Dagur


Dagur - 14.09.1994, Qupperneq 8

Dagur - 14.09.1994, Qupperneq 8
8 - DAGUR - Miðvikudagur 14. september 1994 Dcttifoss er cinn frægasti foss í Evrópu og þúsundir ferðamanna koma til að skoða hann á hverju sumri. Gert er ráð fyrir að þó Jökulsá yrði virkjuð væri hægt að halda ásýnd hans að mestu óbreyttri yfir mesta ferðamannatímann með því að hleypa vatni framhjá virkjunarmannvirkjum. Tilfinningalegt gildi þess að setja „krana á Dettifoss“ með þcssum hætti er hins vegar erfitt að meta. Virkjanir vatnsfallanna norðan Vatnajökuls: „Vatnsföllin miklu sem renna undan Vatnajökli norðanverðum, Jökulsá á Fjöllum og Jökulsá á Brú, búa yfír mikilli virkjanlegri orku. Orkugeta þeirra hvorrar um sig er álíka og öll vatnsorka sem nú er virkjuð á Islandi, eða um 4000-4.500 GWh/ári (gígavattsstundir á ári).“ Þannig hefst skýrsla vinnuhóps sem iðnaðarráðuneytið skipaði seint á síðasta ári til að draga saman fyrirliggj- andi leiðir um virkjun Jökulsár á Fjöllum og Jökulsár á Brú. Ljóst má vera að ekki eru allir á eitt sáttir um hugmyndir í þessa veru. Framkvæmdirnar hefðu í för með sér verulega umhverfisröskun, meiri en nokkur önnur framkvæmd á Islandi hefur haft til þessa að mati Náttúru- verndarráðs. Hér á eftir verða raktir þeir kostir sem helst er talið að komi til greina við virkjun þessara miklu vatns- falla, kjósi menn á annað borð að hrófla við þeim og umhverfísáhrif þeirra.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.