. GG Flest bendir nú til að Hall- grímur Guðmundsson í Hveragerði verði ráðinn for- stöðumaður atvinnumálaskrif- stofu Akureyrar en starfið var nýlega auglýst laust til umsókn- ar. Níu umsóknir bárust, tveir óskuðu nafnleyndar, en aðrir Fyrsti skóladagurinn I gær hófu grunnskólar á Akureyri starfsemi sína. Margir eru að koma í skólann í fyrsta sinn og af svipnum á þcssum áhugasömu ncmendum að dæma er skemmtilegur vetur framundan. Mynd: Robin.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.