Dagur - 01.11.1994, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 1. nóvember 1994 - DAGUR - 9
ÍÞRÓTTIR
SÆVAR HREIÐARSSON
Áhorfcndur voru vel mcð á nótunum og höfðu gaman af mótinu.
íþóttir fatlaðra - boccia:
Elvar íslands-
meistari
Um helgina fór fram íslands-
mótið í boccia í íþróttahöllinni á
Akureyri og þar fór heimamað-
urinn Elvar Thorarensen úr
Akri með sigur af hólmi. Hann
sá á eftir titlinum í fyrra til bróð-
ur síns og kom tvíefldur til leiks
nú. Völsungurinn, Kristbjörn
Óskarsson, varð í öðru sæti í
hópi þeirra bestu.
Mjög góð þátttaka var í mótinu
að þessu sinni og öll framkvæmd
mótsins fór mjög vel fram. Leikið
var í fyrsta sinn eftir tímatöflu og
gekk það mjög vel fyrir sig og
skipulag var mjög gott. Skemmti-
leg keppni var í öllum deildum og
Norðlendingar voru sigursælir.
Elvar sigraði sem áður segir í 1.
deild eftir skemmtilega úrslita-
keppni en Kristbjörn var annar,
Sigurrós Karlsdóttir úr Akri
þriðja, Hjalti Eiðsson úr ÍFR
fjórði og Einar Scheving Thor-
steinsson úr Ösp í fímmta sæti.
I 2. deild var það Iris Gunnars-
dóttir úr Snerpu sem sigraði en
Tryggvi Gunnarsson úr Akri og
Aðalsteinn Friðjónsson úr Eik
komu þar skammt á eftir. Sigurður
Kristjánsson, Ösp, varð fjórði og
Jón Þorgeir Guöbjömsson, ÍFR,
varð fimmti.
Askell Traustason varð efstur í
3. deild og félagi hans úr Eik,
Sævar Bergsson, kom honum
næstur. Gunnar Birgisson, Nesi,
varð þriðji og síóan komu Guöný
Óskarsdóttir úr Ösp og Sigurrós
Önundardóttir úr ÍFR.
Akureyringur hirti einnig efsta
sætið í 4. deildinni en þar var Arn-
fríður Stefánsdóttir úr Akri efst og
á eftir henni, kom Þjóturinn Arni
Jónsson. Hrafnhildur Sverrisdóttir
úr Snerpu frá Siglufirði varð
þriðja, Þorsteinn Stefánsson, Akri,
fjórði og Ölver Bjarnason úr
Kveldúlfi fimmti.
Sauðkrækingar einokuðu opng
flokkinn og Sveinn Steinþórsson
varð í fyrsta sæti. Örn Sigurðsson
Elvar Thorarenscn, íslandsmcistari, cinbcittur á svip í úrslitakeppninni.
og Kári Steinsson, félagar hans úr
Grósku, komu þar á eftir.
Hildur Haraldsdóttir, ÍFR, varð
efst í rennuflokki, Kristinn Ás-
geirsson Ösp varö annar og Aðal-
heiður Bára Steinsdóttir úr Grósku
varð þriðja. Þórey Jóhannsdóttir
úr IFR varð fjórða og Þórhallur
Jónsson úr Ösp fimmti.
Sigurrós Karlsdóttir, Akri, varð í þriðja sæti og sýndi góða takta.
Tryggvi Gunnarsson, Akri, fer
lipurlcga mcð boltann.
Það skiptust á skin og skúrir hjá
kcppcndum.
Aðalstcinn Friðjónsson, Eik, kast- k
ar hér boltanuni fagmannlcga. v