Dagur - 15.12.1994, Blaðsíða 5
Skýrsla um umferðarslys á íslandi 1993:
Slysum með meiðslum
fjölgar sífellt
- óvenju fá dauðaslys í umferðinni á síðasta ári
Umferðarráð hefur sent frá sér
skýrslu þar sem dregin eru sam-
an ÖU slys í umferðinni á árinu
1993, samkvæmt þeim upplýs-
ingum sem sendar hafa verið til
Umferðarráðs frá lögreglu-
mönnum, sýslumönnum eða
fulltrúum þeirra. Markviss
skráning umferðarslysa var haf-
in árið 1966 og í skýrslunni má
fínna ýmsan athyglisverðan
samanburð á tölum milli ára.
Marktækastur er samanburður-
inn á árabilinu 1975- 1993, en
sama aðferð hefur verið notuð
við skráninguna síðan 1975.
Færri dauóaslys uröu í umferð-
inni 1993 cn í langan tíma þar á
undan. Alls urðu 17 banaslys þar
sem 17 létu lífið og aðeins tvíveg-
is síðan 1966 hafa færri látist í
umferðinni, árið 1968 þegar að-
eins 6 létust og árið eltir þegar 12
létust. Síðan þá hel'ur fjöldi þeirra
sem bíða bana í umferðarslysum
aóeins einu sinni l'arió undir 20,
árið 1976, en þá létust 19. Af
þeim sem létust árið 1993 voru 8
ökumenn bifreiða, 2 ökumenn bif-
hjóla, 2 farþegar í framsæti, 1 far-
þegi í aftursæti og 4 gangandi.
Allt voru þetta karlmenn að
tveimur undanskildum.
Arið 1993 gerói lögreglan
skýrslur unt 1003 slys meö
meiðslunt, og í þeim slösuðust/lét-
ust 1451 vegfarandi. Er það aukn-
ing unt 7,5% frá árinu 1992 og
hefur þessi tala sífellt vaxið und-
anfarin ár, eins og síðar verður
kornið að. Ef einstakir mánuðir
eru skoðaðir kemur í ljós að um
mióbik ársins, frá maí og frarn í
október, eru slys tíðust, en mun
færri í skammdeginu. Flest slys
verða í ágúst, 109. Tæpur helm-
ingur allra umferðarslysa verður í
Reykjavík, eða 48,8%, síðan kem-
ur Hafnarfjörður meó 8,5%,
Kópavogur mcð 4,7%, Akureyri
meó 3,3% og aðrir staðir 34,7%.
Hér hefur aðeins verið talað um
slys sem leiddu af sér dauða eða
alvarleg meiðsl, en slys nteð
eignatjóni eingöngu voru 3223,
þar af réttur helmingur í Reykja-
vík.
A hverjar 100 þús. bilreiðar í
landinu slösuðust eða létust 1.086
og 550 á hverja 100 þús. íbúa. Er
þaö aukning frá árinu 1992 en þá
slösuðust eða létust 977 á hverjar
100 þús. bifreiðar og 514 á hverja
100 þús. íbúa.
Af þeim sem slösuðust eða lét-
ust voru 658, cða 45%, ökumenn
bifreiða, farþcgar í bifreiðum voru
34,6%, gangandi voru 10,1%,
hjólreiðamenn 4,5%, ökumenn
léttra bifhjóla 0,6% og ökumenn
og farþegar bifhjóla 4,1%. Aðrir
vegfarendur voru 0,7%.
Óhuggulegar slysatölur
Athyglisvert er að skoða saman-
burð á fjölda untferðarslysa milli
ára. Þess ber strax að geta að
skýrslan er unnin upp úr skýrslum
lögreglu- og sýslumanna og því
ekki hægt að fá marktækan sam-
anburð á slysum þar sem aðeins
verður eignatjón og þar með
einnig á heildar fjölda umferóar-
slysa. Þetta stafar af því að árið
1988 er tekið upp það kerfi aó
ökumenn geta sjálfir útfyllt tjóna-
skýrslu, án þess að kalla til lög-
reglu, ef ekki verða mciðsl. Einnig
telur Umferðarráð að hin opinbera
skráning nái ekki til allra þeirra
sem slasast í umferðinni, sérstak-
lega eru reiðhjólaslys vantalin.
Áður er þess getið aó dauðaslys
hafa sjaldan verið færri. Hins veg-
ar hefur slysunt meö meiðslum sí-
fellt farið fjölgandi ár frá ári og
gildir þá einu við hvaö er miðaö.
