Dagur - 22.04.1995, Blaðsíða 15
UTAN LAN DSTEI NANNA
Laugardagur 22. apríl 1995 - DAGUR - 15
UMSJÓN: SÆVAR HREIÐARSSON
John Travolta og Kclly Prcston virðast afar hamingjusöm en illar tungur
segja þetta einfaidlega snilldaricik. Hugur þcirra beggja leitar á önnur mið.
Er hjómbandii
sýndarteikur)
Leikarinn JOHN TRAVOLTA er á hraðferó á toppinn á ný eftir leik-
sigur sinn í myndinni Pulp Fiction. Travolta er giftur leikkonunni
undurfögru KELLY PRESTOM en þaó hefur ekki komió í veg fyrir
þrálátan oróróm um aó hann sé hommi og hjónabandið sé aóeins sýndar-
leikur til aö hylja samkynhneigö þeirra beggja. Þessar sögur eru vinsælar
eftir að frægóarsól Travolta fór aö skína á ný og margir vafasamir menn
hafa komið fram meó sögur um kappann. Paul Barresi er fyrrum fyrirset-
ill hjá hinu merka riti Playgirl og er auk þess sagður hafa getiö sér gott
oró sem leikari í klámmyndum. Hann hefur ekki farið leynt með meint
samband sitt við Travolta og hefur sagt í blaðaviðtali aó hann sé fyrrver-
andi elskhugi Travolta. Þá hefur fyrrum einkabílstjóri leikarans fótafima,
Nassim Tahzid, staófest söguna um kynhneigð fyrrum húsbónda síns og
segir stjörnuna hafa dreymt um aö eiga í ástarsambandi með Sylvester
Stallone, Muhammed Ali og jafnvel Karli bretaprins. Trúi nú hver sem
vill.
Mikið var um dýrðir á Óskarsverðlaunahátíðinni í Hollywood
og margir þóttu sýna einkar góðan leik við það eitt að taka á
móti verðlaunum. Það var þó leikkonan og fyrirsætan
AMMA NICOLE SMITrl sem sýndi besta frammistöðu í kven-
hlutverki eftir verðlaunaafhendinguna. Þessi þrýstna kyn-
bomba fékk sér eilítið of mikið að drekka í teiti fyrir
stjömumar þar sem hún daðraði við gesti og gangandi.
Einn þeirra sem varð fyrir áreitni frá henni var hinn
þrælgifti Michael J. Fox og kunni hann því illa þar
sem eiginkonan var ekki langt undan. Eitthvað
fór áfengið illa í Önnu og kynbomban kastaði
upp af miklum krafti fyrir framan kynsystur
sína og stórbrjóstafélaga, Dolly Parton.
Þegar líða fór á nóttina var hún að niður-
lotum komin og dó áfengisdauða í stól
einum mcð kjólinn í hönk langt upp
fyrir mjaómir.
Anna Nicole Sniith lét fara mikiö fyr-
ir sér á Óskarsvcrölaunahátíöinni og
hneykslaði marga með fram- k
komu sinni.
■
'
Með þrjár í takinu
Nú virðist kominn í leitimar
einn sá allra kræfasti í
kvennamálum vestan hafs.
Sá heitir ERIC GOODE og rekur
vinsælan veitingastað í New
York. Hann hefur verió með
mörgum frægum en á síðustu vik-
um hefur hann náð að slá fyrri af-
rekum sínum vió. Hann var í föstu
sambandi með fyrrum eiginkonu
tenniskappans John McEnroe,
Óskarsverðlaunahafanum TATUM
O'MEAL en án þess að hafa fyrir
því að slíta því sambandi stakk
hann af með ofurfyrirsætunni
NAOMI CAMkíiELL í frí á St.
Bart’s eyjar í Karabíahafinu þar
sem Campbell vakti mikla athygli
með nektarsýningum á ströndinni.
O’Neal stóð eftir í sárum en gleði
Campbell var skammvinn. Hún
varö einnig tryllt af reiði stuttu
eftir að fríinu lauk því þau voru
varla komin til baka úr fríinu þeg-
ar önnur fyrirsæta, KACHEL
WILLIAMS, lýsti því yfir að hún
væri ólétt og sökudólgurinn væri
Nýja ástin í lífi boxarans heitir Monica Turner og henni fylgja heilmikil
vandræði.
