Dagur - 25.04.1995, Side 14

Dagur - 25.04.1995, Side 14
14 - DAGUR - Þriðjudagur 25. apríl 1995 MINNIN6 Kristjan Kristinsson frá Sandvík Fæddur 9. janúar 1919 - Dáinn 14. apríl 1995 Kristján var fæddur 9.01. 1919 í Leirhöfn á Melrakkasléttu, elsti sonur hjónanna Kristins Krist- jánssonar bónda í Nýhöfn og Sesselju Benediktsdóttur konu hans. Kristján kvæntist Maríu Bruhuke frá Þýskalandi. Þeirra börn voru: Wolfgang Jóhann, f. 23.11.49 - d. 29.04.71, sem Krist- ján gekk í föðurstað. Kristinn, f. 18.11.51 - d. 27.11.80. María, f. 25.11.54 og Hans Alfreð, f. 10.12.60, og barnabörnin eru orðin sex. Laugardaginn 22.04. var frændi minn, Kristján Kristinsson, jarð- sunginn frá Snartastaóakirkju. Eitt lífskeið getur skipst í vor og sumar, og svo haust og vetur. Kristján frændi minn var af eldri kynslóðinni, einn af frændfólki mínu sem skapaói það umhverfi, ást og umhyggju sem við, stór hópur af frændsystkinum ólumst upp í. Vorið 1949 urðu miklar breyt- ingar hjá föðurfjölskyldu minni þegar tvær ungar þýskar stúlkur komu þangað sem vinnukonur. Onnur stúlkan, María Bruhne, varð síóar lífsförunautur Kristjáns frænda míns. Þaó var örugglega hans mesta gæfuspor í lífinu að ganga að eiga hana, því þau voru rnjög samhent hjón. María eignað- ist dreng eftir að hún kom til Is- lands, Wolfgang Jóhann, sem Kristján gekk í föðurstaó. Þau eignuóust síðan þrjú börn saman og í dag eru bamabörnin orðin sex. Þegar ég hugsa til þess tíma sent ég var barn aó alast upp norð- ur á Sléttu, þá finnst mér aó þaó hafi alltaf verið sumar, þar sem himinn og haf runnu saman í einn bláma. Þar sem lífsafkoman byggðist á landbúnaði og sjófangi og allt iðaði af lífi. Stundum kvað við skothljóó þegar Kristján í Sandvík var að skjóta sel, en Kristján var góö skytta og veiói- ntaóur. Það fylgdi því alltaf ákveðin spenna hjá okkur börnun- um að skoða veiðina, hvort sem það var selur, tófa, fuglar eða fisk- ar. Þetta var allt hluti af daglega lífinu þar sem pabbarnir sáu urn útiverkin og mömmurnar voru heima vió matargerð við eldhús- bekkinn og tíminn stóð nánast kyrr. Svo kom haust. Við frænd- syskinin vorum orðin fulloróin og lífið var ekki endalaust sumar. Það kom haust hjá hjónunum í Sandvík þegar elsti sonur þeirra, Wolfgang Jóhann, drukknaói í hörmulegu slysi heima í fjörunni og síóar varð annað hörmulegt slys þegar Kristinn, sonur þeirra, fórst með rækjubátnum Trausta ÞH-8 frá Kópaskeri. Hjónin frá Sandvík uróu fyrir mikilli sorg. Þar studdu þau hvort annað eins og þau höfðu gert í gegnum lífið. Heilsunni fór aó hraka og allt í einu var frændi minn oróinn gamall maóur og ég komin á miðjan aldur. Ég kom alltaf við hjá þeim þegar ég fór austur á Sléttu. En það voru komnir aðrir tímar nú voru um- ræðuefnin barnabömin. Síðustu dagana var Kristján á sjúkradeild- inni sem ég vinn á á Húsavík. Þaó var ánægjulegt aó fá að hjúkra honurn og sjá aó hann var að hressast og hvað það gladdi gamla manninn mikió þegar Vignir dótt- ursonur hans kom noróur til afa síns. Þaö var stefnt aö því að hann færi