Dagur - 24.05.1995, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 24. maí 1995 - DAGUR - 5
Söngtónleikar á Raufarhöíin
Kirkjukór Raufarhafnar efndi til
tónleika í Hnitbjörgum, félags-
heimilinu á Raufarhöfn, miðviku-
daginn 17. maí. Söngstjóri kórsins
er Stefanía Sigurgeirsdóttir og lék
hún líka undir söng kórsins í
nokkrum lögum. Einsöngvari á
tónleikunum var Margrét Bóas-
dóttir. Aóalundirleikari á tónleik-
unum á píanó var Wolfgang
Trezsch og á gítar lék Snorri
Kristjánsson.
Sópranraddir Kirkjukórs Rauf-
arhafnar eru margar vel bjartar, ná
vel hæö og gefa yfirleitt fallegan
tón. Svo var til dæmis í lögunum
Þýtur í skógum eftir J. Sibelius
við ljóð Axels Guðmundssonar og
Nú sefur jörðin eftir Þorvald
Blöndal vió ljóð Davíðs Stefáns-
sonar. Fyrir kemur, að röddin
verður dálítið gjallandi og bar
hvað mest á því í laginu Þú hljóða
nótt eftir Joh. Brahms vió ljóð
Freysteins Gunnarssonar, en kom
fram nokkru víðar. Altinn er þétt-
ur og fyllir ágætlega. Hann fellur
almennt vcl í hljóminn og myndar
góða samstæðu með sópranrödd-
um. Þessa naut vel í ýmsum lög-
um, svo sem í Eg elska hafið, sem
sungió var í útsetningu eftir Jakob
Tryggvason og vió texta í þýðingu
Guómundar Guðmundssonar og
Við tvö og blómið, sem er eftir
Sigfús Halldórsson vió ljóð Vil-
hjálms frá Skálholti. Einnig var
víða vel gcrt í lögum, sem kon-
umar sungu einar, einkum í syrpu
laganna Eg vildi aó ung ég væri
rós og Játning, sem bæói eru cftir
Sigfús Halldórsson, en ljóðið við
fyrra lagið eftir Þorstein Ó. Steph-
ensen og hiö síðara eftir Tómas
Guðmundsson, sem voru vcl lip-
urlcga flutt.
Tenórar falla almennt vel í
TÓNLIST
HAUKUR
ÁGÚSTSSON
SKRIFAR
hljóm, og gerðu allvel. Röddina
skortir þó fyllingu, eins og fram
kom, þar sem hún hafði sóló-
strófur, svo sem í upphafslagi tón-
leikanna: Vel er mætt til vinafund-
ar cftir Wetterling við ljóð eftir
Jón Trausta. Bassinn gaf iðulcga
góðan undirtón, svo sem í ýmsum
þeim iögum, sem þcgar hafa Vcrið
nefnd og cinnig til dæmis í Nú yf-
ir hciðið, sem er þýskt þjóðlag við
ljóð cl'tir Pál Jónsson og Svalan
mín cftir Björgu Björnsdóttur við
ljóð Axcls Thorsteinssonar. Bæði
þessi lög tókust vel í öllum kóm-
um. Fyrir kom hins vegar nokkuð
tíðum, að bassinn var hrjúfur og
féll ekki sern skyldi í samfellu
kórsins. Karlar sungu einir lagið
Logn og blíða cftir Bellman við
ljóð Björgvins Jörgenssonar og
kom þar nokkuð vel í ljós, hve
æskilegt hefði verió að hafa
nokkrar karlaraddir í viðbót.
Kirkjukór Raufarhafnar er efni-
iegt hljóðfæri, sem íbúar hafa
fulla ástæðu til að vera stoltir af.
Hann má þó bæta og væri æski-
legt í því sambandi að auka nokk-
uð við fjölda kórfélaga, einkum í
karlaröddum.
Margrét Bóasdóttir gerði víða
fallega á þessum tónleikum. Svo
var til dæmis í einsöng hennar í
laginu Allsherjar Drottinn, þar
sem kórinn var reyndar heldur í
sterkasta lagi. Skemmtilegast
tókst Margréti í lögum eftir Sigfús
Halldórsson, en hún flutti Við tvö
og blómið með kómum og söng
ein lögin Er sumarið kom yfir sæ-
inn og Tondeleyo og virtist njóta
sín sérlega í ljúflegri og leikrænni
túlkun.