Leikur að eldí
Eftir 1095 daga, 5 tíma og
15 mínútur í steininum var
fanga númer 922335
sleppt. Eftir að hafa afplánað
helming af sex ára fangelsisdóm
var Járnkarlinn MIKE TYSOM
frjáls maður. Hann kallar sig
reyndar ekki lengur Mike Tyson
þar sem hann hefur tekið múham-
eðstrú og múslímska nafn hans er
Malik Shabbaz, sem útleggst
sennilega á íslensku örn kóng-
anna. Tyson varó yngstur manna
til að vinna heimsmeistaratitilinn í
þungavigt og hann varð megaríkur
á augabragði en frægðin fór illa
með hann þar sem hann varð fijótt
háöur eiturlyfjum, víni og villtum
meyjum. Fótunum var skyndilega
kippt undan honum þegar hann
var kærður og dæmdur fyrir að
nauðga ungri fegurðardís, Desiree
Washington, en nú segist hann
vera nýr og betri maður eftir að
hafa séö um ræstingar á leikfimi-
sal fangelsisins í Indiana síðustu
þrjú ár. Nýja ástin í lífi hans heitir
MOMICA TURMEft og er hún 28
ára læknanemi á lokaári. Einn er
þó gallinn á gjöf Njarðar því
Monica á sex ára dóttur með eitur-
lyfjabaróninum Eugene Byrd, sem
afplánar nú tíu ára fangelsisdóm í
Washington. Monica hóf bréfa-
skriftir í fangelsið til Jámkarlsins
fyrir tveimur árum og hefur heim-
sótt hann reglulega síðan. Hún tók
á móti honum þegar honum var
sleppt og ber 12 karata demants-
hring sem boxarinn gaf henni
ásamt því sem hún keyrir um á
glænýjum Mercedes Benz sem
Malik borgaði fyrir. Þetta er kóka-
ínkóngurinn Byrd ekki kátur með
og samkvæmt heimildum hefur
hann aðvarað ræstitækninn Malik
og sagt honum að láta fyrrum ást-
konu sína í friði eóa liggja dauður
ella.
Tatum O’Ncal.
Rachel Williams stóð
uppi að lokum með
elskhuga, ástkonu og
barn á ieiðinni.
Naorni Campbell.
hinn víðförli Eric Goode. Rétt til
að flækja málin enn frekar ber aó
geta þess að ekki er langt síðan
Rachel þessi kom út úr skápnum
og opinberaði ást sína á bresku
söngkonunni Alice Temple.
Maður draumanna
Það vakti heimsathygli
þegar dýfingamaðurinn
snjalli, GKEG LOUGAM-
IS, lýsti því yfir aó hann væri
með eyðni og hefði vitað af því
þegar hann keppti á Ólympíuleik-
unum í Barcelona 1992. Nú hefur
verió gefin út ævisaga Louganis,
Breaking the Surface, og rýkur
hún út sem heitar lummur. Ekki
spillti fyrir sölunni að Louganis,
sem vann til fjögurra gullverð-
launa á Ólympíuleikunum 1984
og 1988, auglýsti bókina með því
Greg Louganis.
Robin Williams tók hlut-
verk sitt ekki al-
varlega sem
óskaclskhug-
að segja að
hann væri
hommi og óska
elskhuginn
væri grínistinn
ROBIM WILLI-
AMS- Þessi
bandaríski dýf-
ingarmaður
hefur tjáð
hverjum sem
heyra vill aó
honum þyki Williams einkar kyn-
æsandi með vel loðna bringu og
hefur þetta vakið mikla athygli.
Ekki eru þó miklar líkur á að dýf-
ingamanninum verði að ósk sinni
þar sem Williams er harðgiftur og
þriggja bama faðir. Grínistinn tók
þessum tíóindum eins og honum
er einum lagið og mætti í bóka-
búð þar sem Louganis sat við að
árita bókina. Ekki var tilgangur-
inn að kaupa áritað eintak af bók-
inni heldur kallaði
Williams: Hér er
ég kominn,
draumaelsk-
huginn.
BjdtbkuÁÍ
hanlmcvMnb-