heim eftir helgina. En svona var lífið, hann andaóist á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Akureyri 14. apríl. Ég vil þakka Kristjáni frænda mínum það sem hann gaf mér í lífinu: Kynni af góðum manni, sem ég heyrói aldrei segja styggð- aryrði um nokkum mann á sinni lífsgöngu. Ég vil votta Maríu og fjölskyldunni í Sandvík mínar innilegustu samúóarkveðjur. Sesselja Steinarsdóttir. Á föstudaginn langa missti ég minn besta vin, mág minn Krist- ján í Sandvík. Andlát hans kom mér í raun ekki á óvart. Eftir uppskuróinn og aðgeróina á Akureyri nú í febrúar, dvínaði þrekiö og greinilegt var aó eitthvað mikið varð að ske ef hann átti að ná heilsu á ný. Þegar við Helga mín kvöddum hann á spítal- anum á Húsavík viku fyrir andlát- ið sáum við bæöi að hverju gæti stefnt. Mér fannst þá ég vera að kveðja hann í hinsta sinn. Hugurinn hvarflar til baka og minningamar streyma fram eins og myndir á tjaldi. Alltaf er Stjáni minn fyrir miðri mynd, en sviðið tekur stöðugum breytingum. Sam- vinna okkar bændanna á Leirhafn- arbæjunum gerði okkur mögulegt að byggja upp okkar býli og sjá fjölskyldunum farborða. Efnin voru ekki mikil og því varð að nýta þaó vel sem landið og hafió að bjóóa. Húsin reistum við eitt af öóru, - íbúðarhús, fjárhús, hlöður og hjalla. Rekaviðurinn var ristur í stoðir og sperrur eóa sagaður nið- ur í fjárhúsgrindur undir féó. Kleyfustu spýtumar fóru í girð- ingarstaura. Ibúðarhúsin í Sandvík og Miðtúni voru bæói byggð úr err-steini sem við steyptum í vél sem hugvitsmaóurinn, pabbi þinn og tengdafaðir minn, Kristinn í Nýhöfn, smíðaði. Þau þættu ekki merkileg í dag tækin sem við höfðum til aó yrkja með jöróina. Móarnir voru brotnir og sandbörðin sléttuö, melamir þaktir mold en stórgrýti ýtt út fyrir túnjaðarinn. Með litlum Farmal Cub voru túnin slegin og heyinu snúió og inn komst það í hlöóurn- ar þótt það kostaði bæói svita og tár. Sælustundirnar að loknu erf- iðu dagsverki voru þreytunni þó yfirsterkari. Þær voru sigurlaun hins örþreytta manns. Með þess- urn litla traktor brutum viö móana, smíðuðum á hann ýtu og með honum drógum við trén úr fjör- unni. Hann var 6 hestöfl að mig minnir - en við bættust okkar öfl. Ég man vel eftir okkur, jafnvel báðurn vera að ýta þessu litla tæki. Settum hann í gír og settum svo heróarnar á þá staði þar sem helst var viðspyrna og ýttum sameigin- lega - og ég held að við höfum stundum verió drjúgari en vélin þegar við tókum báóir á. Snemma á búskaparárum okkar keyptum vió ásamt Steinari bróð- ur þínum mótorbát sem vió nefnd- um Hafþór. Þaó var mikió happa- fley og mörg tonnin færðum við aó landi. Þeir voru dásamlegir dagarnir út vió Rauðanúp þegar sá guli var vel vió. Þaó kom fyrir að viö tvíhlóóum bátinn, settum þá aflann í land í Geirsvík eða á Grjótnesi og síóan var haldið út á mióin á ny. Þaó voru ánægðir en þreyttir menn sem sigldu inn á Leirhafnarvíkina í miðnætursól- inni með drekkhlaóinn bát í annaó sinn þann daginn. Þegar vel gekk í grásleppuveið- inni söltuðum við um 100 tunnur af hrognum og í mörg