Dagur - 24.05.1995, Blaðsíða 1

Dagur - 24.05.1995, Blaðsíða 1
Fjölveiðiskipið Sunna SI-67 leigð kýpversku útgerðarfyrirtæki: Áhöfnin skráð á Kýpur Rækjuskipið Sunna SI-67 hélt í gær til rækjuveiða á Flæmska hattinn við Nýfundna- land. Frá sl. áramótum hefur Arnarnes SI-70 verið á veiðum í Flæmska hattinum en það er gert út af Þormóði ramma hf. á Siglufírði, rétt eins og Sunna SI, en skráð á Kýpur. Ólafur H. Marteinsson, framkvæmdastjóri Þormóðs ramma hf., vildi í gær ekkert tjá sig um málið, sagði aðeins að skipið væri að halda á veiðar. Samkvæmt heimildum blaósins var samið í hádeginu í gær við áhöfn skipsins um að hún yrði skráð á Kýpur, en skipið hefur veriö leigt kýpversku útgerðarfyr- irtæki til þess að komast hjá því að þurfa að binda skipið við bryggju komi til verkfalls á fiski- skipaflotanum. Gengið hefur verið frá tryggingarmálum sjómann- anna. Þau skip sem eru með áhafnir sem fara í verkfall, ef til þess kemur, þurfa að hætta veiðum á miðnætti aðfaranótt nk. fimmtu- dags. Sunna SI hefur verið á rækjuveiðum hér við land og hef- ur fengið 75 kr/kg fyrir iðnaðar- rækjuna sem hefur farið til vinnslu hjá rækjuverksmiðju Þormóðs ramma hf., útgerðar skipsins. Önnur skip, eins og t.d. Bliki EA- 12 frá Dalvík, hefur fengið allt að 160 kr/kg en þá hefur verið óskað eftir tilboðum í iönaðarrækjuna. Það sama hefur t.d. gerst með iðn- aðarrækju af Svalbaki EA-2, tog- ara UA, en nýverið fengust 140 kr/kg fyrir iðnaðarrækjuna sem fór til vinnslu hjá Strýtu hf. á Ak- ureyri. GG Hugmyndir um að nýta húsnæðið undir heimavist Hótel Ólafsfjörður rekið sem gistiheimili í sumar: Skandia Lifandi samkeppni W - lœgri iðgjöld Geislagötu 12 • Sírai 12222 Akureyrí, miðvikudagur 24. raaí 1995 98. töiublað Rekstri Hótels Ólafsfjarðar hf. hefur verið breytt í þá veru að fram til hausts verður það rekið sem gistiheimili í stað hótels áður. Rekstur hótelsins hefúr gengið fremur stirðlega, og vilja eigendur, Skeljungur hf., losna út úr rekstrinum eða selja hann með öðrum hætti. M.a. hefúr flogið fyrir að sótt verði um það til bygginganefndar Ól- afsfjarðarbæjar að hótelbygging- unni verði breytt í íbúðir. Hvaö við tekur á haustmánuð- um er óljóst, en rekstraraðilar hafa lýst því yfir að verði engin breyt- ing á rekstrarformi hótelsins verði því lokað í haust. Hótelið er leigt og rekið af Sigurjóni Magnússyni, framkvæmdastjóra bifreiðaverk- stæðisins Múlatinds hf. í Ólafs- firði, og hótelstjóranum Þórhildi Þorsteinsdóttur auk þcss sem þau reka greiðasölu og bensínaf- greiðslu sem eru sambyggð hótel- inu. Þorsteinn Ásgeirsson, forseti bæjarstjómar Ólafsfjarðar, segir það mjög alvarlegt mál fyrir ðl- afsfjarðarbæ ef hótelinu verði lok- að og það kollvarpi meira og minna öllum áformum um upp- byggingu ferðamannaþjónustu í bænum. Sótt hefur verið um að- stoð eða styrk til Ólafsfjarðarbæj- ar vegna rekstursins en afstaða hefur ekki verið tekin. Það veróur væntanlega til umræðu á næsta bæjarráðsfundi. Rekstrargrundvöllur hótels í Ólafsfirði yfir vetrarmánuöina viróist ekki vera fyrir hendi og því hafa skotið upp kollinum hug- myndir um að hótelið verói rekið sem heimayist yfir vetrarmánuð- ina í tengslum við sameiginlegan framhaldsskóla Dalvíkinga og Ól- afsfirðinga ef af þeim hugmynd- um skólayfirvalda á Dalvík og Ól- afsfirði verður. GG / kulda og trekki. Mynd: Rob>n Ferðamenn farnir að láta sjá sig Ferðamenn hafa verið í Mý- vatnssveit síðan um páska pg virðist köld tíð engu skipta. íslendingar eru þó ekki farnir af stað enda er tími sumarleyfa einungis rétt að heijast. „Erlendir ferðamenn sem koma hingað á vorin eiga ekkert von á betra veóri heldur en hefur verið, þeir koma bara í þetta arktíska umhverfi og hafa gaman af,“ sagði Pétur Snæbjörnsson, hótel- stjóri í Hótel Reynihlíð. „Eg vona að Islendingar á ferð um landið verði jafn margir og í fyrra. Svo virðist sem Norðurland eystra hafi notið góðs af átakinu ísland sækj- um þaó heim, en þaó veröur að halda starfinu áfram, áhrif af slíku átaki fjara fljótt út ef árar eru lagðar í bát.