Dagur - 22.04.1995, Blaðsíða 5
Laugardagur 22. apríl 1995 - DAGUR - 5
Fatahreinsun Húsavíkur hef-
ur tekið í notkun nýjan
tækjabúnað sem gerir starfs-
fólki kleift að hreinsa leður-
og rússkinnsfatnað, flotgalla
og ýmsan viðkvæman fatnað
sem erfitt hefur verið að fá
hreinsaðan. Sigurður Þórar-
insson og Hafdís Jósteins-
dóttir reka Fatahreinsunina,
ásamt Þóreyju dóttur sinni
og Kjartani Bjarnasyni, eig-
inmanni hennar. Afengis-
verslunin á Húsavík er í öðr-
um enda húsnæðisins og
starfsfólkið gengur til starfa
þeim megin við þilið sem
meira aðkallandi verkefni
bíða hverju sinni.
Kjartan Bjarnason, Þórey Sigurðardóttir, Ásdís Kristjánsdóttir, Hafdís Jó-
steinsdóttir og Sigurður Þórarinsson í Fatahreinsun Húsavíkur. Mynd: IM
„Þaó er ný tækni sem hreinsun-
in í nýju vélunum byggist á, en
þaö eru efnakljúfar sem notaóir
eru vió meöhöndlunina. Tæki eins
i og þessi hafa veriö í notkun í
Reykjavík í hálft ár, og gefist vel.
Mjög gott er aö þrífa ullarfatnað
og annan fatnað sem erfitt er að
þvo í vélunum. Þvottaprógrömmin
eru mjög fjölhæf og við bindum
vonir við aó geta aukið þjónust-
una verulega með tilkomu þessa
nýja tækjabúnaðar. Vélin er af
gerðinni Electrolux Wascator,
þekkt merki sem A. Karlsson hf. í
Reykjavík flytur inn. Fimm vélar
af þessari gerð munu vera komnar
upp á Reykjavíkursvæðinu, en ég
veit ekki betur en þetta sé fyrsta
vélin sem sett er upp utan höfðuð-
borgarsvæðisins," sagði Sigurður.
Gaman að skila
góðum fatnaði
- Hefur veriö erfitt aó fá ýmsan
viðkvæman fatnað hreinsaðan á
landsbyggðinni?
„Já, sérstaklega leðrið og rús-
skinnið. Mér vitanlega hafa aóeins
tveir staðir í Reykjavík verið meó
slíka þjónustu. Við höfum vísaó
okkar vióskiptavinum á þessa
staði, en nú vonum viö að aukin
ekki vandmál lengur
vióskipti komi í kjölfar aukinnar
þjónustu.
Við starfrækjum einu efnalaug-
ina á svæðinu milli Akureyrar og
Egilsstaóa."
- Hvað er langt síðan þið
keyptuð fyrirtækió?
„Það verða fimm ár í sumar og
þetta hefur gengió sæmilega, en er
erfitt eins og allur rekstur í dag.
Við höfum samt fengið góð vió-
brögð. Þetta er samrekið með
áfengisversluninni og skapar 3-4
störf, en er breytilegt eftir árstíð-
um.“
- Hvemig Hkar þér starfið í
efnalauginni, Hafdís?
„Alveg ágætlega, sérstaklega
þegar vel gengur og við skilum
góðum fatnaði til baka. Þetta er
stundum erfitt þegar ilíkur eru illa
farnar og fólk hefur gefist upp við
að glíma vió erfiða bletti eftir aó
hafa reynt ýmsar leiðir. Oft er
verra að eiga við blettinn eftir að
fólk hefur sjálft reynt að hreinsa
hann og ýmis tískulatnaður í dag
er ákaflega erfiður í meðhöndlun.“
✓
Afengissala í lægð
- Hvemig gengur að selja áfengi á
Húsavík, Sigurður?
„Það gengur sæmilega vel.
Áfengissala hefur verið í lægð um
allt land það sem af er árinu. Ætli
megi ekki kenna atvinnu- og efna-
hagsástandi í þjóðfélaginu þar um.
Mér finnst tókbakssala þó vera
enn meiri en áður og hún er geysi-
lega mikil.“
- Hvemig fer þessi rekstur
saman?