ár eftir að við hættum samciginlegri útgerð á Hafþór lagðir þú fyrir grásleppuna á litla bátnum þínum. Síðustu árin fórstu þó ekki lengra en rétt út fyr- ir skerjasundið þar sem þú gjör- þekktir hverja flúð og hverja fiæðu. En traustustu böndunum tengd- umst við mássi minn þegar við lágum tveir saman á grenjum aust- ur í heiði og biðum eftir því að lágfóta léti sjá sig. Það er engin sæluvist að liggja illa búnir alger- lega hreyfingarlausir klukkustund- um saman í hvassviðri og hríöar- slyddu norður á Melrakkasléttu. Vió höfðum þó prímus sem við reyndum að hita upp tjaldið með - ef hann þá gleymdist ekki í ákaf- anum þegar við lögðum af stað að heiman. Sterkari eru þó minning- amar um vomætumar björtu, þá djúpu kyrrð og ró sem hvíldi yfir heiðinni frá miðnætti og fram undir óttuna, þegar fyrstu geislar morgunsólarinnar brutust í gegn- um lognmóðuna út við sjóndeild- arhringinn í austri. Þá skyndilega var næturkyrrðin rofin. Lóan hóf sinn dýrðarsöng, hrossagaukurinn og spóinn tóku undir með rjúpna- skaranum sem fór að kallast á viö nágranna sinn á næsta holti. Ég vil þakka þér Stjáni minn þessar góöu minningar. Við Helga mín munum sakna þess að sjá þig ekki oftar koma labbandi neöan frá Sandvík á þinni morgungöngu með Skugga, hundinum þínum sem batt svo sterkum böndum sínum við þig. Sléttan okkar hefur misst einn af sínum bestu sonum. Svífur frá djúpi sólin skœr, söngfuglar kveða snjöllum rómi, dagperlur fagrar blika á blómi, svífur afengi blíður blœr. Af nœtursvéfni nývöknuð náttúran gervöll lofar Guð. (Kristján Jónsson Fjallaskáld) Með þessum fátæklegu orðum kveð ég þig kæri mágur. Við Helga mín vitum aó þín bíður góð móttaka á himnum. Þú varst traustur bróðir, vinur og félagi. Árni Pétur Lund. Móðurbróóir minn, Kristján Krist- insson, Sandvík á Melrakkasléttu, er látinn, 76 ára að aldri. Foreldrar hans voru hjónin Kristinn Krist- jánsson, bóndi og jámsmióur í Nýhöfn og Sesselja Benedikts- dóttir. Kristinn unni Leirhöfn mikið og ásamt Sesselju byggði hann upp jörðina Nýhöfn sem er 1/4 úr óskiptu Leirhafnarlandi. Staðsettu þau hús sitt við sjóinn á svonefnd- um Leirhafnartanga. Þau eignuð- ust 6 böm og var Kristján sá er hér er minnst þeirra elstur, fæddur 9. janúar 1919. Bar hann heiti afa síns Þorgrímssonar, frá Hraunkoti í Aðaldal og var ekki undarlegt svo mikið sem Kristni þótti til um föður sinn. Onnur börn þeirra hjóna voru Helga Sigríður, Bene- dikt, Steinar, Sigurður Jóhann og Guðmundur. Eru þau öll á Iífi nema Benedikt sem dó ungur. I Leirhöfn þykir fallegt og sömuleiðis í Nýhöfn. I norðaustri rís Rauðinúpur tignarlegur úr sæ og frá honum fjallahringur sem lokast með Snartarstaðanúp í suðri. Afmarkar þessi fjallahring- ur undirlendi sjávar. Til vesturs sést til Tjömess, Kinnarfjalla og Tröllaskaga. Til norðurs er hafið og himininn svo langt sem augað eygir og í júní má sjá sólina tylla sér niður á spegilsléttan hafflötinn og rísa að nýju án hvíldar. Þannig eru bemskustöðvar Kristjáns og við þær tók hann tryggð. Kristján var vel meðalmaður á hæð, grannvaxinn, skarpleitur, vel að manni og harðduglegur aó hverju sem hann gekk. Ungur fór hann um tíma á togara og held ég að sjómennskan hafi ætíð heillað hann. Kristján var laghentur og ágætur smiður, átti enda stutt að sækja þá eiginleika. Árió 1949 var ráðin í Nýhöfn ung þýsk stúlka, María Bmhne, f. 13. september 1928. Er skemmst frá því að segja að með Maríu og Kristjáni tókust ástir og gengu þau í hjónaband 8.9. 