Dagur - 10.06.1995, Blaðsíða 5
Laugardagur 10. júní 1995 - DAGUR - 5
Það er leikur að
læra að synda
- heimsókn í Akureyrarlaug
Það var hlýtt og notalegt bæði
vatnið og loftið í innisundlaug-
inni á Akureyri þegar blaða-
maður Dags heimsótti krakka,
sem voru á sundnámskeiði í Ak-
ureyrarlauginni. Hópur hressra
sex og sjö ára krakka fram-
kvæmdi hverja æfinguna af
annarri undir handleiðslu Mar-
grétar Rögnvaldsdóttur, íþrótta-
kennara og sérkennara.
„Ég lærói þessa kennsluaðferð,
að kenna börnum grunnatriði fyrir
sundnám í gegnum leik án kúts og
korks, á Laugavatni fyrir um það
bil 30 árum síðan en í þá daga
þótti þessi kennsluaðferð nú ekki
im,“ sagði Margrét.
En nú hefur þessi aðferð að
sundkennarinn sé ofan í lauginni
hjá bömunum og leiði þau fyrst í
gegnum ákveðna aðlögum við
vatnið áður en þau fara að læra
sundtökin náó vinsældum.
„Börnunum er kennt að hreyfa
sig í vatni í gegnum leik og gerðar
ýmiskonar æfingar í sambandi við
öndunartækni. Svo förum við að
kenna þeim sundtökin og byrjum
á baksundinu því það er auðveld-
ara að fljóta á bakinu. Mörg
bamanna eru vön því að hafa arm-
hringi og þurfa að læra að hreyfa
sig án þeirra og koma undir sig
fótunum í lauginni,“ sagði Mar-
grét. KLJ
Mörg börn cru vön armhringjum og það krefst nýrrar tæki að ganga í vatn-
inu án þcss að hafa þá til að treysta á.
Snorri Hauksson, sonur listamanns- Tveir af gestum á sýningunni virða vcrk Hauks fyrir sér. Myndir: Robyn
ins, flytur ávarp við opnun sýning-
arinnar.
Opnun sýningar á verkum
Hauks Stefanssonar
I>essa dagana stendur yfir sýn-
ing í Listasafninu á Akureyri á
verkum Hauks Stefánssonar.
Þessi sýning er liður í kynning-
arstarfi safnsins á norðlenskum
iistamönnum. Haukur lést árið
1953 en á Akureyri var hann
um 20 ára skeið og þann tíma
var hann forystumaður frí-
stundamálara í bænum og leik-
tjaldamálari, auk þess að
skreyta kirkjur, skóla og sam-
komuhús.
Formleg opnun sýningar á
verkum Hauks Stefánssonar var í
Listasafninu á Akureyri um síð-
ustu helgi og jafnfram opnuninni
kom út bók um listamanninn og
verk hans eftir Harald Sigurðsson.
Utgefandi bókarinnar var fjöl-
skylda Hauks Stefánssonar.
Meðfylgjandi myndir voru teknar
viö opnun sýningarinnar en þess
má geta að hún stendur til 25. júní
næstkomandi. JÓH
Haraldarnir þrír, frá vinstri: Har-
aldur Bcssason sem gerði cnska
þýðingu listaverkabókarinnar um
Hauk Stefánsson, þá Haraidur Sig-
urðsson höfundur bókarinnar og
Haraldur Ingi Haraldsson, for-
stöðumaður Listasafnsins á Akur-
cyri.
1
; 181111111 1
I1|;M
Ásríður Jósefsdóttir, ekkja Hauks Stefánssonar, var við opnun sýningarinn-
ar og hér er hún ásamt Jakobi Björnssyni, bæjarstjóra.
„Allir í gcgnum hringinn.“
Það er ákveðið öryggi í því að haldast í hendur þegar kátir krakkar æfa sig í
því að fara í kaf. Myndir: Robyn
----------------------------------------N
AKUREYRARB/ER
Staða jafnréttis- og fræðslu-
fulltrúa Akureyrarbæjar
er laus til umsóknar
Starfið er tvíþætt, annars vegar er um að ræða
stjórnun, umsjón og skipulagningu fræðslu og end-
urmenntunar starfsmanna og stjórnenda Akureyrar-
bæjar og hins vegar að vinna að framgangi Jafn-
réttisáætlunar Akureyrarbæjar og öðrum jafnréttis-
málum innan bæjarkerfisins og í bæjarfélaginu öllu
skv. lögum um jafnan rétt og jafna stöðu kvenna og
karla.
Krafist er háskólamenntunar, reynslu og þekkingar
á sviði fræðslu- og jafnréttismála svo og reynslu af
stjórnun og skipulagningu.
Umsækjendur þurfa einnig að hafa góða hæfni í
samskiptum, eiga auðvelt með að tjá sig í ræðu og
riti á íslensku og hafa gott vald á ensku og/eða
skandinavísku.
Akureyrarbær hefur haft forystu meðal sveitarfélaga á sviði
jafnréttismála og hlaut fyrstu viðurkenningu Jafnréttisráðs
árið 1992 fyrir vel unnin störf.
Akureyrarbær hóf að starfa samkvæmt sérstakri
jafnréttisáætlun árið 1989 og þar var fyrst ráðinn jafnréttis-
og fræðslufulltrúi 1991. Ný jafnréttisáætlun var samþykkt í
lok árs 1993 og gildir hún til loka árs 1997. Þar er áhersla
lögð á tvíþætt verksvið jafnréttisfulltrúans sem er að vinna
að framgangi áætlunarinnar bæði innan bæjarkerfisins og
gagnvart bæjarbúum.
Akureyrarbær hefur einnig haft forystu í fræðslumálum og er
nú verið að vinna að undirbúningi þriggja ára þróunar-
verkefnis um nám í starfi hjá Akureyrarbæ. í því verkefni
mun jafnréttis- og fræðslufuiltrúi gegna veigamiklu hlutverki.
Hjá Akureyrarbæ starfa hátt á annað þúsund konur og karlar
við fjölbreytt störf. Það er m.a. hlutverk fræðslufulltrúa að
stuðla að því að starfsfólk og stjórnendur geti verið í sífelldri
þróun, sífelldu námi í starfi.
Ráðningin er tímabundin til fjögurra ára.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Akureyrarbæjar
og STAK.
Umsóknarfrestur er til 23. júní n.k.
Umsóknum skal skila til starfsmannastjóra,
Geislagötu 9, 600 Akureyri, á sérstökum eyðublöð-
um sem fást þar.
Nánari upplýsingar hjá jafnréttis- og fræðslufulltrúa
og starfsmannastjóra í síma 462 1000.
Bæjarstjórinn á Akureyri.