„Hann fer nokkuð vel saman
og ég held hann beri hvom annan
uppi. Til að byrja með heyrðust
vissar efasemdaraddir."
- Bjóóið þió hraðhreinsun á
fatnaói?
„Já, en höfum ekki auglýst það
ncitt sérstaklega. Við reynurn þó
að þjóna ferðafólki sem verður
fyrir óhöppum og bæjarbúum sem
liggur á að fá fatnað af sérstökum
ástæðum. I fyrra auglýstum viö
hreinsun á gluggatjöldum, buó-
umst til að sækja, senda og setja
upp, og tveir aðilar þáðu það boó.
Við erum að reyna sem flest til að
skapa okkur rekstargrundvöll. Við
vonum að tilkoma þessara nýju
véla geri okkur kleift að bjóða enn
meiri og betri þjónustu. Þetta eru
dýr og vönduð tæki, en við höfum
haft tækjabúnað frá sama fyrir-
tækinu frá því að við byrjuðum."
IM
Þessi mynd var tekin af Valgerði Valgarðsdóttur og Birgi Snæbjörnssyni í Dómkirkjunni í Rcykjavík í febrúar sl.
þegar Vaigerður var vígð í starf djákna.
Innsetmng djákna
í guðsþjónustu á morgun, sunnu-
daginn 23. apríl, mun prófasturinn
í Eyjafjarðarprófastsdæmi séra
Birgir Snæbjömsson formlega
setja Valgerði Valgarðsdóttur í
starf djákna. Valgerður var vígð
djáknavígslu í Dómkirkjunni í
Reykjavík hinn 12. febrúar sl.
Valgerður var í fyrsta hópnum,
sem lauk djáknanámi frá Háskóla
Islands.
Starfsvettvangur Valgeróar
veróur á Fjórðungssjúkrahúsinu,
Seli og Kristnesspítala, og mun
hún þar annast líknarþjónustu, sál-
gæslu og helgihald í samráði og
samvinnu við sóknarpresta Akur-
eyrarprestakalls. Valgerður mun
liðsinna sjúklingum, aðstandend-
um þeirra og starfsfólki stofnan-
anna. Valgerður hóf störf 1. janúar
og hefir það þegar sannast aö mik-
il blessun fylgir starfi hennar. Val-
gerður mun prédika við guðsþjón-
ustuna.
Kór M.A. syngur við athöfnina
undir stjóm Ragnheiðar Ólafsdótt-
ur. Jóna Fanney Svavarsdóttir
mun syngja einsöng í messunni.
Hún er frá Litladal í Austur-
Húnavatnssýslu. Afi hennar var
Jóhann heitinn Konráðsson, sem
svo mörgum yljaði um hjartarætur
meö söng sínum í Akureyrar-
kirkju. (Fréttatilkynning)
Opið mánudaga til
laugardaga kl. 10-19.
Sunnudaga kl. 12-18.
STÓRI
BÓKAMARKAÐURINN
Glerhúsinu, Hafnarstræti 26-30
GARÐYRKJUFÉLAG AKUREYRAR
Félagsmenn í Garð-
yrkjufélagi Akureyrar
Miðvikudaginn 26. apríl kl. 20.00 mun Dr. Hörður
Kristinsson flytja fyrirlestur í máli og myndum um Villtar
íslenskar jurtir. Fyrirlesturinn verður í kaffistofu gömlu
Gróðrarstöðvarinnar við Drottningarbraut.
Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna.
Stjórn Garðyrkjufélags Akureyrar.
FLYTJUM
AUGLYSINGASTOFU>
OKKARI
DDDEYRARGOTU 23
ÁGÆTIVIÐSKIPTAVINUR.
VIÐ HÖFUM FLUTT AUGLÝSINGASTOFU
OKKAR í ODDEYRARGÖTU 23.
HÚS ÞETTA STENDUR Á HORNI ODDEYRARGÖTU
OG BJARMASTÍGS. AUGLÝSINGASTOFAN
VERÐUR í KJALLARA HÚSSINS OG
GENGIÐ INN AÐ AUSTANVERÐU.
VELKOMIN
AUGLÝSINGASTOFAN
TENGSL
ODDEYRARGÖTU 23 - SÍMI 12616 - FAX: 11777