1951. Þau byggðu fljótlega íbúðarhús ör- skammt frá Nýhöfn og nefndu Sandvík. Um svipað leyti hófu einnig búskap systkini hans, Helga í Miðtúni og Steinar í Reistamesi, hvert á sínum hluta úr Nýhöfn þannig að jarðnæðið var ekki ótakmarkað. Fyrstu árin voru þeir bræður mcó sameiginlegt fjárhús en fljótlega byggói Kristján sér sitt eigið og ræktaói sín tún. Þótt ekki væri aðstaða til að hafa margt fé, voru afurðir góðar og afkoman síst lakari en hjá öórum. Þá var Kristján duglegur að sækja aðra vinnu sem gafst, var í síld á sumr- in, sláturhúsi á haustin og refa- veiðum á vorin. Var hann annáluð skytta hvort heldur hann átti við lágfótu, fugl eóa sel. Þeim Maríu og Kristjáni var fjögurra bama auðið. Elstur var Wolfgang Jóhann f. 23. nóvember 1949, Kristinn f. 18. nóvember 1951, María f. 25. nóvember 1954 og Hans Alfreð f. 10. desember 1960. Það er stutt á milli bæjanna Miðtúns og Sandvíkur og milli föður míns, Árna Péturs og þeirra bræðra Kristjáns og Steinars var mikil samvinna, einkum þó Krist- jáns og því kom það að sjálfu sér að milli krakkanna í Sandvík og okkar bræðranna í Miðtúni mynd- uðust afar sterk tengsl. Ekki var fyrr farið á fætur en hringt var milli bæja og mælt sér mót, t.d. að sækja kýmar, smíða fleka, byggja kofa, fara á hestbak eða annað sem ákveðið hafði verið þegar skilió var seint kvöldið áður. Auð- vitað kom það oft í hlut foreldr- anna aó aðstoða og snemma fóru líka foreldramir að geta nýtt sér bamahópinn við búskapinn. Allt gekk þetta árekstralaust og krakk- amir heimagangar á báðum heim- ilum. Kristján þekkti hugsanagang þeirra og hafði gaman af þeim. Minnist ég hans sitja og hlusta á masið í okkur meó pípuna sína brosandi að vitleysunni sem út úr okkur rann. Þá áttu feóumir til að rétta okkur hjálparhönd og man ég eftir þegar Stjáni aðstoðaði mig og Kidda son sinn vió að setja upp miðstöð í moldarkofa. Ég veit að hann haföi gaman af uppátækinu. Þannig liðu bama- og unglingsár- in á þessum stað við eilíft sólskin og gott veóur. En skammt var í alvöru lífsins. Þann 29. apríl 1971 drukknaði Wolfgang í höfninni í Leirhöfn, þegar lítilli fleytu hvolfdi skammt frá landi. Vom þeir bræður Volli og Kiddi, eins og þeir vom jafnan kallaðir, ásamt þriðja manninum að fara í land frá því að leggja báti við legufæri. Kristinn var mjög hætt kominn en lifði slysið af enda mikill þrekmaður. Að sjálf- sögöu fékk þetta áfall mikið á þau hjónin Maríu og Kristján. En skammt var högga á milli og níu árum seinna fórst Kristinn sonur þeirra ásamt öðrum manni er bátur þeirra sökk í aftakaveðri á leið frá Akureyri til Kópaskers þann 