Undirleikur WolfgangsTrezsch
var víðast miklu of hógvær og
mátti iðulega heita, að hann hyrll
sem næst gersamlega í kórinn.
Hann gaf þó kórnum styrk, sem
meðal annars kom fram í því, að
lítið var um það, að hljómur væri
ckki hreinn. Gítarlcikur Snorra
Kristjánssonar heföi mátt vera ör-
uggari.
Undirtektir áheyrenda voru
ágætar og virtust þeir lítt teknir að
lýjast á tónleikunum, sem voru þó
mjög efnismiklir. Vel yfir tuttugu
lög voru á söngskránni og mikið
af talsvcrt metnaðarfullu efni, scm
lofar góðu um framhaldið.
Lögmannshlíðarsókn
Aðalsafnaðar-
fundur
Lögmannshlíðarsóknar verður haldinn í Glerár-
kirkju miðvikudaginn 24. maí kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Sóknarnefnd.
Lif og fjör
Dansleikur
verður haldinn í Víkurröst á Dalvík laugar-
daginn 27. maí nk. frá kl. 22-03.
Létt og laggott leikur fyrir dansi.
Sætaferðir frá Alþýðuhúsinu á Akureyri kl. 21.30.
Höfum góða skapið með okfeur á síðasta ball
fyrir sumarfrí.
Stjóm skemmtiklúbbsins Líf og fjör.
Fermingarböm sunmi-
daginn 28. maí
Húsavíkurkirkja
kl. 10.30
Benjamín Rúnar horsteinsson,
Lyngbrckku 14.
Brynjar Smárason, Laugarholti 12.
Guðlaugur Rúnar Jónsson,
Heiöargcrði 7.
Guðmundur Helgi Melberg Loftsson,
Grundargarói 4.
Gunnar Illugi Sigurðsson, Stórhóli 77.
Haukur Þóróarson, Stóragarói 4.
Kristján Breiðfjörð Svavarsson,
Garðarsbraut 13.
Kristján Friðrik Sigurðsson,
Uppsalavcgi 22.
Sigmar Ingi Ingólfsson, Brúnagerði 7.
Ævar Omarsson, Garóarsbraut 69.
Elfa Birkisdóttir, Höfóavegi 26.
Guðný Ósk Agnarsdóttir,
Lyngbrekku 15.
Guðný Þóra Guðmundsdóttir,
Miðgarði I.
Guðrún Sigríður Grétarsdóttir,
Asgarðsvegi 13.
Helga Björg Pálmadóttir, Brúnagerði 2.
Hulda Hallgrímsdóttir, Árholti 6.
Ingunn Ólína Aðalsteinsdóttir,
Baughóli 33.
Jóhanna Gísladóttir, Litlagerói 1.
Óiaf'sfjarðarkirkja.
Húsavíkurkirkja.
Jóna Bima Óskarsdóttir, Stórhóli 73.
Kristín Huld Magnúsdóttir,
Höfðavcgi 16.
Kristjana María Kristjánsdóttir,
Vallholtsvegi 9.
Lilja Hrund Másdóttir, Heiðargerði 19.
Rakei Dögg Haflióadóttir,
Garðarsbraut 53.
Sigurbjörg Stcfánsdóttir, Sólbrekku 4.
✓
Olafsfjarðarkirkja
kl. 10.30
Amar Óli Jónsson, Aóalgötu 28.
Atli Elvar Bjömsson, Hlíöarvegi 18.
Baldur Ævar Baldursson, Ólafsvcgi 38.
Birkir Guðnason, Hrannarbyggð 9.
Björk Óladóttir, Kirkjuvegi 3.
Diljá Helgadóttir, Aðalgötu 28.
Eydís Ósk Víðisdóttir, Ægisbyggð 2.
Fjóla Björk Karlsdóttir, Túngötu 13.
Guðmundur Ámi Hannesson,
Bylgjubyggó 43.
Heiöa Kristín Víðisdóttir, Ólafsvegi 30.
Jóhann Gunnar Jónsson, Bylgjubyggð 7.
Karen Sif Róbertsdóttir,
Bylgjubyggó 33.
Marsibil Siguröardóttir, Kirkjuvegi 4.
Sigurveig Petra Bjömsdóttir,
Aóalgötu 3.