Dagur - 10.02.1995, Blaðsíða 16

Dagur - 10.02.1995, Blaðsíða 16
skilju átti að vera komin fram fyrr“ Rækjutogarinn Júlíus Havs- teen ÞH-1 frá Húsavík er á veiðum á Digranesflaki austur af Bakkaflóa og hefur ekki afl- ast nema rétt sæmilega, eða um eitt til eitt og hálft tonn í halinu af ágætri rækju. Á sama svæði eru um 10 rækjutogarar. Bræla hefur verið á þessum slóðum undanfarna daga og skipin því þurft að veiða nær landinu en í gær voru skipin að sækja dýpra í ágætu veðri. Jóhann Gunnarsson, skipstjóri á Júlíusi Havsteen ÞH, segir að sér lítist vel á reglugeró um veiðar með seiðaskilju fyrir Norðurlandi sem sjávarútvegsráðuneytið hefur nýverið gefið út því víóa sé þörf fyrir slíka reglugerð til að hindra veiðar á smáfiski eða karfaseið- um. - segir Jóhann Gunnarsson, skipstjóri VEÐRIÐ Á Norðurlandi er spáð breyti- legri vindátt, víða kalda en úr- komulausu í dag. Veður fer heldur hlýnandi. Á morgun verður hvöss austan eða suð- austan átt og rigning eða slydda. Á sunnudag verður austlæg átt, slydda og 0-3 stiga hiti. Á mánudag frystir aftur þá verður hæg norðaustlæg átt en úrkomulítið. „Við höfum verið með seiða- skilju hér um borð I rúmt ár og notað hana á þeim svæðum þar sem við teljum þörf á. Það eru ekki mikil vandkvæöi að því að nota seiðaskilju á skuttogurum eða á þeim bátum sem taka allt inn að aftan en það er verra með þá sem taka inn á síðunni. Maður veit eiginlega ekki hvemig þeir fara að því að Ieysa það vandamál. Eg hef þá trú að þessa reglugerð hefði sjávarútvegsráðuneytið átt að hafa gefið út fyrir nokkru síð- an. Að vísu er það mjög afmarkað hvar þessi karfaseiói hafa fengist og við höfum ekki séð önnur seiði en karfaseiði, og þá helst á Nýja- grunninu út af Norðurlandi, t.d. á vissum slóðum á Kolbeinseyjar- hryggnum og eins norður af Húnaflóanum á Sporðagrunni. Auðvitað eru svo blettir annars staðar þar sem vart hefur orðió við karfaseiði, en í miklu minna magni og á mjög afmörkuóu svæði,“ segir Jóhann Gunnarsson, skipstjóri. GG Tíð umferðarslys á vegarkaflanum milli Akureyrar og Ólafsfjarðarvegar: Þrettán manns hafa slasast, einn alvarlega og einn látist Fimmtán umferðarslys urðu á þjóðvegi 1 á vegarkaflan- um milli Akureyrar og Ólafs- Qarðarvegar, þjóðvegar nr. 82, á árunum 1992, 1993 og 1994 samkvæmt skráningu lögreglu og skiptist það jafnt á milli ár- anna. Flest umferðarslysin hafa orðið í námunda við gatnamót- in við félagsheimilið Hlíðarbæ, þ.e. þjóðveg nr. 816, Dagverðar- eyrarveg, en þar er töluverð bunga á veginum og á því virð- ast margir ökumenn flaska. Einnig myndast oft mikil ísing á þessum vegarkafla, en líklega er algengasta orsök umferðarslysa þama of hraður akstur. Af þessum fimmtán umferðar- slysum vom sex án slysa á öku- manni eða farþega en níu með slysum; en alls hafa þrettán manns slasast, þar af einn látist; einn mikið slasaður en minni meiðsl hjá ellefu manns. Á þessu ári hefur a.m.k. orðið eitt umferðarslys á þessum vegi, en þá rákust saman tvær bifreióar á gatnamótum þjóðvegar 1 og 816. Öldruð hjón í öðmm bílnum hluti áverka vegna höfuðhnykks og bifreiðamar vom mikið skemmdar. Það er því full ástæða til þess að hafa uppi vamaðarorð til ökumanna sem aka þennan vegarkafla. Umferðarslys em þjóðfélaginu dýr, bæði á ökutækj- um og fólki, en banaslys verða ekki bætt. GG 1 18 þvottakerfi | 5 kg þvottur IHitabreytirofi 600 snúninga | Rústfrír pottur I Frábært verð 42.595 ,■ stgr. I I ■ isaupangi • oimi ííjddo ■ KAUPLAND Kaupangi • Slmi 23565 Júlíus Havsteen ÞH-1 frá Húsavík í ágætri rækju á Digranesflaki: Flugfélag Norðurlands: Fleiri farþegar og meiri vörur á siðasta ári „Reglugerð um veiðar með seiða- Rósa Sigurjónsdóttir, starfsmaður á Skattstofunni á Akureyri, tekur við skattframtali frá ungum skattgreiðanda. Mynd: Robyn. Framtalsfrestur að renna út Annríki verður á skattstofum landins í dag enda sfðasti skiladagur á skattframtölum. Leyfilegt er að skila framtölum í bréfalúgur skattstjóraembætt- anna fram til miðnættis í kvöld en þeir sem telja sig ekki geta lokið framtalinu á tilskildum tíma þurfa að sækja um frest. Að sögn Sveinbjöms Svein- bjömssonar, skattstjóra í Norður- landsumdæmi eystra, er alltaf nokkuó um að framteljendur óski eftir fresti til að skila framtali og þetta hlutfall er svipað nú og áöur. Sveinbjöm segir að alla jafna komi stór hluti af skattframtölun- um í hús á síðasta skiladegi þann- ig að vænta megi hefðbundins annríkis hjá skattstofunum í dag. Leiðbeiningar með skattfram- tölum vom einfaldaðar nokkuð í ár frá því sem áður var og segir Sveinbjöm að þessum breytingum hafi verið vel tekið af framteljend- um. JÓH Flugfélag Norðurlands hf. á Akureyri flutti á síðasta ári 23.500 farþega í áætlunarflugi. MeðaltalsQölgun var 4% frá fyrra ári. Vöru- og póstflutning- ar jukust um 6% og þar flutti fé- Iagið 339 tonn. Þar fyrir utan er leiguflug og þar er um svipuð viðskipti að ræða milli ára. Á leiðinni Akureyri-ísafjöður fjölgaði farþegum lítillega milli ára, Akureyri-Grímsey stóð nást í stað, sem og Akureyri-Húsavík, en talsverð fjölgun var á leiðinni Húsavík-Reyjavík, sem á ekki minnstan þátt í heildar fjölgun far- þega. Talsverð fjölgun farþega var einnig á leiðinni Akureyri-Þórs- höfn og einnig fjölgun þó minna sé, á Kópasker, Raufarhöfn og Vopnafjörð. Leiðin Akureyri-Eg- ilsstaðir stóð í stað en smá sam- dráttur var á leiðinni Akureyri- Keflavík. Sigurður Aðalsteinsson, fram- kvæmdastjóri FN, kvaðst mjög ánægóur með þessa niðurstöðu, enda um aukningu að ræða yfír heildina sem fyrr segir. „Ástæðan fyrir þessu er kannski sú að við höfum haldið fargjaldahækkunum í algeru lágmarki. Á nokkuð mörgum árum hafa þau nánast ekkert hækkað og því er í rauninni um aö ræða lægri fargjöld miðað við kaupgetu en fyrir nokkrum ár- um.“ Engar breytingar urðu á vélakosti félagsins á síðasta ári. Endanlegar tölur um afkomu liggja ekki fyrir en aðalfundur verður haldinn í næsta mánuði. HA Akureyri, föstudagur 10. febrúar 1995 þotTAbUðborð k BÁUUnum fóstuíugs-, UugÁrÖAgs- og sunnuöagskuöló Vcrð aðcins kr. 1.390,- KbölPscöill SmiÖjunnAr og lcikbússtilboð Þjóöklrkjan kannar mögu- leika á aukinni þjónustu: Vígslubiskup verði til viðtals á Akureyri Til athugunar er að Bolli Gústavsson, vígslubiskup á Hólum, verði til viðtals með reglulegu millibili á skrifstofú á Akureyri og hefur verið nefndur sá möguleiki að hann, Svavar Alfreð Jónsson, nýráðinn héraðsprestur Eyja- íjarðar- og Þingeyjarprófast- dæmis, og frœðslufulltrúi þjóðkirkjunnar á Norður- landi hafi sameiginlega skrif- stofúaðstöðu á Akureyri. Málið er þó ennþá á athugun- arstigi og engin ákvörðun verið tekin. „Ég hef rætt það við vígslu- biskupinn á Hólum að ekki væri óeólegt aó sá möguleiki yrði kannaður að hann hefði aðsctur öóru hvcrju á Akureyri. Honum lcist mjög vcl á þá hugmynd og hann hefur sett sig í samband við Akureyrar- og Glerárkirkju á Akurcyri vegna þessa máls. í lok þessa mánaðar hcld ég fund með vígslubiskupunum þar sem þetta mál verður skýrt og skoö- að nánar,“ sagði hr. Ólalur Skúlason, biskup, í samtali við Dag. Hann sagði ekki ócölilegt að víglubiskup, nýráðinn hór- aðsprcstur og fræðslufulltrúi hefðu sameiginlegt skrifstofu- húsnæói á Akureyri. óþh

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.