26. nóvember 1980. Það voru erfiðar stundir sem þau áttu María og Kristján meðan leit stóð yfir sem þó bar ekki árangur. Þessi slys settu mark sitt á Kristján og þarf engan að undra. Var sem lífsneist- inn hefói að einhverju leyti slokknað, - lífið e.t.v. misst að hluta tilgang sinn. Kristinn var þá nýlega búinn að byggja íbúðarhús á Kópaskeri og stofna heimili með Guðrúnu Eiríksdóttur og tveimur sonum hennar. Saman áttu þau lít- inn dreng sem ber nafn afa síns Kristjáns. Þá átti Kristinn eina dóttur fyrir, Ester, sem bjó hjá móður sinni. Aó missa tvo gjörvulega syni á sviplegan hátt hlýtur að beygja menn, en þeir sterku brotna ekki og þaó gerðu hvorki Kristján né María. En stórt skarð var höggvið í fjölskylduna í Sandvík og fyrir leikfélagana og bræóuma í Mió- túni verður það ekki fyllt. í Sand- vík var alltaf gott að koma og fyrir allar samverustundir á æskuárum er Kristjáni nú þakkað. Fyrir rúmum 10 árum hætti Kristján sauðfjárbúskap. Bjó hann áfram í Sandvík meó Maríu og syninum Hans Alfreð sem stundað hefur sjómennsku frá Leirhöfn og víðar. Sótti Kristján vinnu um tíma á Kópasker og stundaði grá- sleppuveiðar að vori á bát sínum frá Nýhöfn. Þá nytjaði hann tún sín og seldi hey. María dóttir þeirra er gift Hauki Þórissyni starfsmanni Hitaveitu Suóumesja og búa þau í Vogum Vatnsleysu- strandarhreppi. Eiga þau þrjú börn, Þóri, Jóhann Kristinn og Maríu Margréti. Þá átti María dreng fyrir, Vigni Skúlason. Vign- ir hélt mikið upp á afa sinn og ömmu og dvaldi oft hjá þeim fyrir norðan, enda þar gott að vera. Það var að bera í bakkafullan lækinn hjá þeim Maríu og Stjána þegar Vignir lenti í mjög alvarlegu mót- orhjólaslysi s.l. sumar á leið norð- ur til afa og ömmu. Var honum vart hugað líf, en er nú á batavegi. Já, mikið hefur verið lagt á fjöl- skylduna í Sandvík. Kristján var líkamlega hraustur fram á efri ár en þá fór þrekið smám saman að dvína. Síðast heimsótti ég Kristján og Maríu í stuttri heimsókn á æskustöðvamar s.l. sumar. Drakk ég hjá þeim kaffi í sólskini á tröppunum í Sandvík. Það var gaman að ræða við þau þessa stund, hvort heldur það var um alvöru lífsins sem nóg er af eöa þegar rifjaóar voru upp gamlar endurminningar. Þá kímdi Stjáni eins og svo oft áður. Fyrir nokkmm vikum fór hann á sjúkrahúsið á Akureyri í stóra aðgerð. Hann kom aftur heim en var svo lagður inn á sjúkrahúsið á Húsavík skömmu fyrir páska. Á skírdag versnaði honum skyndi- lega og var fluttur til Akureyrar. Daginn eftir - föstudaginn langa - lét hann aftur augun í síðasta skipti. Hjá honum vakti hans Mar- ía. Friður færðist yfir andlit þreytts manns sem hafði fongió að bera sínar byrðar á lífsleiðinni. Ég trúi því að á móti honum hafi tek- ið synir hans sem hann saknaði svo mjög og leitt hann í eilíft ríki Guðs. Um leið og ég kveð kæran frænda rninn Kristján í Sandvík hinstu kveðju, votta ég og mín fjölskylda, Maríu, bömum hans og öðrum aðstandendum dýpstu samúð. Blessuð sé minning Kristjáns í Sandvík. Níels Árni Lund.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.