“ Nánast er fullbókað í gistingu í Hótel Reynihlíð í sumar og telur Pétur að heimtur verði góðar. Að sögn Eiríks Gíslasonar í Staóarskála er ekki kominn virki- legur sumarhugur í fólk þar enda verið mjög kalsasamt. „Við sjáum nú engan sérstakan mun ennþá í viðskiptum, við erum í alfaraleið Gefla hf. á Kópaskeri: Árni stjórnarformaður Staða skólastjóra Odd- eyrarskóla að losna Indriði Úlfsson, skólastjóri Oddeyrarskóla á Akureyri, hefúr sagt starfi sínu lausu og jafnframt sótt um eftirlaun. Indriði var ráðinn skólastjóri samkvæmt „gamla“ kerfinu, þ.e. hann lætur af störfum 1. september nk. í stað 1. ágúst, en í dag miðast kennararáðningar við þann tíma. Eftirmaður Indr- iða mun taka við stöðunni 1. ágúst nk. Staða skólastjóra Oddeyrar- skóla verður auglýst á næstunni, líklega 28. maí nk. en þá verður jafnframt auglýst eftir umsóknum um kennarastöður í Noróurlands- umdæmi eystra og verður þaó þriója auglýsing á þessu vori. Um miðjan júnímánuð veröur þá hægt að sækja um undanþágur fyrir leióbeinendur þar sem þess er þörf, en þar er fyrst og fremst um aó ræóa leiðbeinendur sem kennt hafa árum saman. Sigurður Flosason, aðstoðar- skólastjóri Oddeyrarskóla, hefur jafnframt sagt upp stöóu sinni og hefur einnig sótt um eftirlaun. Vegna þess hve nemendum Odd- eyrarskóla hefur fækkað á undan- fömum árum verður staða Sigurð- ar ekki auglýst að sinni. GG Astjórnarfundi útgerðarfyrir- tækisins Jökuls hf. á Rauf- arhöfn og Fiskiðju Raufarhafnar hf., sem haldinn var sl. laugar- dag eins og skýrt hefur verið frá í Degi, var Gunnlaugur A. Júlí- usson, sveitarstjóri Raufarhafn- arhrepps, kjörinn stjórnarfor- maður beggja fyrirtækjanna. Aðrir stjómarmenn eru Ámi Heiðar Gylfason, framkvæmda- stjóri Bifreiðaverkstæðis Áma, sem er varaformaður, Þór Frið- riksson, vélstjóri í frystihúsi Fisk- iðiðju Raufarhafnar hf., Hafþór Sigurðsson, framleiðslustjóri SR- mjöls hf. og Hilmar Þór Hilmars- son, verksmiðjustjóri á Þórshöfn. Á fyrsta fundi nýkjörinnar stjórnar rækjuverksmiðjunnar Geflu hf. á Kópaskeri, sem Jökull hf. á Raufarhöfn á meirihluta í, eða 63%, var Ámi Heiðar Gylfa- son kjörinn stjómarformaóur en Gunnlaugur A. Júlíusson varafor- maður. GG Norðurland vestra: Tilboð í efnisvinnslu Þrjú tilboð bárust í efnis- virmslu fyrir Vegagerðina á Norðurlandi vestra, en tilboðin voru opnuð hjá Vegagerð ríkis- ins á Sauðárkróki í gær. 011 tilboðin voru talsvert undir kostnaðaráætlun Vegageróarinnar sem hljóðaði upp á 56,3 milljónir króna. Lægst bauð Króksverk hf„ 38,8 milljónir eða 68% af kostn- aðaráætlun. Tak hf. Búðardal bauð 44,2 milljónir eða 78% og Amarfcll á Akureyri bauð 45,8 milljónir eöa 81 %. HA og það er alltaf straumur fólks milli landshluta allan ársins hring. Fyrstu bakpokaferðalangarnir fóru þó að sjást í síðustu viku. Eg get þó ekki sagt að það sé neinn gang- ur í þessu, það veróur ekki fyrr en upp úr mánaðamótum.“ Eiríkur sagóist ekki hafa áhyggjur af að kalt sumar hefði áhrif á viðskiptin, ef kalt væri sunnanlands lægi straumurinn norður og öfugt og þá kæmi sér vel að vera miðsvæðis. Á Umferðarmiðstöðinni á Akur- eyri var gott hljóð í fólki. „Það kom nú heill sænskur karlakór í morgun og var að leita upplýsinga um gönguleiðir, hesta- og snjó- sleðaferðir og svo sungu þeir fyrir okkur í þakklætisskyni,“ sagði Unnur Sigurðardóttir, fram- kvæmdastjóri Upplýsingamið- stöðvar ferðantanna. „Við sjáum greinilegan mun dag frá degi. Hingað koma sífellt fleiri ferða- mcnn meö hverjunt deginum sem líður, allt frá bakpokaferðalöngum upp í ferðatöskufólk.“ Unni virð- ast Skandinavar vera í miklum meirihluta en svolítið er um Breta. Unnur hefur fengið mjög marg- ar fyrirspumir erlendis frá um ferðir í sumar og segist vera bjart- sýn. Skoðunarferðir í Mývatnssveit og áætlunarferðir á Egilsstaöi eru hafnar en verkfall Sleipnis setur náttúrulega strik í reikninginn. „Við reynum auðvitað að gera allt sem við getum fyrir fólkið, en bíl- stjórarnir geta því mióur ekkert keyrt nema skólaböm.“ sr

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.