Dagur - 24.05.1995, Blaðsíða 4

Dagur - 24.05.1995, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - Miðvikudagur 24. maí 1995 ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI, SÍMI: 96-24222 ÁSKRIFT KR. M. VSK. 1500 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125 RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.), ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON AÐRIR BLAÐAMENN: GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 96-41585, fax 96-42285), KRISTÍN LINDA JÓNSDÓTTIR, SÆVAR HREIÐARSSON (íþróttir). LJÓSMYNDARI: ROBYN REDMAN PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 96-27639 LEIÐARI----------------------- Vel heppnuð sameining Þann 1. desember 1992 sameinuðust sex lífeyr- issjóðir á Norðurlandi og úr varð Lífeyrissjóður Norðurlands, sem nú er einn af sterkari lífeyris- sjóðum á landinu. Aðalskrifstofa sjóðsins er á Akureyri en einnig eru svæðisskrifstofur á Húsa- vík, Blönduósi og Sauðárkróki. Árið 1994 var fyrsta heila rekstrarár Lífeyris- sjóðs Norðurlands og það er því fyrst nú sem menn geta metið að einhverju leyti hvernig til hefur tekist. Á aðalfundi Lífeyrissjóðs Norður- lands á Akureyri um liðna helgi kom fram að staða sjóðsins er mjög sterk og sameiningin hafi gengið betur en menn hafi þorað að vona. Um þetta segir Kári Arnór Kárason, framkvæmda- stjóri Lífeyrissjóðs Norðurlands, í Degi í gær: „Ég tel að þau markmið sem við settum okkur við sameininguna hafi gengið eftir. Við spörum 21 milljón króna á ári, sem eru 50% lækkun, í rekstrarkostnaði og það var eitt af markmiðun- um við sameiningu. Við höfum meiri möguleika á góðri ávöxtun á okkar fjármunum og áhættu- dreifingin er sömuleiðis meiri. Á síðasta ári skil- uðum við 7,3% raunávöxtun. Ég tel þegar á heildina er litið að sameining lífeyrissjóðanna hafi heppnast vel og skilað árangri fyrr en við áttum von á. Rekstrarsparnaður er meiri en við áttum von á." Þessi orð framkvæmdastjórans eru allrar at- hygli verð. Rekstrarkostnaður við marga litlu líf- eyrissjóðina var orðinn gríðarlegur og ekki síst þess vegna var tekin ákvörðun um að sameina þá. Menn trúðu því að unnt væri að ná fram verulegum sparnaði og það ánægjulega er að það hefur tekist og vel það. Þetta er mikilvægt atriði, nokkuð sem gefur efasemdarmönnunum langt nef. Sterkur lífeyrissjóður hlýtur að ná mun betri kjörum á fjármálamarkaði en þeir veikburða og það hefur gerst. Góð raunávöxtun Lífeyrissjóðs Norðurlands á síðasta ári, 7,3%, segir allt sem segja þarf. Mörgum fannst í mikið ráðist þegar ákveðið var að sameina lífeyrissjóði á Norðurlandi. Nið- urstaða síðasta árs sýnir svart á hvítu að sam- einingin hefur heppnast vel og hún hefur verið gæfuspor. Viðamikil breyting á símanúmerakerfínu tekur gildi laugardaginn 3. júní nk: Öll símanúmer verða sjö stafa - mikilvægt að breyta nafngjöfum faxtækja - einnig breyting á farsímakerfinu, grænum númerum og símatorgum Þaö hefur vart fariö framhjá nokkrum manni aö halin er mikil auglýsingaherferö á vegum Pósts og síma í ljósvakamiðlum og dag- blöðum þar sern kynnt er viöa- rnikil breyting sem á sér staö á símanúmcrakcrfi landsmanna laugardaginn 3. júní nk. þegar öll símanúmcr landsins veröa sjö stafa. Þó aö þessi breyting sé út af fyrir sig ekki flókin er ástæöa til þess aó gera ítarlcga grein fyrir í hverju hún er fólgin. Dagur lcitaöi upplýsinga hjá Hrefnu Ingólfs- dóttur, upplýsingafulltrúa Pósts og síma í Reykjavík, í gær. ÖII númer verða sjö stafa Viðamcsta brcytingin á símanúm- erakerfinu felst í því aó frá og með 3. júní nk. veróa öll sínta- núnier á landinu sjö stafa og um leið falla í burtu núgildandi svæö- isnúmer. I raun má segja aö svæö- isnúmerin, í flestum tilfellum, séu fclld inn í nýju númerin. Sem dæmi er núntcr dagblaðsins Dags á Akureyri nú 96-24222 en eftir breytinguna veröur númeriö 4624222. Meö öörum orðum; svæðisnúmeriö fellur burtu og í staö þess kemur 46 fyrir framan sjálft númerið. Aó sama skapi bætist 45 framan vió símanúmer á Norðurlandi vestra og svæðisnúm- criö 95 fellur burtu. Tekiö skal fram að ný númer gilda jafnt inn- an núgildandi númeraumdæma sem milli þeirra. í tengslum við útgáfu nýrrar símaskrár Hrefna Ingólfsdóttir segir aó ekki sé tilviljun