Dagur - 24.05.1995, Page 2

Dagur - 24.05.1995, Page 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 24. maí 1995 LETTIR HESTAMANNAFELAGIÐ LÉTTIR ^^KUREYR^/ Reiðnámskeið Fyrirhugað reiðnámskeið með Kolbrúnu Krist- jánsdóttur verður haldið dagana 29. maí-5. júní. Kvennaflokkur, unglingaflokkur, karlaflokkur. Skráning og allar nánari upplýsingar í Skeifunni sími 26I63 (frá kl. 9-I2) eða hjá Birnu í síma 24988 eftir kl. 20. Fræðslunefnd Léttis. Utboð Óskað er eftir tilboðum í frágang íþróttahúss á Raufarhöfn. Um er að ræða hlutafrágang íþróttasalar og tengibygg- ingar við núverandi sundlaugarhús. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Raufarhafnar- hrepps. Upplýsingar veitir sveitarstjóri í síma 96- 51151. Tilboði skal skilað á skrifstofu Raufarhafnarhrepps Að- albraut 2, Raufarhöfn, í lokuðu umslagi, merktu: „Tilboð í frágang íþróttahúss á Raufarhöfn." Tilboð verða opnuð á skrifstofu Raufarhafnarhrepps Aðalbraut 2, Raufarhöfn, þann 2. júní kl. 14. að þeim viðstöddum sem þess óska. Sveitarstjóri Raufarhafnarhrepps. FRÉTTIR Viðbygging Dalbæjar formlega vígð Mikið var um dýrðir í Dalbæ, hcimili aldraðra á Dalvík, sl. laugardag cr þar var vígð viðbygging. A efri hæðinni cru cldhús, borðsalur og búr, cn geymslur, frystir og starfs- mannaaðstaða niðri. Borðsalurinn nýi bcr nafnið Setberg til minningar um hjónin Egil Júlíusson, fyrrv. útgerðar- mann og Guðfinnu Þorvaldsdóttur, sem gáfu háar fjárhæð- ir til Dalbæjar. Fjölmcnni var við athöfnina og þá voru mcðfylgjandi myndir tcknar. Fremst á stærri myndinni cr Rúnar Búason, byggingamcistari, cn á innfclldu myndinni eru Sigurlaug Stefánsdóttir, form. stjórnar Dalbæjar, og Agúst Hafsteinsson, arkitckt að byggingunni. Myndir: Hj.Hj. ux IFERÐAH RAUTT LJÓS! Atvinnukúgun aftan úr öldum að skrá skip utan verkfallssvæðis Framkvæmdanefnd Verka- mannasambands íslands for- Afgreiðslutími: Mánud.-föstud.kl. 10.00-19.30 laugard.kl. 10.00-18.00 "1 < '■ .1 1. • drögum við fram If m stk. lUa 'ill dæmdi yfirlýsingar og aðgerðir einstaka útgerðarmanna til að komast hjá löglega boðuðu verk- falli sjómanna á fundi sínum þriðjudaginn 23. maí sl. Framkvæmdanefnd VMSI telur fyrirætlanir útgerðanna fólgnar í því að leigja skip og áhafnir ýmist erlendum aðilum eða íslenskum fyrirtækjum utan þess svæóis sem verkfallið nær til ótrúlega ósvífna hegðun og þverbrjóta vinnulög- gjöfina. Til þess sé beitt atvinnu- kúgun sem sé aðferð aftan úr öld- um. Framkvæmdanefnd VMSI lýsir fullri ábyrgð á hendur viókomandi útgerðum svo og forystu LIU, láti hún það afskiptalaust. VMSI skor- ar á aðildarfélög sín að þjónusta á engan hátt þau skip sem þarna eiga hlut að máli og að vera jafn- framt vel á verði gagnvart verk- fallsbrotum og grípa þegar til við- eigandi ráðstafana komi þau upp. GG Þorbergur hættur með landsliðið Þorbergur Aðalsteinsson sækist ekki eftir að halda áfram störf- um sem landsliðsþjálfari íslands í handknattleik og ljóst að nýr maður tekur við liðinu innan skamms. Samningur Þorbergs við HSI rann út um leið og Heimsmeist- aramótinu lauk og þegar lands- liðsnefnd kom saman til fundar í fyrrakvöld lá fyrir að Þorbergur sækist ekki eftir framlengingu á samningnum. Þorbergur hefur stýrt „strákunum okkar“ sl. fimm ár og undir hans stjórn varð liðið í Sumar- búðir í Hamri fyrir börn fædd 1982-1989 hefjast 6. júní Innritun í Hamri í síma 12080 4. sæti á Ólympíuleikunum í Barcelona 1992 og í 8. sæti á HM í Svíþjóð ári síðar. Alþjóð veit hvemig liói hans reiddi af í nýlok- inni Heimsmeistarakeppni á ís- landi. Bókasafn S-Þingeyinga: Forstööumanni sagt upp vegna fjárdráttar Forstöðumanni Bókasafns S- Þingeyinga á Húsavík, hefur verið vikið frá störfum eftir að það kom í ljós fyrir nokkrum vikum að „smáupphæðir“ vant- aði í bókhald safnsins auk óreiðu. Forstöðumaðurinn hefur greitt peningana til baka. Þetta kemur fram í DV í gær. I viðtali við blaðið segir Einar Njálsson, bæjarstjóri á Húsavík, að það hafi verið mat stjómarinnar að það hafi verið eðlileg máls- meðferð aó segja forstöðumannin- um upp störfum og ekki hafi verið um annað að ræða en grípa til þeirra ráða. Forstöðumaðurinn hafði veitt bókasafninu forstöðu í þrjú ár. Nýr forstöðumaður hefur ekki verið ráðinn. KK

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.