Sé farið 10 ár aftur í tímann og ár-
ið 1983 skoöað, hcfur slösuðum
fjölgað um 88,2% á hverjar 100
þús. bifreióar, 61% á hverja millj-
ón selda bensínlítra, 55% á hverja
milljón ekna kílómetra og 109% á
hverja 100 þús. íbúa. Þetta er þró-
un sent hlýtur að vera Umferðar-
ráöi og auðvitað öllum lands-
mönnunt, alvarlegt umhugsunar-
efni. HA
Á þcssu línuriti má sjá þróun allra skráðra umferðaróhappa og slysa með mciðslum sérstaklega, frá árinu 1966.
Samanburður milli ára á öllum skráðum umfcrðaróhöppum er ekki raunhæfur, þar sem ökumcnn gcta sjálfir farið
að gera tjónaskýrslu árið 1988 og þau óhöpp koma ekki fram í þeim tölum sem Umferðarráð fær. Fastlega má þó
reikna með að þar sem slysum með meiðslum hefur farið fjölgandi, hafi hcildarfjöldi umfcrðarslysa einnig vaxið.
Höfðíngleg gjöf
A „Litlu jólum“ Félags aldraðra á
Dalvík og nágrenni, sem haldin
voru í Víkurröst á Dalvík 10. des-
ember sl., barst félaginu vegleg
gjöf frá Rauðakrossdeild Dalvík-
urhéraðs. I upphafi santkomunnar
afhenti Elín Rósa Ragnarsdóttir,
f.h. dcildarinnar, Friðgeiri Jó-
hannssyni, forntanni Félags aldr-
aðra, ávísun að upphæð kr. 100
þús. til styrktar starfsemi félags-
ins.
Þessi stuðningur og velvilji
Rauðakrossdeildarinnar er félag-
inu mjög mikilvægur og gerir því
kleift að auka þjónustu vió sína
öldruðu félagsmenn, t.d. með
fjölgun námskeiða á ýmsum svið-
um. Á sl. ári sýndi Rauðakross-
deildin hug sinn til félagsins á
sambærilegan hátt. Þennan stuðn-
ing þakkar Félag aldraóra heils-
hugar og tekur hann sem hvatn-
ingu til aukinnar þjónustu við
aldraöa í héraðinu.
Félagið sendir hinum fjöl-
mörgu velunnurum sínum bestu
óskir um gleðileg jól og gott far-
sælt komandi ár og þakkar fyrir
margháttaða hjálpsemi og aðstoð
á liónum árum.
Fréttatilkynning.
Bridgefélag Sauðárkróks:
Félagar í jólafrí
Félagar í Bridgefélagi Sauðár-
króks luku spilamennskunni á
þessu ári með því að spila tví-
menning sl. mánudag og þeir
þar með komnir í jólafrí.
Ásgrímur Sigurbjömsson og
Páll Hjálmarsson höfnuðu í efsta
sæti með 99 stig en Gunnar Þórð-
arson og Einar Oddsson urðu í
öðru sæti með 96 stig. Þessi pör
fengu jólapakka frá félaginu. Að
auki var dregið út eitt par, sem
fékk vöruúttekt frá Matvörubúð-
inni. Hinir heppnu voru Eyjólfur
Sigurðsson og Þórarinn Thorla-
cíus. KK
Fimmtudagur 15. desember 1994 - DAGUR - 5
Mánakórinn:
Jólatónleikar í
Akureyrarkirkju
nk. laugardag
Mánakórinn, blandaður kór frá
Akureyri og hreppunum utan
Akureyrar, heldur jólatónleika í
Akureyrarkirkju nk. laugardag,
17. desember, kl. 21. Þar býður
kórinn upp á það sem hann hef-
ur verið að æfa frá því á haust-
dögum. Má þar nefna ýmis kór-
lög innlend og erlend, negra-
sálma og síðast en ekki síst jóla-
lög, sem söngstjórinn hefur út-
sett fyrir litla hljóinsveit og
blandaðan kór, og er það frum-
flutningur.
Aógangur að tónleikunum er
ókeypis.
Mánakórinn æfir tvisvar í viku
yfir vetrarmánuóina og hefjast æf-
ingar af fullurn krafti fljótt eftir
áramót, og þá veröur tekist á við
nýja söngskrá sem ákveóið hefur
verið að flytja í lok mars.
Allir velunnarar söngs, sem
ekki hafa látið veróa af því að fara
í kór eru hvattir til að kynna sér
málin, því alltaf er hægt að bæta
við nýjunt félögum.
Stjórn kórsins er til viðtals í
símum 22011,23640 og 23046.
Schiesser^
Opið laugardagfrá 10-22
Sunnudag frá 13-17
Miðstöð hagstæðra viðskipta