aö ráöist sé í þessa viöamiklu breytingu á þcssum tímapunkti, ný símaskrá sé aö korna út og bcst hafi þótt að síma- númerabrcytingin yrði jafnhlióa. Hrefna segir að með því að taka upp sjö stafa símanúmera- kerfi sé verið aó skapa rými fyrir fjölgun númera. Þá segir hún að í nágrannalöndunum hafi sú þróun átt sér staö á undanförnum árum aó svæðisnúmerin séu tekin inn í símanúmerin. Þaó sama sé að eiga sér staö hér á landi. Breytingin tekur einnig til bíla- símanna, núrner þeirra verða einnig sjö stafa. Hins vegar brcyt- ast þau númer sem byrja á 0, t.d. upplýsingar og talsambönd við út- lönd, ckki jafnhliða símanúmera- brcytingunni 3. júní. Þessi númer breytast hins vegar 1. október nk. Gömlu númerin falla úr gildi 3. júní Hrefna segir aó þctta sé ein mesta kerfisbreyting sem Póstur og sími hafi ráðist í á síðari árum og hún hafi lengi verið í undirbúningi. Hún segir aó þetta sé töluvert kostnaðarsöm aðgerð, til dæmis verði umtalsverðum fjárntunum variö til kynningar á breytingunni frarn til 3. júní. Vert er að ítreka að frá og rneð 3. júní falla gömlu símanúmerin úr gildi. Gleymi fólk hins vegar breytingunni, sent hætt er við að margir geri, og slái á gamla góða númerið, er engin ástæóa til að örvænta því símsvari kemur sím- notendum til hjálpar og leiðbeinir þcim inn á rétta braut. Hrefna seg- ir að þessir sínisvarar verði gjald- frjálsir og því hafi það ekki í för með sér aukakostnað fyrir símnot- endur að hlusta á upplýsingar sem þeir veita. Breytið nafngjöfum faxtækjanna! Ástæða er til að taka það skýrt fram að eigendur bréfsíma (fax- tækja) verða aó breyta nafngjafa þeirra áður en númerabrcytingin á sér stað 3. júní nk. Verði það ekki gert er hætta á því að blöð skili sér ekki í gegnum viókomandi bréf- síma. Hrefna segir að í flestum til- felluni séu greinargóðar upplýs- ingar unt breytingar á nafngjöfunt í leiðbeiningabæklingum með bréfsímum, en einnig sé liægt að fá upplýsingar hjá söluumboðum og auk þess sé möguleiki að fá símvirkja gegn gjaldi til þess að setja nýja nafngjafa inn á bréfsím- ana. Breyting á grænum númer- um og símatorgsnúmerum Breyting verður einnig á grænum númerum og símatorgsnúmerum sem nú byrja öll á 99. Frá og með 3. júní byrja grænu númerin á 800 og símatorgsnúmerin á 900. Kynningarþátturinn mikilvægur „Auðvitað er þetta viðamikil breyting en við erum bjartsýn á að hún gangi vel. Ég vona að breyt- ingin hafi ekki mjög mikil óþæg- indi í för með sér fyrir símnotend- ur og við leggjum mikla áherslu á kynningarþáttinn í fjölmiðlum á Hagsmunaaðilar í ferðaþjónustu á Akureyri boða til fundar á Stáss- inu nk. föstudagsmorgun kl. 8.30 þar sem gerð verður upp páskahá- tíðin á Akureyri og næstu skref rædd. Á fundinum mun Magnús Már Þorvaldsson, sem var starfsmaöur hagsmunaaóila í ferðaþjónustu í sambandi við framkvæmd „Páska á Akureyri“, gcra grein fyrir hvernig til tókst. ívar Sigmunds- son, forstööumaður Skíðastaða og tjaldsvæðis Akureyrarbæjar, met- ur hverju „Páskar á Akureyri" og hátíðin um síðustu verslunar- mannahelgi hafa skilað fyrir Ak- ureyrarbæ og ferðaþjónustuaðila í bænum. næstu dögum. Við hvetjum fólk til þess að kynna sér vel í hvcrju þessar breytingar felast áður en til þcirra kemur,“ sagói Hrcfna. óþh Á fundinunt nk. föstudag, sem er opinn öllum áhugamönnum um feróaþjónustu á Akureyri, verður rætt um framtíðina, fyrst og fremst þó komandi suntar, en í ljósi þess hversu vel hefur til tek- ist er fastlega gert ráð fyrir fram- haldi á komandi surnri. óþh Leiðrétting I pistlinum Skólamál í Degi í gær var leiðinleg prentvilla. Þar var sagt að Síðuskóli á Akureyri ætli aó selja vöfflukaffió á kr. 1.300. Það er að sjálfsögðu rangt. Rétt veró á kaffinu er kr. 300. Grill- pylsumar verða seldar á kr. 100 og safi á kr. 50. Símanúmera- breytingin - dæmi um breytingu nokkurra símanúmera Er nú Veróur Vestfirðir 94-5000 4565000 Norðl. vestra 95-35100 4535100 Noról. eystra 96-30600 4630600 Austurland 97-11100 4711100 Suóurland 98-21100 4821100 Reykjavík 91-26000 5526000 Reykjavík 91-636000 5636000 Reykjanes 92-15000 4215000 Vesturland 93-11000 4311000 Hagsmunaaðilar í ferðaþjónustu á Akureyri: Ræða málin á fundi nk. föstudag

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.