Dagur - 12.11.1994, Síða 11
Laugardagur 12. nóvember 1994 - DAGUR - 11
Akureyrarkirkja:
Söfitiun í orgelsjóð
fer vel af stað
Eins og fram hefur komið er hafin
söfnun til viðamikilla og nauðsyn-
legra endurbóta á stærsta hljóð-
færi á Akureyri, orgeli Akureyrar-
kirkju.
Fyrsti liður í fjársöfnuninni
voru tónleikar Kórs Akureyrar-
kirkju og Barnakórs Akureyrar-
kirkju 6. nóvember sl. en þar söfn-
uðust 85.500 krónur.
Um næstu skref í söfnunni skal
upplýst:
- Tekið verður við frjálsum
framlögum í Safnaóarheimili Ak-
ureyrarkirkju og hjá sóknarprest-
um Akureyrarkirkju.
- Þeir einstaklingar sem leggja
fram 2.500 krónur eða meira fá
bókina „Sögu Akureyrarkirkju"
eftir Sverri Pálsson sem þakklæt-
isvott.
- Stofnaður hefur verið sérstak-
ur orgelsjóður og öll framlög sem
koma í sjóðinn veröa skráð í sér-
staka gjafabók. Reikningur sjóðs-
ins er í Landsbanka Islands, Akur-
eyri, nr. 119077.
- A næstu vikum og mánuðum
munu félagar úr Kór Akureyrar-
kirkju ganga í hús og fyrirtæki og
leita eftir stuðningi sóknarbarna.
- Allur ágóði af basar og kaffi-
sölu Kvenfélags Akureyrarkirkju
eftir hátíðarmessu 20. nóvember
mun renna í söfnunina.
- Næstu fjáröflunartónleikar
verða sunnudaginn 4. desember en
þá hcldur Björn Steinar Sólbergs-
son, organisti Akureyrarkirkju,
„maraþontónleika" og mun ágóði
af þeim tónlcikum renna í orgel-
sjóóinn. Tónleikarnir verða kynnt-
ir SÍÓar. (Frétlatilkynning)
Tríó Birgis Marinóssonar
Músík við smærri og stærri uppákomur
Örvar, Birgir og Steingrímur.
Upplýsingar hjá Birgi Marinóssyni, sími 96-21774 og
Steingrími Stefánssyni, sími 96-21560.
Hreppsnefnd
Þórshafnarhrepps:
Gasnrýnír
rikisstjornma
Hreppsnefnd Þórshafnarhrepps
hefur samþykkt bókun þar sem
áformum ríkisstjórnarinnar um
greiðslur sveitarfélaganna í At-
vinnuleysistryggingasjóð á
næsta ári er mótmælt.
Bókunin er svohljóðandi:
„Hreppsnefnd Þórshafnarhrepps
tekur undir gagnrýni Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga á vinnubrögð
ríkisvaldsins varðandi áform um
framhald á greiðslum sveitarfélag-
anna í Atvinnuleysistrygginga-
sjóð. Skorar hún á Alþingismenn
aó koma í veg fyrir þau áform rík-
isstjórnarinnar, aó sveitarfélögin
verði þvinguð til greiðslna í sjóó-
inn, veröi að veruleika.“ óþh
Sjálfstæðiskvennafé-
lagið Vörn:
Jóhanna kjör-
in formaður
Aðalfundur Sjálfstæðiskvennafé-
lagsins Varnar á Akureyri var
haldinn mánudaginn 7. nóvember
sl. Kosin var ný stjórn og hana
skipa:
Formaöur: Jóhanna H. Ragn-
arsdóttir.
Varaformaður: Anna Björg
Björnsdóttir.
Ritari: Nanna C. Ingvadóttir.
Gjaldkeri: Erla Oddsdóttir.
Meðstjórnandi: Freyja Jóns-
dóttir.
Varastjórn: Guðrún Lárusdótt-
ir, Helga Ingólfsdóttir og María
Sigurbjörnsdóttir.
I kjördæmisráði sitja Jóhanna
H. Ragnarsdóttir, Anna Björg
Björnsdóttir og Guðrún Lárusdótt-
ir.
Að loknum aðalfundarstörfum
ræddi Arnar Páll Hauksson, deild-
arstjóri Ríkisútvarpsins á Akur-
eyri, um konur í fjölmiólum.
(Frétlatilkynning)
Með 160 starfsmönnum Eimskips erlendis sem starfa í íslenskum starfsstöðvum í 10 löndum og með E‘||l||0|/ |f|
40 umboðsfyrirtækjum um heim allan hefur Eimskip myndað þéttriðið þjónustu- og upplýsinganet tHVIwK H'**
sem stendur vörð um hagsmuni viðskiptavina fyrirtækisins.
Eimskip - fólk með þekkingu, reynslu, verk- og tæknikunnáttu og víðtæk alþjóðleg tengsl
- fagfólk á öllum sviðum flutningaþjónustu.
Fólk að störfum - fyrirfólk!