Dagur - 09.09.1994, Blaðsíða 2

Dagur - 09.09.1994, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Föstudagur 9. september 1994 Til sölu eru eftirfarandi skrifstofumunir úr þrotabúi A. Finnssonar hf. Skrifborð, hillusamstæða, sófaborð, skilrúm, hillur, stólar, fundarborð og fleiri munir. Tilboðum skal skila til skiptastjóra þrotabúsins Gests Jónssonar, Mörkinni 1, Reykjavík fyrir 15. sept. 1994. Allar upplýsingar gefur Kristín í síma 12603 og 12604 frá kl. 9-16 og annast hún jafnframt um að sýna mun- ina. O © Skrifstofa jafnréttismála Jafnréttisráð Kærunefnd jafnréttismála Jafnréttisviður- kenning 1994 Jafnréttisráð auglýsir eftir hugmyndum og/eða tilnefn- ingum um aðila sem unnið hafa aó framgangi jafnrétt- ismála á árinu 1994 og komið geta til álita sem vióur- kenningarhafar vegna vel unninna starfta í þágu jafn- réttis kvenna og karla. Viðurkenningu Jafnréttisráðs getur fyrirtæki, stofnun, skóli, bæjarfélag, félagasamtök eða einstaklingur feng- ið sem á einn eða annan hátt hefur skaraó fram úr á sviði jafnréttismála í þjóðfélaginu. Hugmyndir eða tilnefningar sendist eóa tilkynnist til Skrifstofu jafnréttismála, pósthólf 996, 121 Reykjavík eða í síma 91-27420 fyrir 16. sept. nk. Byggðavegi 98 HELGAR- TILBOÐ Léttreyktur lambahryggur kr. 689 kg Sojabrauð kr. 99 stk. Heimsendingarþjónusta alla virka daga kl. 11 & 14. Opið alla daga til kl. 22. Byggðavegi 98 FRÉTTIR King iidv a Mnuicyn Þing NBO, Nordiska kooperatva och alimanntyttiga bostadsfðretags organisation, hófst í Iþróttahöllinni á Akureyri í gærmorgun og sækja þingið um 350 manns. Aðalfundur NBO var svo haidinn eftir hádegið. Síðdegis skoðuðu þing- fulltrúar gömul hús á Akureyri og í Laufási við Eyjafjörð. í dag halda þingstörf áfram en síðdegis mun Ossur Skarphéðinsson, umhverflsráðhcrra, afhenta Umhvcrflsviðurkenningu NBO 1994, sem nú eru afhent í fyrsta sinn. Á myndinni er þingfúlltrúum skemmt yfir einhverju sem Árni Björnsson, frá Þjóðminjasafninu, hafði að segja þeim. GG/Mynd: Robyn Aðalfundur Eyþings: Samið um úttekt á förgun og hirðingu úrgangs - sameiginlegra lausna leitað Aðalfundur Eyþings var haldinn að Hnitbjörgum á Raufarhöfn í gærdag. „Það er þokkalega vel mætt á fundinn en þó verður að viðurkennast að tíminn er kannski ekki sem heppilegastur fyrir alla. Það eru göngur og réttir og ýmsir menn úr sveitun- um eiga ekki heimangengt þess vegna. Eigi að síður er þokka- lega mætt,“ sagði Einar Njáls- son, formaður Eyþings, í samtali við Dag. Aðspurður um helstu mál sem greint var frá í skýrslu stjórnar sagði Einar: „Við erum búin að gera saming um útttekt á hirðingu og förgun úrgangs á svæðinu. Við höfum gert þríhliða samning við Umhverfisráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga um úttekt- ina, sem verður unnin á Verk- fræðistofu Sigurðar Thoroddsen hf. á Akureyri. Starfið mun hefjast nú í september og ljúka í febrúar á næsta ári. Þetta er vióamikill málaflokkur sem sveitarfélögin munu fást við á næstunni og við bindum vonir við að þessi úttekt velti uppp valkostum til lausnar á þessu máli. Með úttektinni erum við öðrum þræói að vita hvort við getum ekki fundið einhverjar sam- eiginlegar lausnir fyrir stærra svæói sem yrði hagkvæmara fyrir sveitarfélögin en ef hver og einn væri að leysa þetta fyrir sig.“ í skýrslunni var gerð grein fyrir störfum umdæmanefndanna og kosningunni um sameiningu sveit- arfélaga. Stjórn Eyþings og Rarik hafa sett niður sameiginlegan starfshóp á síðasta ári til að huga að aukn- ingu á notkun raforku. Þetta er þríþætt starfsemi. Starfshópurinn er að athuga hvort hægt er að að- laga raforkutaxta til fyrirtækja að notkun þeirra þannig að fyrirtæki sem nota mikla og stöðuga orku fái hagstæðara verð. - Hvar hægt er aó hverfa frá notkun olíu sem orkugjafa og nota rafmagn í stað- inn. - Hvaða möguleikar eru á nýrri atvinnustarfsemi sem notar raforku eða aðra innlenda orku. Starfshópurinn er að gera könnun á notkun olíu til hitunar á svæó- inu. I vinnuhópnum eiga sæti: As- geir Magnússon, framkvæmda- stjóri Iðnþróunarfélags Eyjafjarð- ar, Stefán Jónsson, framkvæmda- stjóri Atvinnuþróunarfélags Þing- eyinga, Tryggvi Þór Haraldsson, umdæmisstjóri Rarik á Akureyri og Hjalti Jóhannesson, fram- kvæmdastjóri Eyþings. Eyþing stóð fyrir ráðstefnu um Byggö og samgöngur, sem haldin var á Húsavík í febrúar sl. „Stjóm Eyþings hefur verið í vióræðum við Háskólann á Akur- eyri um samstarf við námskeiða- hald fyrir sveitarstjórnarmenn. Þær viðræður hafa leitt til þess aó nú í haust mun í samstarfi Ey- þings og Háskólans á Akureyri verða haldin námskeið í ritun fundargerða, í skipulagi og stjórn- un nefndarfunda og almennri fundarstjórn, auk þess verður haldið námskeió fyrir starfsfólk í félagsþjónustu sveitarfélaga. Eyþing hefur látið vinna grein- argerð um möguleika á samein- ingu heilbrigðiseftirlits á svæðinu. Niðurstaóa þeirrar greinargeróar er sú að kostnaðarlega muni það litlu breyta, en greinargerðin hefur verið send öllum héraðsnefndun- um. Greinargerðin var gerð aó beiðni Héraðsnefndar Norður- Þingeyinga. I skýrslunni er fjallað um nauð- syn þess aö sveitarfélögin taki upp viðræður um með hvaða hætti þau koma fyrir starfsemi Fræðsluskrif- stofunnar, nú þegar fyrirhuguð yfirfærsla á grunnskólanum á sér stað. Akveðið er aó setja niður þriggja manna starfshóp á vegum Eyþings til þess að velta upp val- kostum í því máli. Fjallað er um kynningu Iðnað- arráðuneytisins á virkjunakostum, virkjunaráætlunum fyrir jökuls- árnar á Fjöllum, Brú og Fljótsdal og væntanlega mun fundurinn álykta um það á föstudaginn,“ sagöi Einar. í dag verður fjallað um feróa- þjónustu á Noróurlandi eystra og markaðssetningu svæðisins sem heildar. Einnig verða tillögur afgreiddar og næsti fundarstaður ákveðinn. IM Heiðursborgari Dalvíkur, Jón E. Stefánsson, látinn Fyrsti heiðursborgari Dal- víkur, Jón E. Stefánsson, byggingameistari, lést að- faranótt sl. mánudags á 93. aidursári, en hann var fædd- ur að Jarðbrú 4. maí 1902, sonur Jóns bónda Jónssonar og Jónínu Arnbjarnardóttur og ólst upp m.a. að Syðri- Másstöðum og Hjaltastöð- um. í árdaga barnafræðslu á íslandi sótti Jón skóla að Þverá í Skíðadal þar sem starfræktur var farskóli. Um tvítugt fór hann að vinna við smíðar og afla sér þekkingar á því sviði og fékk meistarabréf 25 ára gamall. Jón var kvæntur Jónu Fann- eyju Stefaníu Bergsdóttur frá Hofsá. Þeim varð ekki barna auðió en tóku árið 1942 stúlkubarn á þriðja ári, Elínu Skarphéðinsdóttur, í fóstur. Konu sína missti Jón þaó sama ár. Jón reisti myndarlegt íbúð- arhús á Dalvík, Hvol, og var hann lengst af kenndur við það og kallaóur Jonni í Hvoli. I dag hýsir Hvoll byggðasafn. A fundi bæjarstjómar Dalvík- ur 11. september 1980 var Jón kjörinn fyrsti heiðursborgari Dalvíkur en hann átti stóran þátt í örri uppbyggingu Dal- víkurbæjar, byggði auk fjölda íbúðarhúsa m.a. kirkjuna, íþróttahúsið og gamla skól- ann. Útför Jóns fer fram nk. laugardag kl. 14 á vegum bæj- arins í samráði við aðstand- endur. GG

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.